Dagur - 04.01.1958, Blaðsíða 1
Fylgist með því, sem gerist
hcr í 'kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 8. jan.
XXXXI. árg.
Akureyri, laugardaginn 4. janúar 1958
1.
tbl.
Framboðslisti Framsóknarmanna á Akureyri
Jakob Frímannsson,
kaupfélagsstjóri.
Guðmundur Guðlaugsson,
forseti bæjarstjórnar.
Stefán Reykjalín,
byggingameistari.
Sigríður Árnadóttir,
frú.
Sigurður Óli Brynjólfsson,
kennari.
Ríkarð Þórólfsson,
verksmiðjustjóri.
Fiinm miilj. dollara lán í Bandaríkjunum
Til raforkumála, sementsverksmiðju, Ræktunar-
sjóðs og Fiskveiðasjóðs
í eftirfarandi tilkynningu frá
fjármálaráðuneytinu frá 30. f. m.
segir svo um þessa nýju lántöku:
„Hinn 27. þ. m. undirritaði Vil-
lijálmur Þór, aðalbankastjóri,
fyrir hönd Framkvæmdabanka
íslands vegna íslcnzku ríkis-
stjórnarinnar, samning um lán
lijá Exporl Import bankanuin
fyrir hönd Efnahagssamvinnu-
stofnunarinnar í Washington.
Lánið er 5 milljónir dollara. Láns
tíminn er 20 ár og vextir 4%.
Lánið cr afborgunarlaust í 2 ár.
Lánsfénu verður varið til ]iess að
standast áfallinn kostnað við
fjárfestingarframkvæmdir á veg-
um ríkisstjórnarinnar svo sem
raforkuframkvæmdir í dreifbýl-
inu og senientsverksmiðju, enn
fremur til Ræktunarsjóðs og Fisk
veiðasjóðs.“
í tilefni af þessari lántöku
flutti Eysteinn Jónsson, fjármála
ráðlierra ávarp í útvarpið og
gerði nánari grein fyrir lántök-
unni. Sagði hann m. a.:
„Eins og ég hef oft greint frá
hefur enn verið leitað eftir lán-
um erlendis undanfarið, til þess
að standast kostnaðinn við bygg-
ingu sementsverksmiðjunnar,
raforkuáætlun dreifbýlisins, og
til þess að lána Ræktunarsjóði og
Fiskveiðasjóði. En síðan tókst að
útvega erlendis lán fyrir erlcnda
kostnaðinum við Sogsvirkjunina
og nokkuð upp í innlenda kostn-
aðinn, hafa þessár framkvæmdir
sctið í fyrirrúmi við fjáröflun er-
lendis til framkvæmda.
Eins og fréttatilkynning sú ber
með sér, scm fjármálaráðuneytið
hefur gefið út, hefur nú verið
samið í Bandaríkjunum um 5
milljón dollara lán, scm notað
verður i þessu skyni.
Lánssamningarnir voru undir-
ritaðir af Vilhjálmi Þór, banka-
stjóra, í umboði Framkvæmda-
bankans, en sá banki tekur þetta
lán vegna ríkisstjórnarinnar og
endurlánar ]iað innanlands til
framkvæmdanna. Lánið er til 20
ára, en afborgunarlaust fyrstu 2
árin. Vextir eru 4%.
Lán þetta, sem íslendingai-
taka nú í Bandaríkjunum, er ná~
kvæmlega samskonar og önnur
lán, sem Bandaríkjastjórn veitir
mörgum öðrum þjóðum, og veitt
af stofnunum, sem við höfum
áður fengið lán hjá oftar en einu
sinni. Þessu láni fylgja engin
pólitísk skilyrði og það er ekki
hnýtt við samninga um nein
önnur efni fremur en aðrir samn
ingar urn lántökur eða fjárstuðn-
ing, sem gerðir hafa verið við
Bandaríkjastjórn af og til mörg
undanfarin ár.
