Dagur - 22.09.1956, Side 2
2
D AGUR
Laugardaginn 22. september 1956
Frá sólhýrum sundum
Litið í Politikens Ugeblad. Vikan 26. ág.-l. sept
Leiðarar eru tveir, og er annar
um álit nefndar þeirrar
sem fjalla á um byggingu brúar-
innar yfir Stórabelti. Bygging
brúarinnar' er talin nauðsyn, og
það þótt verð hennar fari upp í
1350 milljónir með hækkandi
verðlagi.
Hinn leiðarinn fjallar um loft-
ferðasamning Dana og Þjóðverja,
sem fyrir dyrum stóð, en nú er
lokið. Höfðu Danar miklar
áhyggjur vegna aðstöðu S.A.S. í
Þýzkalandi, en þýzki ferðamála-
ráðherrann hafði lýst því yfir, að
þýzka flugfélagið Lufthansa
þyrfti meira „Lebensraum“. —
Höfðu Danir illan bifur á orði
þessu og þótti það minna á leið-
inlegan kafla í sögu þýzkra sam-
skipta við aðrar þjóðir.
Samningar tókust, að því er
síðar hefur frétzt, og þurfti
S.A.S. að láta nokkuð af réttind-
um sínum í Þýzkalandi.
Það lá við stórslysi á Kastrup-
flugvelli um daginn, er banda-
risk þrýstiloftsflugvél kom þjót-
andi og settist á völlinn er hol-
lenzk farþegaflugvél ætlaði að
fara að lenda með leyfi flug-
turnsins, en sú bandaríska átti
að fá lendingu næst á eftir. Eitt
augnablik var ekki nema 10
metra bil á milli vélanna, en það
bjargaði, að hollenzki flugmað-
urinn var snarráður og skellti
sér upp aftur.
Á bílauppboði í Höfn ruglaði
kaupandi frá Borgundarhólmi
saman tveim bílanúmerum. Hon-
um var sleginn bíllinn, og hann
settist himinglaður upp í falleg-
an Ford Consul, en þegar hann
ætlaði að fara að borga, komst
allt upp. Hann hafði keypt hand-
ónýtt skrapatól og brast í grát.
' Kornung sænsk stúlka flýði frá
lögreglunni í Svíþjóð til Hafnar
og bjó þar um skeið á hóteli sem
indversk prinscssa og gekk í ind-
verskum klæðum. Allt komst þó
upp um síðir, og stúlkan var send
heim til sín.
Dr. Aage Bohr, prófessor í eðl-
isfræði og kjarnorkuvísindumson
ur Níelsar Bolir, er nýfarinn til
Moskvu í boði Rússa.
Áður hafði rússneskur kjarn-
orkuvísindamaður vei’ið í boði
Dana í Höfn.
Stofnað hefur verið nýtt dansk-
bandarískt kvikmyndatökufélag,
Coogan Nielsen Company, og
ætlar það að reisa miklar bygg-
ingar í Höfn til starfsemi sinnar.
Rúmlega fertug hárgreiðslukona
var myrt til fjár í íbúð sinni í
Höfn. Morðinginn reyndist vera
ungur maður, sem skuldaði 2000
kr. í barnsmeðlög og ætlaði að
koma fjármálum sínum í lag á
þennan hátt. Hann náði þó að-
eins í nokkur hundruð krónur,
og allt komst upp eftir fáa daga.
Vinkona hans var í vitorði með
honum.
Eins og kunnugt er, þá hafa
Danir heimsmet í sjálfsmorðum.
Bandarískur rithöfundur var
fyrir skömmu í skyndiheimsókn
í Danmörku og þóttist hafa fund-
ið orsökina, hún væri öryggið og
hin góðu lífskjör, sem Danir eiga
við að búa. Blaðið gerir gys að
skýringu þessari. í blaðinu er
mynd af sendli, sem er í þann
veginn að fara út úr búðinni með
pinkla sína, þegar kaupmaðurinn
kallar til hans: „Bíddu dálítið,
Pétur. Þú átt að fara með fimm
metra af gasslöngu, kaðalspotta
og krók og hálft kg. af rottueitri
til hans Jensens. Hann hefur
fengið Iaunahækkun.“
Þrátt fyrir heldur svalt sumar
á köflum, virðist kornuppskeran
í Danmörku ætla að verða frekar
góð.
Er gerður var upp sveitarsjóð-
urinn hjá oddvita einum á Jót-
landi, kom í Ijós, að það var á 8.
þús. kr. of mikið í kassanum. —
Þegar sjóðurinn var tómur, borg
aði oddvitinn bara úr sínum
vasa.
Ilafin er bygging á stóru æsku-
lýðshúsi á Vesterbro í Höfn. Þrír
hornsteinar voru lagðir og gerðu
það Margrét prinsessa, H. C.
Hánsen forsætisróðherra og
Laust Jensen, 15 ára drengur úr
bæjarhverfinu.
í vetraráætlun S.A.S. er gert
ráð fyrir viðkomu í 71 borg í 40
löndum.
