Dagur - 02.04.1958, Page 1
Fylgizt með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
DAGUR
kemur næst út fimmtu-
daginn 10. apríl.
XLI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 2. apríl 1958.
19. tbl.
Flugvélarflakið á Öxnadalsheiði. — (Ljósmynd: E. D.).
Fjórir ungir menn fórusf í flugslysi
a Öxnadelsheiði sl. laugard.
Slysstaðurinn er nálægt vatnaskilum á heiðinni
Það sviplega slys varð sl. laugardagskvöld, að fjórir ungir
■aienn fórust í flugslysi á Öxnadalsheiði. Fundust þeir látnir,
ásamt flaki flugvélarinnar, á sunnndagsmorgun, nokkra
metra frá þjóðveginum, 3—4 km. frá Bakkaseli, aðeins vestan
við vatnaskil á heiðinni.
Sjúklingar á Kristneshæli mót-
mæla harðlega öllum breytingum
í nmræðum þeim, að leggja Kristneshæli niður, og breyta
því í hæli fyrir geðveika, en hyggja 15—20 manna berkladeild
við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri, hefur þótt sýnt að mjög
yrði gengið á rétt berklasjúkra og Norðlendinga yfirleitt.
Þótti blaðinu rétt að sjúklingar á hælinu létu álit sitt í ljósi
um viðhorf sín til málsins og fara hér á eftir svör þess og
munu margir geta tekið undir þau.
Piltarnir, sem þarna fórust
voru þessir: Geir Geirsson frá
Djúpavogi, flugmaður, Jóhann
Möller, Reykjavík, Bragi Egils-
son frá Uléskógum, Höfðahverfi,
og Ragnar Ragnars, Siglufirði.
AUir tvítugir, nema Geir, sem
var 21 árs.
Þeir luku allir stúdentsprófi
við Menntaskólann á Akureyri i
fyrravor og settust í Háskóla fs-
lands í haust, nema Geir, sem var
við flugnám. Allir voru þeir hinir
mestu efnismenn og drengir góð-
ir. Er því sár harmur kveðinn við
fráfall þeirra.
Hinir ungu menn lögðu af stað
frá Reykjavík á laugardaginn kl.
5 síðdegis í flugvél frá flugskól-
anum Þyt, og var hún af Cessna-
gerð (Cessna 172). Var vélin ný
og fjögurra sæta. — Þegar vélin
kom ekki á áætluðum tíma til
Akureyrar, kl. 6,45, var eftir-
grennslan hafin. Fréttist þá að til
hennar hefði heyrzt frá Kotuin í
Norðurárdal og var hún þá á
réttri leið. En í Bakkaseli hafði
hennar ekki orðið vart. Lágskýj-
að var.
Strax voru leitarflugsveitir
kallaðar á vettvang, bæði frá
Reykajvík, Sauðárkróki og Ak-
ureyri. Héðan frá Akureyri fór
45 manna hópur undir stjóm
Tryggva Þorsteinssonar skáta-
foringja. En hann er einnig leit-
arstjóri Flugbjörgunarsveitar-
innar á Akurcyri.
Færi var svo háttað, að þjóð-
vegurinn er skafinn og greiðfært
út á Moldhaugaháls, en ekið á
snjó þaðan og fram Þelamörk og
Öxnadal. Varð það tafsamt ferða-
lag. Komið var í Bakkasel kl. 6.30
á sunnudagsmorgun eftir átta og
hálfan klukkutíma. Síðasta spöl-
inn, frá Engimýri, á beltisdrátt-
arvél Ásgríms bónda á Hálsi.
Leitarmenn höfðu þá skipt sér
í 3 hópa. Richard Þórólfsson var
fyrir leitarflokki í Hólafjöll, en
Jón Sigurgeirsson frá Helluvaði
var fyrirliði annars flokks á
Hörgárdalsheiði. Tryggvi Þor-
steinsson hélt að Bakkaseli með
sína menn, ásamt Ólafi Ólafssyni
lækni.
Þegar þangað kom var leitar-
vél rétt búin að finna flak hinnar
týndu vélar á fyrrgreindum stað.
Var því förinni tafarlaust haldið
áfram frá Bakkaseli, en hinir
leitarflokkamir kallaðir til baka.
Lík hinna dánu voru svo flutt
á sjúkrasleða, sem beltavélin dró,
að Engimýri, en þaðan á bifreið-
um.
Til Akureyrar var komið kl.
tæplega 3 um daginn.
Tala vistmanna fyrr og nú?
Síðastliðin fimm ár hefur tala
sjúklinga um áramót verið þessi:
Árið 1958 58 sjúklingar. — Árið
1957 53 sjúklingar. — Árið 1956
50 sjúklingar. — Árið 1955 58
sjúklingar. — Árið 1954 71 sjúkl-
ingur.
Á tímabilinu 1940 til 1950 er
fjöldi sjúklinga hér um áramót
62 til 70, kemst þó eitt árið upp
í 75.
