Dagur - 08.01.1958, Side 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 15. janúar.
XXXXI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 8. janúar 1958
2. tbl.
Frá skautasvæðinu í Lillehammer í Noregi. — Hér æfa 5 skautamenn frá Akureyri af kappi.
Auknar bætur til sjómanna og útvegs-
manna áætlaðar um 15 milljónir króna
Helztu atriði samkomulags ríkisstjórnarinnar
við bátasjómenn og útvegsmenn
Meginbreytingar þser, sem
gerðar hafa verið á kjarasamn-
ingum sjómanna, eru þær, að
kjör bátasjómanna hafa verið
bætt talsvert, og er áætlað að
kjarabótin nemi rúmum 10% á
launum þeirra. Helztu atriðin eru
þessi:
1. Fiskverð, sem laun sjó-
manna eru miðuð við, hækk
ar úr kr. 1.38 kg. miðað við
slægðan þorsk, í kr. 1.48 kg.
Verð annarra fisktcgunda
hækkar tilsvarandi.
2. Lágmarkskauptrygging
hækkar úr kr. 2145 (grunn-
frygging) á mánuði í kr.
2530. Kauptrygging þessi er
miðuð við vetrarvertíðar-
tímabilið frá 1. janúar til
15. maí.
3. Heimilt er að skipta trygg-
ingatímabilinu þannig, að
sér trygging gildi fyrir línu-
útgerð og önnur fyrir neta-
útgerð.
4. Þá er samið um allverulcga
aukningu skattfríðinda fyrir
alla fiskimenn.
Bátaútgerðin.
í samningum um rekstrar-
grundvöll bátaútgerðarinnar er
gert ráð fyrir litlum breytingum
frá því, sem verið hefur á þessu
ári. Aðalbreytingin er sú, að út-
gerðin fær bætur sem nema
launahækkun skipshafnar.
Þannig reiknað, jafngildir 10
aura fiskverðshækkun til sjó-
manna 6 aura almennri hækk-
un á fiskverði til báta, og
hækkar því verð það á fiskin-
um, seni fiskkaupandi greiðir
bátunuin, úr kr. 1.15 í kr. 1.21.
Þá eru gerðar nokkrar smærii
formbreytingar á stuðningi við
útgerðina frá því, sem verið hef-
ur, og bætur auknar vegna
minni afla.
Þá er bátaútvegsmönnum heit-
ið ýmsum fríðindum og fyrir-
greiðslu, eins og verið hefur, og
nokkrum nýjum atriðum bætt
við. Veigamest er það, að afborg-
unum af stofnlánum báta er
frestað um eitt ár.
Hlutatryggingasjóður verður
og einnig látinn ná til síldveiða
með reknet, og í því sambandi
athugað um bætur til þeirra, sem
verst hafa farið út úr þeim veið-
um á þessu ári.
Samningar við yfirmenn.
Þá hafa og, fyrir milligöngu
fulltrúa ríkisstjórnarinnar tekizt
samningar við yfirmenn á fiski-
bátunum um launakjör þeirra, en
félög skipstjóra, stýrimanna og
vélstjóra innan farmannasam-
bandsins höfðu sagt upp samn-
ingum við Landssamband ísl. út-
vegsmanna.
Samningar hafa einnig verið
gerðir við fulltrúa togarasjó-
manna um kjör á togaraflotan-
um, en ekki er að fullu lokið
samningum um rekstur togar-
anna, og einnig standa yfir samn-
ingar við fiskkaupendur. Lagt er
þó allt kapp á, að þessum sarnn-
ingum verði einnig lokið sem
fyrst.
Gjaldaaukning Útflutningssjóðs
15 milljónir kr.
