Dagur - 02.04.1959, Síða 6
6
D A G U R
Finimtudaginn 2. apríl 1959
- Fiskveiðar við Ijós aukast
Framhald af S. siðu.
nefnd ljóstrun. Fór hún þannig
fram: Aftur af skut veiðibáts var
fest fjöl, og á henni lá logandi,
olíuborinn múrsteinn, sem varp-
aði birtu niður í vatnið, og blik-
aði þar brátt á dökka hryggi sil-
unganna, sem sóttu í ljósið. Stakk
þá fiskimaður snöggt þríkvísluð-
um ljóstrinum niður yfir þveran
hrygg fisksins, svo að oddarnir
þrír með tvöföldum agnúum
sukku á kaf í fiskinn. Þó kom oft
fyrir, að stórir fiskar rifu sig af
ljóstrinum og sluppu með lífi, en
algerlega sundurtættir. Hefur því
veiði þessi verið bönnuð fyrir
nokkrum áratugum.
Smala má síld með
sökkviljósum.
Nýskeð flutti norskt blað frétt
þessa: — Ljós sem sökkt er í sjó,
geta „stjórnað göngu síldarinn-
ar“, og reynslan hefur sannað, að
skip sem beitt hafa þessari veiði-
aðferð, hafa reynst hinum veiði-
sælli. Fyrst voru það veiðiskip
frá sunnanverðum Noregsströnd-
um (Rogalandi, Sunn-Hörða-
landi), sem gerðu tilraunir þcss-
ar, en nú er þetta orðið algengt
fyrir norðan Stað, á Sunnmæra-
hafi og víðar.
Á grunnsævi hefur reynst vel
að sökkva ljóskerinu til botns,
niður undir síldartorfuna, og
hefur hún þá lyft sér, svo að til
hennar hefur náðst með nótinni.
Einnig hefur reynst vel, þegar
tryllingur er í síldinni, svo að
hætta er á, að hún sprengi nót-
ina, að sökkva Ijóskeri niður
undir nótina og „stugga þannig
við síldinni“ upp á við!
Ameríkumenn stjórna
síldartorfunum beint í næturnar.
í þessu sama norska blaði var
einnig kafli úr bréfi frá norskum
síldveiðimanni vestan hafs. Segir
hann m. a. þannig frá: — Hér
vest'ari háfs ha'fa visiridáméhn
komizt að raun um, að síldin sé í
rauninni ekkert gáfnaljós, og að
nota megi sér þetta, þegar síldin
gengur nærri landi. Hefur t. d.
U. S. Bureau of Commercial
Fisherics rekið fróðlega tilrauna-
veiði undanfarið. Þeir höfðu litla
flugvél, sem fylgdist með síldar-
göngunni og skrásetti hana jafn-
óðum á sérstakt kortriss, milli
lands og eyja, á ákveðnu svæði,
svo að alltaf sást, hvað síldar-
göngunni leið. í sama vetfangi og
síldartorfan stefndi inn í eyja-
sundið, lagði vélbátur út 1200
feta gúmslöngu, þéttsetta götum,
þvert yfir sundið. Síðan var
þrýstilofti blásið gegnum slöng-
una svo sterkt, að loftbólurnar
mynduðu eins konar vegg í sjón-
um. Þegar síldin kom að þessu
hvíta teppi, sveigði hún til hliðar
meðfi'am loftbólurásinni og beint
í nætur fiskimanna, sem biðu
hennar viðbúnir.
Fiskimálaskrifstofan skýrir svo
frá, að í sex tilraunum hafi síld-
veiðimennirnir fengið nægilega
veiði til að greiða allan kostnað
við útbúnað þennan með vélum
og öðrum tækjum.
Helgi Valtýsson.
Frá Barnaverndarfélagi
Akureyrar
Eins og bæjarbúum er kunn-
ugt beitti Lionsklúbbur Akur-
eyrar sér fyrir því að fá skemmti
krafta hingað til bæjarins til
styrktar Leikskólabyggingu
Barnaverndarnefndar Akureyrar.
Nú nýskeð hefur formaður
Lionsklúbbsins afhenti stjórn
Barnaverndarfélagsins 15000.00
kr.j eða allan ágóða af skemmt-
unum Cirkus-kabarettsins hér.
Fyrir þessa rausnarlegu gjöf
þakkar Barnaverndarfélagið af
alhug, um leið og það óskar
Lionsklúbbnum allra heilla.
Þá hafa eftirtaldir aðilar á einn
eða annan hátt greitt fyrir þess-
um góða málstað: Flugfélag fs-
lands, Hótel KEA, Hótel Varð-
borg og Nýja-Bíó. Öllum þessum
aðilum svo og öðrum, sem hafa
lagt máli þessu lið, færir félagið
einnig alúðarfyllstu þakkir.
F. h. Barnaverndarfélags
Akureyrar.
Theódór Daníelsson, form.
HEIMA ER BEZT
Forsíðumynd þessa nýútkomna
aprílheftis er af Böðvari Magn-
ússyni á Laugarvatni og grein er
um hann eftir Björn Sigurbjarn-
arson. Flosi Björnssonar skrifar
um skipsstrand við Skeiðarár-
sand. Jóhann M. Bjarnason um
Árna lögmann Oddsson og Ingvar
Pálsson greinia: Hvcr hugsar um
dýrin. Þá eru framhaldssögurn-
ar, þáttur Stefáns Jónssonar og
nokkur bréf Sig. O. Björnssonar
til barnanna. Ritstjórinn, St.
