Dagur - 02.04.1959, Blaðsíða 7
Fimmtudaginn 2. april 1959
D A G U R
7
!*- ísinn aldrei nær...
Framhald af 1. síðu.
krónur, ef sama verð helzt á
þeim og var í fyrra, en fyrir
spikið fáurn við eina krónu fyrir
kílóið.
Sækist þið mest eftir kópun-
um?
Já, á vissum aldri, skinn þeirra
eru þá mjög falleg. Á þeim kjör-
aldri, frá sjónarmiði veiðimanns-
ins, vegur skinnið 4 kg. og spikið
ca. 15 kg. Spikið er flegið af með
skinninu á og flutt þannig heim.
Þar eru unnar olíur úr spikinu
en pelsar gerðir úr skinnunum
og eru þeir mjög dýrir.
Eru kóparnir mjög bráð-
þroska?
Kóparnir fæðast spiklausir. En
á hálfum mánuði safna þeir 5 cm.
þykku spiki,því að móðurmjólkin
er svo nærandi og inniheldur um
80% fitu. En þá yfirgefur móðir-
in afkvæmi sín og þau verða að
sjá um sig sjálf. Þá kemur sér vel
fyrir kópana að eiga nokkra
forðanæringu á meðan þeir eru
að læra að bjarga sér sjálfir.
Hvað er meðalaflinn í veiði-
ferð?
Það er mjög misjafnt eins og
flest veiði. í fyrra fengum við
2000 kópa og 400 fullorðna seli.
Fullorðnu selirnir gefa um 60 kg.
af spiki og 20 kg. skinn. Öllu
selakjöti er fleygt. En selveið-
arnar eru svo misjafnar, að þær
eiga ekki saman nema að nafn-
inu. í fyrra veiddum við fyrir 310
þús. norskar krónur og háseta-
hluturinn varð 7500 krónur. Árið
1955 fylltum við skipið á 7 dög-
um, en stundum fáum við sára-
lítið. Og skipstjórinn bætir því
við, að hann óttist ofveiði.
fsbirnir og rostungar?
Við sáum aðeins einn ísbjörn
núna. Hann var styggur og hvarf
inn á ísinn. En í fyrra skutum við
5 ísbirni. fsbirnir og rostungar
halda sig nær Grænlandi og eins
og ísinn er nú, verða selfangarar
þessara dýra lítið varir. Kjöt ís-
bjarna er hættulegt til matar og
feldur þeirra í lágu verði.
Hvað eru margar selaskyttur
um borð?
Tvær skyttur, auk mín, segir
skipstjórinn. Við höfum 4 riffla
um borð
Hvað eríu búinn að skjóta
marga seli?
Það hef eg enga hugmynd um.
Sennilega nokkra tugi þúsunda.
Gustav Egset er 55 ára gamall,
viðkunnaníegur í framgöngu og
ber þess merki að hafa horfzt í
augu við hættur íss og storma. —
Hann býður af sér góðan þokka.
Hann þarf að fylgjast með við-
gerðinni á skipinu, því að veiði-
tími selfangaranna er þegar byrj-
aður og hugurinn leitar norður
að ísröndinni, þar sem veiðin
bíður. — Um leið og blaðið
þakkar viðtalið, óskar það skipi
og áhöfn þess fararheilla og
góðrar heimkomu með dýran
farm. — E. D.
Tala félaga í Skógræktarfélagi
Akureyrar er hátt á fjórða
hundrað, en ekki hátt á sjötta
hundrað, eins og stóð í síðasta
blaði.
BORGARBÍÓ
S f M I 15 0 0
Myndir vikimnar:
Heimsfræg stórmynd: 1
Land faraóanna j
('Land of tlie Pharaohs.) |
Geysispennandi og stórfengleg 1
ný, amerísk stórmynd. Fram- É
leiðandi og leikstjóri: Milljóna 1
mæringurinn Ilovvard Havvks. É
Kv’ikmyndahandrit: E
WiIIiam Faulkncr.
