Dagur - 18.03.1959, Síða 8
8
Bagujr
Miðvikudaginn 18. marz 1959
Æflar ríkissfjórnin að sföðva rafvæðinguna?
Dagsbirtan skaðar mjólkina <
Slíkt gerræði væru lirein svik við fólkið
úti á landsbyggðinni
Fá mál vöktu meiri fögnuð al-
mennings í landinu en rafvæðing
dreifbýlisins, sem Framsdknar-
flokkurinn beitti sér fyrir frá
upphafi. Merkastir áfangar í
þessu þýðingarmikla framfara-
máli voru kosning milliþinga-
nefndar í máfinu 1942. raforku-
lögin 1946 og svo 10 ára áætlunin
sem tók gildi 1954 og á að ljúka
1963.
Næst á eftir ræktun og bygg-
ingum á rafvæðingin mestan þátt
í að skapa fólki góð heimili, gera
sveitirnar byggilegar. Rafvæð-
ingin er líka undirstaða margs
konar iðnaðar í sveit og bæ.
Mörgum hefur þótt fram-
kvæmdum miða of hægt. Svo er
það jafnan þegar þau mál eru á
ferðinni, er slíkum sköpum
skipta. Nú eru fimm ár eða
helmingur þess tímabils liðinn,
sem 10 ára áætlunin miðast við.
Þegar þetta tímabil hófst voru
nokkur hundruð þýli þegar búin
að fá rafmagn frá samveitum. En
samkvæmt áætluninni áttu 3200
býli'að fá raforku frá rafveitum
ríkisins og Rafmagnsveitu
Reykjavíkur.
Áætlunin hefur staðizt
fullkomlega.
Um síðustu áramót stóðu mál-
in þannig, að nær 200 býli höfðu
Þetta segir nú Jónas:
„Tivoli opnar í dag“, hefur
oft heyrzt í útvarpinu, hamri,
steðja og ístaði til sárrar
raunar.
í nýjustu „Vikunni“ er sagt
um nýtt gistihús, „það „opn-
aði“. Opnaði húsið eða var
húsið opnað? Hvernig fer hús
að því að opna?
-K
f „Verkamanninum“ um
daginn var harmað, að maður
nokkur skyldi ekki lifa það að
sjá hér „hið stéttlausa þjóðfé-
lag“.
Hve lengi á að tönnlast á
gömlum „frasa“, sem aldrei
getur orðið nema óbragð að?
Eru „stéttlaus" þjóðfélögin
fyrir austan tjald í sælunni?
-K
Landbúnaðarvörur, sjúkra-
samlagsgjöld o. fl. eru greidd
niður um fjölmarga milljóna-
tugi. Ágætt. Ekki fer nú rikið
að taka þessar milljónir af
mér aftur, eða þér, eða hvað
heldurðu um það?
-K
Verður ekki ákaflega
ánægjulegt, ef svo fer, að Ak-
ureyri verður lagt niður sem
sérstakt kjördæmi?
Verður ékki gaman að
hjálpa til þess með atkvæði
sínu, að enginn verði á Al-
þingi framar, sem beri sæmd-
artitilinn „þingmaður Akur-
eyrar“?
fengið raforku frá almennings-
veitum. 10 ára áætlunin hafði
staðist fullkomlega.
Á þessu fimm ára tímabili hef-
ur Framsóknarflokkurinn alltaf
farið með stjórn raforkumála og
séð um framkvæmd þeirra í að-
alatriðum.
Um 1200 býli eiga eftir að fá
raforku, sem eiga að fá hana
samkvæmt margnefndri áætlun.
920 býli hafa þegar fengið raf-
magn frá einkarafstöðvum. 339
vatnsaflstöðvar eru í einkaeign
og ná til 520 býla. Mótorraf-
stöðvar eru 334 og ná til 400 býla.
Kostnaður við raforkufram-
kvæmdir er mikill og hefur farið
mjög vaxandi hin síðari ár. Læt-
ur nærri að hann sé 78 þúsund
krónur á býli miðað við 800
metra fjarlægð og 88 þús. sé mið-
a, við 1000 metra fjarlægð. Hvort
tveggja miðað við einfasa lögn.
