Dagur - 25.01.1958, Blaðsíða 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 29. janúar.
XLI. árg.
Akureyri, laugardaginn 25. janúar 1958
7. tbi.
Jakob Frímannsson. Guðmundur Guðlaugsson. Stefán Reykjalín. Gísli Konráðsson. Sigurður Óli Brynjólfsson.
Bjarni Jóhannesson.
Richard Þór-ólfsson.
Sigríður Árnadóttir.
Lárus Haraldsson.
Á moi'gun er kosið til bæjarstjórnar. Skal
hér minnt á nokkur atriði til glöggvunar
fyrir kjósentlur. Vinstri flokkarnir hafa
samvinnu um nokkur stærstu málefni bæj-
arfélagsins. Þannig er þeim tryggt öruggt
meirihlutafylgi innan bæjarstjórnarinnar og
er það vænlegt fyrir framgang þeirra.
Vinstri flokkarnir hafa ákveðið að reyna
að koma Utgerðarfélagi Akureyringa h.f.
aftur á réttan kjöl. Gjaldið varhuga þeim
áróðri, hvaðan sem hann kemur, að ekki
megi hrófla við málefnum félagsins eða hafa
þar mannaskipti. Ú. A. er nú gjörsamlega
rúið öllu lánstrausti eftir 20 milljón króna
taprekstur. Hlutabréf þess einskis virði en
hljóta verðgildi á ný ef hagur félagsins
vænkast.
AKUREYRINGAR! Hvort óskið þið
heldur að taka höndum saman um gagn-
gerðar breytingar á rekstrinum til viðreisn-
ar eða verða vitni að nauðungaruppboði og
sölu togaranna til annarra landshluta?
UM ÞAD ER KOSIÐ Á MORGUN.
SAMVINNUMENN. Hafið þið gert ykk-
ur það nægilega ljóst að Framsóknarflokkur-
inn er hugsjónum ykkar sverð og skjöldur.
En ávextir þeirra hugsjóna eru
KEA og SÍS, sem veita á 8. hundrað manns
fasta og örugga atvinnu árið um kring. Vit-
ið þið að stoínanir og fyrirtæki Samvinnu-
manna á Akureyri, hlutafélög og
starfsmenn þeirra greiða nær 5 milljónir
króna x útsvömm og samvinnuskatti til bæj
arsjóðs — eða um 30% af öllum útsvarstekj
um bæjarins. Blöð Sjálfstæðismanna íáðast
gegn samvinnusamtökum fólksins og bera
það jafnvel á borð opinberlega að hinn
mikli atvinnurekstur samvinnumanna geri
bæimt nær óbyggilegan. Kjósendur. Viljið
þið beia saman framtak samvinnumanna
undir forystu Framsóknarmanna í þessuni
bæ og verk keppinautanna, kaupmannanna,
hins vegar.
Hver stefnan finnst ykkur farsælli, almenn
og jöfn hagsæld almennings, undir merki
samvinnumanna eða kenning samkeppnis-
manna um nauðsyn fáiva ríkra og margra fá-
tækia. Hyggið að því, góðir kjósendur, að
hinir ríku, sem eiga að veia eins konar mátt-
arstólpar bæjarfélagsins, samkv. íhaldskenn-
ingunni, þurfa fyrst að ná auði sínum fiá
fólkinu. Um þessar gjörólíku stefnur er kos-
ið á morgun. 5__
Verkamenn. Hvort finnst ykkur meira at-
(Framhald á 7. síðu.)
Gumibjörn Arnljótsson.
Skafti Áskelsson.
Ingvi Rafn Jóhannsson.
Björn Guðmundsson.
Arnþór Þorsteinsson.