Dagur - 20.06.1959, Blaðsíða 6
6
D A G U R
Laugardaginn 20. júní 1959
Þegar krónprinsinn kom
Jim Moran er Bandaríkja-
maður, gárungi mikill og
hrekkjalómur. Hann hefur
ýmislegt brallað. Frægur er
leikurinn, sem hann setti á
svið í einu þekktasta veitinga-
húsi í Hollywood fyrir rúm-
um áratug.
Árið 1947 kom krónprinsinn af
Saudi Arabíu, Emir Saud, til
Bandaríkjanna og ferðaðist þar
um í mánaðartíma. Voru með
honum skikkjuklæddir þjónar,
sem báru demantsskreytta rýt-
inga við belti sér. Allur var hóp-
urinn hinn skrautlegasti í sínum
arabísku þjóðbúningum. Prins-
inn dvaldi nokkra daga í Holly-
wood með fylgdarliði sínu, og
gerðu dagblöðin mikið veður út
af komu hans. Fólk í Hollywood
hefur alltaf haft mikinn áhuga
á konungbornum mönnum, ekki
sízt sá stóri hópur, sem fæst við
kvikmyndirnar.
Jim Moran tók nú að undirbúa
athöfnina. Hann kynnti sér sem
bezt hann gat útlit, klæðnað og
háttu króuprinsins og fylgdarliðs
hans og rannsakaði myndirnar í
blöðunum. Hann samdi við
klæðaverksmiðju um kaup á
skikkjum, vefjarhöttum o. fl. og
réð til starfa þrjá leikara, tvo,
sem skyldu leika þjóna, en hinn
þriðja sem túlk og fylgdarmann.
Hann var svo heppinn, að einn
leikaranna kunni arabísku.
Moran kynnti sér ferðaáætlun
krónprinsins og komst að því, að
brotför hans úr borginni var
ákveðin að kvöldi dags nokkurs,
en hann vildi ekki eiga á hættu
að rekast á Emir Saud sjálfan.
Þetta sama kvöld klæddust þeir
Jim Moran og félagar hans þrír
kuflum og skikkjum, límdu á sig
skegg, lituðu á sér andlitin og
vöfðu höfuðin vefjarhöttum.. Til
voru fengnir blaðamenn og ljós-
myndari frá Associated Press og
þeirn sögð áætlunin-. Og nú tók
Jim Moran að safna sarnan gim-:
steinum sínum. Hann fyllti stóra
leðurpyngju af glitrandi gler-
gtcinum og setti þar auk þess
stóran fjólubláan gimstein, sem
han hafði keypt fyxir 30 doliara,
en leit út fyi'ir að vera geysi-
veiðmikill.
En fyrr um kvöldið hafði verið
hringt á veitingastaðinn Ciro.
Krónprinsinn og fylgdarlið hans
óskaði þess að snæða á veitinga-
st-aðnum þá um kvöldið. Prinsinn
pantaði sérstakt borð á sérstök-
um stað. Forstjóri veitingahúss-
ins fullvissaði um, að hann skyldi
sjá um borðið og allt skyldi gert
verða til þess að hans hátign
fengi góða þjónustu og skemmti
sér þetta kvöld.
Geysistór og gljáfægður bíll
nam staðar fyrir utan veitinga-
húsið Ciro þetta kvöld. Út komu
tveir þjónar og gengu inn í sal
til þess að athuga allar aðstæður
og ráðgast við starfsliðið. Er allt
virtist í lagi, gengu þeir út aftur,
og nú birtust þeir krónprinsinn
og túlkur hans og gengu inn í
salinn með tígulegum limaburði.
Þeir settust við borð sitt, en
þjónarnir tveir tóku sér stöðu að
baki þeim.
Þetta kvöld var salurinn troð-
fullur af gestum, og þar voru
saman komnir margir heims-
frægir kvikmyndaleikarar og
annað fyrirfólk úr heimi kvik-
myndanna. Menn voru hrifnir af
því að hafa svo tiginn gest ná-
lægt sér og gláptu óspart og
hvísluðu. Hljómsveitarstjórinn
Jerry Wald stjórnaði músikk-
inni þetta kvöld, og fólkið dans-
aði hvað mest það gat fram hjá
borði prinsins og glápti óspart,
en prinsinn virtist. annars hugar
og leit ekki á fólkið.
Eitt sinn, er hlé var á milli
laga, gaf krónprinsinn öðrum
þjóninum skipun hvössum rómi.