Sé lögnin þriggja fasa, hækkar
kostnaðurinn um ca. 30 þús. kr.
á býli. Yfirleitt hefur kostnaður
tvöfaldazt við raforkufram-
kvæmdirnar síðustu 10 árin.
Einkarafstöðvar eru orðnar
mjög dýrar og munu kosta 15—
20 þús. krónur á hver kw. 10 kw.
stöð mundi þá kosta 150—200
þús. krónur.
Raforkusjóður hefur veitt lán,
sem svarar til 55% af stofn-
kostnaði með 3% vöxtum og af-
borgunarlaust fyrstu 2 árin. —
Áhugi og framtak einstaklinga til
þessara framkvæmda virðast
hafa dvínað síðustu árin. Enda
kemur þar tvennt til, að margir
sjá hilla undir ljós og yl frá hin-
um stóru virkjunum og annað
hitt, að einkarafstaöðvarnar eru
flestum ofurefli vegna stofn-
kostnaðar. En aðstæður eru mjög
mismunandi og ermjögathugandi
að gera sér sem gleggsta grein
fyrir virkjunarmöguleikum á
hverjum stað.
Þeir sem bíða.
Nú eiga 1200 býli eftir að fá
raforku, samkvæmt 10 ára áætl-
uninni. Þessi býli eiga að hafa
fengið rafmagnið innan 5 ára. En
þá eru samt eftir 1700-----1900
býli, sem legu sinnar vegna er
erfiðara að tengja samveitum.
Sennilegt er talið að vandamál
þeirra í sambandi við raforku
verði e. t. v. bezt leyst með inn
flutningi dieselrafstöðva. Sýni-
legt er, að stórt átak verður að
gera í þessu máli á næstu árum.
Um síðustu áramót stóðu málin
þannig, að eftir var að fram-
kvæma samþykktar samveitur í
landinu fyrir 12,6 milljónir króna.
Raforkuráð hefur svo samþykkt
nýjar veitur fyrir þetta ár fyrir
8—9 milljónir króna. Liggja því
fyrir samþykktir frá síðasta ári
um raforkuframkvæmdir fyrir
um það bil 21 milljón, sem ætlast
DAGUR
kemur næst út á laugard. 21.
þ. m. Auglýs. þiu-fa að berast
fyrir hádegi á fösíudag.
er til að ríkisstjórnin annist
framkvæmd á yfirstandandi ár.
Þessar tölulegu upplýsingar
komu fram í ræðu Daníels
Ágústínussonar á flokksþinginu,
er rætt var um raforkumálin. En
Daníel er fulltrúi Framsóknar-
flokksins í Raforkuráði.
Framkvæmdir stöðvaðar.
Nú bregður svo við hjá okkar
nýju stjórnarvöldum, að þau
ákváðu strax um áramót og til-
kynntu raforkumálastjóra, aðall-
ar raforkuframkvæmdir skyldu
niður falla að sinni, eða þar til
öðruvísi yrði ákveðið. Það mátti
ekki einu sinni reisa staura, sem
komnir voru á staðinn. Fram-
kvæmdir voru algerlega stöðvað-
ar um áramótin og þannig standa
málin nú í dag.
f nýjasta „Politikens Uge-
blad“ (1.—7. marz) eru athyglis-
verðar upplýsingar fyrir neyt-
endur og framleiðendur mjólkur.
Tilraunir í Þýzkalandi hafa
leitt í ljós, að 79%'af C-vítamín-
inu í mjólkinni hurfu, ef hún var
látin standa í hinum venjulegu
Ijósu flöskum í dagsbirtu í 6
klukkustundir.
Ef mjólkin var geymd á sama
hátt í pappaílátum, var helming-
ur C-vítamínsins horfinn að 6
stundum liðnum, en er mjólkin
var geymd í flöskum úr dökku
gleri, þá hvarf aðeins 1,3% af C-
vítamíninu á sama tíma.
