Dagur - 14.01.1959, Qupperneq 7
Miðvikudaginn 14. janúar 1959
D A G U R
7
alþingismanns og bankastjóra
Á SJÖTUGSAFMÆLI HANS
8. janúar 1958
S k e y t i:
Ég órna þér sjötugum órs og friðar!
Innileg kveðja og þöklcin bezt
í dag yfir fjöllin suður sendast
samvinnuþegni virtum mest.
Sæmd þín varir í sveitum nyrðra,
sanni drengur, víst er það.
Er hverfur þú úr byggð og banka
bændur sakna vinar í stað.
G. S. HAFDAL
AfmæSi Góðfemplarareglunnar
Framhald af 1. siðu.
en Stórstúkan var stofnuð, annaðist
ísafold útbreiöslu Reglunnar og
stofnaði stúkur á Norður-, Vestur-
og Suðurlandi. Síðar átti Stórstúkan
heima á Akureyri um þriggja ára
bil. Það. var á árunum 1924—1927.
Þá var Reglan fjölmenn og þrótt-
mikil. Brynleifur Tobiasson var
stórtemplar og Halldór Friðjónsson
stórritari. — Stjórnaði Brynleifur
Reglunni nteð átorku og dugnaði
þessi ár, fjölgaði meðlimum og
greiddi upp skuldir Stórstúkunnar.
Reglan hefur beitt sér fyrir hug-
sjónamálum sínum á tvénnan hát't.
Annars vegar með því að hvetja ein-
staklinga til bindindis og hins vegar
með því að hafa áhrif á áfengislög-
gjöfina. Stærsti sigur Reglunnar
var samþykkt um aðflutningsbanu
á áfengi til landsins 1909, þótt síðar
væri það afnumið. En sá sigur
fékkst fyrir þrotlaust starf templara
og annarra bindindismanna um
mörg ár. Þá stiirfuðu í Reglunni
margir áhrifamenn þjóðarinnar. A_f
þeim má nefna Björn Jónsson ráð-
herra, Guðmund Björnson land-
lækni, Harald Nielsson prófessor,
Guðmund Magnússon rithöfund,
Einar H. Kvaran skáld, Guðmund
Guðlaugsson sýslumann, Jón Ólafs-
son alþingismann og rnarga fleiri.
Mörg félög hafa verið mynduð
fyrir áhrif frá Reglunni. Má jiar
til nefna Leikfélag Reykjavíkur og
Dýraverndunarfél. íslands. Þá hef-
tir Reglan rekið barnaheimili og
drykkjumannaheimili um skeið.
Sumarheimili fyrir börn hafa reyk-
vískir templarar að Jaðri. Barna-
lieimilið Skálatún er rekið á vegum
Réglunnar. Sjómanna- og gesta-
heimili Síglufjarðar hefur stúkan
þar rekið af miklum myndarskap
nær því tvo áratugi. Hér á Akur-
eyri rekur Reglan Æskulýðsheimili
templara. Síðar hafa tömstunda-
heimili risið upp á vegum Reglunn-
ar annars staðar, t.. d. á ísafirði.
Þeirra merkast er Tómstundaheim-
ili ungtemplara í Reykjavík. En
ungmennastúkurnar eru ný deild
innan Reglunnar, sent starfar af
miklum þrótti. — Eru hér nefnd
nokkur af þeim verkefnum, sem
Reglan hefur beitt sér fyrir auk
bindindismálsins.
Reglan hefur gefið mikið út af
bókum og blöðum. Barnablaðið
Æskuna hefur Stórstúkan gefið út
í 60 ár og vandað mjög til þess.
Einnig mikið af barnabókum.
Eftir að templarar á Akureyri
seldu Samkomuhús bæjarins, þá
byggðu þeir Skjaldborg ásantt Ung-
ruennafélagi Akureyrar 1924. Fyrir
sex árurn réðst Reglan hér á Akur-
eyri í það að kaupa stórhýsið Varð-
borg og seldi Skjaldborg. Réð þar
mestu um, að Skjaldborg var of lít-
il fyrir það æskulýðsstarf, sem fyrir-
hugað var að koma á fót í bænum.