Áætlað hefur verið, að gjalda
aukning Útflutningssjóðs vegna
samninganna við sjómenn
verði 10—11 millj. kr. og vegna
bátaútgerðarinnar sjálfrar 4—
5 millj. kr., og stafar þessi
hækkun bóta fyrst og fremst af
aflabresti á þessu ári. Vegna
verðlagsbreytinga og þróunar
verðlagsmála, er neksturs-
grundvöllur bátaútgerðarinnar
nú eins góður að minnsta kosti
og var fyrir ári, miðað við
sama aflamagn og þá var gert
ráð fyrir.
Ríkisstjórnin hefur lagt á
það megináhcrzlu að ljúka
þessum samningum fyrir ára-
mótin, svo að vertíð geti hafizt
þegar með eðlilegum hætti. —
Og er vertíð þegar hafin sums
staðar á landinu, eða í þann
veginn að hefjast.
Kosningaundirbúningurinn hafinn
Næsti fundur
Bændaklúbbsins
verður mánudaginn 13. jan-
úar á venjulegum stað og
tíma. Umræðuefni: Fram-
tíðarhorfur landbúnaðarins.
Framsöguerindi flytur Árni
G. Eylands stjórnarráðs-
fulltrúi.
Einn listi á Dalvík
Aðeins einn listi kom fram til
hreppsnefndarkosninga A Dalvík.
Er hann stúddur af fjórum stærstu
stjórnmálaflokkunum.
Fimm efstu menn listans eru:
Valdemar Óskarsson, sveitarstj.
Jón Jónsson, bóndi, Böggisst.
Kristinn jóhsson, oddviti.
Stgr. Þorsteinsson, kennari.
Valdem. Sigtryggsson, verkam.
Stjórnmálaflokkarnir hafa nú
lagt fram framboSslista sína fyrir
bæjarst jórnarkosningarnar, sem í
liönd fara. Þjóðvarnarflokkurinn,
sem við síðustu bæjarstjórnarkosn-
ingar hlaut einn mann, býður ekki
fram að þessu sinni.
Framsóknarmenn á Akureyri eru
svo heppnir að hafa valinn mann
í hverju rúmi í efstu sætum fram-
boðslista síns. Þarf ekki að kynna
þá sérstaklega að öðru leyti en því,
sem þeir gera væntanlega sjálfir í
næstu tiilublöðum Dags.
Uppstillingarnefnd sú, sem kosin
var til að gera tillögur um manna-
val og niðurröðun á listanum, varð
sammála. Frahaboðslistinn var síðan
samþykktur alveg einróma á full-
trúaráðsfundi og síðar á flokksfundi
Framsóknarmanna og lýst við hann
fyllsta stuðningi allra viðstaddra
fundarmanna.
Er Jrað Framsóknarmönnum mik-
ill styrkur að ganga einhuga til
kosriingaundirbúningsins og síðan
til sjálfra kosninganna 26. janúar.
Kosningaundirbúningurinn er nú
hafinn af fullum krafti. Skrifstofa
flokksins er á sama stað og áður (á
Hótei Goðafoss) og er þess vænzt,
að stuðningsmcnn Framsóknar-
flokksins við bæjarstjórnarkpsning-
arnar hafi sem nánast samband við
skrifstofuna og erindreka flokksins,
Ingvar Gíslason.
Þá vill blaðið einnig minna á,
að því ertt kærkomnar upplýsingar
og ábendingar frá stuðningsmönn-
um lista Framsóknarmanna.
Lítillega var rætt um það í upp-
hafi kosningaundirbúningsins, að
vinstri flokkarnir hefðu sameigin-
legan framboðslista. Þetta náði þó
ekki fram að ganga, en meðal Fram-
sóknar-, Alþýðuflokks- og Alþýðu-
bandalagsmanna er mikill áhugi
fyrir náinni samvinnu um bæjar-
málin að kosningunum loknum.
Hveragerði - heilsulindabær?
