Dagur - 16.09.1959, Page 8
s
Bagxjb
Miðvikudaginn 16. sept. 1959
Námskeið haldið í fláningu og
öðrum sláfurhússtörfum
Sextíu þátttakendur - Kennsla verkleg og í fyr-
irlestraformi - Námskeiðið haldið í Sláturhúsi
KEA á Ak. undir stjórn Jóns Reynis Magnússonar
f síðustu viku hafði SÍS nám-
skeið hér á Akureyri í meðferð
sláturfjár og sláturhússtörfum
undir stjóm Jóns Reynis Magn-
ússonar efnafræðings. Sóttu það
60 manns. Skiptust þátttakendur
að jöfnu í sláturhússtjóra, kjöt-
matsmenn og fláningsmenn frá
40 sláturhúsum úr öllum lands-
hlutum.
Námskeiðið var haldið í Slát-
urhúsi KEA og var bæði vérk-
legt, en fór einnig fram í fræðslu
erindum, og voru kvikmyndir
hafðar til frekari fróðleiks og
skýringa.
Erindi flutti dr. Halldór Páls-
son ráðunautur og talaði um
gæðakröfur á innlendum og er-
lendum markaði, Gudmund
Knutzen héraðsdýralæknir talaði
um heilsufar og meðferð fjár
fynir slátrun, Jónmundur Ólafs-
son kjötmatsformaður gerði
flutninga á sláturfé og aðbúnað á
sláturhúsum að umræðuefni,
Arnlaugur Sigurjónsson eftirlits-
maður ræddi um hreinlæti og
hreinsun sláturhúsa og Jón
Reyriir Magnússon um pökkun
og frystingu innyfla, sem stöðugt
hækka í verði erlendis.
Eitt hundrað dilkum var slátr-
að. Gestur Jónsson, Haraldur
Skjóldal og Karl Ágústsson
Heyskaparlok
Sumir bændur hafa fyrir
nokkru lokið heyskap, en aðrir
hafa nýlokið honum eða eru að
hirða það síðasta.
Heyfengur er mjög mikill að
þessu sinni, því að sprettan var
óvenju mikil. Hins vegar voru
þurrkar daufir langtímum saman.
Súgþurrkun kom því að mjög
miklu gagni, þótt erfiðlega gengi
að fullþurrka heyin úti. Súg-
þurrkunarbændurnir, eins og
þeir eru stundum nefndir, sem
þiu-rka hey sín í hlöðum, munu
því hafa mikinn og góðan hey-
forða fyrir veturinn.
í Skagafirði eru enn víða mikil
hey úti, enda erfiðara að þurrka
hey þar í sumar en hér um slóðir.
Sennilega verður margt fé sett á
vetur að þessu sinni, ennfremur
fleiri nautgripir í mjólkurfram-
leiðslusveitum en oftast áður.
sýndu skotaðferð, innanúrtöku
og yfirkjötmatsmennirnir, Hall-
dór Ásgeirsson og Sigurður
Björnsson, leiðbeindu í kjötmati.
Umræður urðu að erindum
loknum og frummælendur svör-
uðu fyrirspurnum.
Jón Reynir Magnússon, for-
stöðumaður námskeiðsins, lét
þess getið, er blaðið hitti hann að
máli, að Sláturhús KEA á Akur-
eyri væri í fremstu röð hérlendra
sláturhúsa og nýting væri hér
fullkomnari en nokkurs staðar
annars staðar á landinu, vegna
kjötbeinaverksmiðjunnar, sem
þar hefur verið starfrækt síðustu
árin, og ýmis annar útbúnaður
væri til fyrirmyndar.
Sá kunni sundtökin
Á föstudaginn bar það við
norðan við nýju togarabryggjuna
hér í bænum, að þangað kom ó-
væntur gestur. Það var selur og
ekki styggur. Tók hann nú að
stunda þarna veiðiskap og náði
meðal annars tveim ufsum og lék
margar vistlegar listir með fisk-
ana í kjaftinum: Stökk upp úr
sjónum og synti bæði baksund og
hliðarsund. Þótti áhorfendum
gestui-inn vel syndur og méð af-
brigðum fimur.
Sauðfjárslatrun hefst á morgun
Sláturhús Kaupfélags Eyfirðinga mun taka á
móti 43-44 þúsund f jár í haust
Á morgun l»*fst sauðfjárslátr-
unin hér á Akurey*i hjá KEA og
mun verða tekið á móti 32.920
fjár hér, á Sláturhúsi KEA. —
Sláturtíðin stendur yfir í mánað-
artíma og vinna um 100 manns
við sauðfjárslátrunina.
