Dagur - 25.04.1956, Blaðsíða 4
4
D A G U R
Miðvikudaginn 25. apríl 1956
Með aukinni stórvirkjun fall-
vatna í Noregi, þar sem jafnvel
fleiri fylki fá rafvæðing sína frá
sameiginlegu orkuveri, hefir reynst
nauðsynlegt að stytta hinar löngu
leiðir inn fyrir fjarðarbotna hinna
löngu og djúpu fjarða Vestur-
landsins með því að strengja orku-
taugarnar þvert yfir firði og svo
hátt uppi, að skipgengt sé undir
hverjum þeim farkosti, sem leggur
leið sína um þá. En um suma þess-
ara fjarða fara oft hin miklu er-
lendu ferðamannaskip.
Á síoastliðnu sumri voru t. d.
strengdar þrennar raforkutaugar
yfir þveran Sygnafjörð (Sogne-
fjorden) undan Belaströnd, en þar
mun fjörðurinn vera um 4 km.
breiður. Alls er fjörðurinn 180 km.
iangur og geysidjúpur, allt að 1250
:m. þar sem hann er dýpstur.
Skömmu fyrir jól voru strengdar
þrennar orkutaugar yfir Hjörund-
Heímsókn frá Noregi
Leiðtogi Hjálpræðishersins í
Noregi, Islandi og Færeyjum,
kommandör Em. Sundin og frú
hans, heimsækja Island og dvelja
hér á Akureyri dagana 2. og 3.
maí.
Kommandör Sundin er af sænsk-
um ættum, en hefur starfað sem
Hjálpræðishersforingi í mörgum
löndum á starfsferli sínum.
Hann tók við stöðu sinni sem
leiðtogi Hjálpræðishersins í Nor-
egi, Islandi og Færeyjum fyrir
hálfu öðru ári síðan og kom þá frá
Danmörku, en þar hafði hann haft
stjórn Hersins á hendi um margra
ára skeið.
Á hinum langa starfsferli sínum
sem Hjálpræðishersforingi hefur
kommandör Sundin kynnt sig sem
góðan fulltrúa þeirra, sem skópu
Hjálpræðisherinn.
Um enga málamiðlun er að ræða
hjá honum, þegar um sannindi
fagnaðarerindisins er að ræða og
hann hefur heldur aldrei verið
hræddur við það að fara nýjar
leiðir, þegar um boðun fagnaðar-
erindisins er að ræða.
Við nefnum aðeins trúboð hans
é hinnum stærstu danssölum
Kaupmannahafnar og Oslóar.
Hann er einnig kunnur fyrir
hinn einlæga áhuga sinn á félags-
og líknarmálum.
Þeir, sem fá tækifæri til þess að
hlusta á kommandörinn, þegar
hann heimsækir ísland, munu
komast að raun um það, að hann
er yfirlætislaus, kristinn sæmdar-
maður, sem lítur björtum augum
á lífið.
Frú kommandör Sundin er einn-
ig af sænskum ættum.
Með einlægni sinni og ljúf-
mennsku veitist henni létt að
kynnast fólki og hefur hún áunn-
ið sér miklar vinsældir, hvar sem
hún hefur komið.
Frúin er um þessar mundir for-
seti Heimilasambands Hjálpræð-
'íshersins í fyrrnefndum löndum.
(Frá Hjálpræðishernum.)
fjörð á Sunnmæri, skammt fyrir
innan Álasund. Er fjörður þessi,
næst Geirangursfirði, annar hrika-
fegursti fjörður Sunnmæra, 34 km.
langur og mjög djúpur, og 2700 m.
breiður, þar sem orkutaugarnar eru
strengdar yfirum. Hafa allhá og
ramger „möstur“ verið reist með
20 m. millibili á klettasyllum báð-
um megin fjarðarins, um 350 m.
yfir sjávarborð. Er þarna mjög
brattlent og erfið aðstaða á marga
vegu. Varð m. a. að höggva rásir
í skóginn fyrir orkutaugunum,
báðum megin fjarðar.
Áfengissala
fyrsta ársfjórðung 1956
(1. janúar til 31. marz).
Selt í og frá Reykjavík kr.
20.444.760.00.
Selt í og frá Siglufirði kr.
1.019.972.00.
Selt í og frá Seyðisfirði kr.
319.024.00.
Samtals kr. 21.783.756.00.
Arið 1955 nam salan á sama
tíma:
í og frá Reykjavík kr.
16.049.421.00.
í og frá Siglufirði kr.
1.035.387.00.
í og frá Seyðisfirði kr.
261.613.00.
Samtals kr. 17.346.421.00.
Áfengi til veitingahúsa selt frá
aðalskrifstofu 1. janúar til 31.
marz 1956 kr. 1.091.122.00.
Allveruleg hækkun varð á
áfengi í maí 1955.
(Heimild: Áfengisverzlun ríkis-
ins.)
Afengisráðunauturirm.
Reykjavik, 12. apríl 1956.
Brynfeiíur Tobiasson.
