Dagur - 19.06.1958, Page 7
Fimmtudaginn 19. júní 1958
D AGUR
7
Frú JúSí
frá Hjarðarholti
Fáein kveðjuorð
I’EIM FÆKKAR nú óðum, sam-
ferðamönnunum, sem ungir voru á
kreppuárunum á síðari hluta 19.
aldarinnar. Með þeim hnígur í val-
inn hetjusveit, sem reyndist ótrii-
lega seig og viljasterk. Klæðafá og
matarlítil gekk liún að erfiðum
störfum. Ekki voru vinnuvélarnar
til að létta undir. Klárunni varð að
beita við mulning áburðarins á
vorin og með ljánum að kroppa
stráin af þýlðu.m túnum og engjurn
á sumrin. Vatn varð að bera í bæ
og hús, því að ekki voru vatnsleiðsl-
urnar. Allt varð að spara. Ekkert
mátti kaupa. Allt varð að vinna
heima. A engu öðru en eigin dugn-
aði og útsjónarsemi var að byggja.
Mcð iðni og með því að leggja sam-
an nótt og dag varð að mæta erfið-
leikunum eins og bezt mátti.
Eina slíka kvenhetju daglegu
starfannna kvöddum vér Svarfdælir
í gærdag: Frú Jitliöt) u Flallgrims-
dóttur jrd Hjarðarholti á Dalvík,
ekkju Jóns organleikara' Stefánsson-
ar, er andaðist 25. jan. sl.
Frú Júlíana fæddist 11. júlí 1864
í Hofsárkoti í Vallasókn, en andað-
ist 5. júní sl. Vantaði þannig lítiðá,
að hún næði 94 ára aldri eins og
maður hennar. — Hún giftist árið
1888 fyrrnefndum Jóni Stefánssyni,
og er dánarár Jreirra þannig 70.
hjónabandsárið. Þau hófu búskap
á Hofi og bjuggu Jjar frá 1888—
1904, á Hjaltastöðum frá 1904—1910
og á Hánefsstöðum frá 1910—1925.
Þá fluttust þatt til Dalvíkur og
dvöldust þar síðan til æviloka.
Þeim hjónum varð finun barna
auðið, sem öll eru á lífi og fylgdu
móður sinni til grafar í gærdag,
ásamt börnum sínum og fleirum.
Börn Jteirra eru: Oddur, skósmiður
á Akureyri, Ebenhard, bílstjóri á
Akureyri, Solveig, ekkja eftir Ph.
Halblmtb og móðir Agúslar Halb-
laub, stöðvarstjóra við Laxárvirkj-
unina, en hún hefur annazt for-
eldra sína í ellikröm Jteirra af ein-
stakri fórnfýsi og mikilli prýði,
Hallgrimur, skósmiður í Revkjavík,
og Sigurlaúg, kona Kristins Jóns-
sonar, oddvita á Dalvik.
Ég þykist hafa óræka heimild
fyrir því, að Júlíana hafi verið
börnum sínum mikil og góð móðir,
og áreiðanlega hafa þau virt for-
eldra sína mikils. Það sýnir og sann-
ar hin rausnarlega gjöf, sem þau
færðu Vallakirkju til minningar um
þau: 5000 kr. í peningum. En að
Vallakirkju kusu þau hjón sér leg-
stað, enda höfðu þau bæði lengi
dvalizt í Vallasókn, og alla sína ævi,
að ég held, hér í byggðarlaginu.
Með frú J úlíönu er genginn góð-
ur og dugmikill fulltrúi hinnar
gömlu kýnslóðar, sem lítt kunni að
hlífa sér.
Blessuð sé minning hennar!
12. júní 1958.
V. Sn.
— Menntaskólmn á Ak.
(Framhald af 1. síðu.)
um er fórust í flugslysi á Oxna-
dalsheiði í vor, gert af Örlygi
Sigurðssyni. Anna Katrín Ernils-
dóttir hafði orð fyrir gefendum.
