Dagur - 28.01.1959, Blaðsíða 2
2
D AG U R
Miðvikudaginn 28. janúar 1959
HERJÓLFUR SKRIFAR HRINGSJÁ
Hugleiöingar um forystugrein
Morgunblaðið kallar J)á „skálka“, sem svipta blekkingar-
lijíipnum af skrifum þess
„Framsóknarmaður“ heíur beðið Dag að birta cftirfarandi: á þann hátt, að sem beztur
, árangur náist fyrir þessa nýju
A að heiðra skálkinn? skoðanabræður.
Þetta er fyrirsögn á leiðara
Morgunblaðsins 18. þ. m. All-
ur leiðarinn snýst um það eitt
að koma skálksnafninu á
Framsóknarflokkinn fyrir af-
skipti bans af íslenzkum þjóð-
málum, fyrr og síðar, en þó
alveg sérstaklega fyrir að láta
sér til hugar koma, að viíur-
legt hefði verið nú að koma á
í landinu þjóðstjórn eða sam-
stjórn ajllra flokka, til þess!
fyrst og fremst að fá samstöðu
allra flokka til þess að ieysa
hin erfiðu og þjóðhættulegu
efnahagsmál vor, og einnig til
þess að ná stjórnmálalcgum
friði innanlands meðan verið
er að leysa þá deilu, sem
skapazt hefur í sanibandi við
nýju landhelgina.
HVERJIR EIGA ÓNEFNIÐ
SKILIÐ?
Þessi afstaða Framsóknar-
flokksins. sem nú, eins og
ávallt endranær, mótast af af-
stöðu til málefnis, er varðar
heill alþjóðar, er í rökréttu
samhengi við stefnu flokksins
á liðnum áratugum, og þótt
það hafi að sjálfsögðu verið
þung spor að þurfa að rétla
Sjálfstæðismönnum höndina
að þessu sinni, þá er það samt
gert, cn pólitískir skálkar þcss
flokks hafa þakkað eins og
þeirra var v’on og vísa.
KÓGSíÐJA ÍHALDSINS.
Skriffinnar Morgur.blaðsins
virðast hallast að þeirri skoð-
un, að allt, sem úr penna
þeirra hefur tlropið á tímabili
íráfarandi stjórnar, hafi verið
þjóðinni til liinnar mestu
blessunar. Þeir eru svo örugg-
ir í þessari vissu sinni, að þeir
sjá aðeins skálka á balc við
þau skrif, sem svipta sauðar-
gærunni af þeim. Alþjóð veit,
hvernig þessir sömu menn
hafa unnið leynt og ljóst að
því að gera að engu þá við-
leitni fyrrverandi ríkisstjórnar
að koma lagi á efnahagsmálin.
Þeir hafa hvatt mcnn til þess
að berjast fyrir launahækk-
unum og stigið í því efni
skrcfinu lengra en kommún-
istar gerðu áður, þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn var við
stjórnartaumana. Þeir liafa
rægt stjórnina crlcndis með
einkaskcytum í skjóli frétta-
einokunar sinnar í þeim eina
tilgangi að gera hana í augum
heimsins eldrauða kommún-
istastjórn. En þegar Ólafur
strandkapteinn gekk dag eftir
dag nú fyrir nokkru á fund
Einars Olgeirssonar, til þess
að fá hann til liðveizlu við sig
um stjórnarmyndun, féllu
einkaskeytin niður, voru eigi ■
birt í einu einasta heimsblað-
anna. Þeir gengu svo langt að
gerast þjóðníðingar, er þeir
reyndu á allan hugsanlegan
hátt að torvelda erlcndar lán-
tökur til aðkallandi fram-
kvæmda í landinu með skeyta
sendingum sínum og þjóð-
hættulegum skrifum. Þeir
hafa, í stuttu máli sagt, hegð-
að sér eins og verstu skálkar
og vilja klína því nafni, sem
þeir einir bera, á þann flokk,
sem öllum öðrum fremur hef-
lir staðið vörð um þau mál
liðinna ára, sem mestu liafa
varðað fyrir þjóðarheill. —
Þessi blaðamennska Morgun-
lslaðsins er mjög í ætt við
þann áróður, sem rekinn var á
tímum Hitlers í Þýzkalandi,
og þeim einum sæmandi, sem
af þeim bikar hafa drukkið.
