Dagur - 11.02.1959, Side 5
Miðvikudaginn 11. febrúar 1959
D A G U R
5
JENS SUMARLIÐASON :
íþróffgfélagið Þór á Ákureyri
Undrabarnið Gitfa kemur hingað
Hún mun skemmta ásamt „Four ]acks“ í Nýja-Bíó
þriðjudaginn 17. og miðvikudaginn 18. fcbrúar
Það væri bæði fróðlegt og
skemmtilegt að rekja sögu
Iþróttafélagsins Þór, sem er elzta
íþróttafélagið í bænum, eða
hálfrar aldar gamalt eftir 6 ár. —
Eldri félagar muna skemmtilegar
stundir úr félagslífinu, íþrótta-
og skemmtiferðir, heimsóknir,
skemmtifundi, svo að nokkuð sé
nefnt. Á þeim tíma hafa skipzt á
skin og skúrir, eins og gengur,
ekki voru félagarnir margir í
fyrstu og ekki voru íþróttagrein-
arnar'margar heldur, en með ár-
unum fjölgaði félagsmönnum og
starfsemin var aukin, og í dag
telur félagið 475 félagsmenn, sem
starfa í 6 deildum auk nýstofn-
aðs þjóðdansaflokks.
Á árinu var starf hinna ein-
stöku deilda í stórum dráttum
þetta:
Badmintondeild. Það er ný
deild innan félagsins, er vaxandi
deild, hefur keppt í tveim mótum
og haldið 1 innanfélagsmót, voru
þátttakendur 14 í því móti.
Frjálsíþróttadeild. Eins og
stendur hefur þessi deild ekki
mörgum góðum kröftum á að
skipa, en fáeinir frjálsýþróttam.
hafa tekið þátt í mótum sumars-
ins, þeir hafa staðið sig vel, t. d.
varð Bragi Hjartarson Norður-
landsmeistari í stangarstökki,
stökk 3.45 m., sem er mjög gott.
Margir drengir og einnig stúlkur
hófu æfingar í þessari íþrótta-
grein síðastliðið sumar, og' er
ánægjulegt til þess að vita.
Handknattleiksdeild. Hand-
knattleikur er nú nær eingöngu
iðkaður af yngri flokknum
stúlkna, en þar er áhugi mjög
mikill, sem sézt bezt á því, að yf-
ir 40 stúlkur stunda æfingar nú í
vetur undir stjórn Tryggva Þor-
steinssonar.
Á síðasta sumri fór 2. flokkur
handknattleiksstúlkna í keppnis-
för til Rvíkur og stóð sig með
ágætum, gerðu stúlkurngr t. d.
jafntefli við 2. flokk Ármanns,
sem eru íslandsmeistarar í sínum
aldursflokki.
í karlaflokki fór fram aðeins
einn leikur á árinu, var keppt við
KA og varð sá leikur jafntefli.
Knattspyrnudeild. Áhugfi fyrir
knattspyrnunni virðist nú aftur
vera að glæðast, en knattspyrna
var um árabil íþrótt iþróttanna
innan félagsins. Meistaraflokkur
lék 4 leiki á árinu við núverandi
Norðurlandsmeistara, KA, af
þeim leikjum urðu tvö jafntefli,
eitt tap og einn vinningur, er Þór
nú Akureyrarmeistari í knatt-
spyrnu. Tvær ferðir voru farnar
á sumrinu á vegum deildarinnar,
til Mývatnssveitar og Sauðár-
króks, þær ferðir tókust mjög
vel.
Körfuknattleiksdeild. Það er
nýstofnuð deild í félaginu, en
þar ríkir mikill áhugi, æfa nú í
vetur tveir flokkar, yngri og
eldri. Síðastliðinn vetur keppti
eldri flokkur í meistaramóti Ak-
ureyrar og varð nr. 2.
