Dagur - 22.09.1956, Side 7
Laugardaginn 22. september 1956
D A G U R
7
Drengur týndi ÚLPU
á Ytri-Brekkunni. Finnandi
geri aðvart í síma 1939.
TBUÐ
1 stofa og eldhús til leigu
1. október. — Uppl. hjá
Birvi Magnitssyni,
Aðalstr. 4.
Kvíga
11/0 árs af góðu kyni til sölu.
Burðartími í apríl.
A. v. á.
Gott píanó
óskast.
Ottó Ryel
sími 1162.
2-3 herbergi og eldhús
óskast sem fyrst, fyrir barn-
laus hjón.
Afgr. vísar á.
Húsnæði
Vantar reglusamt fólk til
umsjónar í Varðborg, í vet
ur. Heppilegt fyrir 2 konur
cða barnlaus hjón.
Uppl. í s'mm 1262.
3 lyklar fundnir.
Vitjist á afgr. DAGS.
KJOTTUNNUR
Höfum til 1. flokks beyki-
tunnur, sent eru beztu ílátin
undir saltkjötið.
SENDUM HEIM.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
SENDISVEIN
VANTAR OSS STRAX.
Prentverk Odds
Björnssonar h.f.
Lmoleum dúkar og
renningar
TEPPI 2x3 metrar.
RENNINGAR, í mörgum
litum, 67, 90 og 100 snt. br.
Sendwn gegn póstkröfu um
land allt.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
íþróttabúningar
Bláir 'ineð hvítu.
Á drengi og fullorðna.
Verzl. Eyjafjörður h.f.
Herbergi óskast
Ungur, reglusamur maður
óskar eftir herbergi, sem
fyrst. Helzt á Eyrinni.
Uppl. í síma 2216.
Hefi til sölu
SILFURBÚNAR SVIPUR
og hinar alþekktu SKJALA
; og SKÓLATÖSKUR.
. . Halldór söðlasmiður.
Kolaþvottapottur
til sölu. — Mjög ódýr.
Afgr. vísar á.
STULKUR
vantar oss strax, til vinnu í
prentverkinu.
Prentverk Odds
Björnssonar h.f.
Tímavinnu-
bækur
fyrir verkafólk
fást nú hjá okkur.
Verð kr. 5.00.
Bókabúð RIKKU.
Skellinaðra til sölu
Til sölu er ný MIF.LE
skellinaðra (Keyrð 500 km)
Afgr. visar á.
Bifreið model ’55,
helzt ZEPHYR SIX eða
WAUXHALL, óskast nú
[>egar. — Sölutilboð sendist
í pósthólf 26, Akureyri.
Ránið í Sörlatungu
Vegið að baki eiganda jarðar-
innar.
Ágrip af sögu málsins.
Svo heitir smáritlingur, sem
Gunnar S. Hafdal hefir gefið út
fyrir skömmu (16 bls. að stærð).
Segir þar frá hinni harkalegu á-
rás gjaldkera Sjúkrasamlags
Skriðuhrepps á eignarjörð Haf-
dals í fjarveru hans, og er þeirri
sögu lýst hér nokkru ýtarlegar
en áður hefur birzt í blaðagrein-
um frá báðum aðilum.
Er sennilega einsdæmi, að veg-
ið sé þannig að baki fjarverandi
fjölskyldu af sveitungum henn-
ar, án þess að nokkurri vörn
verði við komið fyrr en eftirá.
Virðist það fremur ófagur sveit-
arbragur og lítið skeytt um sóma
sveitar sinnar.
Ritlingur þessi fæst í Rikku-
búð og sennilega fleiri bóka-
verzlunum.
v.
JEPPI
Lengdur jeppi í góðu lagi
til sölu.
Uppl. í síma 2216.
(, í >!
Seljuni í heildsölu og sendimi út um land allar algengar
pylsugerðarvörur, ennfremur niðursuðuvörur: KINDAKJÖT
BÆJARABJÚGU, VÍNERPYLSUR í 1 og i/2 dósum.
Vömrnar má panta hjá Skrifstofu verksmiðjanna, eða
beint frá Pylsugerðinni
PYLSUGERÐ
Leikskólinn
Síðastliðinn vetur hafði Barna-
verndarfélagið leikskóla í Leik-
vallarhúsinu á Oddeyri, og er
það í fyrsta skipti, sem leikskóli
hefur starfað hér heilan vetur.
Hann var fullsetinn allan vetur-
inn og kunnu heimilin í bænum
vel að nota sér þessa gæzlu barn-
anna. Nú hefur Barnaverndar-
félagið ákveðið, að leikskólinn
verði á sama stað í vetur og hefst
hann í byrjun október. Forstöðu-
kona verður frú Margrét Sigurð-
ardóttir. Enn er hægt að koma
nokkrum börnum í leikskólann
og má fá upplýsingar um hann í
síma 1262.