Aðalhlutverk:
Jack Havvkins og
Joan Collins.
Myndin er tekin í litum og i
CinemaScopE
É Ein dýrasta og tilkomumesta É
É kvikmynd, sem tekin hefur |
É verið. É
[ Bönnuð yngri en 12 ára. \
| Þrír menn í snjónum;
É (Drei Mánner im Schnee.) =
É Sprenghlægileg og skemmtileg É
É þýzk-austurrísk gamanmynd, |
É byggð á hinni afar vinsælu é
É sögu Eridh Kástner, sem kom- É
É ið hefur út í bókarformi undir É
É nafninu: Gestir í Miklagarði, é
É og leikin var hér í vetur við É
É miklar vinsældir undir nafn- É
É inu: Forríkur fátæklingur. — \
ÉAðalhlutverk: É
Paul Dahlke, \
É Gúnter Luders,
É Claus Biederstaed. É
Samvinnan
Marzhefti Samvinnunnar er
komið út. Efni: Til hvers er bar-
izt? Á austfirzkum slóðum, Annó
1959, Hvað er að gerast í Kína?
og smásaga eftir Guðm. Haíl-
dórsson. Þá svara nokkrir þjóð-
kunnir menn: Guðm. Sveinsson,
Bjarni Benediktsson frá Hofteigi,
Jón Auðuns, Ezra Pétursson og
Gunnar Árnason spurningunni:
Eru starfsaðferðir kirkjunnar úr-
eltar á atomöld? Séra Sveinn
Víkingur krotar á spássíur,
Sveinbjörn Beinteinsson skrifar
um Ijóð Þorsteins Valdimarsson-
ar og sitthvað fleira er í ritinu og
er það læsilegt að vanda.
Birgir Gunnarsson
KVEÐJUOKÐ.
Horfinn er einn af mörgum
okkar rösku og fórnfúsu íslend-
inga, og langar mig til að minnast
hans með fáum orðum, til þess að
létta svolítið á hjarta mínu.
Hann var hvers manns hug-
Ijúfi. Man eg hve framkoma hans
var hrein, allt svo bjart í kring-
um hann, hvar sem við hittumst.
Ófeiminn að segja sína skoðun á
okkar áhugamálum. Hann verður
alltaf einn af þeim drengjum, sem
mér verða minnisstæðastir. Eg
vona, Birgir Gunnarsson, að við
eigum eftir að hittast hinum
megin. Því að þangað förum við
öll. Fólki þínu vil eg votta samúð
mína. Söknuðurinn er sár, en
vonandi læknar tíminn tregann.
Guð blessi þig og varðveiti.
Þinn vinur.
H. Þ.
i ■ n i ii 11111•1111111111
11111111111111
NÝJA-BÍÓ
Aðgöngumiðasala opin frá 7—9
Mynd vikunnar:
.æ
Bráðskemmtileg og fögur
bandarísk kvikmynd, gerð
eftir vinsælasta söngleik
seinni tíma.
Aðalhlutverk:
Shirley Jones,
Gordon Mac Rae,
Red Steiger
og flokkur listdansara
frá Broadway.
Næstu myndir:
r
\ I smyglara höndum
Spennandi og dularfull
bandarisk Cinemascope
: litmynd.
ÉAðalhlutverk:
Stewart Granger,
George Sanders og
Vivica Lindfors.
Um lielgina:
Elskaðu mig eða
slcpptu mér
(Love me or leave me.)
I. O. O. F. — 1404381/2 —
Læknavakt:
Fimmtudag 2. apríl: Erlendur
Konráðsson.
Föstudag 3. apríl: Stefán Guðnas.
Laugardag 4. apríl: Ólafur Ólafss.
Sunnudag 5. apríl: Sami.
Mánudag 6. apríl: Erlendur Kon-
ráðsson.
Þriðjud. 7. apríl: Stefán Guðnas.