Sunddeild. Það er náægjulegt
hve sundíþróttin hefur verið
vaxandi íþrótt hér á Akureyri nú
síðustu árin, er það að þákka
bættri aðstöðu til iíðkunar á þess
ari íþrótt. Sundd. hefur starfað
með miklum ágætum og stunda
r
Afengissalan á Akur-
eyri 1958
Samkvæmt upplýsingum frá
Áfengisverzlun ríkisins var
áfengissalan frá útsölunni á Ak-
ureyri 1958 kr. 13.436.618 krónur,
en samsvarandi tala árið 1957
12.277.051.
nú æfingar um 20 félagar, má sjá
þar margt efnilegt sundfólk.
Deildin hefur haldið mörg inn-
anfélagsmót í sundi, sundfólkið
tekið þátt í opinberum mótum,
svo sem Sundmóti íslands. —
Þrennt af sundfólki Þórs sótti
svonefnt Ármannsmót, sem hald-
ið var í Rvík síðastliðið haust, en
það voru Erla Hólmsteinsdóttir,
Björn Þórisson og Júlíus Björg-
vinsson. Erla varð þriðja í sinni
sundgrein, einnig Björn og Júlíus
í sínum greinum, en það má telj-
ast mjög góður árangur, því að
þarna keppti margt efnilegt
sundfólk.
Skíðadeild. Skíðadeild félags-
ins starfaði vel síðastliðinn vetur,
voru haldin mörg innanfélagsmót,
sérstaklega fyrir yngri félaga,
má nefna að um 40 drengir tóku
þátt í einu þessara móta. Mátti
sjá þar marga efnilega drengi og
ríkti hjá þeim mikill áhugi fyrir
íþróttinni.
JENS SUMARLIDASON,
formaður Þórs.
Mörg undanfarin ár hefur Þór
haldið brennu og álfadans, hefur
þetta verið mjög vel sótt af bæj-
arbúum og tekið vel. Sú ný-
breytni var tekin upp nú í vetur
að sýndir voru þjóðdansar frá
ýmsúm löndum, sem vöktu eftir-
tekt.
í framhaldi af brennunni var
stofnaður þjóðdansaflokkur inn-
an félagsins, sem æfir nú í
íþróttahúsinu undir stjórn frk.
Þóreyjar Guðmundsdóttur, flokk
urinn hefur sýnt dansa þessa á
skemmtunum nú undanfarið og
hefur fengið góðar undirtektir.
Hér að framan hefur aðallega
verið skrifað um íþróttamót og
íþróttakeppni, en ekki minnzt á
aðdraganda þessa.
Það má vera öllum Ijóst, að
geysilegt starf liggur á bak við
hvert mót. Fyrst fundarhöld, síð-
an vinna við undirbúning, fram-
kvæmd mótsins, en við allt þetta
þarf starfslið, mótin eru oft
kostnaðarsöm, og fæst mót bera
sig fjárhagslega. .
Og stór átök eru framundan.
Það íþróttasvæði, sem Þór hefur
undanfarin ár haft á Gleráreyr-
um, minnkar óðum, því að þar
rísa nú íbúðarhús. Stórt verkefni
bíður félagsins, er það nýtt
íþróttasvæði og einnig félags-
heimili.Þegar þar að kemur þurfa
félagar að standa saman sem einn
maður, og það geta þeir þegar á
herðir, sem kom vel í ljós er yfir
100 félagar unnu að undirbúningi
brennunnar í vetur. En þó hægt
sé að sameinast, þá er það því
miður ekki oft. Oftast kemur
starfið allt á sömu mennina, þeir
eiga þakkir skilið fyrir þetta
starf í þágu æskunnar, en þetta
starf fá þeir bezt þakkað með
stuðningi bæjarbúa og að sem
flestir félagar starfi með, láti
ekki sitt eftir liggja að æska
) þessa bæjar njóti hollra íþrótta.
Þetta cr dr. Malik, utanríkisráð-
lierra Líbanons, en hann var
kjörinn forseti síðasla Allsherj-
arþings S. Þ. Er dr. Malik mjög
þckktur og virtur þátttakandi í
alþjóðastjórnmálum.
Frá Vísindasjóði
Vísindasjóður hefur nú auglýst
styrki. lausa til umsóknar í annað
sinn. Eins og kunnugt er, skiptist
sjóðurinn í tvær deildir: Raun-
vísindadeild, og er formaður deild-
arstjórnar þar dr. Sigurður Þór-
arinsson jarðfræðingur. og Hug-
vísindadeild, og er formaður Jrar dr.
