Dagur - 20.06.1959, Side 1
Fylgizt með því sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.
Dagub
DAGUR
kemur næst út miðviku-
daginn 24. júní.
XLII. árg.
Akureyri, Iaugardaginn 20. júní 1959
34. tbl.
„Þúsund krónur af hverjum bónda“
íhaldið lærði áróðurstækni aí nazistum á sínum tíma. Það
hefur ennþá cngu gleymt úr þeim fræðuin. Þeíta sézt bezt á
því, að þcir ætla að láta keltubörn sín ein bera syndabagga
skammdegisstjórnarinnar út í eyðimörkina. Kratarnir eru
hins vegar tornæmir. Þeir kunna ekki dylja úlfshárin. Miltlu
hcfði það verið hyggilegra og vænlegra til sigurs að dylja bet-
ur andúð stjórnarinnar gegn bændum og dreifbýli nú fyrir
kosningarnar.
Fjármálaráðherrann hældi sér af því að „hafa spárað ríkinu
sex milljónir“. Þessar milljónir, sem hann átti við, voru með
órétti teknar beint úr vasa bænda. Nú eru bændur landsins
um sex þúsundir. Hvað hefði verið sagt uni gripdeildarmann,
sem farið hefði um allar sveitir landsins og rænt að meðal-
tali þúsund krónum af hverjum bónda?
Hingað til hafa bændur getað neytt nokkru ódýrari land-
búnaðarvara en aðrir, vegna þess að þeir hafa sparað sér
drcifingarkostnað varanna er þeir fá úr cigin búi. Nú er þessu
snúið við. Vegna mikillar niðurgreiðslu tll neytenda við sjó-
inn verða bændur nú að neyta dýrari mjólkur, kjöts og jarð-
epla en aðrir landsmenn. Þetta munar tugum króna á dag,
mörgum þúsundum króna á ári fyrir meðal fjölskyldu í sveit.
Hinar háu niðurgreiðslur eru auk þess stórhættulcgar fyr-
ir framtiðina. Ef þeim verður hætt mun mjög örðugt að
hækka útsöluverðið, svo sem bændum ber réttur tjl.
Fjárlagaafgreiðsla skammdegisstjórnarinnar er í heild sinni
sem hnefaliögg framan í landsbyggðina. Vaxandi eru allar
fjárveitingar til ríkisrekstrar og þeirrar starfsemi, sem sér-
staklega várðar höfuðstaðinn. Hins vegar er ckki hikað við að
leggja 10 ára raforkuáætlanirnar í rústir. Felld er niður sam-
tenging raforkukerfa og mörgum ætlaðar diesclstöðvar í stað
rafafls, lækkað er stórlega fé til atvinnuaukningar í dreif-
býli. Vegaviðhald og vegagerð og aðrar framkvæmdir í dreif-
býli verða fyrir hörðu barði stjórnarhnefans.
JÓN SIGURÐSSON, Yztafelli.
Stórkosflegar skemmdir við Sogið
í ofviðrinu eftir síðustu helgi
brotnaði stífla í Þingvallavatni
og flæddi beljandi straumurinn í
jarðgöngum hinnar nýju virkj-
unar. — Talið var, að tvöfalt
vatnsmagn Sogsins hefði steypzt
þar í gegn er stíflan bilaði.
Skemmdir eru enn ómetnar,
en taldar miklar, og sennilega
hefur þetta þau áhrif á fram—
kvæmd hinnar nýju virkjunar,
að hún tefst frá því sem annars
hefði orðið.
Náttúruhamfarir eru óvenju-
legar hér á landi miðað við árs-
tíma.
FYRSTA 8ÍLDIN
Guðmuodur frá Sveinseyri veiddi fyrstu síldina
í fréttum frá Dalvík í gær
segir svo: í morgun kastaði
Guðmundur á Sveinseyri á
stóra síldartorfu út af Skaga, á
svipuðum slóðum og fyrsta
síldin veiddist í fyrra. Nótin
bilaði og náðist þó eitthvað
af síld. Sú síld er því fyrsta
síldin sem í ár veiðist fyrir
Norðurlandi.
Nú cru allir bátar að Iáta úr
höfn, sagði fréttaritarinn að.
lokum.
SÍÐARI FRÉTTIR.
Sildarleitin kl. 5 í gær.