Á Grenivík verður slátrað 3
Nýtt varðskip fullsmíðað í marz
Því var hleypt af stokkunum 8. september í
* r
Alaborg og hlaut nafnið Oðinn
Hinu nýja varðskipi landhelg-
isgæzlunnar, sem vinstri stjórnin
samdi um smíði á, var hleypt af
stokkunum í Álaborg á þriðju-
daginn var. Hlaut það nafnið Óð-
inn, og verður væntanlega tilbúið
til starfa í marz í vetur. Óðinn
verður stærst og fullkomnast ís-
lenzku varðskipanna, um 800
tonn eða 100 tonnum stærri en
Þór.
Við útfærzlu fiskveiðitak-
markanna varð þörf á meiri
gæzlu, bæði á sjó og í lofti. —
Fjölgun varðskipanna var því
mjög aðkallandi.
þús. fjár og á Dalvík 7.520, eða
samtals 43.440 fjár, eða nokkru
færra en í fyrra.
Sýnilegt er, að vegna hinnar
miklu grassprettu í sumar og
mikilla og góðra heyja nú í
sláttulok, verður margt fé sett á
vetur að þessu sinni.
Um vænleika fjárins er fátt
vitað ennþá. Þó munu hin hörðu
hret í vor og sumar minna á sig
nú í haust, og e. t. v. meira en
margan grunar.
Aðstaða öll við sauðfjárslátrun
hér á Akureyri er talin mjög
góð. Hinni miklu fjárfjölgun í
héraðinu hin síðari ár hefur verið
mætt með auknu frystirými og á
ýmsan annan hátt, svo sem óhjá-
kvæmilegt var.
Ennfremur var slátursölunni
breytt til meira hagræðis fyrir
bæjarbúa en annars staðar þekk-
Framhatd á 7. siðu.
FRAMBOÐ FRAMSÓKNARFLOKKSINS
D A G U R
kemur næst út á laugardaginn
19. september, og bíður mikiö
efni. Auglýsingar þurfa að berast
fyrir hádegi á föstudaginn.
Að marggefnu tilefni er enn
einu sinni á það bent, að nafn-
lausar, aðsendar greinar eru ekki
birtar hér í blaðinu, nema höí-
undar gefi sig fram og hafi sam-
ráð um birtinguna við ritstjór
ann.
REYKJAVÍK.
1. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri.
2. Einar Ágústsson, lögfræðingur.
3. Unnur Kolbeinsdóttir, húsfrú.
4. Kristján Thorlacius, deildarstjóri.
5. Kristinn Sveinsson, trésmiður.
6. Jónas Guðmundsson, stýrimaður.
7. Dóra Guðbjartsdóttir, húsfrú.
8. Kristján Friðriksson, iðnrekandi.
9. Eysteinn Þórðarson, skrifstofumaður.
10. Jón D. Guðmundsson, verkamaður.
11. Kristján Benediktsson, kennari.
12. Elín Gísladóttir, húsfrú.
13. Sverrir Jónsson, flugstjóri.
14. Einar Eysteinsson, iðnverkamaður.
13. Bergljót Guttormsdóttir, húsfrú.
16. Hannes Pálsson, bankastjóri.
17. Sigurður Sigurjónsson, rafvirki.
18. Kristján Þorsteinsson, stórkaupmaður.
19. Bjöm R. Einarsson, hljómsveitarstjóri.
20. Guðni Ólafsson, flugumferðastjóri.
21. Jón ívarsson, forstjóri.
22. Gúðlaug Narfadóttir, húsfrú.
23. Sigurjón Guðmundsson, skrifstofustjóri.
24. Séra Sveinn Víkingur, fyrrverandi biskupsritari.
VESTURLANDSKJÖRDÆMI.
1. Ásgeir Bjamason, bóndi, Ásgarði.
2. Ilalldór Sigurðsson, sveitarstjóri, Borgamesi.
3. Daníel Ágústínusson, bæjarstjóri, Akranosi.
4. Gunnar Guðbjartsson, bóndi, Hjarðarfelli.
5. Alexander Stefánsson, kaupíélagsstjóri, Ólafsvík.
6. Ingimundur Ásgeirsson, bóndi, Hæli.
7. Kristinn B. Gíslascn, form., Verkalýðsfél. Stykkishólins.
8. Geir Sigurðsson, bóndi, Skeggjastöðum.
9. Guðmundur Sverrisson, bóndi, Hvammi.
10. Guðmundur Brynjólfsson, bóndi, Hrafnabjörgum.
REYKJANESKJÖRDÆMI.