Nú eru í Varðborg reknar þrjár
stofnanir á vegum Reglunnar:
Æskulýðsheimili templara, Borgar-
bíó og gistihúsið Varðborg, sem
þó að mestu er aðeins sumargisti-
hús vegna æskulýðsstarfsins í hús-
inu á vetrum. Með Æskulýðsheim-
ilinu vill Reglan liafa holla vegsögu
í uppeldismálum bæjarins. Reynir
hún að hafa þar verkefni við hæfi
unga íólksins í tómstundum jtess.
Næstu viðfangsefni heimilisins í
vetur verða námskeið í flugmódel-
smíði og tágavinnu. í heimilinu er
líka allmikið bókasafn, og er mikill
hluti Jtess gjöf frá Halldóri Frið-
jónssyni.
Yfirmaður Reglunnar á íslandi
er stórtemplar. Hafa margir merkir
menn skipað það sæti. Af þeim má
nefna Indriða Einarsson skáld,
Brynléif Tobiasson, Friðrik Á.
Brekkan og séra Kristin Stefánsson.
Núverandi stétrtemplar er Benedikt
S. Bjarklind lögfrasðingur.
Af regluboðum Stórstúkunnar
hefur enginn verið eins farsæll í
starfi eins og Sigurður Eiríksson,
faðir Sigurgeirs heitins biskups.
Hann ferðaðist um landið lyrir
Regluna í 15 ár og stofnaði 58 góð-
templaraStúkur.
Núverandi regluboði er Gunnar
Dal rithöfundur.
Nær tíu þúsund manns eru nú í
stúkunum hér á landi.
Sjötíu og finim ára afmælis Góð-
tcmplarareglunnar var minnzt hér
á Akurevri með liátíðafundi í
Landsbankasalnum á laugardaginn
og með háfíðaguðsþjónustu í kirkj-
unni á sunnudaginn. Séra Iíristján
Róbertsson prédikaði.
Minningartafla verður sett á hús
Friðbjarnar Steinssonar, Jjar sem
stöfnfundur fyrstu stúkunnar á ís-
landi var haldinn.
Sex Tliiíleflus; Viscount
flngvéla
Árið 1958 fóru Viscount flug-
vélar Flug'félags íslands nokkrar
leiguferðir til Grænlands, m. a.
til Thule flugvallar.
í Jjessum mánuði eru ákveðnar
sex ferðir til Grænlands fyrir
danska aðila, þar af fimm til
Thule og ein til Meistaravíkur.
Sjötta Thuleflugið verður svo
farið um miðjan febrúar.
| ] - Hverju eiga komtr
í að ldæðast?
i Framhald af 5. síða.
1 snöggt. „Hér fá blaðamenn aldrei
l að vita um verð.“ Og líklega
| gildir það einu, naumast kaupa
i aðrir þarna föt en þeir, sem ekki
1 þurfa að spyrja um verð.
I Léttir.
i Manni léttir við að koma aftur
E út í rigningarsuddann úr þessu
É óeðlilega umhverfi. Það er ólíkt
\ hfessilegri blær yfir Parísarstúlk
1 unum, sem nú eru að hópast að
i neðanjarðarlestum og strætis-
1 vögnum á heimleið, en þeim
i þarna inni, bæði sýningarstúlk-
unum og skorpnu kerlingunum í
persíanpelsunum með lífsleiðann
í svipnum.“
Samkvæmt opinberum skýrsl-
um voru miklai' slysfarir hér á
landi á síðasta ári. Alls fórust 58
manns, og er það nær helmingi
hærri tala en árinu áður. — 23
menn drukknuðu, þar af 14 hér
við land. Banaslys í umferð urðu
16 og dauðaslys af ýmsum öðrum
orsökum urðu 20, eða samanlagt
58 dauðaslys á móti 41 árið 1957.
35 mönnum var bjargað úr háska
hér við land á liðnu ári.
Á síðustu árum hefur rnann-
dauði farið mjög minnkandi í
flestum menningarlöndum. —
Læknavísindin hafa unnið stóra
sigra y-fir sjúkdómum og manns-
ævin lengist jafnt og þétt. — En
á sama tíma hefur hin öra tækni-
þróun boðið slysunum heim og
krafizt þungra fórna af mann-
fólkinu. Eins og nú er, eru slys
algengasta dánarorsökin í mjög
mörgum löndum.
