Dagur - 25.04.1956, Blaðsíða 7

Dagur - 25.04.1956, Blaðsíða 7
Miðvikudaginn 25. apríl 1956 D A G U R 7 Mikill vandi steðjar nú að íslenzku þjóðinni. Höfuðatvinnuvegum landsmanna er lialdið uppi með beinum styrkjum aí opinberu i'é og gífurlegu álagi á neyzluvörur almennings. Þjóðin býr við rönrmustu gjaldeyrishöft, þótt frelsi sé í orði. Skortur á gjaldeyri tiþkaupa á brýnustu nauð- synjum. Innflutningi hefur að verulegti leyti verið lialdið uppi með gjaldeyrislántökum. Þrátt fyrir vaxandi framleiðsiu, greiða siilu útflutningsafurða og miklar gjaldeyristekjur vegna vamarliðsframkvæmda, safnar þjóðin nú hraðvaxandi skuldum erlendis. Sparnaður fer þverrandi, en lánsfjárskortur vex óðum og stefn- ir í bráða hættu nauðsynlegustu framkvæmdum. Enn býr fjöldi fólks við óhæft húsnæði og ok- urleigu, en gróðabrall með húsnæði, þ. á. m. ný- byggingar fer sívaxandi. Kauphækkanir launastétta verða að litiu eða engu vegna verðltækkana. En milliliðir og margs konar braskarar safna of Ijár í skjóli hins sjúka fjárhagskerfis. Við þetta allt sarnan bætist, að framundan eru verðhækkanir innanlands, sem auka ínunu lram- færslu- og framleiðslukostnað, svo að enn stefnir aðbeinni stöðvun framleiðslunnar. Meginorsök þess ,að þannig er komið, er, að ekki hefur verið liægt að stjórna landinu án þátt- töku annað livort íhaldsafla eða kommúnista. Þótt lýðræðissinnaðir umbótamenn hafi haft kjörfylgi til þess að mynda samhentan meirihluta á Alþingi, hefur sundrung þeirra \áð framboð tryggt öfgaflokkum úrslitaáhrif á stjórnarfarið. Nú verður að brjóta blað i íslenzkum stjórn- málum. Ef ekki verður gripið fast í taumana, mun skapast algjört öngþveiti í efnahags- og fjár- málalífi þjóðarinnar. Afþví hlytist stöðvun fram- kvæmda, atvinnuleysi og upplausn, sem reynast mundi gróðamönnum og einræðissinnum hinn bezti jarðvegur lyrir stefnu sína. Þess vegna ber nú brýna nauðsyn til þcs.s, að tekin sé upp ný stefna í efnahagsmálum þjóðar- innar. Unr hana eiga allir frjálslyndir umbóta- menn að sameinast. Allar vinnustéttir, hvort sem þær starfa á landi eða við sjó, í bæ eða sveit ,eiga sameiginlegra hasrsmuna að gæta. Þær eru mikil! meirihkiti þjóðarinnar. Ef þær sameinast, er það tryggt. að þjóðínálunum verður stýrt í þágu þeirra. Kjarni þeirrar viðreisnarstefnu, sem nú "er nauðsynleg, hlýtur að vera þessi: Brjóta verður á bak aftur vald milliliða og gróðastétta. Tryggja verður öllu vjnnandi fólki fullan af- rakstur þess, sem það skapar með vinnu sinni. Fá verður framleiðslustéttunum örugga að- stöðu til þess að ganga úr skugga um. að þær fái sannvirði þess, sem þær afla. M ALEFN AS AMNIN GUR Með híiðsjón af þessum staðreyndum hafa Al- þýðuflokkurinn, og Framsóknarflokkurinn kom- ið sérsaman um.eftirfarandi málefnasamning, og ákveðið að efna til algers kosningabandalags í öllum Kjörátémum' til þess að tryggja meirihluta á Alþingi fyrir framkvæmd hans. G R lí N D V ÁLLARATRÍÐI 1. Sámstarfi verði komið á milli ríkisstjómar og samtaka verkalýðs og launþega, bænda og annarra framleiðenda um meginatriði kaup- gjalds- og verðlagsmála. Markmið þessa sam- starfs skal vera að efla alvinnuvegi lands- manna, tryggja stöðuga atvinnu og heilbrigt fjármálakerfi. 2. Taka skal upp eftirlit með öllu verðlagi í landinu. Stefna skal að því, að ekki þurfi að beita innflutningshöftum. Haft skal eftirlit með fjárfestingu til að stuðla að jafnvægi milli landshluta og jafnvægi í efnahagsmál- um. 3. Tryggja skal hallalausan ríkisbúskap. 4. Bankakerfið skal endurskoðað, m. a. með það fyrir augum að koma í veg fyrir pólitíska mis- notkun bankanna. Seðlabankinn skal settur undir sérstaka stjórn, og marki hann heildar- stefnu bankanna, og beini fjármagninu að framleiðsluatvinnuvegunum og öðrurn þjóð- nýtum framkvæmdum. 5. Starfræksla þeirra fyrirtækja, er vinna úr sjávarafla landsmanna, skal endurskipulögð með löggjöf í því skyni, að sjómönnum og út- vegsmönnum verði tryggt sannvirði aflans. Fulltrúar ríkisvaldsins ákveði í samráði við fulltrúa sjómanna, útvegsmanna og fisk- vinnslustöðva, lágmarksverð á fiski, sem öll- um fiskvinnsslustöðvum sé skylt að greiða. Stefnt sé að því, að fiskvinnslustöðvar séu reknar í sem nánustum tengslunt við útgerð- ina og í þjónustu hennar. 