Dagur - 30.04.1958, Page 8

Dagur - 30.04.1958, Page 8
8 Baguir Miðvikudaginn 30. aprí 11958 Bifreið Raflagnadeildarinnar að renna úr lilaði með rafvirkja og farangur. — (Ljósmynd: E. D.). Ýmis tíðindi úr nágrannabyggðum Rðflagnadeiid KEA hefur seff raflapir á 220 sveitabæjum og liúsum i sjávar þorpum á fjórum árum Kaupfélag Eyfirðinga lánaði þrjá fjórðu stofn- kostnaðar og gerði á þann hátt inögulegt að lyfta „Grettistaki44 Allir kannast við hina miklu áætlun rafvæðingarinnar hér á lanidi, sem í senn var nauðsyn, sýndi stórhug og framkvæmda- vilja þjóðarinnar, og einnig var viðurkenning stjórnarvaldanna á jafnrétti fólksins í byggð og bæ á þeim lífsgæðum, sem rafmagn- ið veitir. Eins og í fleiri aðkallandi fram- kvæmdamálum byggðanna varð það Kaupfélag Eyfirðinga, sem að ósk bænda tók að sér fyrir- greiðslu þessa máls í héraði. Og vegna þess hve hljótt hefur ver- ið um þetta mál á þeim fjórum árum sem síðan eru liðin, þykir rétt að benda á nokkrar stað- reyndir til fróðleiks og glöggv- unar á rafmagnsmálum almennt. Og það eru hæg heimatökin fyrir Dag að afla sér nokkurra upp- lýsinga, því Raflagnadeild KEA er svo sem 10 metra frá skrifstof- um blaðsins, og aðeins yfir þvera götu að fara. En það er einmitt Raflagna- deild KEA, sem stofnuð var til að leysa rafmagnsmál byggðanna á íaglegan hátt og með þeirri fjárhagsaðstoð, sem mest lá á, þegar slíkar stórframkvæmdir skyldu hefjast. Framan við Raflagnadeildina stendur stór ferðabíll, hlaðinn margskonar efni til raflagna og tilbúinn til ferðar, og þar eru starfsmenn deildarinnar% ásamt deildarstjóra sínum, Ingva Hjör- leifssyni, og réttast er að grípa tækifærið og leggja fyrir hann nokkrar spurningar. Hvenær var raflagnadeildin stofnuð? Um miðjan apríl 1954, og er hún því fjögurra ára um þetta leyti, á þeim grundvelli sem hún starfar nú. Og hver var tilgangurinn með stofnun hennar? Stjórn og framkvæmdastjóri K E A höfðu ákveðið að vinna að því að fremsta megni, að sem ílestir gætu notið rafmagns í dreifbýlinu, og komu á móti ósk- •um fólksins um aðstoð. Raf- lagnadeildin og störf hennar eru árangur af þeirri viðleitni félags- ins. Og hvert er svo orðið hennar stai'f? Á þessum árum hefur Raf- lagnadeildin sett upp raflagnir í yfir 220 sveitabæi og hús í sjáv- arþorpum út með firðinum, á- samt útihúsum o. fl. Ennfremur höfum við séð um lagnir í þrjú félagsheimili og nokkra bæi, sem hafa einkarafstöðvar, og einnig má nefna 6 bæi í Ljósavatns- hreppi og Fnjóskadal. Svo höf- um við annast raflagnir fyrir fyrirtæki samvinnumanna hér í bænum, svo sem frystihús, slát- urhús, kjörbúðir og í báta og skip Skipasmíðastöðvar KEA. Ingvi A. Hjörleifsson. Hve margir eruð þið, starfs- menn deildarinnar? Það er misjafnt, eftir því hve mikið er að gera. Við erum oft þetta 7—10. Þeir, sem vinna hérna núna eru: Þorsteinn Sig- urðsson, Þorvaldur Snæbjörns- son, Sigurjón Antonsson, Árni Viggósson, Davíð Zophoníasson, Bjarki Baldursson og Björgvin Leonardsson. Tveir þeir síðast- töldu eru lærlingar, hinir svein- ar. Auk þessara manna, sem vinna að raflögnunum er svo Anton Kristjánsson afgreiðslu- maður verzlunarinnar. En verzl- un höfum við haft í nær þrjú ár og hafa skipti við hana verið mikil. Hvert eruð þið að fara núna? Að Hrafnagili. Þar erum við að setja raflögn í nýja félagsheim- ilið, sem þar er í byggingu. En nú er ekki til