Úr hópi foreldra flutti sr. Halldór
Kolbeins skólanum kvæði og
Guðrún Tómasdóttir söng með
undirleik frú Margrétar Eiríks-
dóttur.
Að síðustu ávarpaði skólameist-
ari hina nýju stúdenta, sem að
tessu sinni voru 52, með snjallri
og viturri ræðu og afhenti þeim
prófskírteinin. Fimm þeirra hlutu
ágætiseinkunn. Þeirra hæstur
varð Jóhann Páll Árnason frá
Dalvík, hlaut 9,45, en það er
hæsta einkunn frá máladeild MA
eftir nýja kerfinu. Athöfnin var
fjölmenn og virðuleg.
Hópferð að Laugafelli
í ágúst á vegum F. A.
í ágústmánuði í sumar eru 10
ár liðin frá því, að FFA reisti sitt
fyrsta sæluhús, Laugafell. Ef tök
verða á, mun afmælisins minnzt
með hópferð að Laugafelli. Því
miður hefui' sæluhúsið lítið verið
notað af félagsmönnum í seinni
tíð. Vatnahjallavegi hefur eigi
verið við haldið hin síðari ár, en
leiðin að Laugafelli upp úr Bárð-
ardal er sæmilega greiðfær. Með
lagfæringu-á leiðinni frá Mýri að
Kiðagili og'betri merkingu þaðan
að Laugafelli mætti aka frá Ak-
ureyri að Laugafelli á 5—6 klst.'“
Kaupfélag Eyfirðinga og Kaup-
félag Þingéyinga hafa lagt fram
nokkurt fé-til stuðnings Ferðafé-
laginu.
Tunglið á leiðinni upp
Hcr sést er Bandaríkjamenn skutu upp hinu fyrsta gervitungli sínu
írá Carnevaldhöfða á Florida. Gcrði það bandaríski herinn mcð
Júpítcreldflaug.
AUGLÝSENDUR ATHUGIÐ! Auglýsingar þurfa
að hafa borizt blaðinu fyrir kl. 2 e. h. á þriðjud
- Sementsverksmiðjan
(Framhald af 1. síðu.)
enginn og hráefnið allt innlent
nema lítið eitt af gibsi.
Að sjálfsögðu gleðjast menn
yfir því að brátt kemur hið inn-
lcnda byggingarefni á markaðinn.
En þó gefa áætluð afköst til
kynna, að verksmiðjan er þegar
of lítil.
Innflutningur búvéla
(Framhald af 2. síðu.)
varahluta í landbúnaðarvélar og
dráttarvélarnar sjálfar. Þá hefur
hann gengið í það af miklum
krafti að gjaldeyrir varð fáanleg-
ur. Fyrir þá hjálp er eg mjög
þakklátur og það mega bænd-
urnir vera líka.
Hvað viltu segja um nýungar í
landbúnaðarverkfærum?
Fyrst má nefna „sláttutætar-
ann“. Frá honum hefur verið sagt
áður. Nýju Fergusonarnir (Fei'-
guson 35) geta dl'égið hann. En
minni tætari. er kominn á mark-
aðinn fyrir kraftminni vél, og
verður einn slíkur vonandi
keyptur í sumar.
Ileyklær eru þægilegar og
hyggst Verkfæranefnd gera til-
raun með heimkeyrslu á heyi
með þeim og heygaffli, sem
settur er framan á dráttarvél-
ina.
Tæki, sem dreifir úr sláttuvéla-
múgum, höfum við hug á að
kaupa og reyna í sumar.
Heybindivél af fullkomnustu
gerð verður reynt að fá til
reynslu í sumar. Sú vél lyftir
sjálf í sig heyinu og bindur það,
ón þess að maður þurfi að stjórna
henni sérstaklega.
Kastdreifara höfum við þegar
flutt inn. Einfalt verkfæri og
mjög afkastamikið.
