Dagur - 18.09.1957, Page 8
8
Bagujr
Miðvikudaginn 18. sept. 1957
Útsvarsálagningin í Reykjavík ólögmæt
Ákveðið að niðurjöfnun útsvara skuli fara fram
að nýju og útsvarsupphæðin lækka
um tæpar 7 milljónir króna
Félagsmálaráðuneytið kvað ný-
lega upp þann úrskurð, varðandi
aðalniðurjöfnun útsvara í' Reykja
vík, að álagningin væri ólögmæt
og lagði fyrir bæjarstjórnina að
hlutast til um að jafna niður út-
svörum að nýju og leggja síðan
fram hina nýju útsvarsskrá með
löglegum hætti.
Það voru 5 íhaldsandstæðingar
í bæjarstjórn Reykjavíkur, sem
kærðu álagninguna, svo sem
mjög hefur verið rætt um í sunn-
anblöðunum. Jafnað var niður kr.
206,3 millj, eða 6,9 millj. hærri
upphæð en samþykkt bæjar-
stjórnar og heimild ráðuneytisins
heimilaði.
Hinn ráðandi meiri hluti Sjálf-
stæðismanna í bæjarstjórn Rvík-
ur hefur fallist á þennan úrskurð.
nauðugur þó.
Þetta útsvarshneyksli borgar-
stjórans og flokksmanna hans í
bæjarstjórn höfuðstaðarins hefur
vakið mikla eftirtekt um land
allt.
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri í Reykjavík, sem hefur nú
heykst algerlega í þessu máli, var
nýlega í ræðustól á ýmsum stöð-
um hér norðanlands. Gerði hann
þá meðal annars að umtalsefni
hinar „ægilegu álögur“ ríkisins á
begna þjóðfélagsins og vandaði
ekki núverandi fjármálaráðherra,
Eysteini Jónssyni, kveðjurnar í
því sambandi.
Áheyrendur borgarstjórans
munu af fréttum síðustu daga af
hrakförum íhaldsmeirihlutans í
bæjarstjórn Reykjavíkur, vera
fljótir að afskrifa verulega fjálg-
leg orð ræðumanns um skattpín-
ingu andstæðinganna eftir svo
herfílegar hrakfarir í höfuðvígi
Sjálfstæðisflokksins.
Gekk á f jöll
Eysteinn Jónsson fjármálaráð-
herra er, sem kunnugt er, mikill
fjallgöngumaðúr. Þegar hann var
hér á ferð um helgina brá hann
sér upp á Súlur og þótti erfitt að
fylgja honum á göngunni.
Skautásvell
Nokkrir ungir skautamenn frá
Ákureyri fundu gott skautasvell
á Vaðlaheiði á mánudaginn og
æfðu þar góða stund.
Frá barnaskólunum á Ákureyri
Eins og kunnugt er, mun nýr
barnaskóli taka til starfa á Odd-
eyrinni á þessu hausti, þótt ekki
sé enn vitað hvenær það getur
orðið. í samræmi við það hefur
nemendum verið skipt á milli
skólanna, svo og kennurum. Ef
Oddeyrarskólinn hefði getað
tekið við öllum börnum af Eyr-
inni, var skiptingin einföld og
vandalaus, en svo er nú ekki. Af
360 börnum, sem þar eiga heimili,
getur hinn nýi skóli aðeins tekið
við 200—230 nemnedum, sem
skiptast í 10 deildir. Kennslu-
stofur eru aðeins 4, en auk þess
má kenna í lítilli deild í væntan-
legri kennarastofu. Eftir eru þá
um 130 börn, sem verða að ganga
í sinn gamla skóla.
Nálega öll 7 og 8 ára börn, sem
búsett eru á Oddeyrinni, sækja
þó Oddeyrarskólann, en aðeins 1
bekkjardeild úr hverjum árgangi
9, 10, 11 og 12 ára barna. Fámenn
deild 11 ára barna er þó að auki.
Þegar til þess kom að skipta i
eldri árgöngunum, vandaðist
málið. Ef horfið hefði verið að því
ráði að, velja þau börn, sem j
bjuggu neðan til á Oddeyringgi,
myndu hafa valist saman í deild-
ir mjög ólík börn að þroska og
getu, og auk þess hefði orðið
veruleg röskun á nálega öllum
deildum þessara árganga. En
börnum, einkum, sem komin eru
á þennan aldur, er það mjög við-
kvæmt mál að vera slitin úr
tengslum við félaga sína.
Sú leið var því farin að velja
þær deildir, þar sem flest var af
böi-num búsettum á Oddeyrinni.
Nægði þá venjulega að stokka
upp tvær deildir úr hverjum ár-
gangi þannig, að ein venjuleg
deild kemur á hvern skóla. Með
þessum hætti varð minnst röskun
á deildarskiptingunni. Flestar
aðrar deildir fengu því að halda
sér að mestu.