Jóhannes Nordal hagfræðingur.
Formaður yfirstjórnar sjóðsins er
dr. Snorri J-Iallgrímsson prófessor.
Raunvísindadeild annast styrk-
veitingar á sviði náttúruvísinda, Jrar
með taldar eðlisfræði og kjarnorku-
vísindi, efnafræði, stærðfræði, lækn-
isfræði, líffræði, lífeðlisfræði, jarð-
fræði, dýrafræði, grasafræði, búvís-
indi, fiskifræði, verkfræði og tækni-
fræði.
Hugvísindadeild annast styrkveit-
ingar á sviði sagnfræði, bókmennta-
fræði, málvísinda, félagsfræði, lög-
fræði, hagfræði, heimspeki, guð-
fræði, sálfræði og uppeldisfræði.
Hlutverk Vísindasjóðs er að efla
íslezkar vísindarannsóknir, og í
þeim tilgangi styrkir hann::
1) Einstaklinga og stofnanir
vegna tiltekinna rannsóknarefna.
2) Kandídata til vísindalegs sér-
náms og Jrjálfunar. ICandídat verð-
ur að vinna að lilteknum sérfræði-
legum rannsóknum eða afla sér vís-
inda])jálfunar til ]>ess að vcrða
styrkhæfur.
3) Rannsóknastofnanir til kaupa
á tækjum, ritum eða til greiðslu á
öðrum kostnaði í sambandi við
starfsemi, er sjóðurinn styrkir.
Við fyrstlt úthlutun, ,cr fram fór
í fyrrasumar, veitti Raunvísinda-
deild 17 styrki, samtals að upphæð
kr. 500,000,00, en Hugvísindadeild
veitti 12 styrki, og var heildarupp-
hæð þeirra kr. 200,000,00.
Umsóknir þurfa að hafa borist
fyrir 20. marz n. k., til þess að um-
sækjendur komi til greina við þessa
úthlutun. Sjóðltrinn liefur látið
gera sérstök eyðublöð undir um-
sóknir, og vcrður hægt að lá þau
hjá deildariturum, er veita allar
nánari upplýsingar. Ennfremur
munu eyðublöðin fást í skrifstofu
Háskóla Islands og hjá sendiráðunt
íslands erlendis.
Deildaritarar eru fyrir Raunvís-
indadeild Guðmundur Arnlaugsson
(sími 15657) og fyrir Hugvísinda-
deild Bjarni Vilhjálmsson (sími
35036).
(Fréttatilkynning frá Vísindasjóði).
Skíðamenn! Skíðamót Akur-
eyrar heldur áfram n.k. sunnu-
dag. Keppt í svigi öllum flokkum
karla og drengjafl. — Áríðandi
að allir mæti. — Farið frá Ferða-
skrifstofunni kl. 10 f. h. — S.R.A.
Það mun ekki ofsagt, að stúlku-
barnið Gitta, sem aðeins er 12
ára, sé einhver vinsælasta söng-
kona í Danmörku, og jafnvel á
Norðurlöndum.
Kvartettinn „Four Jacks“ er
talinn bera af öðrum sínum lík-
um á Norðurlöndum, svo að
vænta má mikillar og góðrar
skemmtunar.
Það er Lionsklúbbur Akureyr-
ar jem stendur fyrir því að fá
Dessa skemmtikrafta hingað, en
Undrabarnið Gitta.
Framhald af S. siðu.
löngu hætt og einu tekjur deild-
arinnar er af sölu á steinolíu. En
sú vörutegund er nú lítið notuð,
þó sjást menn á ferð með olíu-
flöskur þegar Laxá stíflast og
rafmagnið dvín og af hleðslu
battería og eru þá tekjurnar
frómlega fram taldar.
Tvcir menn vinna þarna að
staðaldri og eru það þeir Kjartan
Sigurtryggvason og Páll Magn-
ússön, áldraðir heiðursmenn og
fyrrum sveitamenn og þekkja því
mæta vel af gamalli reynslu
hvers virði sönn fyrirgreiðsla er,
fyrir sveitafólk og alla ferða-
menn.