Steindórsson, skrifar um tóm-
stundir.
Heimili og skóli,
18. árg., 1. hefti þessa árs.
í þetta hefti rita Hannes J.
Magnússon formálsorð undir fyr-
irsögninni: Árið okkar, Heimilin
og útvarpið, minningargrein um
Arngrim Kristjánsson skóla-
stj., og grein um Árna M. Rögn-
valdsson fimmtugan. Eiríkur
Sigurðsson ritar um Theodór
Daníelsson fimmtugan og Magn-
ús Magnússon skrifar um af-
brigðileg börn.
Góð mynd í Nýja-Bíó
Oklahoma!
Um 1940 var söngleikjagerð í
Bandaríkjunum í miklum öldu-
dal, hver leikurinn var öðrum
líkur og allir ómerkilegir. Fæsta
grunaði hvílík bylting var á
næstu grösurn, þegar þeir Rod-
gers og Hammerstein hófu að
gera söngleik eftir lítt þekktu
leikriti: „Green Grow the Lilacs“
eftir Lynn Riggs. Upphaflega
nefndu þeir söngleikinn „Away
We Go!“ En skömmu fyrir frum-
sýninguna var heiti hans breytt í
„Oklahoma"! Hún fór svo fram
þann 31. marz 1943 á Broadway.
Söngleikurinn „gekk“ síðan á
sama leikhúsinu samfleytt í fimm
ár! Árið 1944 hlutu höfundarnir
Pulizer-verðlaun fyrir leikinn.
Og „Oklahoma"! hefur orðið
langvinsælasti söngleikur vorra
daga. Þegar afráðið var að kvik-
mynda söngleikinn, tólf árum
eftir frumsýninguna, var talið að
hann hefði alls verið sýndur 8000
sinnum, og að 30 miiljónir manna
hefðu séð hann og greitt um 100
millj. dollara í aðgangseyri!
Einnig hefur hann verið sýndur í
níu löndum utan Bandaríkjanna.
Með „Oklahoma“! hófst ný stefna
í söngleikagerð, sem leitt hefur af
sér marga framúrskarandi söng-
leiki, eins og „Annie Get Your
Gun'1 „South Pacific“, „TheKing
and 1“ og „My Fair Lady“.
Falleg PEYSA
er lieppileg
FERMINGARGJÖF
Hvergi meira úrval.
VERZL. DRÍFA
SÍMI 1521
Afgreiðslustúlkur
vantar í KJÖRBÚÐ KEA.
Ódýrar kartöflur
Gullauga og Rauðar
íslenzkar
kr. 47.50 pokinn.
KJÖTBÚÐ
Saitkjötshakk
<#>
KJÖTBÚÐ
Hakkað
hrossakjöt
KJÖTBÚÐ
Fermingargjafir:
Undirfatnaður
Sokkamöppur
Sokkar
Snyrtitöskur
Hanzkar
Slœður
Hálsfestar
Armbönd
o. jl. o. fl.
VERZL. DRÍFA
SÍMI 1521
IIEY
Til sölu 10—15 hestar af
góðri töðu.
Uppl. i sima 1397.
NÝ SENDING
þýzk
barnanærföt
VERZLUNIN SNÓT
Tökum upp í dag fjöl-
breytt úrval af
gjafavörum
Úra og skartgripaverzlun
FRANC MICHELSEN
Kaupvangsstræti 3 . Sími 2205
Emaileraðar fötur
Plastfötur
Blikkfötur
Mjólkurbrúsar, 3 og 51.
Þvottabalar
...... ' . > V y : • • -
VÉLA- OG
BÚSÁHALDADEILD
Nýkomið!
SPORTSTAKKAR
KARLMANNA
Tvöfaldir.
POPLINKÁPUR
kvenna og barna.
KLÆÐAVERZLUN
SIGURÐAR
GUÐMUNDSSONAR H.F.
RAUÐKAL þurrkað
LAUKUR þurrkaður
BLÁBER þurrkuð
MÖNDLUR — EGGJADUFT
GRÓFUR MOLASYKUR
VÖRUHÚSIÐ H.F.
Hreinlætisvörur
Flestar fáanlegaar tegundir
til vorhreingerninga.
VÖRUHÚSIÐ H.F.
Karlm. vinnuskyrtur
mjög endingargóðar.
Verð frá kr. 105.00.
VÖRUFIÚSIÐ H.F.
Undirlaka „Stout“
með vaðmálsvíindum.
Mjög endingargott.
VÖRUHÚSIÐ H.F.
Tilvalin fermingargjöf
SÆNSKIR
OPTIMUS
ferðaprímusar
koma næstu daga.
Póstsendum.
BRYNJÓLFUR
SVEINSSON H. F.
Koma í búðina næstu
daga.
BRYNJÓLFUR
SVEINSSON H. F.
Ferðaprímusar
sænskir.
Hentúg og ódýr
fermingargjöf
JÁRN- OG GLERVÖRUDEILD
. I . » S ' * - ■* < i
">■....—; ; :--------rT-
TIL SÖLU
þrjár 5 kw. rafm.túbur.
SÍMI 2331.
NÝKOMIÐ
Hvítt plusefni
í barnakápur o. fl.
Þykkt apaskinn
breidd 105 cm.
kr. 41.50 m.
Odýr sumarkjólaefni
ANNA & FREYJA
Spí ralkútar
nýkomnir.
Pantanir óskast sóttar
sem fyrst.
Olíusöludeild