Dagur - 04.03.1959, Blaðsíða 8
Baguk
Miðvikudaginn 4. marz 1959
sunnudag, 8. mari
r
A hverjum degi flytja prestar og leikmenn ræð-
ur, kórar, lúðrasveit og einsöngvarar koma fram
Akureyrarkirkja rúmar 500 manns, eða aðeins einn sext-
ánda hluta safnaðarins. Hún væri því alltof smá ef bæjarbúar
væm kirkjuræknir og kepptust um sæti í húsi drottins hvern
helgan dag. I»ó gæti hver og einn sótt 2—3 messur á ári.
Reynslan er sú, að guðshús
okkar er sjaldan þétt setið við
guðsþjónustur. Skyldu kirkju-
gestir vera yfir 50 eða svo að
meðaltali? Án þess að fullyrða
um tölur, er það alveg víst, að
kirkjusóknin er mjög lítil að
jafnaði, án nokkurs samanburðar
við aðrar kirkjur. Þetta er sú
staðreynd, sem mörgum góðum
mönnum vekur áhyggjur.
Akureyrar syngur, einsöngvari
Kristinn Þorsteinsson, sálmar
verða sungnir og Jakob Tryggva-
son leikur útgöngulagið.
Aðrir ræðumenn kirkjuvik-
unnar verða: Rafn Hjaltalín, séra
Sig. Haukur Guðjónsson, Hannes
J. Magnússon, séra Kristján Búa-
son, Jón Sigurgeirsson og séra
Benjamín Kristjánsson.
Að öðru leyti vísast til prent-
aðrar dagskrár kirkjuvikunnar,
sem dreift verður um bæinn og
menn ættu að hafa með sér til
kirkjunnar.
Tekið verður á móti samskot-
um í anddyri kirkjunnar til þess
að ekki skerðist efnahagur stofn-
unarinnar. Framundan eru stór
verkefni, svo sem nýtt kirkjuþak,
sem fyrirhugað er að gera af
kopar, pípúorgel er ráðgert að
kaupa og byggja þarf sáluhlið.
Sennilegt er, að hæjarbúar
fagni hinni fyrstu kirkjuviku á
Akureyri og minnist þessara orða
í 122. Davíðssálmi, Eg var glaður,
er menn sögðu við mig: Göngum
í hús drottins.
Anna og Jón. — (Ljósmynd: Edvard Sigurgeirsson.)
Skemmtilegur skólaleikur Leikfél M.A.
Akureyrarprestarnir hafa sýnt
áhuga í starfi, sem andlegir leið-
togar, eru ungir menn og vax-
andi, ástunda reglusemi og eru
vinsælir borgarar. Þeir halda
uppi öflugri æskulýðsstarfsemi.
Að áeggjan séra Ólafs Skúla-
sonar og séra Haraldar Sigmars
hófu Akureyrarprestarnir, Pétur
Sigurgeirsson og Kristján Ró-
bertson undirbúningsstörf að
nýjum þætti í kirkjulegu starfi,
með kirkjuviku í huga. Þeir,
ásamt sóknarnefnd Akureyrar-
kirkju, leituðu til Jóns Kristins-
sonar rakarameistara um að veita
hinni fyrstu kirkjuviku á Akur-
eyri forstöðu og tók hann það
starf að sér með sínum kunna
dugnaði.
Fréttamenn áttu kost á því á
sunnudaginn, að ræða nokkra
stund við framkvæmdastjórann,
prestana og formann sóknar-
nefndar, Jón Þorsteinsson. Þeir
lögðu áherzlu á, að kirkjuvikan
væri til þess haldin að efla safn-
aðarlíf með frjálsu samstarfi
presta og leikmanna og mundi
væntanlega auka kirkjusóknina.
En árangur hennar byggðist fyrst
og fremst á áhuga almennings.
Á sunnudaginn kemur hefst
kirkjuvikan. Þann dag er æsku-
lýðsdagur þjóðkii-kjunnar. Fyrir
hádegi talar Valdimar Snævarr
við börnin í Akureyrarkirkju og
eftir hádegi verður æskulýðs-
messa.
Á mánudagskvöld kl. 9 flytur
Jón Kristinsson ávarp, Steindór
Steindórsson og séra Sigurður
Stefánsson ræður, Kirkjukór
Munið ekkjuna
Blaðinu hafa horizt nokkur
tilmæli um, að benda fólki á
nauðsyn þess, að styrkja ekkju
Aðalgeirs heitins Jónssonar,
sem fórst af Sléttbak í vetur. —
Alvara fylgdi máli, því að í gær
bárust kr. 6.500.00 í þessa nýju
söfnun. Sex þús. frá Vélsm.
Odda h.f. cg Sameinuðu verkst.
Marz og starfsmönnum. —
Enn-fremur kr. 500.00 frá N.
N. — Blaðið veitir gjöfum til
ekkjunnar móttöku og emnig
til hinnar ahnennu söfnmiar,
sem nú stendur yfir.