Einhvei’jir kunna nú að verða
óánægðir með þetta. En öðruvísi
getur það naumast orðið á meðan
skólinn á Oddeyrinni er svona
lítill. Nánar verður þetta skýrt
við skólasetningu, en þar mæta
öll böm beggja skólanna.
Hannes J. Magnússon.
Eiríkur Sigurðsson.
Frá aðalfundi Sféffarsambands bænda
(Framhald af 1. síðu.)
Mölun korns hér á landi
Frá Benedikt Kristjánssyni, odd-
vita á Þverá í Öxarfirði, sem hefur
um skeið verið elzti fulltrúi á aðal-
ftindum Stcttarsambands baenda.
Jiafði allslierjarnefnd borizt eftirfar-
antli tillaga, sem fundurinn sam-
þykkti samhljóða:
„Aðalfundur Stéttarsámhands
bænda beinir því til stjórnar sam-
bandsins að lu'm athugi, livort hag-
kvæmt muni vera og framkvæman-
Jcgt að flytja ómalað korti til lands-
ins og koma upp mölunarvélum til
að mala það jafnóðum og notað er.
Niðurstaða þessara rannsókna" liggi
fyrir næsta aðalfundi.“
Efling Bjargráðasjóðs
llt af erindi frá kjörmannafundi
í Strandasýslu samþykkti fundurinn
eftirfarandi ályktun:
„Aðalfundur Stéttarsambands
bænda 1957 ítrekar fyrri samþykkt
ir sínar um nauðsyn þess, að Bjarg-
ráðasjóður verði efldur jafnframt
því sem hann þakkar eflingu sjóðs-
ins á síðasta Alþingi."
Fruvivarp um kornrækt
•Eftirfarandi tillaga var og sam-
þykkt samhljóða:
„Aðalfundur Stcttarsambandsins
beinir því til stjórnar sambandsins,
að hún beiti sér fyrir að frumvarp
um kornrækt, sem samið var að til-
hlutan framleiðsluráðs, verði erul-
urflutt á Al|ringi.“
Verð á tilbitnum ábttrði
„Vegna framkominnar tillögu á
kjrirtnannafundi í Vestur-Skafta-
fcllssýslu um að tilbúinn áburður
verði seldur sama verði á öllum
verzlunarstöðum á landinu, vill
funcluriun fela stjórn sambandsins
áð leitá eftir leiðum til að bæta að-
stqðu þeirra bænda, er hafa lengsta
flut'ninga á landi og erfiðust hafn-
arskilvrði.“
,, .Sajnþykkt samhljóða.
Iniifliitrimgsskattur
á föðurbæti
G'arðar Halldórsson var framsögu
maðúr að áliti framleiðslunefndar.
Frá henni kom ályktun þess efnis,
að cf svo færi, að óhjákvæmilegt
reyndist að setja innflutningsskatt
á fóðurbæti, þá væri það ófrávíkj-
anleg krafa sambatidsins, að sá
skattur rynni til starfsemi landbún-
aðarins, t. d. til verðmiðlunar á
landbúnaðarvörum, svo sem tnilli
mjólkursvæða.
V'ar ályktun jressi samþykkt cftir
nokkrar umræður.
KOSNINGAR STJÓRNAR
OG NEFNDA
Stjórn Stéttarsambands bænda
var endurkjiirin, en hana skipa:
Sverrir Gíslason, Hvammi, Jón Sig-
urðsson, Reynistað, Finar Olafsson,
Lækjarhvammi, Bjarni Bjarnason,
Laugarvátni, og I’áll Methúsalems-
son á Refstað.
Varastjórn var einnig endurkjör-
in og s.kipa hana (óhannes Davíðs-
son, Hjarðarhaga, Sveinn Einarsson
á Reyni, fón fónsson, Hofi, Sigurð-
ur Snorrason, Gilsbakka, og Ólafur
Björnssön, Brautarholti.
Þá var og kjörin [jriggja manna
nfcfnd til fiess að endúrskoða lögin
um framleiðsluráð, og eiga sæti í
henni jteir Gunnar Guðbjartsson,
Hjarðarfelli, Jónas Pétursson á
Skriðuklaustri og Vilhj. Hjálmars-
son, Brekku.
Starfsflokkakeppni í knattspymu
hefst n.k. laugard. á Þórsvellinum
Samin hefur verið ný reglugjörð - Þátttökutil-
kynningar þurfa að berast fyrir kl. 5 á morgun
Starfsflokkakeppni í knatt-
spyrnu hefst á Þórsvellinum n.k.
laugardag kl. 2 og verður keppt í
þriðja sinn um stýrishjólið sem
Slippstöðin h.f. gaf til þessarar
keppni.
Núverandi handhafi er KEA.
Hér fer á eftir hin nýjareglugerð.