Peter Freuchen kemur með þá
tillögu, að menn hætti að heilsast
og kveðjast með handabandi,
heldur taki upp hinn indverska
sið, leggi saman lófana í brjóst-
hæð, hvor gegn öðrum, þ. e. sína
eigin lófa, svo að engin snerting
verði milli manna, en hún sé oft
óþægileg og jafnvel hættuleg.
Um daginn hætti N. C. Ras-
mussen bankastjóri í Nyköbing
störfum fyrir aldurs sakir. Hann
er 99 ára.
Hið sameinaða gufuskipafélag
hækkar þann 1. okt. fargjöld með
skipum sínum milli hafna innan-
lands og til Noregs. Ekki er
minnzt á ferðir „Drottningarinn-
ar“ hingað, svo að líklega verða
þau fargjöld ekki hækkuð.
Nýlega varð kona á Jótlandi
100 ára. Hún á nú 169 afkomend-
ur.
Heima er bezt,
júlí—ágústhefti 1956.
Bókaforlag Odds Björnssonar.
Ritstj. Steindór Steindórsson.
Nýjasta heftið flytur meðal ann-
ars skemmtilega og fróðlega grein
er nefnist Ur endurminningum
Gísla á Hofi. Segir Gísli þar frá
svaðilförum, verzluninni, brúar-
smíði, þegnskylduvinnu o. fl. Stef-
án Jónsson námsstj. ritar grein-
ina Sögulegur fjallvegur, Hákon
Guðmundss. um hæstaréttarmál
ljóð eru þar eftir Þorbjörgu Arna-
dóttur'og BjörgU í'Dal og Sigurður
Egilsson segir frá Minnisstæðum
atburðum á sjó og landi. Hlaut
frásögn hans verðlaun í ritgerða-
samkeppni er Heima er bezt efndi
til, ein af þremur. Helgi Valtýsson
og Jochum Eggertsson hlutu hin.
Ritið efndi einnig til ljósmynda-
samkeppni og birtast verðlauna-
myndirnar.Fyrstu verðlaun hlaut
Þorvaldur Ágústsson, Reykjavík,
önnur og þriðju Tryggvi Haralds-
son, Akureyri og Vignir Guð-
rwundsson, Akureyri.
Feigðin kallar, frásögn M. H.
Arnasonar, Sagnir úr Dalasýslu
eftir Jóh. Ásgeirsson, framhalds-
sagan o. fl.
Forsíðumyndin er af Gísla Jóns-
syni á Hofi í Svarfaðardal.
Nýkomið:
„CAN-CAN“-
mittispils
Crval af
undirfötum
úr perlon og nylon.
Verzl. Ásbyrgi h.f.
Skipag. 2. — Simi 1555.
Erum að fá með væstu
flugvélum:
SANSERAÐ
naglalakk
Varaliti
ljósa tízkuliti.
Odo-ro-no
og
Ilmvötn
margar tegundir.
Verzl. Ásbyrgi h.f.
Skipag. 2 - Sími 1555
Perlon-sokkar
Nylon-sokkar
Barna-sokkar
—o-
Ullargarn
margar tegundir.
Verzl. Ásbyrgi h.f.
Skipag. 2 — Simi 1555
REGNÚLPUR
■K ★ -K
Reizlur
Fjárvogir
Steðjar
Skrúfstykki !
Boltatengur
Sleggjuhausar
Kúbein
Meitlar
-K ★ -K
Gúmmívettlingar
(hentugir við slátur-
gerð og þvotta)
Olíusvuntur !
Plastsvuntur
Starfshnífar I
-K ★ -K
Slökkvitæki
-K ★ -K
Vasaljós (yatnsþétt)
V eiðarfæra verzlunin
„GRÁNA“ H.F.
Sími 2393.
Sími 2393.
LAUSSTAÐA
Sveitarstjóraembættið á Dalvík er laust til umsóknar frá
næstkomandi áramótum.
Umsóknir, sem tilgreini menntun og fyrri störf, send-
ist til hreppsnefndar Dalvíkurhrepps fyrir 15. okt. n.k.
Hreppsnefnd Dalvíkurhrepps.
Dúnhett léreft
Fiðurhelt léreft
Sængurveradamask
Sængurveraléreft, rósótt
Lakaléreft
Koddaveraléreft
Koddaverahorn
Milliverk og blúndur
í öllum breiddum.
Kuldaúlpur
KULDAÚLPUR
fyrir hörn og fullorðna,
í ölhim stærðum.
Gaberdine-skyrtur, J
svartar, og aðrar
SPORTSKYRTUR
í miklu úrvali.
DÖMUPEYSUR
ný sending, mikið úrval.
BARNAPEYSUR
FIERRAPEYSUR
EITTIIVAÐ FYRIR ALLA.
w i5x^ Sx«'"í
!JIk | JTf|| i|| .j,„.p5C. Við sendum yður vörurnar heim.
í i!ÍJJtjHLI#IJIC **" Símanr. er 1420.
ÍHÚSID H. F.