Dagur - 22.02.1958, Qupperneq 1
Fylgist með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 116G.
AGUR
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 26. febrúar.
XLI. árg.
Akureyri,
laugardagimi 22. febrúar 1958
12. tbl.
Frá skemmtun B-listans að
Hótel KEÁ fyrra fimmtudag
Allir skemmtu sér ágætlega
Stuðningsmenn B listans skemmta sér að Hótel KEA við söng, ræður og dans að kosningum loknum.
Ræðumenn Jóhann Frímann skólastjóri og Ingvar Gíslason erindreki. Ásgrímur Stefánsson stjórnaði.
Aðalfundur Akureyrardeildar KEÁ
r
Félagar 2412 - Armann Dalmannsson endur-
kjörinn deildarstjóri
Aðalfundur Akureyrardeildar
Kaupfélags Eyfirðinga var hald-
inn sl. mánudag. Deildin telur nú
2412 félaga. Innvegin mjólk frá
Akureyrardeild í Mjólkursamlagi
KEA var 505692 kg. og meðalfita
mjólkurinnar 3,6%. Um 11500
fjár var slátrað, og er það langt-
um meira en nokkru sinni fyrr.
Af þessu magni kom þó ekki
nema nokkur hluti til innleggs.
Hrein eign deildarinnar er rúml.
80 þús. kr.
Tillaga kom fram um það, að
taka aftur upp deildarábyrgðir,
en var felld.
Á fundinum flutti Jakob Frí-
mannsson kaupfélagsstjóri yfir-
litsræðu um starfsemi KEA á
liðnu ári, sem efnislega hefur
verið birt hér í blaðinu áður í
umsögn af félagsráðsfundi, sem
haldinn var fyrir skömmu.
Kosningar.
Ármann Dalmannsson var
endurkosinn deildarstjóri Akur-
eyrardeildar til næstu þriggja
ára. í stjórn deildarinnar voru
endurkjörnir þeir Sigurður O.
Björnsson og Jón Kristinsson til
þriggja ára, og Sigtryggur Þor-
steinsson var einnig endurkjör-
inn félagsráðsmaður deildarinnar
til eins árs og varamaður Erling-
ur Davíðsson. Þá Voru kosnir 80
fulltrúar á aðalfund KEA, þar að
auki er formaður sjálfkjörinn.
Stjórn deildarinnar skipa nú:
Ármann Dalmannsson, Sigurður
O. Björnsson, Jón Kristinsson,
Haraldur Þorvaldsson, Tryggvi
Þorsteinsson og Marteinn Sig-
urðsson.
Snjóbílar halda uppi samgöngum
í Suður-Þingeyjarsýslu
Smásíldarveiðum lokið á Pollinum
Hásetahlutur 40-50 |)íisund krónur
Goðafoss horfinn bak við klakabrynju
í gær voru komin rúmlega 28
þús. mál smásíldar til Krossa-
nesverksmiðjunnar og mun síld-
veiðum þar með lokið. Krossa-
nesverksmiðja hefur unnið úr
síld og fiskúrgangi frá hrað-
frystihúsinu til skiptis og hefur
það mjög aukið atvinnu.
Hásetahlutur hjá aflahæstu
bátunum mun orðinn 40—50 þús.
kr. yfir rúmlega þrjá skammdeg-
ismánuðina.
Oft hefur komið mikið a£
þorski í síldarnætur, jafnvel svo
Heil stétt í hættu
Fosshóli 21. febrúar.
Eg er búinn að fá gigt af kyrr-
setum, sagði Sigurðui' bóndi, er
blaðið átti tal við hann, enda hef
eg ekki komið á ball síðan um
nýjái', og er alveg dæmalaust. En
eg gæti trúað að víðar væri
fremur dauft, til dæmis hef eg
tæplega rekist á nokkra einustu
trúlofun, hvorki í Akureyrar-
blöðunum eða sunnanblöðunum,
og sýnist mér, að ekki verði
mikið fyrir ljósmæður að gera
eftirleiðis, ef svo heldur fram
sem nú horfir.
að tonnum skiptir, en atvirma í
landi hefur verið svo mikil, að
fáir hafa farið á færi eða róið
með línu, enda er fiskurinn vand
hittur og vandlátur hvað snertir
beituna. Mikið hefur verið af
svartfugli.