Guðmundur frá Sveinseyri
fékk 350 tunnur í morgun,
nokkrir bátar hafa kastað í
dag, til dæmis Faxaborg
tvisvar, Amfirðingúr fékk gott
kast, Tálknfiröingur er búinn
Mennfaskólðnum á Ak. slifiS 17. júní
að tilkynna síld, óvíst hve
rnikla. — Síldin er 40—50 míl-
ur norðaustur af norðri frá
Horni, alveg við ísröndina. —
Síldai'leitar.lugvclarnar munu
liefja leit í kvöld. — Veður er
ágætt á miðunum, hæg suim-
anátt. Norðmenn eru að flykkj
ast á miðin. Þeir fengu eitt-
hvað af síld í gær.
í fyrra aflaðist fyrsta síldin
17. júm'.
Fimmtug
Frú Sigurjóna Frímann, kona
Jóhanns Frímann skólastjóra ó
Akureyri, varð fimmtug 17. júní
síðastliðinn.
Dagur sendir henni og heimili
þeirra hjóna beztu árnaðaróskir í
tilefni afmælisins.
r
I skólaoum voru alls oær 400 manns í fimmtán
bekkjadeildum - 66 stúdentar útskrifuðust
Þórarinn Björnsson, skólam.
Menntaskólanum á Akureyri var
slitið 17. júní við hátíðlega atliöín
og að viðstöddum fjölda gesta auk
nemenda.
í haust voru innritaðir 358 neni-
endur, 104 í máladeild og 86 í
stærðlræðideild skólaus. Ennfrémur
voru 84 nemendur í þriðja bekk og
84 í miðskóladeild. AIls voru bekkja
deildir 15. A námsárinu bættust svo
allmargir ileiri í hópinn, svo að
nemendur urðu 390. Af nemendum
var um það bil þriðji hlutinn stúlk-
ur. Hlutfallslega lleiri í lægri
bekkjum en færri í þeim elri. Þriðji
hver nemandi var Akureyringur,
einnig lilutfallslega færri þó í elri
bekkjunum.
jornssonar
skólameistara við skólaslit M.A.
Við skólaslit 17. júní ávarpaði
Þórarinn Björnsson skólameist-
ari hina brautskráðu stúdenta,
þakkaði þeim dugnað þeirra og
barðfylgi við nám og starf og
lauk ræðu sinni með þessum
orðum:
„Annars er það nú hvort-
tveggja í senn meiri þörf og
meiri vandi en áður að eignast
sterka skaphöfn. Áður fyrr voru
skipti flestra mest við náttúruna,
hvort heldur var á sjó eða Iandi.
Og náttúran er góður uppalandi,
af því að hún er hreinskiptin.
Hún er miskunnarlaus við þá,
sem ekki duga, en þroskar hina,
sem eiga manndóm til að glímá
við hana. En nú eru þeir orðnir
miklu fleiri- en áður og fer stöð-
ugt fjölgandi, sem engin hein
skipti eiga við náttúruna, heldur
eru öll þeirra sambönd og öl!
þeirra skipti við aðra menn.
Þetta veldur iniklum mun. Það
verður því miður að segjast eins
og er, að í mannlegum samskipt-
um er miklu fremur hægt að
hafa rangt við og hagnast, um
stundar sakir að minnsta kosti.
heldur en í skiptuin við náttúr-
una. Mannlegum samskiptum
hættir því til þess um of að verða1
að refskák, þar sem klókindi
mega sín stundum meira en
maiindómur. Þetta á ekki sízt við
í kaupskap og stjómmálum, þar
sem togazt er á um fé og völd.
En verkaskiptingin í þjóðfélög-
unum gerir það eðlilega að verk-
um, að lífið er stöðugt að verða
meir og meir að kaupskap. Og
allir vita, hvað fingur stjórnmál-
anna ná langt. Hér er því mikill
vandi á höndum, að HALDA
ÖRT VAXANÐI MANNLEGUM
SAMSKIPTUM á traustum síð-
ferðilegum grunni. Aídiei hefur
verið meiri þörf á því en nú, að
unnið sé að því vitandi vits að
ala í mönnum drengskap og
manndóm. Annars cr sú hætta á,
að þjóðfélagið rotni allt.