Þetta tek eg fram af marggcfnu
tilefni. Með þessari lánveitingu
hafa Bandaríkjamenn enn veitt
framfaramálum íslendnga þýð-
ingarmikinn stuðning.
Ymislegt hefur verið sagt hér
undanfarið um lántökur íslend-
inga erlendis, Atlantshafsbanda-
lagið og starfsemi þess. Út af því
er rétt að taka fram, sem vafa-
laust er þó öllum ljóst, að vita-
skuld njóta Islendingar, við lán-
tökur sínar erlendis, og liafa not-
ið undanfarið, góðs af þeim
ásetningi þjóðanna í Atlantshafs-
bandalaginu að efla samvinnu
sína á sem flestum sviðum, og þá
Gísli Konráðsson,
framkvæmdastjóri.
Lárus Haraldsson,
pípulagningamaður.
einnig í efnahagsmálum, en mikil
áherzla hefur verið lögð einmitt
á þessi mál.
Ekki á þó aukin samvinna
þessara þjóða í þeim málum að
verða til þess, að þær einangri
sig viðskiptalega eða efnahags-
lega.
Svo sem ég hef áður tekið
fram, hefur verið leitað eftir
(Framhald á 2. síðu.)
Jakob Frímannsson,
Guðm. Guðlaugsson,
Stefán Reykjalín,
Gísli Konráðsson og
Sig- Óli Brynjólfsson
skipa fimm efstu sæti
listans
Aðrir á listanum eru:
Ríkarð Þórólfsson, verksmiðj u-
stjóri.
Sigríður Árnadóttir, frú.
Lárus Haraldsson, pípulagninga-
maður.
Baldur Halldórsson, bóndi, Hlíð-
ai’enda.
Helga Jónsdóttir, frú.
Bjarni Jóhannesson, skipstjóri.
Gunnbjörn Arnljótsson, verka-
maður.
Skafti Áskelsson, framkvæmda-
stjóri.
Ingvi Rafn Jóhannsson, rafvirki.
Björn Guðmundsson, lögreglu-
þjónn.
Arnþór Þorsteinsson, framkvm.
stjóri.
Ingólfur Kristinsson, sundlaug-
arvörður.
Hjörtur Gíslason, verkamaður.
Erlingur Davíðsson, ritstjóri.
Ármann Dalmannsson, skógar-
vörður.
Hallur Sigurbjörníson, skattstjóri
Sigurður O. Björnsson, prent-
smiðjustjóri.
Ríkisstjórnin
tók á móti gesturn í ráðherra-
bústaðnum að venju um sl.
áramót. Þar var ekki veitt vín
að þessu sinni, en aðeins kaffi.
Eru þetta góð tíðindi.
Samkomuiag geri við sjómenn
og úfgerðarmenn
Róðrar lief jast því á eðlilegum tíma
Eftirfarandi tilkynning birtist
frá stjórnarvöldunum rétt fyrir
áramótin:
„Samkomulag hefur tekizt um
rekstrargrundvöll bátaútvegsins
fyrir árið 1958 milli fulltrúa ríkis
stjórnarinnar annars vegar og
samninganefndar Landssamb.
ísl. útvegsmanna hins vegar.
Þá hefur einnig verið gert sam
komulag milli fulltrúa ríkis-
stjórnarinnar og fulltrúa sjó-
manna innan Alþýðusambandsins
um kjör sjómanna á bátaflotan-
um á komandi vertíð.
Ætti því bátaflotinn að geta
hafið rekstur á eðlilegum tíma
upp úr áramótunum. Nánar
verður skýrt frá þessu samkomu-
lagi síðar.“
Það er öllum fagnaðarefni að
bátaflotinn þurfti ekki að stöðv-
ast á nýbyrjuðu ári, eins og tíðk-
aðist í tíð fyrrverandi ríkisstjórn
ar um hver áramót öllum til
hins mesta tjóns, svo skipti
milljónatugum árlega. Sést enn
þá einu sinni hvað heppilegt það
er að vettvangur íhaldsins er ut-
an ríkisstjórnar.