Dagur - 20.06.1959, Blaðsíða 2

Dagur - 20.06.1959, Blaðsíða 2
2 D A G U B Laugardaginn 20. júní 1959 Á Norður-Grikklandi Hér sést grískur bóndi með sitt gamla flutningatæki, en til hægri er verið að gcra veg með nýtízku tæki, sem S. Þ. hafa gefið Grikkjum. „Andlegur sóðaskapur" Gísli Ólafsson, hinn nýi yfir- lögregluþjónn, er nýkominn til bæjarins og mun hann brátt taka við störfum. Dagur býður Gísla velkominn til starfs. En í framhaldi af þessu er rétt að minnast á smágrein í „íslend- ingi" með yfirskriftinni „Andb legur sóðaskapur", sem er hrak- legur og ósmekklegur þvætt- ingur. Ritstjórinn þykist vera að finna að því, að Dagur fletti ofan af óheilindum og furðulegri fram koma yfirvaldanna í sambandi við veitingu yfirlögregluþjóns- starfsins, svo sem eins og það, að einn lögregluþjónanna, hinn nýi yfirlögregluþjónn, var áður sett- ur yfir aðra lögregluþjóna hér í bæ og því haldið leyndu fyrir lögreglunni og öðrum, ennfrem- ur, að mjög hæfum Iögreglu- manni var bægt frá því að sækja um starfið — vegna þess að starfinu var ráðstafað áður en auglýst var. Ef íslendingur telur þetta and- legan sóðaskap, þá verður að segja honum það til hróss, að oft hefur hann komizt verr að orði. En ritstj. ísl. er ekki alltaf jafn orðheppinn. í sömu grein gefur hann út ejiis 'lfqnar. mannlýsingu á Gísla Ólafssyrii ó'g ségir þár, áð Gísli hafi þó sýnt viðleitni í að stjóma umferð í báenum. Réttara væri að segja, að Gísli Ólafsson hefði stjórnað umferð af mynd- arskap, því að það er rétt, og látið sig umferðamálin miklu varða og með sýnilegur árangri. Grímseyingar þakka Miðgarðakirkju hafa borizt gjafir, og var tekið á móti þeim sl. sunnudag, 7. júní. Systurnar á Sveinsstöðum, Sigrún og Ingurm Óladætur, gáfu kirkjunni tvo kristalsvasa með blómum. Bergur Björnsson og kona hans, Guðrún Andrésdótt- ir, færðu kirkjunni 1000.00 kr. minningargjöf um foreldra Björns, Björn Guðmundsson og Freygerði Þorkelsdóttur. Starfs- fólk frá verksm. SÍS á Akureyri, sem fór skemmtiferð til Gríms- eyjar gaf 1625.00 kr. — Frú Soffía Lilliendal gaf í sjóð gam- alla Grímseyinga á Húsavík kr. 65.00. — Grímseyingar þakka þessar góðu gjafir og þann mikla hlýhug, sem þar kemur í Ijós í þeirra garð. Þá drepur ísl. á, að lítið fari nú fyrir skólamenntun Gísla og málakunnáttu, og er þetta eins konar vinarkveðja til hins nýja yfirlögregluþjóns, sem nú er nýkominn heim og þegar tekinn til starfa. Eitthvað er kveðja þessi í ætt við andlegan sóðaskap og hefði ritstjóranum verið sæmra að bjóða yfirLögregluþjóninn vel- kominn. Lárus J. Rist áttræður Lárus J. Bist varð áttræðúr í gær, 18. júní. Blaðið sendir hin- um þjóðkunna sundkénri’ara og , ' ■ ‘t ■ * íþróttafrömuði sínar mriiltegustu hamingjuóskir. Heimili og skóli, 2. hefti þ. á. birtir erindi Hann- esar J. Magnússonar skólastjóra, er 'hann flutti á kirkjuvikunni í vetur og nefnist „Er kirkja nú- tímans uppeldisstofnun?í‘ Auk þess eru í ritinu þýddar greinar um uppeldis- og fræðslumál og athyglisverð frásögn: „Síminn hringir um miðnætti", eftir Al- bert Mason í þýðingu H. J. M. Afgreiðslusími Dags og Tímans á Akureyri er 1166. - Menntaskólanum á Akureyri slitið 17. júní Framhald af 1. síðu. lét þess getið að síðasti vetur hefði vcrið sér hægasti og áhyggjuminnsti vctur sinn við Menntaskólann. Fé- lagslíf var sæmilegt, sagði hann enn fremur og heilsufar ekki telj- andi verra en telja mætti meðallag þótt riokkur brögð væru að inflú- enzu, mislingum og hálsbólgu. Síð- an þakkaði hann nemendum og kennurum gott samstarf svo og alla vinsemd, sem skólanum hefði verið sýnd. Kjarnfræðanefnd íslands efndi í vetur til ritgerðasamkeppni í ménntaskólum landsins, um eðlis- fræðilegt efni. Þrír frá M. A. voru meðal þátttakenda og einn þeirra, Halldór