UR BÆ OG BYGGÐ
Úrslitaleikurinn í Norður-
landsmótinu, sem fram átti að
fara í dag, fellur niður vegna
bleytu á vellinum. K. A.
Hjúskapur. 18. þ. m. voru gefin
saman í Akureyrai-kirkju ungfrú
Áslaug Jónasdóttir fré Banda-
gerði og Þorbjörn Kristinssoon
kennari við Barnaskóla Glerár-
þorps. Heimili þeirra er að
Bjarmasttíg 15, Akureyri.
Fíladelfía, Lundargötu 12. Ak-
ureyringar! Verið velkomnir á
samkomur vorar, í kvöld og ann-
að kvöld, kl. 8.30 bæði kvöldin.
Ræðumaður: Ásmundur Eiríks-
son. — Söngur og músík.
NORÐLENDINGAR!
Munið! Þegar þér dvelj-
ið í Reykjavík. Dagur fæst
í Sölutuminum við Arnar-
hól.
- Salk bóluefnið
(Framhald af 1. síðu.)
Urn frekari framkvæmdir bólu-
setnir.garmnar mun verða til-
kynnt síðar og munu skólabörnin
fá heim með sér úr skólanum
seðil, sem foreldrarnir eru beðnir
að fylla út og tilkynna hvort þau
vilja láta bólusetja börnin eða
ekki.
Nýjar a'ðfcrðir útiloka mistök.
Viðvíkjandi þeim mistökum, er
áttu sér stað í einni Salkbólu
efnisverksmiðju vestan hafs í
fyrra, er olli því að hér á landi
og víðar var hætt við að bólu-
setja gegn lömunarveiki, og sem
stafaði af ófullkomnu eftirliti,
segir Jóhann Þorkelsson héraðs-
læknir að lokum, að slíkt sé úti-
lokað að endurtaki sig, vegna
nýrra aðferða, sem nú séu not-
aðar við framleiðsluna.
Bólusetning gegn lömunarveiki
er einn af stærri sigrum lækna-
vísindanna og mun marka tíma-
mót í heilbrigðismálum þjóðanna,
á borð við merkustu uppfynding
ar síðari ára.
- Fram hjá verður ekki
komizt
(Framhald af 4. síðu.)
lausri birtingu viðhorfs og skoð-
ana verkamanna olli æsingii og
sárri gremju, sem leiddi til sólar-
hrings andmælaverkfalls gegn laga-
samþykkt þessari og hleypti af stað
alvarlegum uppsteyt á nokkrum
stöðum.
Ollu klaufalegar var heldur ekki
hægt að snúast við málefninu. Rás
viðburðanna í Danmörku sýnir á
ný, að til lítils er að grípa til skyndi
bragða í víðtækum launadeilum:.
Væri nú ekki allt eins gott og
æskilegra að viðurkenna vafninga-
laust, að hér sé þörf á fast skipu-
lagðri launanefnd, sem grípa má til,
er vinnudeila vofir yfir atvinnulífi
þjóðfélagsins? Þá myndu hin ein-
stöku tilfelli verða auðveldari í
meðferð allri og komist yrði hjá
ónauðsynlegri andspyrnu, er það
myndi valda að láta lögbjóða í
skyndi miðlunarfrumvarp, sem þeg-
ar hefði verið hafnað. Vel skipu-
lögð launanefnd stendur einnig
betur að vígi um rólega yfirvegun
og mat viðfangsefnanna.
Leikslok allsherjarverkfallsins í
Danmörku sýna það og sanna, að
það er heilaspuni og óskadraumur
að ímynda sér, að þjóðfélagið geti
staðið hjá sem hlutlausir áhorfend-
ur að hinum víðtæku launadeil-
um. í þjóðfélagi vorra tíma eru liin
einstöku hjól svo nátengd hvert
öðru, að tjón af verkfalli vcrður
mjög víðtækt. Þess vegna geta ekki
ábyrg stjórnarvöld látið slíkt af-
skiptalaust. Og í mörgum tilfellum
verða þau tilneydd að taka afstöðu,
hvort sem þeirn er það ljúft eða
lcitt.
Hið eina sem unnið verður við að
skera niður hina lögboðnu launa-
nefnd, er aðeins hið sama og i Dan-
mörku, að nauðsynlegt mun reyn
ast að grípa til skyndiráðstafana til
að stöðva á yztu nöf mjög háska-
lega rás viðburðanna. En þá myndi
aðstaða öll reynast traustari og ör-
uggari, ef til væri þegar þrautreynd
nefnd ábyrgra manna og skilnings-
ríkra, er framkvæmdu þau þjóð-
félagsafskipti, sent ekki vcrður hjá
komizt.