setunnar boðið og Ingvi kveður. Blaðið þakkar honum fyrir upplýsingarnar og það kemur í ljós að hann hefur ekki talið sjálfan sig áðan. Ingvi A. Hjörleifsson er raffræðingur að menntun og hafði lokið námi hjá Rafmagnsdeild Vélskólans í Reykjavík, áður en hann varð deildarstjóri hinnar nýju deildar kaupfélagsins. Hann er mjög áhugasamur starfsmaður og vel fær í sinni grein. En sagan er ekki öll sögð enn þá og leitaði því blaðið upplýs- inga hjá ski'ifstofustjóra KEA Arngrími Bjarnasyni og bað hann að segja því á hvern hátt KEA og í hve stórum stíl það hefði veitt fjárhagslega aðstoð hinum dreifðu byggðum til að gera bændum kleift að leggja í svo mikinn stofnkostnað, sem rafmagnið hefur í för með sér. Skrifstofustjórinn upplýsir að KEA hafi lánað vegna rafvæð- ingarinnar um 2 milljónir og 110 þús. krónur, til þriggja ára og með sömu vöxtum og önnur( vörukaup. Langflestir bændur þurftu þessarar aðstoðar við og þessi lán gerðu fólki mögulegt, auk þeirrar fyrirgreiðslu, sem áður getur, að fá hið lengi þráða raf- magn. Raflagnadeildin var stofnuð vegna bændanna og hefur verið þeim til ómetanlegs hagræðis. Starfsmenn hennar hafa lagt raf- lagnir á 25 bæjum í Svárfaðar- dal, 87 í Árskógs-, Arnarnes- og Skriðuhreppi, 45 bæi í Onguls- staðahreppi, 63 í Höfðahverfi og Hrísey og aðrir aðilar hafa svo þar að auki unnið hjá nokkrum bændum. En þessar tölur sýna líka, að enn er mikið starf fyrir höndum í sveitunum við Eyja- fjörð og margir bíða óþreyju- fullir eftir þeim líljsþægindum, sem nú er viðurkennt að ekki eigi lengur að vera séreign kaup- staðanna, heldur alls lands- fólksins. Og enn bíða margir hinna þráðu lífsþæginda og er þar mikið starf fyrir höndum. Frá barnaskólimum Væntanlega innritast 194 börn fædd 1951 í barnaskólana í vor og hefja þá skólagöngu sína. Af þeim fara 18 í Glerárskólann, en hin skiptast milli Barnaskóla Akureyrar og Oddeyrarskólans. í Barnaskóla Akureyrar fara börn úr öllum bæjarhlutum nema Glerárhverfi, og þau börn af Oddeyri, sem ekki komast fyr- ir í Oddeyrarskólanum. (Framhald á 7. síðu.) Austur við Ástjörn í Keldu- hverfi er starfrækt sumarheimili fyrir drengi, síðan 1946. Upphaf- lega var það stofnað af Arthur Gook, trúboða, og samstarfs- manni hans, Sæmundi G. Jó- hannessyni, en nú hefir söfnuð- urinn á Sjónarhæð tekið við því fyrir nokkrum árum. Skáli sá, sem fyrst var reistur, er nú orðinn alls ónógur. Hefir því verið hafizt handa um smíði á húsi, sem betur gæti fullnægt þörfinni og meðfylgjandi mynd sýnir. Konur í söfnuðinum beita sér fyrir munasölu og kaffisölu að Sjónarhæð, fimmtudaginn 1. maí, Saiiðárkróki, 21. apríl. Föstudaginn 11. þ. m. var Sigurði Sigurðssyni, sýslumanni, haldið kveðjuhóf í Bifröst. Hann Itefur gegnt sýslumannsembættinu í Skaga fjarðarsýslu í 33 ár og bæjarfógeta- embætti á Sauðárkróki síðan staður- inn fékk bæjarréttindi. Sigurður lætur nú af störfum fyrir aldurs sakir. Kveðjuhófið var mjög fjölmennt, og sat það fólk úr öllum hreppum sýslunnar og frá Sauðárkróki. Aðal- íæðurnar héldu þeir Hermann Jóns son, varaoddviti sýslunefndar, Pétur Hannesson, forseti bæjarstjórnar, og Jón Sigurðsson, alþingismaður á Réynistað. Fluttu þeir sýslumanni þakkir fyrir störf lians í þágu hér- tiðsins og persé>nuleg kynni um ára- tugi. Auk jteirra t()ku margir til ntáls og fluttu sýslumanni góðar og vinsamlegar ræður, er hann hverfur