6. Ú tílutningsverzlun með sjávarafurðir skal endurskipulögð með löggjöf í því skyni, að markaðsskilyrði nýtist sem bezt og sjómönn- 2. um og útvegsmönnum verði tryggt rétt verð. I yfirstjórn útflutningsverzlunarinnar eigi sæti fulltrúar frá ríkisstjórn, sjómönnum, út- 3. vegsmönnunt og fiskvinnslustöðvum. Þeir að- ilar einir, sem ríkisstjórnin löggildir, sktilú annast útflutning sjávarafurða. Stjórnin skal geta sett það skilvrði fyrir löggildingu, að í yfirstjórn útflutningsfyrirtækis eigi sæti full- trúar frá ríkisstjóm, sjómönnum, útvegs- mönnum og fiskvinnslustöðvum. 7. Þjóðhagsáætlun skal samin árlega. FRAMFAB4ÁÆTLLN í. trausti þess, að takast megi að ráða bót á vandamálum efnahagslífsins eftir framangreind- um leiðum og mynda þannig grundvöll að far- sælli umbótastefnu hafa flokkarnir orðið ásáttir um eftirfarandi framfaraáætlun. Bætt tækni. og jaínvægi í byggð landsins 1. Gert verði markvisst átak til J)ess að bæta skipulagshætti og auka tækni í framleiðslu og yörudreifingu. 2. Afla skal nýrra framleiðslutækja, einkum til þeirra staða, þar sem þau nú skortir. 3. Komið verði á fót nýjum lánasjóði, er veiti lán til að vinna að jafnvægi í byggð landsins. Aukin rafvæðing 1. Hraða skal framkvæmd áætlunarinnar um rafvæðingu dreifbýlisins. 2. Hafizt skal handa um framhaldsvirkjun Sogsins. Efling landbiinaðar og aukið lánsfé til framkvæmda 1. Áherzla skal lögð á að efla stofnlánadeildir Búnaðarbankans og gera Jreim kleift að auka lán til ræktunar, bygginga og fyrirtækja í þágu landbúnaðarins. Koma skal upp við Búnaðarbankann sér- stakri lánadeild ,er veiti frumbýlingum hag- stæð lán. Hafin sé veiting bústofnslána. Framleiðendum sauðfjárafurða verði veittur kostur á rekstrarlánum út á afurðir sínar eft- ir hliðstæðum reglum og lánað er út á sjávar- afurðir. 4. Hraða skal ræktun og öðrum nauðsynlegum fiamkvæmdum á þéim býlum, sem skennust eru á veg komin. 5. Bæta skal og útbreiða þær heyverkunarað- fei'ðir, er gera landbrmaðinn sem óháðastan ve.ðurfari. 6. Tilraunastarfsemi í þágu landbúnaðar verði efld og markvisst unnið að því að taka nýja Jrekkingu og tækni í þjónustu hans. Áukniiig útgerðar og bættur aðbímaður sjómanna 1. Staðið verði fast á rétti íslendinga í landhelg- ismálinu og unnið að stækkun friðunarsvæð- isins við strendur landsins. 2. Fjölga skal togurum og vélbátum og áherzla lögð á að efla Fiskveiðasjóð og útvega sem hagkvæmust stofnlán til skipakaupa, bygging- ar hráðfrystLhúsa, saltfiskverkunarstöðva, herzlustöðvá og annarrar fiskvinnslu. 3. Koma skal á fót ríkisútgerð togara til at- vínnújÖfnunar og útgerð bæjarfélaga og fé- lagssamtaka efld. 4. fisk\ innsluaðstaða vélbátaflotans verði bætt og aukin og skilyrði sköpuð sem víðast á Vest- fjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum til móttöku á togaraafla. 5. Útvegsmönnum verði veitt aðstaða til þess að káupa rekstursvörur sínar milliliðalaust. 6. Aðbúnaður sjómanna í verstöðvum verði bættur. 7. Leitað verði að nýjurn fiskimiðum og unnið jað því að teknar verði upp nýjar veiði- og verkunaráðferðir. Möguleikar til úthafssíld- veiða verði kannaðir til hlítar, bæði nreð auknum síkiarrannsóknum og veiðitilraun- um. 8. Efla skal aðstöðu til smíði fiskiskipa innan- lands. Efling stóriðju og iðnaðar 1. Hraða skal byggingu sementsverksmiðju. 2. Rannsökuð verði nú þegar skilyrði til ýrniss konar stóriðju, m. a. saltvinnslu og annarrar efnavinnslu, og hafizt handa um framkvæmd- ir, ef þær eru álitnar arðvænlegar. 3. Annar þjóðhagslega hagnýtur iðnaður verði studdur og efldur svo sem kostur er. Rættar samgöngu í dreifbýli Bæta skal samgöngur í landinu, sérstaklega í þeim héruðum, sem nú eru mest einangruð, m. á. aukningu vegakerfisins, hafnarbótum og fjölg- un flugvalla. Hagstæð verzlun Áherzla skal á það lögð, að gera verzlunina sem hágstæðasta neytendum ag framleiðendum. í þessu skyni skal samvinnuhreyfingunni tryggð nauðsynlég aðstaða til Jress að geta notið sín. F ramleiðslusamvimia Setja skal löggjöf um framleiðslusamvinnufé- lög, og stuðlað að stofnun þeirra og viðgangi. Aukin bygging verkamamiabústaða og samvinnuíbúða I. Gera skal skipulegt átak í húsnæðismálum kaupstaða og kauptúna, m. a. með byggingu verkamannabústaða og bæjar- og samvinnu- íbúða, og með Jrví að beina því fé sem til bygginga er ætlað, til íbúðabygginga við al- menningshæfi. Áherzla skal lögð á að haga (Framhald á 7. síðu.) .

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.