Þjónninn hneigði sig djúpt og
gekk því næst að hljómsveitar-
pallinum. Með mjög útlenzkuleg-
um hreimi sagði hann Wald
hljómsveitarstjóra, að hans há-
tign langaði tfl að heyra lagið:
„Begin the Beguine“. Jú, það var
svo sem meira en sjálfsagt. —
Hljómsveitin lék lagið. Er því
var lokið, kinkaði prinsinn kolli,
ánægjulegur á svip. Því næst tók
hann leðurpyngjuna, sem hangið
hafði við bletið, opnaði hana og
hellti öllum glitrandi steinunum
á borðið. Hann hrærði í hrúg-
unni eins og hann væri að leita,
og svo valdi hann einn, þann
stærsta, (30 dollara steininn). —
Hann fékk þjóninum steininn og
muldraði eitthvað. Þjónninn
gekk rakleitt aftur að hljóm-
sveitarpallinum og afhenti Wald
hljómsvei.tarstjóra þennan stóra
og glitrandi stein. 'Nú fór miídll
kliður um salinn, því að Vver
einasti maður hafði fylgzt af
ákefð txveð þessuxn áhrifamikla
atburðL Fimm eða tíu mínútum
síðar fór blaðamaðurinn, sem áð-
ur er getið, fram á snyrtingu, og
þá sagði vörðurinn þar við hann:
„Drottinn minn dýri! Nú þarf
hann hr. Wald aldrei að stjórna
hljómsveit framar. Kóngurinn
þarna inni gaf honum gimstein,
sem var á stærð við hænuegg.
Nú, hann er bara orðinn ríkur
maður og þarf aldrei að hafa
áhyggjur framar!“
Að lokum þótti prinsinum
kominn tími til brottfarar. Hann
klappaði saman lófunum. Annar
þjónanna lagaði klæðin á herra
sínum. Prinsinn og túlkurinn
risu úr sætum. Dansgólfið var
autt þessa stundina, og hinn
tigni gestur gekk út á það með
fylgdarliði sínu og stefndi á úti-
dyrnar. Allir í salnum störðu á
þá. Allt' í einu heyrðist eins og
haglél dyndi. Leðurpyngjan hafði
opnazt, og allir glitrandi stein-
arnir höfðu steypzt á gljáandi
gólfið. Þjónarnir stönzuðu, og
annar þeirra var í þann veginn
að beygja sig niður til þess að
tína upp gimsteinana, en þá kall-
aði hans hátign eitthvað í skip-
unartóni og sló kæruleysislega
um sig með hendinni, og Arab-
arnir fjórir héldu áfram göngu
sinni að dyrunum og skildu
steinana eftir, en þeir höfðu
runnið og skoppað út um/allt
gólf.
Þessi frægi veitingastaður varð
nú líkastur hæli óðra manna. —
Gestirnir ruku úr sætum sínum
og steyptu sér á gólfið. Kvik-
myndastjórar og „stjörnur“
skriðu með æðisgengnum hraða,
menn rákust á, borð og stólar
ultu um koll, það var hrifsað og
barizt, bæði gestir og starfslið
tók þátt í þessari æðisgengnu
keppni um gimsteinana.
Krónprinsinn og fylgdarmenn
'hans litu ekki einu sinni við.
Þeir héldu áfram út, án þess að
♦Jrða um lætin, hurfu inn í bíl-
ýnn og óku burt. Tjaldið var
fallið.
Bíll til sölu
FORD JUNIOR, ný yfir-
farinn til sölu. Upplýsing-
ar í Norðurgötu 43, niðri,
frá kl. 8—9 e. h. mánudag,
þriðjudag og miðvikudag.
SUMARKJÓLAEFNI,
röndótt, rósótt, doppótt,
þykk og þunn,
nýkomin, í mjög fallegu
úrvali.
ANNA & FREYJA
Baðker, 2 stærðir
Stálvaskar
Hitavatnsdunkar, 3 teg,
Rör, svört <ag galv.
Fittmgs
Gólfsvelgir
Miðstöðvaofnar
ýmsar tegundir.
Kranar og fittings
MIÐSTÖÐVADEELD
Sími 1700
Nýkomið!
Tékkneskir kvenskór
lághælaðir, ljósir litir.
Kventöflur,
með háum kvarthæl.
Hvannbergsbræður
ÞAKJÁRN
Þeir, sem enn eiga óteknar
pantanir, eru vinsaml. beðnir
að taka járnið strax.
Annars selt öðrum.
YERZLUNIN
EYJAFJÖRÐUR H.F.
Karlm,sandalar
nýkomnir.
Hvannbergsbræður
ATVINNA!
1—2 ungir menn, lagtækir
og reglusamir, geta nú þeg-
ar fengið atvinnu hjá yfir-
byggingaverkstæði.
Grímur Valdimarsson h.f.
SÍMI 1461.
Kayser, model ’52,
TIL SÖLU.
Uppl. i síma 1356.
l„Seiblank
' l
Þýzka gólfbónið,
sem allar hús-
'SSjr
mæður vilja.
N ýlendu vör udeild
og útibú.
HJÓNARÚMIN
reynast bezt frá Valbjörk.
Þar fást líka:
BORÐSTOFUHÚSGÖGN
ný gerð. -
SVEFNSÓFAR
ný gerð.
SKRIFBORÐ
nv gerð.
SÓFASETTIN vinsælu
SÓFASETT,
með lausum svamppúðum,
hafa aldrei sézt á markaði hér áður.
VALBJÖRK H.F.
Geislagötu 5. — Sími 2429.