nú úr héraði eftir langa þjónustu í þessti mikilvæga embætti. Að lokum Outti heiðursgesturinn ræðu og Jtakkaði samstarfsmiinnum og öðr- um vinum lyrir langar og góðar samvistir. Sæluviku Skagfirðinga er nú lok- ið og ró óðum að færast yfir, eftir glaum og gleði vikunnar. Sæluvikan hófst að venju með messu í Sauðár- krókskirkju 13. ]>. m., og prédikaði séra Bjártmar Kristjánsson. Um kvöldið hafði Leikfélag Sauð- úrkróks frumsýningu á sjónleiknum Júpíter hlær, eftir A. [. Cronin. Lcikstjóri var Eyjtór Stefánsson. Þótti frumsýningargestum leikurinn hinn athyglisverðasti og yfirleitt af flnikilli prýði farið með vandasöm hlutverk. Var leikendum þökkuð góð frammistaða með kröftugu lófa- taki. Að frumsýningu lokinni kvaddi sér hljóðs Valgarð Blöndal. Minnti til ágóða fyrir bygginguna, eins og tilkynnt er á öðrum stað hér í blaðinu. Drengjaheimilið við Ástjörn er þegar fullskipað í sumar. st 4* hann á, að Jtennan dág værii ná- kvæmlega 70 ár síðan Leikfélag Sauðárkróks hið eldra var stofnað. Stofndagur J)ess var 13. apríl 1888. Valgarð rakti síðan í stuttu máli sögu leiklistarinnar hér og hinna tveggja leikfélaga, er starfað hefðtt á Jtessu 70 ára tímabili. Þakkaði hann að lokum Eyþóri Stefánssyni fyrir mikilvægt starf í þágu ])essara mála um áratugi. Guðjón Sigurðs- son, form. Leikfélags Sauðárkróks, þakkaði gjafir, er félaginu höfðu borizt í tilefni Jtessara tímamóta. „Júpíter hlær“ var sýndur ölí kviild vikunnar við ágæta aðsé)kn og ntjög góðar undirtektir leikhús- gesta. Sitt hvað fleira var til gamans gert, svo sem venja er á Sæluviku. Verkakvennafélagið Áldan hafðí þrjár sýningar á gamanleiknum Vinnukonuauglýsingin eftir Paa Kastervolder, og á skemmtun Jteirra. sungu „Skólasysttir" og Baldur og Iíonni skemmtu. Karlakórinn Heimir söng á föstu- dag, kvikmyndasýningar voru dag- lega og suma daga tvær. Dansað var fimm kvöld í röð og sum kvöldirt á tveim stöðum. Ráðunautarnir Oli V. Hansson og Agnar Guðnason fluttu erindi og sýndu ntyndir Jrrjá daga í vikunni. Stéidentafélagið gekkst fyrir mál- fundi á föstudagskvöldið, og var Guðm. G. Hagalín frummælandi. Fundurinn var allfjölmennur og hinn skemmtilegasti. já, Sæluvikunni er lokið að J)essu sinni. G. I. Leifshúsum, 27. apríl. Þá hefur veturinn kvatt og sum- arið heilsað. Fyrsta lóan heyrðist syngja hér á sumardaginn fyrsta, þó veðrið væri ekki skemmtilegt. Sauðburður er hafinn á nokkrum bæjum. Reyndar má segja, að hanrt standi yfir meiri hluta ársins, síðan l járskiptin fóru hér fram. og við tengum féð frá Vestfjörðum. Hér í hreppnum hafa á tveimur sfðttstu árum ær borið á öllum mán- uðum ársins, nema í nóvember og desember og ef til vill í júlí. Á ein- um bæ hér voru 11 ær hornar í fe- brúar og á nokkrum öðrum bæjum 1-3 ær. Vorverk eru ekki hafin, nema hvað byrjað er að setja kartöflur til spírunar. Tún eru að mestu leyti komin undan snjó, en eðlilega eru 'Jtaii mjcig blaut ennþá. Orfáir menn hér í hreppi hafa rauðmaganet í sjó og hafa aflað dá- lítið. Kvillar eru frekar með nieira móti í búfé, á 2—3 bæjum í sauðíé og allvíða í kúnt: 3 eða 4 kýr hafa farizt síðan um nýjár. Bráðádauði í kúm er J)ó að verða sjaldgæfur, en hann herjaði hér mjög fyrir fá- einum árum. Tvö hross drápust í vetur af fóðureitrun, að því að talið er. S. V. Surcarskáli drengja við Ásljörn

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.