Dagur - 25.06.1958, Blaðsíða 1
Fylgizt með því, sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagur
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn*2. júlí.
XLI. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 25 júní 1958
35. tbl.
Átta söStunarstöðvar bíða síldar-
Síðasti farmur fyrra árs framleiðslu nýfarinn
Raufarhöfn 23. júní. '
Hér er unnið fullum krafti að
undirbúningi síldarsöltunar og
bræðslu síldar. í sumar taka
þessar söltunarstöðvar á móti sild
á Raufarhöfn: Borgir h.f., Gunn-
ar Iialldórsson, Norðursíld h.f.,
Iiólmsteinn Helgason h.f., Haf-
silfur h.f., Söltunarstöðin Skor,
Óðinn h.f. cg Óskarsstöðin h.f. —
Ennfremur er Valtýr Þorsteins-
sin að koma upp söltunarstöð,
sem sennilega getur ekki tekið til
starfa fyrst um sinn.
Héðan eru rétt farin 700 tonn
síldarmjöls, og er þá fyrra árs
framleiðsla öll farin héðan. —
Tungufoss tók þetta síldarmjöl og
kom með efni um leið í hina nýju
vatnsleiðslu fyrir Raufarhöfn,
sem mjög hefur vantað, en nú
verður komið í framkvæmd.
Bankamaður í 50 ár
Á mánudaginn hafði Ólafur
Thorarensen bankastjóri á Akur-
eyri starfað í Landsbanka ís-
lands í hálfa öld. Hér á Akureyri
hefur hann verið bankastjóri
útibús Landsbankans um 27 ára
skeið.
Ólafur nýtur vinsælda og virð-
ingar í starfi og hefur jafnan haft
góðan skilning á þörfum at-
vinnuveganna og stuðlað að
framgangi þeirra.
Stjórn hans á bankanum
hefur verið til fyrirmyndai'.
Dagur sendir bankastjóranum
heillaóskir á hálfrar aldar starfs-
afmælinu.
Matthíasarf éla gið
Þeir teljast stofnendur félags-
ins, sem láta skrá sig fyrir 1. júlí
n.k. Styðjið gott málefni og
gangið í Matthíasarfélagið.
Þuugir ílóniar
Nýlega voru kveðnir upp af
sakadómaranum í Rvík þrír
dómar fyrir brot gegn okurlög-
unum. Þeir, sem dóma hlutu,
voru: Brandur Brynjólfsson fyr-
ir viðskipti sín við R. Blöndal h.f.
og sektin var talin hæfileg 570
þús. kr., Hörður Ólafsson fyr-
ir okurvexti af víxlum til R.
Blöndals. Sektin var rúml. 183
þús. kr. Þriðji aðilinn var Eiríkur
Kristjánsson, sem hlaut rúml. 63
þús. kr. fyrir ólögleg viðskipti.
á Ak. 17. júní
Meira fjölmenni en nokkru sinni fyrr - Góð
og f jölbreytt skemmtiatriði - Blítt veður
Leíðinleg veðurspá rættist ekki, og dagurinn 17. júní sl.
var fagur sumardagur. Fánar blöktu við hún, blómabíllinn ók
um götur bæjarins með hljómlist og ávörpum til bæjarbúa,
hátíðaguðsþjónusta fór fram i kirkjunni og allir virtust í liá-
tíðaskapi, svo sem vera ber þennan merkisdag íslendinga.
Björg Baldvinsdóttir flytur ávarp
Fjallkonunnar á Ráðhústorgi. —
(Ljósmynd: E. D.).
Eftir hádegi tók fólk að
streyma á Ráðhústorg. Þar lék
Lúðrasveit Akureyrar nokkur
ættjarðarlög á meðan beðið var
eftir ávarpi Fjallkonunnar. —
Ávarpið, sem er eftir Rósberg G.
Snædal, flutti að þessu sinni frú
Björg Baldvinsdóttir leikkona. —
Naut það sín mjög vel.