Sú er síðust ósk mín til ykkar,
ungu stúdentar, að þið megið um
langa ævi varðveita þann óspillta
þrótt, sem verið hefur aðal ykkar
hér í skóla, að þið megið þola
karlmennskuraun og drengskap-
arraun mannlegra samskipta og
svíkið þar hvorki sjálfa ykkur nc
aðra.“
Um 170 manns voru í heimavist,
en um 220 voru í mötuneyti heima-
vistarinnar.
í landsprófsdeild náði 21 nem-
andi íramhaldseinkunn, þar af tveir
utan skóla. Hæstu einkunn í þeirri
dcild hlaut Rögnvaldur Hannesson
Hornafirði, ág. cink. 9.03.
Að Jtessu sinni luku 66 nemend-
ur stúdentsprófi, jrar af 6 utan
skóla. Af Jreim voru 40 í máladeild
og 26 í stærðfræðideild. Stúlkur
voru 11 og er Jrað með færra móti.
Þessi stúdentahópur er annar sá
fjölmennasti frá Menntaskólanum
á Akureyri. 3 hlutu ágætiseinkunn,
fyrstu eirikunn fengu 38, aðra eiuk-
unn 23 og aðeins 2 Jrriðju einkunn.
Hæstur í máladeild á stúdeiits-
prófi varð Bjarni Sigbjiirnsson,
Borgarfirði eystra, ág.’ eiuk. 9.25,
Asgrímur Pálsson, Saltvík, S.-Þing.,
hlaut ág. eink. 9.10 og Geirlaug
Björnsdóttir, Sauðárkróki 8.78.
I stærðfræðideild varð Júlíus
Stefánsson Húsavík hæstur með ág.
eink. 9.21, Sigfús Jónsen Vestmanna
eyjum næstur með 8.82 og Halldór
EÍíasson Reykjavík varð [niðji í
röðinni með 8.77.
Framanskráðir nemendur í stærð-
fræðideild hlutu allir hæstu eink-
unn, 10, í stærðfræði, skrillegri og
munnlegri, eðlislræði og stjörnu-
fræði. Hæsttt einkunn í skólanum
hlaut Brynjólfur Bjarkan, Akureyri,
9.30. Hann var i öð.rum bckk, mið-
skóladeild.
Þórarinn Björnsson skólameistari
Framhald ú 6. siðu.
Sjálfsfæðisflokkurinn óiíðsl m
fylgi sift í Ausfur-Hún,
Hrakíarir Jóns Pálinasonar á Ákri í Húnaveri
Blönduósi 18. júrií.
Á sunnudaginn var sögulegur
framboðsfundur í Húnaveri. —
Mannmargt var á þessum fundi,
bæði úr sýslunni og ennfremur
stór hópur Skagfirðinga.
Þarna mættu og töluðu allir
frambjóðendur stjórnmálaflokk-
anna. Björn Pálsson, frambjóð-
andi Framsóknarflokksins, fór
þess á leit, að frjáls umferð yrði
gefin að ræðum frambjóðenda
loknum. Þessum tilmælum synj-
uðu þeir Jón Pálmason Og
Björgvin Brynjólfsson, en Lárus
Valdimarsson lét það hlutlaust.
Þegar ljóst var orðið, að
margir kjósendur óskuðu að taka
íil máls fór Pétur Pétursson á
fund Jóns á Akri og mæltist til
þess, að hann endurskoðaöi af-
stöðu sína, þá afstöðu að varna
fundarmönnum máls. Jón Jpver-
neitaði frekari umræðum og virti
með því að vettugi undirskrifta-
skjal mikils þorra fundarmanna,
sem lagt var fram til frekari
áherzlu um framlengingu fund-
arins. Jón sleit síðan fundi án
umboðs fundarstjóra.
Ilandalögmál!
Þegar hér var komið, tók Pét-
ur Pétursson til máls, setti fund
að nýju og bað Bjarna hrepp-
stjóra Jónasson í Blöndudalshól-
um að stýra fundi. Bjarni varð
við þeirri ósk, hafði og verið
fundarstjóri á fyrri fundinum.
En þá gerðust þau furðulegu
atvik að Jón Pálmason ætlaði að
taka ráðin af Bjarna hreppstjóra
með handafli og reyndi að ýta
honum frá. Bjarni náði taki á
ræðustólnum og varð ekki Jtok-
að.
Jón Pálmason hvarf þá frá,
skoraði á fylgismenn sína að
fylgja sér og gekk út. Aðeins
Framhald á 7. síðu.