Dagur - 06.08.1959, Blaðsíða 8

Dagur - 06.08.1959, Blaðsíða 8
Bagub Finuntudaginn 6. ágúst 1959 Jóns Arasonar hátíð á Munkaþverá Minnismerki afhjúpað við hátíðlega athöfn ÁKVEÐIÐ hefur verið, að minnismerki það, sem lista- maðurinn Guðmundur Ein- arsson frá Miðdal liefur gert um Jón biskup Arason, verði afhjúpað við hátíðlega athöfn, sem fram fer að Munkaþverá sunnudaginn 23. ágúst næst- komandi, og hefst athöfnin kl. 1 eftir liádegi. Bindindisfélag öku- manna ÁSBJÖRN Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Bindindisfélags ökumanna, var hér á ferð um Norðurland, til að ræða við f'ormenn deilda og deildar- stjórnir um áframhaldandi starf deildanna og leiðbeina þeim um góðakstur. Framkvæmdastjórinn sat fnnd með deildum, gaf þeim upplýsing- ar um starfsemi félagsdeildarinnar, einkum tryggingarmálin, flutti er- indi og hvatti til aukinna átaka og útbreiðslustarfsemi. Deildir B. F. Ö. eru nú orðnar 14 talsins, þar af þrjár á Norður- landi, og hafa sumar hverjar þegar unnið vel að umferðarmálum á svæðum sínum. Annað landsþing Bindindisfélags ökumanna verður háð í Reykjavík í haust. í þessu tilefni mun fara fram há- tíðarguðsþjónusta í hinni fornu klausturkirkju, en að henni lokinni verður gengið að styttu Jóns bisk- ups, þar sem afhjúpunin fer fram. Um kvöldið verður kaffidrykkja í félagsheimilinu Freyvangi. Undanfarandi daga hefur verið unnið að því að koma styttunni fyrir á klausturrústunum sunnan- vert við kirkjuna, jtar sent Jón bisk- up var ungur að námi, og hefur verið hlaðinn undir hana blágrýtis- varði, geysihaglega gerður, af Ingv- ari Þorvarðssyni frá Meðalholti. Mun jtetta tigulega minnismerki sóma sér vel í hinu fagra og stór- brotna umhverfi og standa jtar um ókomnar aldir til æyarandi minn- ingar um einn hinn mesta skörung og höfðingja, sem íslenzk þjóð hef- ur alið, og þjónað hefur íslenzkri kirkju. Þegar hafizt var handa um jtað fyrir tíu árum síðan, að frumkvæði Guðmundar Jónssonar garðyrkju- manns, að koma upp minningar- lundi um Jón biskup Arason að Grýtu í Eyjafirði, var því máli svo forkunnarvel tekið af Eyfirðingum, og fjiildamörgum öðrum afkomend- um hans fjær og nær, að tillög streymdu að hvaðanæva, og voru allar hendur fúsar að gróðursetja skóg honum til heiðurs. Var að mestu lokið við að planta í lundinn 1953, og er nú gróðurinn þar kom- inn vel á veg. En ekki þótti þó Eyfirðingum Jóni biskupi enn jtá fullur sómi Framhald d 7. siðu. NÝLEGA ER KOMIN ÚT HVÍT BÓK UM LANDHELGISMÁLIÐ „Að hitta í fyrsta skoti — og það mun duga!“ í SÍÐEJSTU viku kom út hvít bók, er utanríkisráðune-ytið hefur látið taka saman um landhelgismálið. Bókin er skrifuð á ensku og. heitir British Agression in Icelandic Waters, eða Brezkt ofbeldi í ís- lenzkri landhelgi. I þessari lzók eru sögð nokkur dæmi um framferði Breta og hinn síendurtekna ofbeldisverknað af þeirra hálfu í fslenzkri fiskveiði- landhelgi eftir að hún var stækkuð frá og með 1. septemlzer síðast- liðnum. Vitnað er í þann boðskap brezkra herskipa til brezku veiði- þjófanna, að Jreir skuli sökkva ís- lenzkum varðskipum í fyrsta skoti, ef þau skipti sér af veiðiþjófunum. Ennfremur segir bókin frá endur- teknum tilraunum brezkra herskipa og togara til að sigla íslenzku varð- skipin niður. Brezk blöð hafa tekið bók Jjessari mjöl illa og talið hana rugl eitt. Þau viðbrögð