Nýtt félag
Á sunnudaginn var, var stofnað
nýtt félag á Akureyri. Heitir það
Menningar- og friðarsamtök ís-
lenzkra kvenna — Akureyrardeild.
Markmið félagsins er að sameina
allar konur, án tillits til stjórn-
málaskoðana, til baráttu:
a) Fyrir alheimsfirði.
b) Fyrir öryggi og framtíð barn-
anna.
c) Fyrir vináttu og samvinnu
kvenna í öllum löndum.
d) Fyrir hernaðarlegu hlutleysi
íslands.
e) Gegn hvers konar hernámi og
þeim hættulegu áhrifum, sem seta
erlends herliðs hefur á æskulýð
landsins og menningu þjóðarinnar.
Stjórn félagsins skipa: Formað-
ur Sigríður Þorsteinsdóttir, vara-
formaður Theódóra Þórðardóttir,
ritari Þórný Þórarinsdóttir, féhirð-
ir Jóhanna Tryggvadóttir og með-
stjórnandi Guðbjörg Bjarman.
Rafljósatauga hafa reynst vel
sem útvarps-loftnet.
I Sygnafirði norðanverðum voru
hlustunarskilyrði útvarpsnotenda
allerfið um langt skeið, en hafa
nú batnað allmjög, síðan gerð var
sú tilraun að útvarpa um ljósa-
leiðslur sveitanna. Virðist þetta
ætla að efa góða raun. I fyrstu
kom að visu i ljós, að sendistöðin
þoldi ekki spennubreytingarnar
fyllilega, og olli það nokkrum
vandræðum. En síðan var straum-
beryti skotið inn í kerfið, svo að
sendistöðin fékk jafna spennu. Á
Belaströnd deyfa orkutaugarnar
yfir fjörðinn útvarpssendinguna að
nokkru leyti ,en þó ekki að veru-
legu ráði.
’ > 't'ii ! 7 ■ g: s
Forsetakjör og friðartal.
Síðan Eisenhower gaf kost á sér
til endurkjörs nú fyrir skömmu,
hefur friðarsóknin hafizt á ný hjá
rússneskum ráðamönnum. Þeir
töluðu ósköpin öll um frið á Genf-
arfundinum, en hættu því fljótt á
eftir. Nú er talið, að friðaráróður-
inn að austan verði meiri en
nokkru sinni áður.
Það leikur ekki vafi á því, að
Eisenhower er þeim Bulganin og
Khrushchev að skapi. Þeir álíta
hann vera friðarins mann, ólíkan
öðrum vestrænum stjórnmálafor-
ingjum, og þeir geti treyst því, að
hann muni aldrei ráðast gegn
þeim með vopnum.
Þeir ræða um heimsókn hans til
Moskvu í stríðslokin og vináttu
hans og Zhukovs. Þeir kynntust
honum sjálfir á Genfarfundinum
og virðast hafa fengið traust á
honum.
Þegar Eisenhower veiktist af
hjartasjúkdómnum, töldu Rúgsar
— og reyndar margir aðrir — að
útilokað væri, að hann yrði í
kjöri aftur. Þeir óttuðust, að
Knowland öldungadeildarmaður,
sem þeir telja fjandsamlegan í
garð Sovétríkjanna, yrði ef til vill
eftirmaður Eisenhowers.
En hvað um það, þá kom a. m.
k. annað hljóð í strokkinn, og
blíðubrosin frá Genf sáust ekki
lengur. Khrushcheev og Bulganin
fóru í heimsókn til Indlands og
Burma og notuðu þar hvert tæki-
íjeri til þess að svívirða Vestur-
veldin. Þeir tóku að senda Égypt-
um vopn og reyndu að blása að
glóðum sundrungar og haturs í
löndunum við Miðjarðarhaf. Þeir
gortuðu af hernaðarmætti Sovét-
þjóðanna og kváðu hann meiri en
Vesturveldanna.
En er Eisenhower tók að batna
og líkur orðnar fyrir því, að hann
sæti að völdum í 5 ár enn, ventu
Bulganin og Khrushcchev Ikvæði
sínu í kross og tóku að kyrja
Genfarsönginn, og nú, þegar Eis-
enhower hefur tilkynnt framboð
sitt, hefur friðaráróðurinn magnast
um allan helming.
—o—
Og svo var það Færeyingurinn,
sem kom inn á matstofu í Kaup-
mannahöfn og sagði við þjóninn:
„Jeg vil have meget at æde, for
jeg er meget svanger.“
S. Þ. hjálpa íötliiðum
Sameinuðu þjóðiraar hafa komið á fót stofnun í Bombay í
Indlandi, sem á að liafa það lilutverk tneð höndum að kenna
fötluðu fólki. Hér sést stúlka vera að kenna fötluðum manni.
er komið aftur.
ÞIRRKLÐ RLÁBER í pökkum
FJALLAGRÖS stór og góð
S0YABAUNÍR
KALDIR BÚÐINGAR, margar tegundir
HRÍSGRJÓNASÚFA með síipukrafti
kr. 1.65 pakkinn.
Kaupfélag Eyfirðinga.
Nýlcnduvörudcild og útibúin.