Á íslandi eru slysatölurnar að
sjálfsögðu lágar vegna fámennis,
en hlutfállslega eru þær mjög
háar, borið saman við önnur Ev-
rópulönd og háðar sveiflum. Einn
skipsskaði getur til dæmis mjög
raskað hlutfallinu.
Bifi-eiðaslysin hér á landi eru
þó færri en víðast hvar annars
staðar, þó að dánartalan af völd-
um slysa sé hér hærri en víðast
hvar.
Á árunum 1944—1950 voru að
meöaltali 16,2 dauðaslys á körl-
um hér á landi, en ekki nema 6,8
á konum og hefur þessi mismun-
ur enn aukizt síðustu árin.
Hin mörgu og mannskæðu
dauðaslys í svokölluðum menn-
ingarlöndum, sem lengst hafa
komizt áleiðis í útrýmingu sjúk-
dóma, eru vitnisburður um það,
hversu örugt er að hafa hemil
á þeim öflum, sem slysunum
valda.
Margar tryggingar bæta líf og
limi og miklu fé er varið í al-
menna löggæzlu, umferðaeftirlit,
vegaeftirlit, brunavarnir, eftirlit
með farai'tækjum og vélum. —
Ennfremur vinna frjáls samtök
að slysavörnum.
Um viðbrögð almennings við
hvers konar slysahættu er það að
segja, að þau eru mjög ólík
□ Rún 59591147 — Frl.: Atg.:
I. O. O. F. Rb. 2 — 1081148%
I. O. O. F. — 1401168% — I. E.
Kirkjan. Messað í Barnaskól-
anum í Glerárþorpi n.k. sunnu-
dag kl. 2 e. h. Sálmar nr.: 318 —
303 — 669 — 416. — K. R.
Drengjafundur í
kapellunni næstk.
sunnudag kl. 10.30 f.
h. Silfurhnappasveit-
in sér um fundarefni.
Sundnámskeið smábarna hefst
næstk. mánud., 19. janúar. For-
eldrar! Látið skrá börn yðar í
síma 2260.
Rafvirkjasveinar, Akureyri! —
Framhaldsaðalfundur að Hótel
Varðborg sunnudaginn 18. Jd. m.
kl. 2 e. h. — Stjórnin.
er höggvið
smithættu eða hræðslu við næma
sjúkdóma. Þetta mun stafa af því
að menn gera sér ekki fyllilega.
grein fyrir hinum þungu höggum
slysanna.
Fræðsla og stöðugur áróður
eru þýðingarmikil vopn í barátt-
unni við slysin og þann áróður
Jiarf að hefja við börnin, ekki
með því að hræða þau, heldur til
að þau fái sem fyrst rétta mynd
af leikreglunum gagnvart hinum
tæknifulla heimi.
í sambandi við slys og hins
vegar sjúkdómana, sem vissulega
eru á undanhaldi, sannast þó, að
eitt höfuð vex þá annað er
höggvið.
Þakkir
Við undirritaðar, sem allar
störfum í Mæðrastyrksnefnd Ak-
ureyrar, viljum hérmeð votta
okkar innilegasta þakklæti öll-
um þeim, sem réttu okkur þar
hjálparhönd nú fyrir jólin, gáfu
peninga eða föt til úthlutunar. —
Söfriunin héfur aldrei gengið
jafn vel og nú. Fötin voru bæði
mikil og vel tilhöfð. Það sýnir
skilning á þessarri starfsemi.
Sérstaklega viljum við þakka
skátum á Akureyri fyrir það
mikla og fórnfúsa starf, sem þeir
hafa um mörg undanfarin ár lagt
fram við jólasöfnun nefndarinn-
ar. Ennfremur færum við beztu
þakkir verzlunum og öðrum fyr-
irtækjum, sem hafa stutt okkur í
Jjessu starfi, og síðast en ekki
sízt Lions-klúbbnum fyrir höfð-
inglega gjöf, kr. 5000.00 í pen-
ingum.
í Mæðrastyrksnefnd Akureyrar.
‘ Messað í Akureyrarkirkju kl.