til sannra frásagna um valdbeitingu Breta innan ís- lenzkrar fiskveiðilögsögu eru auð- vitað í samræmi við annan fjand- skap jteirra í garð íslendinga í máli jiessu. Elsa með minkinn. Ný húsgagnaverzlun við Skipagöf u Aðaleigendur Magnús Sigur jónsson, húsgagna- bólstrari, og Jón Nielsson, verzlunarmaður Síðasta laugardag var ný hús- gagnaverzlun, sem heitir Hús- gagnaverzlunin Kjarni h.f., opn- uð í Skipagötu 13 hér í bæ og eru aðaleigendur hennar þeir Magnús Sigurjónsson bólstrari og Jón Níelsson verzlunar- maður. Verzlun þessi hefur öll venju- leg húsgögn á boðstólum, og mun leitast við að hafa þau fjöl- breytt, og í því skyni samið við góð smíðaverkstæði í Reykjavík, Hafnarffirði og hér á Akureyri um framleiðslu, sögðu forráða- menn hinnar nýju verzlunar blaðamönnum við opnunina. Annað hvort varð að víkja, hús- móðirín eða minkurinn Húsgagnaverzlunin Kjarni h.f. er í nýjum og góðum húsakynn- um og hefur til sölu margt eigu- legra muna. Til nýjungar má m. a. telja sérstaka gerð af vegghill- um, svo að eitthvað sé nefnt. Blaðið óskar eigendur hins nýja fyrirtækis til hamingju og sam- gleðst þeim hamingjunnar börn- um, sem ráð hafa á að kaupa góð húsgögn, því að nú er úrvalið meira en áður. Síminn er 2043. FREMUR mun það óajgengt að konur handleiki skotvopn, og virðist þeim það ógeðfellt. En húsmóðirin á Þórsnesi, bæ, sem stendur á sjávarbakkan- um litlu norðar en Krossanes, átti aðeins um tvennt að velja, verja heimili sitt með skot- vopni eða flytja burtu. Minkurinn gerðist svo nærgöng- ull, að hann snuðraði hringinn í kringum húsið og hljóp jafnvel ylir húströppurnar um hábjartan dag- inn. Og húsmóðirin, Elsa að nafni, valdi fyrri kostinn, skaut nokkrum skotum í mark með tilsögn Ingva Jónssonar, manns síns, og beið svo færis. Gestum, sem bar að garði eftir Leynivínsðia á Sauðárkróki í júlí Reykvíkingur hefur viðurkennt verknaðinn Um helgina 11. og 12 .júlí sl. var mannmargt á Sauðárkróki og þar háðar kappreiðar o. fl. á fjórðungsmóti hestamanna. Þar var fast drukkið, sérstaklega að kveldi hins fyrri dags. Dansleik- ur var þá haldinn að mótsstörf- um loknum. Þar var gleði mikil, en einnig ýfingar með mönnum. Lögregla staðarins komst á snoðir um vínsölu og tók hún málið til meðferðar. — Bárust böndin sérstaklega að reykvísk- um manni, sem um tíma heíur dvalið á Akureyri. Yfirvöldin hér á Akureyri fengu málið til meðferðar á fimmtudaginn var og er nú upp- lýst, að nefndur Reykvíkingur viðurkenndi að hafa selt nokkrar flöskur úr bíl sínum jjar vestur frá. Rétt er að taka það fram, að maður þessi er ekki atvinnubíl- stjóri, en þeir eru, sem kunnugt er, oft orðaðir við þá hluti. Eins og allir vita, er leynivín- sala jafn algeng og það er fátítt, að lögregla og dómstólar fjalli um hana. þessa skotæfingu frúarinnar og litu inn í eldhúsið, varð hverft við, er þeir sáu stóra, hlaðna haglabyssu á eldhúsbekknum. Og ekki leið á löngu að minkur- inn léti á sér kræla. — Hingað til hafði honum verið óhætt á þeim slóð- um á daginn, Jrví að þá var húsbónd- intí í vinnu fjarri heimili sínu. En hverjar, sem hugleiðingar minks ins hafa nú annars verið á þessu augna bliki, þá urðu þær ekki fleiri. Skotið úr eldhúsgluggan- um sá fyrir J>ví. Fyrsta „alvöruskot" frúarinnar hafði ekki geigað, og hér sjáið þið skyttuna með byssuna í annarri hendinni og