BKEYTT UM TÓN.
Eftir allt moldv'iðrið, sem
þjóðmálaskólkar Morgun-
blaðsins voru búnir að þyrla
upp í tíð fráfarandi stjórnar,
bregður nú alit í cinu svo
kynlega við. að dúnalogn er
dottið á, seglin eru felld, og
það eru bæði hljóðir og hóg-
værir Morgunblaðsmenn, sem
nú segja við blcssaða þjóðina,
að hún skuli vera góða barnið,
hætta ölluvn duttlungum, og
alveg sérstaklega á hún að
hætta öllum kröfum um launa
hækkun og annan þess háttar
óþarfa, þcss í stað á liún að
taka ó sig nokkra launalækk-
un, fclla sig við minnkandi
fravnkvæindir úti á lands-
byggðinni, styttri vegalagn-
ingar, minna vegaviðhald,
skerta raforku inn á sveita-
heimilin og margs konar aðra
skerðingu fró því, sem verið
hefur í tíð fyrrverandi ríkis-
stjórnar. Það cr líka gcrt til
þess að „pínulitli flokkurinn“
og flokkurinn, sem rægir
þjóðina með einkaskcytum til
heimsblaðanna, geti komið á
kjördæmabreytingu, þar sem
landsbyggðin verður flokkuð
FLOKKURINN ÖLLU
OFAR.
Svona mætti lengi telja þau
verk, er Sjálfstæðisflokkurinn
vinnur að. Öll eru þau með
svipbragði þess flokks, sem
setur flokkshagsmunina ofar
hagsmunum þjóðarinnar og
hagsmuni einkahyggjunnar
ofar öllu öðru. Landsbyggðin
'iiiun í þeim kosningum, sem
frainundan eru, svara póli-
tískum skalkum Sjálfstæðis-
flokksins á þann eina veg, er
þeir skilja: 'mcð því að fylkja
sér enn þéttar saman um
Frainsóknal'flokkinn og hefja
hann til valda á ny. Lands-
byggðin þekkir af undangeng-
inni reynslu, hvernig það er
að ciga allt sitt undir einka-
framtaki Sjólfstæðisflokksins
•og mun þyí með atkvæði sínu
gerá honum skiljanlegt, að
niargt er nú í íslenzku þjóð-
lífi, sem meira er aðkallandi
en prósentureikningur um
kjördæmaskipunina.
KOLKRABBAEÐLIÐ.
Til er það kykvendi í sjón-
urn, sem Danir kalla „blæk-
sprutte“,' og Morgunblaðs-
menn mumi sennilega kalla
bleksprautu, ef þeir mættu
ráða þýðingunni sjálfir, en
aðrir nefna kolkrabba. Sú er
náttúra þessa dýrs, að það ver
sig með því að þyrla bleklit-
um vökvá í allar áttir og hylja
sig í blekleðjunni. — Þannig
fer skriffinnum Morgunblaðs-
ins, þegar ' þeir verja gerðir
sínar, að þeir ausa bleki og
prentsvertu um allt umhverfi
sitt til þcss, að dyljast. En fólk
þekkir orðið baráttuaðferðir
þessara manna, það grillir
alltaf í blekkingameistarann
sjálfan í blekiðunni, og hann
fær ekki dulizt fyrir þeim,
sem liafa heila sjón og
ósljóvgaöa skynjun. íslenzk
þjóð mun auðveldlega greina
þá menn, scm berjast þjóð-
hollri baráttu, frá hinum, sem
berjast fyrir hentistefnu líð-
andi stundar.