Á þessum árum er hælið yfir-
fullt, þar sem samkvæmt gildandi
reglum um gólfflatarrými á
sjúkling, rúmar Kristneshæli
ekki nema 58 til 60 sjúklinga.
Hvernig festið þið yndi hér?
Frá náttúrunnar hendi er stað-
urinn hinn ákjósanlegasti, svo að
vart mun hægt að finna annan
betri, enda mikið búið að gera til
að fegra hann og prýða, svo að
þeir, sem flytja þurfa frá heimil-
um sínum, geta vart kosið sér
ánægjulegri stað til dvalar.
Þá er hér stór og mjög vistleg
dagstofa, sem líka gegnir því
hlutverki, að vera samkomu- og
kvikmyndasalur fyrir sjúklinga,
þar fara og fram spil, tafl og
ýmsar aðrar skemmtanir.
Hljóðfæri og ýmis önnur tæki
til skemmtana hafa sjúklingarnir
aflað sér, bæði sjálfum sér og
þeim ,sem á eftir koma, til ynd-
isauka.
Mjög gott bókasafn er orðið
hér með um 5000 bindi.
Vinnustofur og aðstaða að öðru
leyti?
Hér eru vinnustofur góðar,
trésmíðavinnustofa og sauma-
stofa, einnig aðstaða til ýmiss
konar smávinnu, sem sjúkling-
arnir hafa unnið að. Bókbands-
stofa hefur einnig verið rekin
hér, og hefur hún framkvæmt
allt bókband vegna bókasafns
sjúklinga.
Hafa sjúklingar, sem nokkurri
vinnugetu hafa náð hér, ágæta
aðstöðu til að efla starfsorku, auk
þess sem timinn líður fljótar ef
Geir Geirsson.
menn hafa eitthvað við að vera.
Hvað um langdvalarsjúklinga?
Við teljum, að við fyrirhugaða
breytingu yrði þeirra hlutur
verstur. Margir hafa dvalið hér
um árabil, sumir jafnvel áratugi.
Þennan stað líta þeir nú á sem
sitt heimili.
Við brottflutning af Kristnes-
hæli nú, gæti maður ímyndað
sér, að þeim yrði eitthvað svipað
í huga, og þá er þeir fóru að
heiman frá sér til dvalar á hæl-
inu.
Sú aðstaða, sem þeim hefur
skapazt hér, fyrir góðan skilning
ráðamanna hælisins á hverjum
tíma, og með margvíslegri félags-
starfsemi mun að engu verða.
Berkladeild á Akureyri?
Það hefur hingað til verið talið
heppilegra að staðsetja slík hæli
í sveit, en þéttbýli, óg þess vegna
staðarval óheppilegt á Akureyri.
Aðstaða til útivistar mundi erf-
ið, þar sem enn ríkir sá ótti með-
al fólks, að allir þeir, sem á
berklahælurrr dvelja, séu það
hættulegir, að varast verði sem
allra mest samneyti við þá. Yrðu
þeir því illa séðir af mörgum á
götum bæjarins, eða þar sem fólk
er fyrir með þannig skoðanir. —
Slíkir árekstrar mundu óhjá-
kvæmilegir, — svo framarlega að
sjúklingarnir yrðu ekki innilok-
aðir á ákveðnu svæði.
Á nýjum stað tekur langan
tíma að byggja upp félags- og
skemmtanalíf ,en það er nauð-
synlegt berklasjúklingum, sem í
mörgum tilfellum þurfa langa
hælisvist.
Geðveikrahæli að Kristnesi?
Um að taka Kristneshæli
handa geðsjúklingum og fávitum,
álítum við að það sé ekki betur
staðsett hér en hvar sem væri
annars staðar,
En erum eindregið andvíg því,
að skort á hæli handa geðsjúku
fólki eigi að leysa á kostnað
berklasjúklinga.
Heildarrök gegn breytingunni?
1. Kristneshæli er stofnað og
byggt sem berklahæli Norðlend-
inga.
2. Það er næstum fullsetið
og því of snemmt að leggja það
niður.
3. Tala sjúklinga hefur farið
vaxandi þrjú sftastliðin ár.
4. Á árinu 1957 komu inn á
hælið 44 nýjir sjúklingar.
5. Það mundi sennilega óhjá-
kvæmilegt að flytja ýmsa lang-
dvalarsjúklinga til Vífilsstaða og
með því taka upp hina illræmdú
,,hreppaflutninga“ á olnboga-
börnum þjóðfélagsins.
6. Félagsstarfsemi þyrfti að
byggja upp frá grunni.
7. Eignum „Sjálfsvarnar", fé-
lags berklasjúklinga í Kristnes-
hæli, yrði erfitt að ráðstafa á
réttlátan hátt.
Bragi Egilsson.
Jóhann Möller.
Ragnar Ragnars.
(Framhald á 7. síðu.)