2 á sunnudaginn kemur. — P. S.
Akureyrarkirkja. Áheit frá
Egö 100,00 — N. N. 100,00 —
N. N. 100,00
Hjúskapur. Þann 11. þ. m. voru
gefín saman í hjónaband ungfrú
Friðrika Aðalheiður Adamsdótt-
ir, Bjarkarstíg 2, og Brynjar Sæ-
varr Antonsson, vefari á Gefjuni.
Heimili Eiðsvallagata 5.
Hjúskapur. Á Gamlaársdag
voru gefin saman í hjónaband
á Möðruvöllum í Hörgárdal ung-
fi'ú Þorgerður Kr. Jónsdóttir,
Tréstöðum í Glæsibæjarhreppi
og Stefán Þórðarson, bifvélavirki
Hólabraut 22, Akureyri.
Hjúskapur. — 7. jan. sl. voru
gefin saman í hjónaband á Akui'-
eyri ungfrú Helga Friðgeirsdótt-
ir, skrifstofustúlka, Sunnuhvoli,
Raufarhöfn, og Hilmar Ágústs-
son, vélstjóri, Sæbóli, Raufar-
höfn. Heimili þeirra verður á
Raufarhöfn.
Dánardægur. Nýlátinn er hér í
bæ Kristján Kristjánsson, fyrrv.
símaverkstjóri. Hann var einn af
elztu og kunnustu borgurum
þessa bæjar.
Slysavarnakonur Akureyri!
Hinn árlegi fjársöftiunardagur
deildarinnar verður ekki fyrr en
viðgerð á Hótel Kea er lokið.
Stjórnin
Þakka bréfin. — Um leið og eg
þakka mörg bréf til mín og
blaðsins vil eg enn einu sinni
vekja athygii manna á því, að
nafnlausar greinar, sem sendar
eru til birtingai', eru ekki teknar
og fara beint í ruslakörfuna,
nema vitað sé um höfundana og
getui' þá birtingin verið sam-
komulagsatriði. Sama gildir um
nafnlausar fyrirspurnir. — En
greinar og fyrirspurnir eru ann-
ars kærkomnar. — Ritstj.
Stúkan Brynja nr. 99 minnir
félagana á fundinn á morgun í
Landsbankasalnum kl. 8.30
(fimmtud. 15. jan.). Inntaka ný-
liða. Kosnirig embættismanna.
Skemmtiþáttui'. Munið öll þenn-
an fyrsta sérfund Brynju á árinu
1959.
Skógræktarfélag Tjarnargerðis
heldur fund að Stefni miðviku-
daginn 14. jan. kl. 8.30 e. h. —
Félagskonur! Mætið vel og takið
með ykkur kaffi. — Stjórnin.
Filmía hefur næstu sýningu á
laugardaginn, svo sem auglýst er
í blaðinu í dag.
Barnastúkurnar hafa fund í
Barnaskóla Akureyrar næstk.
sunnudag. Samúð kl. 10 f. h.
Sakleysið kl. 1 e. h.
Gefið fuglunum núa í harðind-
unum.
Ingibjörg Eiríksdótíir,
Ingibjörg Benediktsdóttir,
Soffía Thorarensen,
Guðrún Melstað,
Solveig Einarsdóttir,
Margrét Antonsdóttir,
Guðrún Jóhannesdóttir,
Elísabet Eiríksdóttir.
Bæjarverkfræðingurinn hefur
beðið blaðið að minna húseig-
endur á það, að færa öskutunn-
urnar nær vegi, ef mögulegt er,
eða hafa að þeim greiðan aðgang
til að flýta fyrir losun.
Skólastjóraskipti
Skólastjóraskipti hafa orðið á
Laugarvatni. Bjarni Bjarnason,
sem lætur nú af störfum eftir 30
ára skólastjórn, er orðinn sjötug-
ur að aldri. Hinn nýi skólastjóri
er Vilhjálmur Einarsson, hinn
kunni íþróttagax-pur. Hann er
settur í embættið.
Nýtt og vandað afmælisrit
Laugai-vatnsskóla kom út fyrir
nokkrum dögum. Bjarni Bjarna-
son annaðist ritstjórn þess.