Hjúskapur. Laugardaginn fyrir
páska voru gefin saman í hjóna-
band í Akureyrarkirkju ungfrú
Guðrún Hjaltadóttir, Hafnar-
stræti 85, og Friðrik R. Vest-
mann, Hlíðargötu 4, Akureyri. —
Heimili þeirra verður að Hafn-
arstræti 85. — Á páskadag voru
gefin saman í hjónaband í Akur-
eyrarkirkju ungfrú Ásta Einars-
dóttir, Klettaborgum 2, Akureyri,
og Sigmar Sævaldsson frá Dal-
vík. Heimili þeirra verður að
Klettaborgum 2, Akureyri.
Delerium bubonis. Sýningar í
kvöld, fimmtudag og um helgina.
Kenni þýzku, ensku, dönsku og
reikning. Upplýsingar í síma 1046
kl. 4—7 e. h. Jón Eiríksson. cand.
mag.
É Framúrskarandi bandarísk
stórmynd í litum og
CiNemaScoP^
É urlagasöngkonunnar
Rutji Etting.
I Mynd í sama stíl
Brostinn strengur.
ÉAðalhlutverk:
Doris Day og
James Cagney.
Bönnuð innan 12 ára.
Kl. 3 á sunnudag:
Spennandi rnynd eítir sögu
Alexander Dumas.
Heimsóttu hreppstjóra
Það bar við í Eyjafirði í febrú-
armánuði, að hrútskuddar tveir
fyrsta vetri, sem ekki höfðu
átt nein samskipti við fjallskilin
sl. haust, komu lieim að bæjum
og íundust nálægt landamerkjum
hreppstjóra og fjallskilastjóra. —
Þeir voru ekki illa á sig komnir
af útigöngunni og þóttu hafa
minnt á sig á réttum stað við
heimkomuna.
Auglýsingar skapa viðskipta
möguleika og auðvelda þá. —
Auglýsið í Degi.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berað trúlofun sína ungfrú Hulda
Aðalsteinsdóttir, Baldursheimi í
Arnarneshreppi, og Stefán Bald-
vinsson, sjómaður, Stóru-Há-
mundarstöðum, Árskógshreppi.
Flugbjörgunarsveit Akureyrar
hafa borizt eftirfarandi gjafir fi'á
því um áramót: Frá Verka-
kvennafélaginu Einingu kr. 5000.
— Frá N. N. kr. 500. — Frá N. N.
kr. 500. — Frá N. N. kr. 250. —
Frá Kvenfélagi Sósíalistaflokks-
ins kr. 1000. — Frá Slysavarna-
deildinni Svölu, Svalbai'ðsströnd
kr. 1000. — Alls kr. 8250.00. —
Flugbjöi'gunarsveitin þakkar
þennan ágæta stuðning.
Olía fundin! Fyi-sta-apríl-frétt Alþýðublaðs- ins er á þá leið, að fundizt hafi olía í Öskjuhlíð, og stóðu menn í bússum við að loka borholunni, sem olían streymdi úr!
Skákþing Akureyrar
Skákþingi Akureyi'ar lauk 25.
marz. Úrslit urðu þessi:
Meistaraflokkur:
Júlíus Bogason .... 6 V.
Halldór Jónsson .... 5 V.
Haraldur Ólafsson . . 5 V.
Anton Magnússon . . 4 V.
Ki'istinn Jónsson .... 4 V.
Magnús Ingólfsson . . 2 V.
Oddur Árnason .... 1 V.
Randver Karlesson . . 1 V.
I. flokkur (tvöföld umfcrð):
Ólafur Kristján^spn 5 V.
Óli Gunnarsson .... 3 V.
Bragi Pálmason .... 2 V.
Haukur Jónsson .... 2 V.
II. flokkur:
Friðgeir Sigurbjöi'nss. TVz V.
Ingvar Baldui'sson . . 7]/2 V.
Snorri Sigfússon .... 7 V.
Jón Þór 5V2 V.
Atli Jóhannesson . . 4% V.
Bjarni Jónasson .... 3 V.
Birgir Þói'hallsson . . ý V.
Hafþór Jónasson .... 3 V.