FRAMSÓKNARMAÐUR.
Framboðsræða í „fiekformat44
Sjálfstæðismenn og Alþýðuflokksmenn leggja nú til, að Ak-
ure-yri verði lögð niður sem sérstakt kjördæmi. Næst þegar
frambjóðendur þessara flokka tala til kjósenda á Akureyri
verður inntak ræðu þeirra: „Háttvirtu kjósendur! Það nær
ekki nokkurri átt, að Akureyri eigi sinn sérstaka þingfulltrúa.
Það er hróplegt ranglæti gagnvart höfuðborginni, að alls kon-
ar „smástaðir“ út 'um hvippinn og hvappinn eigi talsmenn á
sjálfu Alþingi. Höfuðborgin hefur verið mjög afskipt um völd
og áhrif og á skýlausan rétt til þess að fá úr því bætt. Akur-
eyrskir kjósendur! Sýnið nú réttlæti! Afsalið ykkur rangfeng-
inni valdaaðstöðu og kjósið MIG, til þess að eg geti fylgt því
nauðsynjamáli fram, að leggja niður, einu sinni fyrir allt, þetta
alóþarfa kjördæmi. . . .“
BSD® |
má
„Við lifum á tímurn efnalegra framfara, en...44
RÆTT VIÐ INGIMAR EYDAL
HLJÓÐFÆRALEIKARA
Ingimar Eydal er ungur
hljóðfæraleikari, sem leikið
hefir um nokkurt skeið létta
tónlist fyrir Akureyringa. —
Ingimar stjórnaði „Atlantic-
kvartettinum", er lék í Al-
þýðuhúsinu í fyrrasumar, og
áttu þeir félagar miklum vin-
sældum að fagna. í kvartett-
inum voru, ásamt Ingimar:
Finnur Eydal (bróðir Ingi-
mars), Sveinn Óli Jónsson og
Edwin Kaaber. Söngvari var
Óðinn Valdimarsson og um
skeið einnig Helena Eyjólfs-
dóttir.
— Hverju vilt þú aðallega
þakka velgcngni „Atlantic-
kvartettsins“, Ingimar? spyr
fréttamaður, þegar hann hittir
hinn hávaxna, Ijóshærða
hlj óðf æraleikara.
— Fyrst og fremst, að vel
tókst til um val hljóðfæraleik-
ara. Iijá okkur'var það líka
óþekkt fyrirbrigði, sem marg-
ar hljómsveitir hafa við að
stríða, en það er óreglusemi
hljóðfæraleikaranna.
— Er þér ekki sérstaklega
minnisstæður einhver atburð-
ur frá síðasta sumri?
— Jú, sérstaklega eru mér
minnisstæðir hljómleikar Fé-
lags íslenzkra hljóðfæraleik-
ara, sem við tókum þátt í, og
skal eg, til gamans, segja frá
smáatviki í sambandi við þá.
— Við komum til Reykjavík-
ur með síðdegisflugvél, en
hljómleikarnir hófust ekki
fyrr en um miðnætti. Flest
okkar höfðu aldrei komið
fram á hljómleikum í höfuð-
staðnum áður, og lítið höfðum
við fyrir stafni, eftir komuna
til Reykjavíkur annað en líta
á klukkuna og bíða eftir því,
að hin stóra stund rynni upp.