Tilraunir, sem leiddu svipað í
ljós, hafa einnig verið gerðar á
tilraunamjólkurstöð danska rík-
isins í Hilleröd, og þar kom einn-
ig í ljós, að dagsbirtan olli miklu
óbragði að mjólkinni, en væri
mjólkin höfð í flöskum úr gulu,
rauðu eða brúnu gleri, þá missti
hún ekki vítamínið og slapp við
óbragðið.
í Helsingfors og Stokkhólmi er
þegar tekið að nota brúnar
mjólkurflöskur, og nú hafa 3
stærstu mjólkursamlög í Kaup-
mannahöfn gert samninga við
glerverksmiðjur um kaup á
brúnum mjólkurflöskum, og
verður tekið að nota þær næsta
haust.
Engin ástæða virðist til þess að
rengja þessar upplýsingar. Ekki
skortir okkur blessaða dagsbirt-
una seinni hluta vetrar og fyrri
part sumars. Við þyrftum í þessu
máli að fara að dæmi frænda
okkar á Norðurlöndum.
Ýmis fíðindi úr nágrannabyggðum
Sauðárkróki, 12. marz 1959
í Skagafirði er nú mikill áhugi
fyrir tamningu hrossa og a. m. k.
þrjár stöðvar starfandi í því skyni.
Tamningamaður er Jón Baldvins-
son, Dæli, en honum til aðstoðar er
Björn Skúlason, Sauðárkróki. Á
tamningastöðinni eru alls 14 hestar
og á sami maður fimnr þeirra, en-
það er Ragnar bóndi í Svartárdal.
Hestmannafélagið Léttfeti á
Sauðárkróki liefur nú í fyrsta skipti
komið á fót tamningastöð hér í bæ.
Hófst sú starfsemi um síðustu mán-
aðamót og stendur til aprílloka.
í Varmahlíð hefur Hestamanna-
félagið Stígandi komið upp tamn-
ingastöS nú í annað sinn. Er sú
starfsemi tvíjrætt, þannig, að teknir
verða tveir hópar hrossa til tamn-
ingar og verður hver hópur sex
vikur. Nú eru Jrar 22 hestar á tamn-
ingastöðinni og tamningamenn eru
þeir Gísli Hiiskuldsson og Pétur
Sigfússon, Álftagerði.
Enn er ein tamningastöðin á
Stóra-Vatnsskarði. Þar hafa þeir
Þorvaldur Árnason og Benedikt
Benediktsson 12 hesta í tamningu.
Þessir hestar eru allir, að einum
undanskildum, úr Húnavatnssýslu.
Þá munu og Hólasveinar hafa
hesta undir höndum til tamningar,
svo sem venja er.
Auk Jtessa er svo að sjálfsögðu
næstum því á hverjum bæ verið að
temja ungviði og leita að góðhesta
efnum, sem borið geti eigandann
með glæsibrag um hina viðu velli
í Skagafirði og á mannamót. Það
evkur sjálfstraust og stolt hesta-
mannsins, að vera vel ríðandi.
Félag áfengisvarnanefnda í
Skagafirði hefir gengizt fyrir fjöl-
mennum fundum, eða samkomum,
um bindindismál nú að undan-
förnu. Sunnudaginn 8. marz, var
slík samkoma haldin á Hofsósi.
Komu þar saman börn úr þrem
hreppum, Fells-, Hofs- og Hofsós-
hreppi, ásamt kennurum og áfeng-
isvarnarnefndarmönnum. Samkom-
an hófst með messu í Barnaskólan-
um kl. 2, en á eftir hófst samkoman.
Þar voru ræður fluttar, lesið upp og
sýnd kvikmynd.
Daginn eftir var önnur samkoma
haldin á vegum félagsins í Steins-
staðaskóla, fyrir börn, kennara og
áfengisvarnarnefndamenn úr Akra-,
Seylu- og Lýtingsstaðahreppi. Fund-
arefni var með svipuðu sniði og á
Hofsósi. Auk heimamanna á hverj-
um stað, mættu Jreir Pétur Björns-
son, erindreki og Jón Þ. Björnsson,
fyrrv. skólastjóri, formaður félags-
ins. Fundirnir voru mjög fjölmenn-
ir og hinir ánægjulegustu.