Steyjjihræritunnu höfum við
látið smíða. Hún er fest á Fer-
guson og hrærir úr ca. 1 poka af
sementi í einu og dráttarvélin
lyftir svo steypunni og heílir í
mótin í 2,7 m. hæð.
Blaðið þakkar greinargóð svör
og óskar jtess að störf Hjalta
Pálssonar megi bera sem mestan
ávöxt fyrir bændur landsins.
E. D.
□ Rún'59586247 — Frl.: H. & V.:
Ferðafélag Akureyrar. 3. ferð,
21. —22. júní: Skagaför. Ekið um
Skagafjörð, Gönguskörð, Laxár-
dal, út Skaga að austan en inn að
vestan að Skagaströnd. Heim um
Kolkufjall. — Einnig kemur til
greina að aka að Giljá og heim
um Reykjabraut. í leiðinni verð-
ur stanzað í Glaumbæ og byggða
safnið skoðað, ennfremur Ketu-
björg o. fl. Tveggja daga ferð. —
Þátttaka tilkynnist Jóni D. Ár-
mannssyni, sími 1464, sem fyrst.
Kvenfélagið Framtíðin selur
merki á sunnudaginn kemur til
eflingar elliheimilisbyggingu á
Akureyri. — Bæjarbúar! Þess er
vænst að þið styðjið gott málefni.
Munið gamla fólkið.
Frá Leikfélagi Akureyrar. —
Sýningar á „Tannhvöss tengda-
mamma“ hefjast bráðlega. Áform
að er að fyrstu sýningar verði á
Sauðárkróki 21. júní og aftur á
sunnudag. Á Akureyri verða
sýningar 24. og 25. júní og síðan í
Þingeyjarsýslu. Frú Emilía Jón-
asdóttir fer með aðalhlutverkið
eins og áður.
Dagur fæst keyptur í Sölu-
tuminum, Hverfisgötu 1, Rvík.
Hjálpræðisherinn. Sunnudag-
inn 22. júní kl. 8.30: Kveðjusam-
koma fyrir Þórdísi Jónsdóttur
Allir hjartanlega velkomnir.
Sóknarprestar bæjarins verða
fjarverandi vegna prestastefn-
unnar. Séra Sig. Haukur Guð-
jónsson á Hálsi þjónar fyrir þá á
meðan. Embættisbækur eru hjá
séra Friðrik J. Rafnar.
Næsta kvöldferð á vegum
Ferðaskrifstofunnar verður farin
fimmtudaginn 19. júní (í kvöld).
Farið verður út í Grenivík. Lagt
af stað kl. 8.
Áskriftarsími og afgreiðsla
Tímans á Akureyri er 1166.
Þýðingarmikið atriði
Sam. þjóðirnar benda á að barns
fæðingar í Evrópulöndum og ný-
lendum, sem byggðar eru Evrópu
fólki, sé hið þýðingarmesta at-
riði og að rannsókn þess hafi ekki
verið gerð í þeim tilgangi, að
sferifa tómar tölur. Það hefir ekki
svo lítið að segja, að geta sagt
nokkurn veginn fyrir hve mikið
vinnuafl verði fyrir hendi í
hverju landi fyrir sig á hverjum
tíma, hve mörg börn muni verða
skólaskyld þetta árið eða hitt og
hve reikna megi með af gömlu
fólki, sem þjóðfélagið Jjarf að sjá
fyrir.
f öllum Evrópulöndum, sem
skýrslan nær til fækkaði barns-
fæðingum á árunum 1924—1930.
En eftir 1930 fer barnsfæðingum
að fjölga á ný.
Það kom fram við rannsóknina
á barnsfæðingum í Evrópulönd-
um, að mæður eru nú yngri en
áður og að það er sjaldgæfara
og sjaldgæfara, að konur eignist
börn eftir 35—40 ára aldur. Flest
börn fæðast nú snemma í hjóna-
bandinu, en það er sjaldgæft, að
börn fæðist nú orðið í hjóna-
böndum, sem staðið hafa í 10—15
Hjónaefni. 17. júní opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Guðrún
Hjaltadóttir, starfsstúlka í POB,
og Friðrik Rúdý Vestmann,
prentnemi í POB. — Einnig Erla
Benediktsdóttir, starfsstúlka í
POB, og Hálfdan Helgason, iðn-
nemi.