Elíasson, varð hlutskarp- astur og hlaut 1000.00 kr. verðlatin. Hinir, Sigfús Jónsen og Reynir Eyjólfsson, hlutu bókaverðlaun fyr- ir sína þáttöku. Verðíaunin voru afhent við þetta tækifæri. Auk jress Iilaut Júlíus Stefánsson bókaverð- laun frá Stærðfræðifélaginu í Rvík. Vérðlaun úr Hjaltalínssjóði fyrir mcsta kunnáttu í íslenzkú hlutu Bjarni Sigbjörnsson og Asgrímur Pálsson. Verðlaunin voru, Orðabók Sigfúsar Blöndals. Verðlaun úr minningarsjóði Þorsteins Halldórs- sonar hlaut Þorsteinn Svörfuður frá Grund t Svarfaðardal. Skólinn veitti sjálfur nokkur verðlaun fyrir sérstök trúnaöarstörf innan skóla og Dansk-íslenzka fc- lagið f Reykjavík veitti bókaverð- laun. Fulltrúi 80 ára stúdenta, Gestur Ólafsson, kennari á .\kureyri, af- henti skólanum málverk af Lárusi Bjarnasyni, fyrrum kennara og skólastjóra, gert af Örlygi Sigurðs- syni. Tíu ára stúdentar fjölmenntu við skólaslitin. Páll Þór Kristinsson hafði orð fyrir Jjeim. Þeir gálu veggskjöld útskorinn, gerðan af Agústi Sigurmundssyni, myndskera, með uglumerki skólans. Ætlun þeirra cr, að ’minni skiklir verði ■gerðir eftir þessum, og hafðir til sölu fyrir nemendur skólans. Fyrir andvirðið, ásamt peningagjöf er skildinum fylgdi, er fyrirhugað að stofna sjóð er beri n'afnið: Fræða og vísindasjóður stúdenta M. A. Sjóðnum er ætlað að verðlauna þá stúdenta frá M. A., sem doktors- nafnbót hljóta eða annan hliðstæð- an frama fyrir vísindaafrek. Tuttugu og fimm ára stúdentar sendu skólanum ljóðakveðju, orta af Óskari Magnússyni, skólastjóra, ásamt vönduðu segulbandstæki. Fimmtán ára stúdentar sendu kveðjur og péningaupphæð til minningar um Arnkel Benedikts- son. Peningunum var varið til styrktar Guðnntndi Steinssyni, Siglufirði, sem vegna slyss, varð að geyma nokkurn hluta stúdentsprófs til næsta hausts. Eins árs stúdentar gáfu silfur- skjöld áletraðan til minningar um Stefán og Pétur Hólm frá Plrísey er fórust í vetur. Risu allir við- staddir úr sætum og heiðruðu minn ingu þeirra. Skólameistari þakkaði allar þess- ar gjafir, tryggð við skólann og góð- hug gamalla nemenda. Að síðustu ávarpaði skólameist- ari hina nýju stúdenta sérstaklega, sem annars staðar segir frá hér í blaðinu. Gísli Eyland, fyrrv. skipstjóri: Kj ördæmamálið Eg vil strax taka það fram, að eg er ekki — og hef aldrei verið — háð- ur neinum stjórnmálaílokki. Kjör- dæmamálið er það alvarlegt, að kosningarnar 28. júní hljóta að snú- ast aðallega um það mál. í staðinn fyrir að taka alla stjórnarskrána til athugunar í einu lagi, er þessu eina atriði kippt út úr, og flaustrað í gegn um þingið, af nokkrum valda- gráðugum mönnum, og öll kjör- dæmin lögð niður, nema Reykjavík, án þess að kynna sér vilja kjós- endatina. Allir eiga auðvelt með að sjá — ef þeir vilja — að þessi að- ferð hlýtur að skipta kjósendum í tvo flokka, þáf sem annar flokkur- GÍSLI EYLAND. inn vill fá frumvarpið samjjykkt, en hinn flokkurinn vill íella það. Þessi skipting verður gerð án tillils til stjórnmálaflokkanna. Vona eg að þeir, sem eru á móti kjördæma- bréytingunni í núverandi mynd, verði fjölmennari, því þannig lög- uð breyting kjördæmanna myndi verða stórt ógæiuspor. Búast má við að svo mikil óánægjualda rísi víða á landinu að eríitt sé að geta sér til um afleiðingarnar. Á meðan kjör- dæmin eru óbreytt, má gera ráð fyrir að þau leggist síður í eyði. Eins og ástatt er hér á landi, ætti að rniða kjt'irdtémi við Jaudshluta, en ekki við kjósendafjtilda. Hvaða rétl- læti er í því, að svifta Vestmanna- eyjar kjt'irdæmisrétti? Vestmanna- eyingar liljóta að hafa önnur áhuga- mál en bændurnir á meginlandinu. Akureyri sem er annar stærsti Itær á landinu, hefur talsverða útgerð fiskiskipa og verksmiðjurekstur, ætti sannarlega að fá að vera í friði sem kjördæmi