í samtali við þessa menn, taka
þeir báðir fram, að þrátt fyrir
hvers konar snúninga, sé gott að
starfa fyrir ferðafólkið og að það
sé jafnan þakklátt fyrir þessa
þjónustu.
Stundum eru menn ofurlítið
hýrir um það leyti, sem áætlun-
arbílarnir leggja af stað úr bæn-
um, en miklu minna ber þó á því
hin síðari árin og aldrei hafa
orðið nein vandræði að þvi, segja
þeir Kjartan og Páll.
Stundum kemur það fyrir,
segja þeir ennfremur, að einhverj
ir hafa gelymt töskunni sinni eða
Agnar Mykle leikari
Samkvæmt frásögn . Kaup-
mannahafnarblaða verður í vor
frumsýning í Allé-leikhúsinu í
Höfn á leikriti eftir norska rit-
höfundinn Mykle. Þetta er fyrsta
leikrit hans, sem tekið er til sýn-
ingar, og ei' „satisk komidie“. —
Það vekur mesta athygli að
Mykle leikur þarna sjálfur.
hann hefur undanfarna vetur
unnið að því að styrkja eitthvert
gott málefni, og í þetta sinn er
það starfsemi Barnaverndarfé-
lags Akureyrar, sem fær ágóð-
ann. En félagið er, sem kunnugt
cr, að láta reisa leikskóla fyrir
börn, og er því í mikilli fjárþörf.
V erzlunarnámskeið
í Bifröst
t vor hefjast vcrzlunarnám-
skeið við Samvinnuskólann að
Bifröst í Borgarfirði. Teknir
verða 10 ncmendur, sem verða að
vera á sérstökuin samningi hjá
viðurkenndu verzlunarfyrirtæki.
Námstíminn vcrður 2 ár og
skiptist námið í hagnýta fræðslu
(vinnu) og bóklega (námskeið,
nám við bréfaskóla). Einnig
vcrður aukanámskeið fyrir byrj-
endur og starfsfólk sölubúða og
skrifstofu, sem óska að kynnast
nýungum í störfum sínum. Sam-
vinnuskóólinn mun brátt gefa út
námsská vegna þessara nám-
skciða, sem send verður öllum
kaupfclögum.
áríðandi böggli og koma siðla
kvölds heim til annars hvors af-
greiðslumannsins til að fá hann
til að fara með sér í Böggla-
geymsluna. En stundum er það,
sem leitað er að, ekki þar, heldur
einhvers staðar úti í bæ. Einu
sinni kom maður eftir háttatíma.
Hann hafði gleymt töskunni sinni
og hún var lokuð inni á afgreiðsl
unni og nú var karl að fara heim,
en töskulaus færi hann ekki,
enda í henni varningur, sem ekki
mætti verða fyrir hnjaski. Af-
greiðslumaður klæddist og task-
an var afhent. Það glamraði lít-
illega í gleri, þegar ferðamaður
gekk út.
Bögglagcymslan er minnst allra
deilda KEA, og hreint þjónustu-
fyrirtæki, sem fólkið í sveitunum
metur að verðleikum. Hér er á
hana minnzt vegna þess, að
hennar er oftast að engu getið,
enda veltir hún ekki þungu hlassi
í umsetningu Kaupfélags Eyfirð-
inga. Hlutur hennar verður
mældur á aðra vog og mun þá
verða þyngri en ætla mætti í
fljótu bragði. Og einstæð mun
þessi litla deild vera á landi hér.
Skyldi það vera rétt?
Eftirfarandi klausa er tekin
upp úr vestur-íslenzka blaðinu
„Heimskringla“:
„í fyrirlestri, sem séra Friðrik
J. Bergmann hélt hér einu sinni
um „Heljarslóðarorustu" Ben.
Gröndals, kvaðst hann þeirrar
skoðunar, að skáldið hafi álitið,
að fyrir íslenzka þjóð væri ekk-
ert betra hægt að gera en að
koma henni til að hlæja. Henni
væri á engu meiri þörf....“
- Einstakf fyrirfæki. . .