Dagur - 18.09.1957, Qupperneq 2
2
D AGUR
Miðvikudaginn 18. sept. 1957
llndir liessari fyrirsögn biriist
eftir farandi grein uin handrita-
málið í stærsta bláðinu á Jót-
landi, JYLLANDSPOSTEN, þ.30.
ágíist, rituð af dr. phil. JENS
KRUUSE. Er greinin eiginléga
ritdómur um „Island—Danmörk
og handritin“, bók þeirra Askov-
manna, ög er höfundur ckki
myrkur í niáli.
Nú þegar rökræðurnar um ís-
lenzku handritin, hvort skila eigi
þeim aftur, eru teknar að lifna
við á ný, er það gleðileg frétt, að
ritstjórnin á Dansk Udsyn í
Askov skuli hafa sent frá sér bók
um mál þetta, mjög fróðlega og
góða. Því er ekki að neita, að í
hana ritar enginn, sem mótsnúinn
er afhendingu handritanna, en
rökin eru tekin frá hinni hliðinni
líka — og hrakin — enda er það
létt verk.
Hinn einfaldi sannleikur í þessu
máli er nefnilega sá, að við eig-
um að afhenda í snatri og án þess
að hafa orð um, systurlandi okk-
ar í Norður-Atlantshafi þjóðar-
dýrgripi þess, algerleg'a án skil-
yrða. Það væri aðeins eðlileg
framkoma og bæri ekki vott um
neinn rausnarskap.
Nú ríður mest á því, að fræða
danskan almenning um málið
svo að hér geti sprottið upp vak-
andi almenningsálit, sem borið
gæti ráðum Rauð ráðgjafa, þann
litla hóp steinrunninna smá
imperialista með prófessora- og
doktorsnafnbótum, sem nú virð
ast hafa öll ráð í hendi sér með
hlýðin og þæg stjórnarvöld í togi
Það er bæði hlægilegt og sorg-
legt í senn að sjá danska vís-
indamenn í gervi hinna síðustu
nýlendupólitíkusa á Norðurlönd-
um. Maður getur bæði hlegið og
skammast sín. í flokki með þeim
eru svo aðrir, sem muldra um
það í barm sér, að ekki getum við
farið að dreifa safngripum okkar
út um allan heim, skila aftur
þjóðfræðilegum mei'kisgripum úr
þjóðminjasafninu til halanegr-
anna (í augum slíkra manna eru
reyndar flestir útlendingar, ekki
sízt frændur okkar á Noi'ður-
iöndum, eins konar halanegrar,
og hin leynilega skýring orðsins
er: „Ein utan við Slotshólmann
og hans næsta nágrenni búsett
persóna“) Þessu Svíum og hinu
til Norðmanna. . ..
Við skulum nú líta á það í al-
vöru, hvernig við eigum að rök-
styðja mál okkar til þess að geta
haldið ránsfongnum.
Við gætum byrjað á því að
segja, að fjárans hala — afsakið
— að asnarnir þarna á íslandi
hafi gætt þessara gripa bölvan-
lega og afhent þá viljugir og sent
þá til Ka upmannaha fnar. Þess
vegna geti þeir ekki komið ask-
vaðandi nú og heimtað þá til
baka.
Þetta eru sterk rök, já, eg held
nú það.
En lítum á þessa hlið málsins:
Auðmaður nokkur féflettir verka
fólk sitt. Fátæk kona meðal þess
verður að neita sér um að eiga
fagra hluti, og hún selur auð-
manninum gullúr föður síns
heitins.
Já, segir hann við félaga sína
og fjölskyldu. Svoddan fólk hefur
nú ekki mikið vit á verðmætum.
Konan bókstaflega neyddi upp á
mig, já, nærri því gaf mér sitt
einasta erfðagóss.
Hann getur þess ekki, að kon-
an svalt, og það var hans sök, og
hann hafði auk þess beinlínis
krafizt þess að fá gullúrið, svo að
það var. ekki létt fátæklingum
að neita.
Þeir Danir, sem halda því fram,
ð íslánd hafi vanrækt þessa
dýrgripi sína, hugsa eins og ofan-
skráð göfugmenni, já, og þeir
ganga jafnvel enn lengra, því að
þeir velja hegna íslandi nútímans
fyrir það, sem þeim er svo gjarnt
að nefna vanrækslu hins forna
íslands. En mér virðist, að ef við
ætlum að ásaka Islendinga fyrir
þá sök að þeir neyddust til að af-
henda handritin til fulltrúa ein-
valdskónganna á 17. öld, þá get-
um við alveg eins búizt við mál-
sóknum Norömanna gegn afkom-
endum danskra fógeta. Hvort
tveggja ei' álíka sanngjarnt, rétt-
arfarslega og siðferðilega.