1. gr. — Öllum fyrirtækjum og starfsflokkum (þó eldd stéttarfé-
lögum) á Akureyri er heimil þátttaka í keppninni.
2. gr. — Þátttökugjald er ákveðið hverju sinni af Knattspyrnuráði
Akureyrar og greiðist með þátttökutilkynningu. Skal það og inn-
gangseyrir renna til K. R. A. til eflingar knattspymuíþróttinni á
Akureyri.
3. gr. — Öllum föstum starfsmönnum fyrirtækja og starfshópa er
heimil þátttaka. Þó má ekkert lið hafa fleiri en tvo menn, sem leikið
hafa í úrvalsliði Akureyrar á árinu.
4. gr. — Leiktími skal vera 2x30 mín. Hlé milli hálfleikja skal
vera 5 mín. Standi leikar jafnir að þessum tíma liðnum skal leika
þegar 2x10 mín. Ef leikar standa enn jafnir að þeim tíma liðnum
skal dómari varpa hlutkesti um sigurinn.
5. gr. — Keppnin er útsláttarkeppni, þannig, að lið, sem hefur tap-
að tveim leikjum, er úr keppninni.
6. gr. — Dregið verði fyrst um tvær fyrstu umferðimir og síðan
um hverja umferð. Dregið sé leynilega, þó þannig, að sömu lið leiki
ekki saman nema einn leik, sé hægt að komast hjá því.
7. gr. — Leikirnir skulu fara fram eftir leikrcglum K. S. í., að
öðru leyti en fyrr er nefnt.
8. gr. — Lið það, er sigrar í kcppninni hverju sinni skal sjá um
framkvæmd keppninnar næsta ár, þó ekki nema tvö ár í röð. —
Keppnin skal hefjast síðari hluta sumars og skál hafa samráð við
K. R. A. hverju sinni. Enda sjái ráðið um að starfsflokkakeppnin
brjóti ekki í hága við mótaskrá 1. B. A.
9. gr. — K. R. A. hefur úrslitavald í öllum deilum, sem kunna að
rísa út af framkvæmd mótsins.
Þátttökutilkynning ásamt þátt-
tökugjaldi, sem í þetta skipti hef-
ur verið ákveðið kr. 200.00, send-
ist Kristjáni Kristjánssyni í POB
fyrir kl. 5 á morgun. — Sam-
kvæmt ósk K. R. A. sjá starfs-
menn POB um mótið að jæssu
sinni.
Seld verða aðgöngukort að öll-
um leikjum og kosta þau kr. 25.
— En að hverjum degi
kr. 5.
Hvað um Ásíuinflúenzuna?
Undanfai’nar vikur hefur verið
ótast mjög um að Asíuinflúenzan
svokallaða bærist hingað til
lands. Samgöhgur eru örar frá
austri og vestri, svo að erfitt er
unuvarnir. Blaðið sneri sér af
þessu tilefni til héraðslæknis-
embættisins. En því gegnir Er-
lendur Konráðsson í fjarveru Jó-
hanns Þorkelssonar.
Hefur veikin borizt hingað til
lands?
Ekki er vitað með fullri vissu,
hvort svo er, segir læknirinn.
Verður ekki bólusett gegn
veikinni í varúðarskyni?
Bóluefni hefur verið framleitt
á tilraunastöðinni á Keldum,
sem einkum er þó ætlað hjúkr-
unarliði og sjúklingum. Hingað
norður fáum við nokkurt magn
síðar í vikunr.i ög verður J^að
eingöngu notað handa heilsu-
veilu fólki.
Réttað á laugardag
Réttað verður í skilarétt Akur-
eyrar n.k. laugardag. Akureyr-
ingar munu eiga um 5 þús. fjár á
fjalli og er orðið snöggt í haga.
Síðan bendir héraðslæknirinn
á að heilsuveilu fólki sé ráðlagt
að hafa samband við sig vegna
þessa eða Snorra Jónsson yf-
irlæknir á Kristneshæli, því aö
ráðgert sé að bólusetning fari
fram næstkomandi mánudag.
Slátrun sauðfjár hafin
Slátrun sauðfjár hófst í Slátur-
húsi KEA á Akureyri í gær og
stendur til 18. okt. Alls verður
slátrað 30 þúsund fjár hér á Ak-
ureyri, 8000 fjár í Dalvík og rúm-
lega 3000 í Grenivík.
í dag er lógað 800 dilkum úr
Bárðardal, en ráðgért er að slát-
urhúsið taki á móti 1200 fjár á
dag framvegis.
Eins og áður verða slátur
send heim til kaupenda, en að-
eins heil slátur.
Kaffistofa starfsfólksins hefur
verið endurbætt stórlega og þar
geta bændur og aðrir þeir er við
sláturfé sýsla, fengið keypt kaffi,
og er jjað mikið hagræði.
í sumar hefur verið bætt við
vélakost í frystihúsið.