Bernharð Sfefánsson endurkjörinn
form. FramsóknarféL sýslunnar
Aðalfundur Framsóknarfélags
Eyjafjarðarsýslu var haldinn sl.
laugardag á Akureyri. Fundinn
sóttu fulltrúar úr nær öllum
hreppum sýslunnar og voru mörg
mál á dagskrá auk hinna venju-
legu aðalfundarstarfa. Urðu
Bernharð Stefánsson.
umræður miklar á fundinum og
kom fram eindreginn áhugi
fundarmanna á áframhaldandi
sókn Framsóknarflokksins í sýsl-
unni. Kosin var nefnd til þess að
sjá um árshátíð félagsins, en hún
mun væntanlega fara fram síðar
í sumar í félagsheimilinu Frey-
vangi, og er fyrirhugað að hafa
(Framhald á 7. síðu.)
Magnús E. Guðjónsson bæjarstj.
flytur fullveldisræðu á íþrótta-
vellinum. — (Ljósmynd: E. D.).
Yfir 40 þúsund tunnur í salt
Síltiarafli góður mn lielgina. Níi er bræla á mið-
unum. Síldin er um 120 mílur norður af Húnaflóa
Á mánudagskvöldið var síldar-
söltunin orðin samtals rúmar 40
þús. tunnur. Síðan hafa allmörg
skip komið með síld, en bræla
hamlaði veiðum í gær og fyrra-
dag.
Fyrsta síldarsöltun í Húsavík í suinar. — (Ljósmynd: E. D.).
Mest er söltunin á Siglufii'ði,
en einnig í Húsavík, Ólafsfirði,
alvík og Hrísey. Síldin veiðist um
120 rnílur út af Húnaflóa og
dýpkar. Síldin hefur 18—19%
fitumagn og er stór og jöfn.
Lítið hefur farið til bræðslu og
einungis á Siglufirði.
Búið er að selja fyi'irfram nær
300 þús. tunnur síldar. 20 þús. til
Póllands, 8 þús. til Bandaríkj-
anna, tæpl. 60 þús. til Svíþjóðar,
55 þús. til Finnlands, 150 þús. til
Rússlands og rúml. 1 þús. til
Danmerkur. Ennfi'emur er verið
að semja um sölu til Austur-
Þýzkalands.
Fyrsta norska síldarskipið er á
leið til Noregs af Islandsmiðum
með 5 þús. tunnur síldar.
Formaður hátíðanefndar, Jón
Ingimarsson, setti hátíðina með
nokkrum orðum, en síðan var
haldið út á íþróttavöll í skrúð,-
göngu. Mun aldrei áður hafa
verið svo mannmargt á þessum
17. júní hátíðahöldum hér á Ak-
ureyri.
Magnús E. Guðjónsson bæjar-
stjóri flutti lýðveldisræðu, Þórir
Sigurðsson, nýstúdent, • flutti
minni Jóns Sigurðssonar forseta
og Lúðrasveit Akureyrar lék
undir stjórn Jakobs Tryggva-
sonar.
Eftir það fór fram síðari hluti
íþróttakeppninnar á milli UMSE
og ÍBA og vann ÍBA að þessu
sinni.
Þá fór fram knattspyrnukeppni
milli gömlu „meistaranna“ og
pilta innan við 21 árs aldui'.
Um kvöldið var aftur fjölmennt
á Ráðhústorgi. Lúðrasveitin lék,
Ólafur Jónsson söng einsöng,
Margrét Eggertsdóttir las kvæði,
Klemenz Jónsson flutti gaman-
Verkfall á kaupskipum
Um miðnætti í fyrrinótt hófst
verkfall undirmanna á kaup-
skipaflotanum.
Þórir Sigurðsson stúdent flytur
minni Jóns Sigurðssonar.
(Ljósinynd: E. D.).
þátt, Ragnhildur Steingrímsdótt-
ir og Júlíus Oddsson fluttu þátt
úr íslandsklukku Kiljans, Karla-
kórar bæjarins sungu og að lok-
um var dans troðinn á torginu.
Var þar heldur óslétt undir fæti
og skófrekt mjög. Þrátt fyrir
smávegis mistök fóru hátíðahöld-
in ágætlega fram og voru til
sóma.
Þjóðhátíðarnefndina skipuðu:
Jón Ingimarsson, Haraldur Sig-
urðsson, Magnús Björnsson, Her-
mann Stefánsson, Sveinn Tómas-
son og Jens Sumarliðason.