minkinn í hinni. Hjónin í Þórsnesi hafa nú skotið sjö minka. Ingvi. Starfsemi Loftleiða fer mjög vaxandi VIÐ samanburð á niðurstöðu tölum fyrstu sex mánaða árs- ins 1959 og sama tíma í iyrra, kemur í ljós, að starfsemi Loft- leiða hefur farið mjög vax- andi. Farþegaflutningar hafa aukizt uin 34.5%, og reyndist fjöldi far- þega nú 15.037, en i fyrra 11.181. Vöru- og póstflutningar liafa einn- ig aukizt, og sætanýtingin reyndist nú betri en í fyrra, eða 71.7%, í stað 64.5% íyrstu sex mánuði ársins 1958. Mjög annríkt er hjá félaginu um Jzessar mundir og flugvélar Jæss Jjéttsetnar á öllum leiðum. í tyrra héldu Loftleiðir uppi sex vikulegum áætlunarferðuin Iram og aftur milli Ameríku óg Evrópu. I síðastliðnum maímánúði voru ferðirnar orðnar níu í \ iku hverri. í síðastliðnum júnfmánuði reynd- ist farjiegatala félágsins 4710, og er J>að rúmlega 1100 farþegum íleira en á sama tímabili í fyrra. Sætanýt- ingin í Jressum mánuði reyndist nú 81.4%, en í júnímánuði í fyrra reyndist liún lítið eitt lægri, eða 79.1%. Er J>ví auðsætt, -að áætlan- irnar um hina miklu aúkningu íerð anna hafa staðizt með prýði. Loftleiðir halda nú uppi áætlun- arferðum milli New York og tíu borga í Evrópu, Reykjavíkur, Staf- DÆMDUR FYRIR OKUR Sigurður nokkur Berndsen, fasteignasali, var nýlega dæmdur í Sakadómi Reykjavíkur fyrir okur. Reyndist hann hafa tekið all ríflega vexti af lánum til nær 40 manna — eða, allt að 60% árs- vexti. í dómsniðurstöðu segir meðal annars svo: „Aikærði, Sigurður Berndsen, greiði kr. 400.000 til ríkissjóðs og komi varðhald í 1 ár í stað sektar innar verði hún eigi gre'idd innan NÝ SÖLUBÚÐ KAÚPFÉLAGS ÞINCEYINGA OPNUÐ VIÐ MÝVATN Verzlunarstjóri er Illugi Jónsson, bóndi á Bjargi NÝLEGA var opnuð ný verzl- un í Mývatnssveit. Stendur hún rétt hjá vegamótunuin við Reykjahlíð, þar sem veg- urinn liggur til Austurlands. Er hún því vel sett, hvað ferða menn snertir og einnig í jaðri vaxandi sveitaþorps, þar sem rekin eru tvö gistihús auk bú- skaparins. Kaupfélag Þingeyinga hefur lát- ið byggja þarna snoturt verzlunar- hús, og er [>essi nýja verzlun útibú J>ess. Húsið er byggt úr timbri og as- besti, og Iiefur trésmíðaverkstæðið Fjalar á Húsavik séð um smíði J>ess og innréttingu. Verzlunarstjóri er Illugi Jónsson, bóndi að Bjargi, en hann hefur um mörg undanfarin ár haft útsölu á vörum fyrir kaupfélagið i heima- húsum, en dóttir hans, Solveig, er fastur starfsmaður verzlunarinnar. \ Nýja verzlunarhúsið í smíðum. — (Ljósmynd: E. D.). fjögurra vikna frá birtingu dóms þessa.“ Sannað þótti, að ákærði heíði hagnast ólöglega á okurvöxtum, sem næmi rúml. 70 J>ús. kr. Lögberg og Heims- kringla sameinast Frá því segir í Vesturheims- blöðunum Lögbergi og Ileims- kringlu, að þau verði samcinuð í eitt vikublað, Lögberg-IIeims- kringla. Með þessari ráðstöfun hyggjast forráðamenn blaðanna sameina krafta sína og forða því bcinlínis að þessi góðu og nauðsynlcgu blöð líði undir lok hvort í sínu lagi. Vestur-íslendingar leggja mikið kapp á að viðhalda þeim böndum, sem traustust hafa reynzt, annars vegar milli Vest- ur-lslendinga innbyrðis og milli þjóðarbrotsins vestra og heima- þjóðarinnar. Lögberg og Heims- kringla hafa mjög unnið í þessum anda og vonandi gerir hið nýja blað — Lögberg-Heimskringla — það ekki síður.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.