Hjónaefni. Nýlega opinberuðu
trúlofun sína ungfrú Svanhildur
Þorgilsdóttir, Daðast., Reykjadal,
og Jón Ferdinant Sigurðsson,
Draflastöðum, Fnjóskadal.
Hjúskapur. 13. júní voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Mar-
grét Viktoría Magnúsdóttir og
Kristian Buhl, bústjóri. Heimili
þeirra ei' að Lundi við Akureyri.
t
Systkinabrúðkaup. 14. júní voru
gefin saman í hjónaband ungfrú
Klara Heiðberg Árnadóttir og
Karl Ásgeirsson, afgreiðslumað-
ur. Heimili þeirra er að Odda-
götu 1, Akureyri. — Ennfremur
ungfrú Þóra Ásgeirsdóttir og
Steingrímur Kristjánsson, bóndi.
Heimili þeirra er að Litluströnd,
Mývatnssveit.
Hjúskapur. Hinn 17. júní voru
gefin saman í hjónaband af sókn-
arprestinum í Grundarþingum
ungfrú Snjólaug Þorleifsdóttir,
Akureyri, og Tryggvi Aðalsteins-
son, bóndi Jórunnarstöðum.
Hjúskapur. Þann 17. júní voru
gefin saman í hjónaband ungfrú
Sigrún Ásdís Ragnarsdóttir og
Ragnar Valdimarsson, starfsmað-
ur hjá Rafveitum ríkisins. Heim-
ilii þeirra er að Fróðasundi 11,
Akureyri.
Skíðamenn Akureyri! Þeir sem
hafa hugá að fara á Skai-ðsmótið
.láti Skíðaráðið vita í kvöld.
Sætaferðir verða fra Ferðaskrif
stofunni á söngskemmtun norska
karlakórsins að Freyvangi 20.
júní kl. 8.30.
Kvenfél. Framtíðin heldur fund
Húsmæðraskólanum föstud. 20.
þ. m. kl. 9 síðd. Kaffi á staðnum.
Stjórnin.
Frá ferðanefnd Kvennadeildar
Slysavarnafélagsins. — Nefndin
undirbýr nú Austurlandsferð um
fyrstu helgi í júlL Lagt verðu^ af
stað eftir hádegi á laugarda^ 5.
júlí og komið heim á mánudags-
kvöld 7. Nánari upplýsingar og
áskriftarlistar í Skóverzlun
Hvannbergsbræða til 25. þ. m.
Auglýsið í DEGI
- Mikilvæg aðvörun
(Framhald af 4. síðu.)
nýjum manni vegna nafns Jesú
Krists og dauða hans fyrir þig.
Ef þú vilt, skal eg biðja með þér,
ef þú kemur til mín.
Eg hef aðvarað þig. Gefðu
þessu gaum. „Sá, sem fyrirlítur
áminningarorð, býr sér glötun.
Vilt þú glatast vegna nokkurra
vesalla bílsæta? Mundu, að ritn-
ingin segir líka: „Sá, sem dylur
yfii'sjónir sínar, verður ekki lán-
gefinn, en sá, sem játar þær og
lætur af Jjeim, mun miskunn
hljóta.“
Taktu þessari aðvörun vel.
Hertu þig ekki gegn orði Guðs,
sem vill leiða þig á réttan veg.
„Sá, sem herðir hjarta sitt, fellur
í ógæfu.“ Bíddu ekki eftir því, að
ógæfan nái þér. Snúðu við í tíma
af þeim ógæfuvegi og bölvunar-
braut, sem þá ert kominn á.
Sæmundur G. óhannesson,
Sjónarhæð, Akureyri. Sími 1050.