Akureyringar læra að dansa
r
Kennarinn er Heiðar Astvaldsson
Leikfélag Menntaskólans frumsýndi „í blíðu og
stríðu“ á sunnud. við mikinn fögnuð áhorfenda
Leikstjóri er Jóhann Pálsson leikari frá Rvík
Um þessar mundir kennir
Heiðar Ástvaldsson dans í skól-
um bæjarins, og er alnienn
ánægja og áhugi fyrir þessari
námsgrein.
Heiðar kennir bæði nemendum
í Menntaskóla og Gagnfræða-
skóla og gerði það einnig sl. ár. í
vetur bættust svo við Barnaskóli
Akureyrar og Oddeyrarskólinn.
í framhaldsskólunum þykjast
menn sjá nýjan og glæsilegri svip
á dansleikjunum. Danskennsla er
hin þarfasta, þar sem svo hagar
til eins og hér, að dansinn er
meginþáttur samkvæmis- og
skemmtanalífsins. í skólunum er
danskennslan miðuð við það, að
hver nemandi, sem gerist þátt-
takandi, fái 12 tíma kennslu. Á
þessum tíma læra börn cg ungl-
ingar furðu mikið.
En fullorðnu fólki er ekkert
síður þörf á leiðbeiningum.
Um miðjan mánuðinn, eða 15.
marz, hefjast námskeið fyrir al-
menning í Landsbankasalnum,
þar sem Heiðar Ástvaldsson
kennir ungum og gömlum í
flokkum, þó ekki innan 14 ára
aldurs.
En innan skamms fer hann til
London til að ljúka námi við
dansskóla Victor Silvester, en
þar hefur hann numið undanfar-
in ár við góðan orðstír.
Skíðamót Akureyrar
heldur áfram n. k. sunnudag. —
Keppt verður í svigi öllum flokk-
um karla og drengja. — Farið
frá Ferðaskrifstofunni kl. 10 f. h.
Menntaskólaleikurinn er ætíð
nokkur viðburður í leiklistarlífi
bæjarins. Hans er því beðið með
nokkurri óþreyju af leikhúsunn-
endum. Og af reynslu fyrirfar-
andi ára, ganga menn að því sem
gefnum hlut, að leikur skóla-
fóiksins sé skemmtilegur.
Að þessu sinni varð eitt af
verkum Arthurs Watkyns íyrir
valinu, og hlaut í þýðingunni
nafnið „í blíðu og stríðu“. Nem-
endur þýddu leikinn sjálfir. —
Þessi enski gamanleikur er ekki
Jóhann Pálsson leikstjóri.
sérlega viðamikill að efni, en
bæði fyndinn og ríkur af léttri
gamansemi. Hann fjallar um
æskufólk, sem langar til að gift-
ast. Ástin er heit og fyrirhyggjan
eins og gengur. Bónorðið fór
fram í bíó. Hún sagði: „Uss. . ..“,
því að það var líka spennandi,
sem gerðist á tjaldinu.
Svo náðu elskendurnir saman í
lieilögu hjónabandi eftir hæfi-
legar hindranir. En það vantaði
íbúð og atvinnu. og þessir smá-
munir reyna töluvert mikið á
ástina.En ungt fólk yfirstígur alla
örðugleika. Stórviðrin láta sig
sjaldan vanta þegar ungt fólk
stofnar hið mikla fyrirtæki, hjóna
bandið. Það brakar í öllum
máttarviðum, en eitthvað af hé-
gómanum fýkur burtu. Höfund-
urinn sýnir mönnum inn í hina
þröngu íbúð ungu hjónanna,
pardís elskendanna, hólmgöngu-
völl manns og konu, vettvang
tortryggni og mistaka, of mikið
og náið þéttbýli og óhagstæða
niðurstöðu á íjárhag heimilisins,
þar sem tekjur og gjöld vilja ekki
fallast í faðma.
Sviðsmynd úr sjónleiknum 1 blíðu og striðu. (Ljsm.: E. Sigurgeirss.)
Ekki man eg eftir því, að eg
hafi séð skólaleik jafnvel leikinn
og í þetta skipti. Virðist leikstjór-
anum, Jóhanni Pálssyni, hafa
tekizt sérlega vel að selja leikinn
á svið og leiðbeina nemendunum.
Þrátt fyrir dugnað og áhuga
hinna ungu leikenda, mun
nokkrum erfiðleikum bundið að
þjálfa svona stóran hóp jafn mis-
fellulaust og hér var gert. Til
dæmis var framsögnin svo góð,
að nær hvert orð heyrðist greini-
lega og getum við sjaldan hrósað
happi yfir svo góðum árangri á
leiksýningum hér á Akureyri.
Með stærstu hlutverkin fara
Anna G. Jónasdóttir og Jón Sig-
urðsson. Þau leika kærustuparið
og ungu hjónin og hvílir mikið á
þeirra herðum. Þeim tekst báð-
um mjög vel, sérstaklega Onnu,
ef á milli má sjá. Margrét Þóris-
áóttir og Þorleifur Pálsson leika
Framhald á 7. siðu.