Þegar taugarnir voru að því
komnar að ganga úr skorðum
minnti Helena á, að sterkt
kaffi væri alveg einstakt til að
róa ofspenntar taugar. —
Óðni datt í hug nafnið
„Expressokaffi“, sem hann
hafði séð einhvcrs staðar á
prenti, og kom upp úr dúrn-
um, að umrætt kaffi mætti fá
í kaffistofu einni við Skóla-
vörðustíg. Þangað skyldi nú
haldið til þess að kaupa þrótt
í lasnar taugar með fulitingi
hins nafntogaða kaffis. — Við
báðum um sterkasta skammt
af þessum mjög rómaða
elexír, og afgrciðslustúlkan
sneri sér þá að miklu mann-
virki, sem stóð úti í horni og
sneri þar ótal tökkum, og eftir
litla stund kom kaffið, sem
var svo þykkt, að sykurinn
seig varla til botns. Þetta
nefndu þeir þá kaffi! —
Finnur greip af miklu hug-
rekki sinn bolla og saup á, leit
síðan upp með skelfinguna
uppmálaða í svipnum og
hrópaði: „Guð minn góður!“
— Eddi smakkaði á sínu og
sagðist eins vel geta keypt sér
pakka af Braga-kaffi og borð-
að upp úr honum. Óðinn
sagði: „Eg held eg láti þetta
vera. Hef nóg með skoltana
óþreytta að gera í kvöld.“ —
En það er ekki að orðlengja
það, taugaóstyrkurinn hvarf
um leið og við byrjuðum á
fyrsta laginu, og allt fór eins
og bezt varo á kosið, þó að
ekki væri það kaffinu að
þakka.
— Og eftir þessa hljómleika
var ykkur boðið að leika inn a
plötu?
— Nei, ekki er það alls-
kostar rétt. Tage Ammend-
rup, forstjóri „íslenzkra tóna“,
hafði nokkru áður boðið okk-
ur að leika inn á plötu.
— Ertu ánægður með upp-
tökuna?
— Já, eftir atvikum er eg
það. — Að vísu var tími okkar
mjög naumur, og eg álít, að
við hefðum getað gert betur.
— Svo að við víkjum að
sjálfum þér, Ingimar, hefir þú
ekki leikið víðar en á Akur-
eyri?
— Jú, t. d. lék eg á Hótel
Borg veturinn 1956—’57.
Finnur, bróðir minn, lék þar
einnig. — Og hér verð eg að
skjóta því inn í, að alltaf kann
eg bezt við mig á AkureyrL
Eg lít á það sem tízkufyrir-
bæri aðallega, þegar fólk
flyzt frá Akureyri til Reykja-
víkur. Það hlýtur að hverfa,
þegar fólkið áttar sig á því,
hversu sáralítið það er, sem
Reykjavík getur boðið upp á
fram yfir Akureyri. Flestir
munu nefna skemmtanalífið.
En er það ekki hlægileg for-
sénda fyrir brottflutningi í
annan landshluta að geta öðru
hverju brugðið sér á Borgina
eða Þórskaffi? — Umhverfi og
gróður gera Akureyri að feg-
ursta bæ landsins, og sökum
legu sinnar hlýtur bærinn að
hafa mikil vaxtarskilyrði. Og
við Akureyringa vil eg segja
þetta: „Akureyri er og verð-
ur alltaf það, sem við Akur-
eyringar gerum bæinn, og
þess vegna eigum við að sam-
einast um að efla gengi hans;
á allan hátt.“ — Og við ak-
ureyi'ska blaðamenn þetta:
„Leggið meiri stund á að láta
koma fram rétta og fagra
mynd af bænum okkar. í því
efni hafið þið verið furðulega
hlutlausir. Reykvískir blaða-
menn hafa gert vel til síns
bæjar.“
— Hvað um framtíðaráform
þín?
— Næsta sumar verður
„Atlantic-kvartettinn" endur-
reistur, og Óðinn mun syngja
með og e. t. v. Helena líka. —-
Okkur hafa m. a. borizt frum-
drög að tilboði um að leika á
Norðurlöndum á næsta sumri.
— Veturinn 1956—’57 lauk eg
söngkennaranámi við Kenn-
araskóla íslands. Ekki veit eg,
hvort eg notfæri mér þessi
réttindi á næstunni, en hvarfl-
að hefir að mér að ljúka
Framhald á 7. siðu.