út af fyrir sig. For- spilið að þessurn kjördæmaharm- leik er á þessa leið: Sjálfstæðis- menn — eins og aðrir — sáu hve mikla bölvun Hannibals-verkfallið 1955 gerði, en þá var Sjálfstæðis- flokkurinn stjórnarflokkur, en er þeir komust í stjórnarandstöðu voru skrif Morgunblaðsins slík, að ætla mátti, að þar væri harður komma-ristjóri að verki. Þá sáu Sjálfstæðiskommúnistar sér leik á borði og tóku að sér verk Alþýðu- bandalagskommúnista,' að koma af stað verkföllum og kaupkröfum, er allir vita, sem lesið hafa Morgun- blaðið þann tíma sem vinstri stjórn- in var við völd, en Alþýðubanda- lagskommúnistar tóku þátt í þeirri stjórn, og gátu því síður tekið op- inberlega jtátt í niðurrifsstarfinu. Þetta var gert til þess að fella sljórn Hermanns Jónassonar, jreg- ar séð varð að ráðstaíanir þær, er sú stjórn gerði, ætluðu að verða til bóta. Vegna verkfalla þeirra setn Sjálfstæðismenn komu af stað, reis mikil dýrtíðaralda, sent gerði stjórn Hcrmanns svo erfitt fyrir, að han’n bað Alþýðusambandsþingið um frest 1 mánuð á greiðslu á 17 stig- um af þáverandi vísitölu, en þá komu Alþýðubandalagskommar Sjálfstæðiskommum til hjálpar og neituðu unt frestinn. Afleiðing þess varð sú að Hermann baðst lausnar fyrir sig og stjórn sína. Það er því augljóst hvernig Jjessir flokkar spila saman, Sjálfstæðiskommar og AI- Jjýðubandalagskommar. Jafnir eru Jjeir að [ní leyti að hvorugur hugs- ar um hag þjóðarinnar í heild. Eg hef hvorki heyrt Jjess getið eða les- ið um Jjað, að AlJjýðubandalags- kommar hafi liaft neitt við Jjað að athuga, Jjótt AlþýðuflokkSstjórnin, sent nú ler með völd undir yfir- stjórn Sjálfstæðiskomma, lækkaði vísitöluna unt 27 stig. AlJjýðubanda- lagskommar eru Jjjónar erlends stór- veldis og vilja innleiða hér einræði og svifta þjóðina lýðræði og ein- staklinga frelsi sínu. Sjálfstæðis- flokkskommar cru málsvarar heild- saht og auðmanna, og stefna að Jjví að éyðileggja sámvinnuinenn og verða einráðir í allri vcrzlun og stjórnmálum, cins og kjördæma- málið ber glöggt vitni utn. Eg vil Jjví skora á alla kjósendur landsins í hvaða stjórnmálaflokki sem Jjcir eru, að gera sitt til að kjördæma- breytingin; í þyí formi sem luin er, verði felld. Vonatnli láta Akurcyr- ingar og Eyfirðirigár ckki sitt eltir liggja, cn gera, nfjt. sem hægt er til þess^að fella kjöfdæmaljreytinguna. „Vogun vinnur og vogun tapar," sagði Sveinn Ásgéirsson í vetur. Hann hafði 3 bak við tjaldið, og áttu spyrjendur að finna út Itver einn af Jjessum 3 segði sátt, en vit- að var að 2-segðu ósatt. Kjósendur eiga að finna liver af Jjessum 4 stjórnmálaflokkum scgir minrist ósatt? Verður þá að bcra saman Jjað, scm Jjeir liafa gert og hvað Jjeir Itafa sagt okkur með orðum og skrif- að í blöð. (Eg tek ekki Þjóðvarnar- flokkinn með í Jjessum- leik, Jjótt hann, að nafninu til, sé að' ein- hverju leyti risinn upp aftur). Svar- ið verður Framsóknarflokkurinn. Raup Alþýðumannsins Þann 16. þ. m. raupar Alþýðum. mjög af afrekum Alþýðuflokks- ins. Hvernig skyldi standa á því, að þessi stjórnmálaflokkur skuli svo illa farinn, að hann hefur enga von um að koma einum einasta þingmanni að við næslu kosningar, án hjálpar frá íhald- inu? Nær væri ritstjóra Alþýðu- mannsins að gi-afast fyrir mein flokksins og uppræta þau —. þessi mein, sem búin eru að eyðileggia þennan flokk verka- lýðsins. Eitt hundrað manns á fundi á Akureyri, þar sem 3 ráðherrar Alþýðuflokksins mættu og 40 manna fundur á Dalvík, bendir fráleitt til þess að fólkið vilji nú, fremur en áður, ljá boðskap Al- pýðuflokksforingjanna eyru. Og hvers vegna svo að birta rangar tölur um fundarsókn? Hins má svo geta, að það er raunalegur vottur tómlætis að hlýða ekki á mál ráðherranna.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.