Og svo er þetta um gæzlu ger-
semanna. Hvers vegna á ísland
— eða gæti átt — þennan dóm af
handritum, en við hinir ekkeri,
ekki eitt einasta söguhandrit, að-
eins lánsrit, lán á lán ofan frá
hinum auðugu vestnorrænu upp-
sprettum (norrænum, íslenzkum,
norskum) lánsheimildir um forn-
sögu okkar, sagnir og sameigin-
leg trúarbrögS, heimildir, sem við
kynnum æskulýðnum með falskri
og rómantískri ættleiðslu og köll-
um „oldnordisk“ (en þær eru
fornnorskar, forníslenzkar eða
norrænar, en alls ekki danskar);
hvers vegna erum við svona fá-
tækir, við, sem erum annars svo
vellauðugir af fornminjum?
Skýi'ingin er óþekkt. En vís-
bendingu er þó hægt að fá, ef við
rifjum upp, hvernig fór um mesta
þjóðardýrgrip okkar, rit Saxa,
heimildirnar, sem skýra elztu
sögu Danmerkur. Þessi Gesta
Danorum var pergamentshandrit.
Mjög snemma, eða 1514, gat hinn
ágæti húmanisti, biblíuþýðandi o.
fl., Christiern Pedersen, fengið
það prentað í París. En sjálft
handritið?
Jú, sjáum til, við höfum geymt
aí því eitt heilt blað og fáeina
þluta, Þau hafa verið notuð til
þess að liefta inn skattabækur
og þvíumlíkt.
Eigum við þá að berja okkur á
brjóst og segja, að þeir þarna á
íslandi hafi ekki gætt liandrit-
anna vel, og því geti þeir ekki
fengið þau aftur?
Svo er það önnur álíka gagns-
laus röksemd, þessi: Handritin
og sú menning,. sem þau lýsa, eru
„samnorræn, andleg eign“. Hér
rekur enn upp höfuðið blekking-
arorðið „oldnordisk“ og ennfrem-
ur sú skoðun, að hin umræddu
handrit hafi verið skrifuð á þeim
tíma, er Norðurlönd hafi enn
ekki greinzt í sérstæðar þjóðir,
og þau hafi verið rituð á vest-
ræna mállýzku hins sameiginlega
norræna máls. Þessa röksemd
notar Kaupmannahafnarprófes-
sor í miklu áliti, málfræðingur,
sem kunnur er erlendis, en hún
er þó ekkert annað en heimska,
bull og þvaður.
Handritin eru nefnilega frá 12.,
13. og 14. öld, en ísland varð
sjálfstætt ríki árið 930 og var þaö
næstu aldirnar í utanríkis-,
þjóðernis- og menningarmálum.
Hvernig stendur á því, að mað-
urinn skuli reyna að blekkja al-
menning með slíkri röksemda-
færslu?
En eru nú handritin, innhald
þeirra, Eddur og sögur, sameig-
inleg eign okkar, af því að við
höfum notað þau og noti'ð þeirra
svo ríkulega? Ættum við þá ekki
að hafa hjá okkur öll ísraelsku
biblíuhandritin og hvern staf-
krók, sem Shakespeare skrifaði?
Ættum við þá ekki að biðja um
frumhandrit Goethes og frum-
teikningarnar af Andresi Ond og
Skipper Skræk, því að allt er
þetta andleg sameign okkar og
annarra þjóða?
Og nú rökræðir annar frægu:
Hafnarprófessor á svipaðan hátt;
hann skrifar svo fallega, að hjart
að hrærist .„Það var upp af hinu
;„arnamagneanska“ fræi, sem lífs-
tré okkar og þekkingarmeiður
óx. Oehlensehlæger kvað norræn
ljóð, og Grundtvig leiddi okkur
fyi'ir sjónir hetjulíf norrænna
manna; þetta hvorttveggja hefur
endurnýjað danskar bókmenntir
og kennt Dönum að finna sjálfa
sig. Andlegt líf okkar væri safa
laust og máttvana, ef það hefði
ekki hlotið þessa endurnýjun.
Þetta er hverju orði sannara.
En það líka jafnmikill sannleik-
ur, að Holberg komst í snertingu
við andlegt líf Evrópu, Ewald
kynntist pietismanum, Kingo
hinum miklu sálmaskáldum
Arrebo listakvæðum endurreisn'
artímans og Hans Tausen siðbót'
arkenningum Lúthers. Af öllum
þessum kynnum varð til fræ, og
upp af því óx lífstré Danmerkur;
af slíkum kynnum hlaut andlegt
líf okkar að endurnýjast.
■ En notuðu allir þessir menn
frumhandrit. — Ekki aldeilis.
Oehlenschlæger gerði það auð-
vitað ekki, og ekki einu sinnihinn
lærði Grundtvig. Prentuð bók er
alveg nægileg til innblásturs og
andagiftar, ekki vafi á því. Las
Brandes frumhandrit Taines eða
Jóhannes V. Jensen hrafnaspark
Darwins?