í sumar komu hingað nokkrir
þýzkir vísindamenn til að rann-
saka hverasvæði með tilliti til
lækninga. Var það Elli- og hjúkr
unarheimilið Grund, sem gekkst
fyrir komu þeirra. Niðurstöður
rannsóknanna liggja nú fyrir að
nokkru og nokkrar tillögur þess-
ara vísindamanna. Eru þær að
mestu miðaðai' við Hveragerði,
sem þeir telja einkar hentugan
stað til lækninga og til að stofn-
setja á heilsuhæli við hinar heitu
uppsprettur. Meðal annars, sem
Þjóðverjarnir leggja áherzlu á er
þetta:
1) Lagasetningu um notkun
jarðhitans (Ath.: Stjórnarfrum-
varp um það mál liggur fyrir Al-
þingi.), 2) takmai'kanir og sparn-
að í hagnýtingu jarðhita, 3) að
umhverfi hversins Grýtu verði
varðveitt óbreytt, en þann hver
telui' prófessorinn einn merki-
legastan í Evrópu, 4) hreinsað
verði til á öllu hverasvæðinu, 5)
Fundur Framsóknarmanna
Næsta miðvikudag heldur Framsóknarfélagið á Akureyri fund
um bæjarmál og kosningarnar. Hefst hann kl. 8.30 að Hótel KEA.
Þrír efstu menn á lista flokksins: Jakob Frímannsson, kaupfélags-
stjóri. Guðmundur Guðlaugsson, forstjóri, og Stefán Reykjalín,
byggingameistari, hafa framsögu. Ennfremur ræðir Ásgeir Valde-
marsson, bæjarverkfæðingur, um skipulagsmál bæjarins o. fl. —
Frjálsar umræður verða á eftir. — Eru Framsóknarmenn og allir
stuðningsmenn þeirra við næstu bæjarstjórnarkosningar velkomnir
og hvattir til að mæta. —- Fundurinn verður auglýstur nánar síðar..
þess gætt að fleygja ekki rusli í
hverina og þrifnaðar gætt á þeim
slóðum, 6) gert verði nákvæmt
kort af öllu hverasvæðinu og
efnarannsóknir. Að lokum telur
hann öll skilyrði vera í Hvera-
gerði til að fá mikið, heilnæmt
vatn úr jörðu. — Prófessor dr.
Kampe, sem er sérfræðingur í
jarðborunum eftir heitu vatni og
heimsfrægur verkfræðingur, seg-
ir m. a. að ákveða þurfi, hver
hafi forystu um framkvæmdir og
hver fái leyfi til þeirra og hve-
nær. Gera þurfi skipulagsupp-
arætti af leiðslum, vegum, bygg-
ingum og skrúðgörðum o. s. frv.,
enda óhugsandi að reka heilsu-
hæli án skrúðgarða. Gera skuli
fyrirfram rannsóknir, athuganir
og áætlanir en ekki rasa um ráð
fram að vanhugsuðu máli. —
Prófessor dr. Ott, Bad Neuheim,
færasti gigtarsérfræðingur Evr-
ópu, telur í Hveragerði vera öll
nauðsynleg skilyrði fyrir heilsu-
lindarhæli, sérstaklega frá lækn-
isfræðilegu sjónarmiði með til—
liti til gigtarlækninga og endur-
þjálfunar (eftir lömun, slag o .s.
frv.). — Fjórði prófessoi'inn, di’.
Thauer, Bad Neuheim, ritar
einnig um þessi mál. — Telja
þeir allir, að skilyrði frá náttúr-
unnar hendi séu ákjósanleg til að
koma á fót heilsugæzlustöð í
Hveragerði.
Líklegt er að fleiri staðir á
landinu séu vel fallnir til lækn-
inga, svo sem Námaskarð í Mý-
vatnssveit o. fl.
B-LISTINN er l.isti Framsóknarfiokksins
KOSNINGASKRIFSTOFA FRAMSÓKNARMANNA er í Hafnarstræti 95 (Hótel Goða-
foss), opin kl. 10—10. SÍMI 1443. MUNIÐ, að utankjörfundaratkvæðagreiðsln er hafin. —
Kosið er hjá sýslumönnum, bæjarfógetum (borgarfógeta í Rvík), og hreppstjórum. B-listinn.