Á miðvikudagsmorguninn brann
vélaverkstæði Guðmundar Val-
geirssonar í Auðbrekku í Hörg-
árdal til kaldra kola. Guðmundur
var að vinnu á verkstæði sínu
snemma dags, er sprenging varð
og húsisð, sem er braggabygging,
varð alelda á svipstundu. Sjálfur
slapp hann naumlega.
Guðmundur í Auðbi-ekku var
nýlega búinn að afla sér dýrra
tækja til verkstæðisins. Hann
hefur unnið þarft verk fyrir
bændur og haft mikið að gera. —
Er því hið tilfinnanlegasta tjón af
bruna þassum fyrir sveitina, auk
þess feikna tjóns, sem eigandinn
varð fyrir.
Innbrot framið
f fyrrinótt var innbrot framið í
Áfengisverzlun ríkisins hér í bæ.
Lögreglan handtók innbrotsþjóf-
inn og hafði hann þá kastað gin-
flösku út um brotinn gluggann
og var með nokkrar flöskur í
fanginu, er þjóna réttvísinnar bar
að. Maðurinn, sem þarna var
staðinn að vei'ki var ölvaður og
héðan úr bænum. Mál hans er í
rannsókn.
Alls engu varð bjargað og
brunnu verkfæri öll og auk þess
tveir bílar, fólksbíll og jeppi.
Svalbakur kom til Akureyrar
með 122 tonn af fiski síðastliðinn
mánudag. Ljósavél skipsins
hafði bilað og er tcgarinn hér
ennþá.
Sléttbakur landaði hér á
þriðjudag. Afli hans var 212 tonn
og hann farinn á veiðar.
Fosshóli 21. febrúar.
Sjaldan eða aldrei hefur verið
jafn hvítt yfir að líta. Jafnvel
vörður og stórir steinar eru
horfnar. Samgöngur eru mjög
litlar, því að engum bílum er
fært nokkurs staðar, öðrum en
snjóbílum. En þeir eru 4 til í
sýslunni og eru látlaust í förum.
Flytja þeir rjóma úr sveitunum
til mjólkursamlagsins í Húsavík.
En úr nágrenni kaupstaðai'ins
flytja þeir mjólk. Þessi farartæki
Scgulbandstæki stolið
Nýlega var segulbandstæki
stolið úr húsi í miðbænum og
hefur ekki fundizt. Biður lög-
reglan þá, sem kynnu að geta
gefið upplýsingar í máli þessu, að
gera aðvart á lögregluvarð-
stofuna.
Kaldbakur kom í gærmorgun
með 220 tonn (áætlað).
Ilarðbakur kemur væntanlega
næstkomandi mánudag.
Afli togaranna hefur verið
með langbezta móti nú um tíma
og vinna við nýtingu aflans mjög
mikil.
eru hín þörfustu og halda lífinu
í fólkinu, því að enn hafa menn
ekki það lagið á, að byrgja sig
upp með vörur að haustinu.
Goðafoss syngur döprum rómi,
því að klakabrynja hylur hann
að mestu. Skjálfandafljót er lagt
alla leið frá fossinum og fram hjá
Ulfsbæ, og mun það sjaldgæft á
þessum kafla.
Algert samgönguleysi
Haganesvík 21. febrúar.
Hér er ákaflega mikill snjór og
allar samgöngur hafa legið niðri
síðan um áramót að heita má. —•
Fyrir nokkrum dögum var komið
á dráttarvélum frá Brúnastöðum
og Stórholti og þótti viðburður
að sjá farartæki. Vandræði hafa
þó enn ekki orðið af þessum sam
gönguerfiðleikum, sem telja má
mjög alvarleg. Fólkið býr sig
undir slíka vetur hér um slóðir.
Margt fólk fór til Suðurlands úr
áramótum og er víða fámennt á
heimilunum. Snjóbíll er hér til,
en hefur vantað til hans vara-
hlut, sem nú er víst á næstu
grösum. — Sextugur varð Áx-ni
Sæmundsson á Brúnastöðum 4.
febrúar sl. Hann er ötull bif-
reiðastjóri og vinsæll. Hann fékk
góðar gjafir þann dag, ræður og
kvæði.
Verkstæði brennur að Auðbrekku
Eigandimi slapp ómeiddur, cn hús og vélar
eyðilögðust - Tveir bílar brunnu inni
Ákureyrartogararnir afla vel