Þetta sorgarsafn af prófessor-
um, fullum af þjóðernisrómantík,
„imperialistiskum" skjalavörðum
og þjóðrembingslegum bókavörð-
um ætti að vera méð hitabeltis-
hjáma á höfði, ífært gullbryddum
einkennisbúningum, því að þegar
hinar volgurslegu röksemdir eru
til einskis nýtar lengur, þá flýja
þeir til eftirlætisorðtækja gömlu
nýlenáukúgaranna. Þeir bjóðast
til að bera „The White Man’s
Burden“, bera byrði hvíta manns
ins, þ. e. a. s. taka að sér
stjórn á halanegrum nýlendunn-
ar. í þessu tilfelli heitir það:
Vísindin eru hér í Danmörku.1
Það setur hroll að manni við að
heyra þessi orð. Vísindi, já, þor-
um við þá að afhenda þessi dýr-
mætu skjöl?
En sannleikurinn er einfaldur
enn, og hann er á þessa leið: Það
eru íslenzkir vísindamenn, sem
hafa unnið langmesta starfíð við
jessi handrit, það eru íslenzkir
menn, sem eðlilega eru bezt hæf-
ir til þessara starfa, þeir hafa
mestan áhuga á þeim og mesta
kunnáttu til rannsóknann.a
Sumir telja, að það séu aðeins
Di'ír menn héi' á landi, sem geti
)ýtt, notað og rannsakað að gagni
jessi íslenzku handrit, og af þeim
sé meira að segja sá helzti ís-
lenzkur, en líklega eru þetta ýkj-
ur. Fróðir menn segja, að bæta
megi a. m. k. tveim við þessa
tölu. En þó að þeir væru tuttugu
hér, þá á ísland miklu fleiri
kunnáttu- og áhugamenn í þess-
um málum. Þetta er sannleikur-
inn um vísindin.
Og aumleg er ganga þeirra
þjóðrembinganna ,er þeir koma
askvaðandi þessa dagana og segj
ast hafa útbúið svo ágætan
:eymslu- og rannsóknarstað fyr
ir handritin, að nú getum við
haldið þeim framvegis. Þokkaleg
siðfræði það. Ef Hansen hefur
hnuplað Borgundarhólmsklukk-
unni frá Olsen, gamla ættar-
gripnum, og vill ekki skila henni
af því að hann hefur svo ágæta
stofu til þess að láta hana standa
í (stofan innréttuð í miklum flýti
þegar Olsen tók í alvöru að
krefjast klukkunnar sinnar aft-
ui') — þá hlæjum við hátt að
Hansen.
Að lokum má benda á það, að
nútíma tækni með útfjólubláu
Ijósi við myndatökur gerir það að
verkum, að hægt er að rannsaka
efnið í Ijósprentuðum eintökum
sem eru greinilegri en frumritin
Sjálfur lagalegi rétturinn er
svo vafasamur, að varla er á hon
Þýzk verkfæri:
SKIPTILYKLAR
ST ] ()RN ULYKLAR
FÁSTALYKLAR
RÖRTENGUR
SKRÚFS I Y'KKI
(2 stærðir)
NAGLDÍTAR
HAMRAR - AXIR
ÞM7RSKERU R
(Brinko)
SAGARKI.EMMUR
SAGARÚTLEG GJ ARAR
FÍNSAGIR, SKRÚFJÁRN
JÁRNBORAR
G ATATEN GUR
SÍÐUBÍTAR
FLATKJÖFTUR
'SPÓANEEUR
TOMMUSTOKKAR
Verzl. Eyjaf jörður li.fe
1
Gaddavírinn er kominn. —
Kostar aðeins kr. 146.00
rúllan.
Verzl. Eyjafjörður lii.
m solu
er gott BARNARÚM
(rimla). — Einnig notaður
barnavagn í Lækjargötu 14,
efri dyr.
Stúlka óskast
til heimilisstarfa hálfan dag
inn. Nánari upplýsingar í
síma 1274 kl. 6—7 síðdegis
í dag og á morgun.
Jón Sigurgeirsson,
Klapparstíg 1.
SIMI 2270.
um byggjandi í þessum umræð-
um. Við getum yfirleitt alls ekki garnvaon tll SÖlll
verið þekktir fyrir að hugsa um ”
lagalegan rétt í þessu máli. Hér
gildir enginn „abstrakt réttur“.
En af þeim sökum skulum við
ekki ímynda okkur, að við séum
stórtækir í gjöfum né göfuglyndir
þó að við afhendum handritin að
lokum. Það er nefnileg'a svo
geysisterkur, mannlegur og sið-
(Framhald á 5. síðu.)
Ibúð til leigu
2—3 herhergi og aðgangur
að eldhúsi, fyrir harnlaust
fólk. — Upp!. í liafnarstr.
33, kl. 6-7 e. h.
Ungliíigar óskast
til að taka upp kartöflur.
Kristinn Sigm u n dsso n,
Arnarhóli.
Ghevrolet með skiptu drifi
til sölu.
AHr. vísar á.
W estmgliouse-eldavél
amerísk, stór og vönduð til
sölu með tækifærisverði.
Afgr. vísar á.
Ráðskonu vantar
til að sjá um heimili í for-
föllum húsmóður.
Ólajur Þ. Jónatansson,
Hríseyjargötu 21.
°g
Gott úrvaL
SKÓDEILD KEA