Sauðárkróki 17. marz.
Á sunnudagsnóttina brunnu hér
á Sauðárkróki 6 sjóskúrar, sem
stóðu utarlega í bænum og niðri
við sjó. í þeim voru veiðarfæri
margra sjómanna og ýmislegt
fleira, þar á meðal ný vél, sem
setja átti í lítinn þilfarsbát. Tjón-
ið af þessum bruna var töluvert
mikið og tilfinnanlegast fyrir þá,
sem ekki höfðu brunatryggt eða
tryggt mjög lágt.
G. I.
Öngulsstaðahreppi 17. marz.
í síðustu viku fóru tveir menn,
þeir Tryggvi Jónatansson og
Kristján Jónsson fram í Tungur í
kindaleit. Framan við svonefnda
Klifsá, framarlega á dalnum,
fundu þeir gráa gimbur, sem ekki
hafði komið af fjalli í haust og
hefur gengið þarna úti. Sú gráa
var mjög sæmilega útlítandi og í
bata og reyndist vera frá Hösk-
uldsstöðum.
Samþykkt um her-
verndarsamnmginn
Opinher fundur haldinn á Akur-
evri 8. marz 1959, á vegum Menn-
ingar og friðarsamtaka íslenzkra
kvenna — Akureyrardeild — sam-
þykkti svoliljóðandi ályktun sam-
hljóða:
„Fundur haldinn í Menningar-
og friðarsamtökuni íslenzkra
kvenna á Akureyri 8. marz 1959
telur að clvöl hins crlenda hers í
landinu leiði geigvænlega hættu
yfir íslenzku þjóðina og koniandi
kynslóðir í þessu landi og auki á
hættu tortímingarstyrjaldar í heim-
inum. Herinn verði að fara á brott
og ríkisstjórn landsins sé hundin
Jreirri siðferðisskyldu, hæði gagn-
vart íslenzku þjóðinni og öðrum
þjóðunr lieims, að fara að vilja al-
mennings í Jressu máli og vinna nú
Jregar að uppsögn hervemdarsamn-
ings.“
Fréttatilkynning frá M. F. I. K.
Álykfun flokksþingsins m
æmamálið
l. — 12. flokksþing Framsóknarnianna leggur á það megináherzlu
að vernda beri rétt hinna sjálfstæðu, sögulega þróuðu kjördæma til
þess að hafa sérstaka fulltrúa á Alþingi. Jafnframt telur það rétt að
fjölga ltjördæmakosnum þingmönnum fjölnrennari byggðarlaga, þó
þannig að tekið sé eðlilegt tillit til aðstöðumunar kjósenda í einstök-
um byggðarlögum til áhrifa á þing og stjórn.
II. — Flokksþingið telur að stefna beri að því að skipta landinu í
einmenningskjördæmi utan Reykjavíkur og þeirra kaupstaða ann-
arra, sem rétt þykir og þykja kann að kjósi fleiri en einn þingmann.
Með hæfilegri fjölgun kjördæmakjörinna þingmanna falli niður
uppbótar landskjörið.
Telur Ðokksþingið að einmenningskjördæmi sem aðalregla sé ör-
uggastur grundvöllur að traustu stjómarfari.
m. — Flokksþingið telur að skylt sé að ljúka sem allra fyrst end-
urskoðun stjórnarskrárinnar í heild og að þar þurfi fleiru að breyta,
en kjördæmaskipan.
Telur flokksþingið þjóðinni hollast að sem víðtækast samkomulag
geti orðið um öll grundvallaratriði stjórnskipunarlaganr.a.
IV. — Flolcksþingið skírskotar til ályktana fyrri flokksþinga
Framsóknarmanna um að æskilegt væri að sérstaklega kjörnu
stjórnlagaþingi, sem ekki hefði öðrum málum að sinna, væri fengið
ákvörðunarvald um gerð stjórnarskrárinnar og að hin nýja stjómar-
skrá tæki síðan gildi, er hún hefði hlotið samþykki við þjóðarat-,
kvæðagreiðslu.