Sigtryggur Antonsson 3 V.
Baldvin Ólafsson . . 0 V.
Færeyingar vilja fleiri
verstöðvar á Grænlandi
Fæi'eyingar hafa undanfai'ið
verið að semja við Dani urn að fá
fleiri vei-stöðvar á Grænlandi, m.
a. á Austur-Grænlandi. Og einn-
ig vilja þeir fá meiri réttindi fyr-
ir fiskiskip sín þar vestra. Hefur
fjögurra rnanna nefnd setið á
fundum í Danmöi'ku um hríð.
í fyrra reru 60 opnir bátar
færeyskir úr grænlenzkum höfn-
um og öfluðu vel. Er búizt við a.’
m. k. helmingi fleiri í ár.
- Ólafur Kristjánsson
Framhald af 4. siðu.
ið mat á það, sem um var rætt.
Mátti með aðgæzlu á svipbrigð-
um hans sjá -— bliki augna eða
brosi á vör -—- hvei'su honum félli
umræðuefnið. Þó að Ólafur væri
bæði geðríkur maður og við-
kvæmur, var hann svo oi'ðvar, að
aldi'ei heyi'ði eg stóx'yrði eða ill-
yrði af hans munni, þó að honum
Oftast virtist líkt því, að á hon-
tók „hvíti dauðinn“ frá hon-
hans fyrstu brúði, bráð-
dai'lega og vel gefna stúlku,
Ingveldi Þorsteinsdóttur, þing-
eyska að ætt. Fyrri konu sína
missti hann einnig eftir mai'gra
ára sjúkdómsstríð. Má nærri geta
að hjá manni með skapgerð Ól-
afs hafi þessi reynsla skilið eftir
djúp spor. — Þrátt fyrir þessi
áföll hygg eg að Ólafur hafi verið
gæfumaður. Hann var mikið
hraustmenni og heilsugóður fram
undir sjötugsaldur. Þótt hann
ynni mest í annarra þágu var
hann oftast sinn eigin vei'kstjóri
og engum háður. Hann var efna-
lega sjálfstæður maður fyrir eig-
in atoi'ku. Bar glöggt skyn á fjár-
muni og hafði rótgróna óbeit á
því „að fai'a illa með peninga“
sem kallað er. Þó að hann ætti,
hin síðari ár, við þrautafullan og
lamandi sjúkdóm að etja, bar
hann það með stakri karl-
mennsku og jafnaðai'geði, og
hafði alltaf fótavist. Hann eign-
aðist ágæta konu, sem með um-
hyggju sinni og glaðlyndi —
ásamt dóttur þeiri-a — sem ríku-
lega hefur hlotið beztu kosti
þeiri-a beggja — bægðu frá hon-
um, eins og hægt var, þunglyndi
og þrautum. Eftir að þau hjón
fluttu að Kristneshæli, þar sem
Guðlaug stundar atvinnu, var
hann ýmist þar hjá henni, eða
einkadóttur þeirra, Ingibjörgu
Kristínu, Sólvöllum 7, Akureyri,
og manni hennar, Ólafi Jónssyni
bílstjóra frá Skjaldarvík. Er mér
kunnugt um, að ekki aðeins
dóttii'in, heldur og einnig tengda-
sonui'inn, foreldrar hans og
venzlafólk, sýndi Ólafi heitnum
frábæra hlýju, umhyggju og vin-
áttu, að ógleymdum tveim litl-
um sólargeislum — dóttui'börn-
um, — sem með barnslegri gleði
og fjöi'i yljuðu og lífguðu um-
hverfið.
Eg tel Ólaf Kristjánsson meðal
merkustu og beztu öðlingsmanna
sem eg hef kynnzt. Sérstök vand-
vii’kni hans, smekkvísi og ná-
kvæmni í öllum vei'kum, ásamt
frábærri samvizkusemi og marg-
háttuðum mannkostum entust
honum til sífellt aukins álits og
trausts við vaxandi kynni.
Gott er góðs að minnast.
Guðjón Jónsson.