1. Jón Skaftason, héraðsdómslögmaður, Reykjavík.
2. Valtýr Guðmundsson, forstjóri, Keflavík.
3. Guðmundur Þorláksson, loftskeytamaður, Hafnarfirði.
4. Guðmundur Magnússon, bóndi, Leirvogstungu.
5. Óli S. Jónsson, skipstjóri, Sandgerði.
6. Jón Páhnason, skrifstofumaður, Hafnarfirði.
7. Ililmar Pétursson, skattstjóri, Keflavík.
8. Jóhanna Jónasdóttir, húsfrú, Kópavogi.
9. Sigurður Jónsson, kaupmaður, Seltjarnarnesi.
10. Gúðsteinn Einarsson, útgerðarmaður, Grindavík.
VESTFJARÐAKJÖRDÆMI.
1. Hermann Jónasson, hrl., Reykjavík.
2. Sigurvin Einarsson, framkyæmdastjóri, Reykjavík.
3. Bjarni Gúðbjörnsson, bankastjóri, ísafirði.
4. Halldór Krisíjánsson, bóndi, Kirkjubóli.
5. Þórður Hjaltason, sveitarstjóri, Bolungavík.
6. Hafliði Ólafsson, bóndi, Ögri.
7. Gunnlaugur Finnsson, bóndi, Hvilft.
8. Ólafur Ólafsson, kaupfélagsstjóri, Króksfjarðarnesi.
9. Jónas Jónsson, bóndi, Melum.
10. Ragnar Ásgeirsson, læknir, ísafirði.
SUÐURLANDSKJÖRDÆMI
1. Ásgeir Þorvaldsson, bóndi, Brúnastöðum.
2. Björn Bjömsson, sýslumaður, Hvolsvelli.
3. Helgi Bergs, verkíræðingur, Reykjavík.
4. Óskar Jónsson, bókari, Vík.
5. Sigurður I. Sigurðsson, oddviti, Selfossi.
6. Sigurður Tómasson, bóndi, Barkastöðum.
7. Jón Gíslason, bóndi, Norðurhjáleigu.
8. Sigurgeir Kristjánsson, lögregluþjónn, Vestmannaeyjmn.
9. Þórarinn Sigurjónsson, bústjóri, Laugardælum.
10. Erlendur Árnason, bóndi, Sldðabakka.
11. Guðmundur Guðmundsson, bóndi, Efri-Brfin.
12. Stefán Runólfsson, bóndi, Berustöðmn.
AUSTURLANDSKJÖRDÆMI.
1. Eysteinn Jónsson, alþingismaður, Reykjavík.
2. Halldór Ásgrímsson, alþingismaður, Vopnafirði.
3. Páll Þorsteinsson, bóndi og alþingism., Hnappavöllum.
4. Björgvin Jónsson, kaupfélagsstj. og alþm., Seyðisfirði.
5. Vilhjálmur Hjálmarsson, bóndi og alþm., Brekku.
6. Páll Metúsalemsson, bóndi, Rcfstað.
7. Stcfán Einarsson, flugafgrciðslumaður, Egilsstöðum.
8. Ásgrímur Halldórsson, kaupíélagsstj., Ilöfn, Hornafirði.
9. Guðmundur Björnsson, verkamaður, Stövarfirði.
10. Ásgrímur Ingi Jónsson, sjómaður, Borgarfirði.
NORDURLANDSKJÖRDÆMI VESTRA.
1. Skúli Guðmundsson, alþingismaður, Laugaibakka.
2. Ólafur Jóhanncsson, prófessor, Rcykjavík.
3. Björn Pálsson, bóndi, Löngumýri.
4. Jón Kjartansson, forstjóri, Reykjavík.
5. Kristján Karlsson, skólastjóri, Hólum.
6. Guðmmidur Jónsson, bóndi, Ási.
7. Magnús H. Gíslason, bóndi, Frostastöðmn.
8. Sigurður J. Líndal, bóndi, Lækjamóti.
9. Jóhann Salberg Guðmundsson, sýsluinaður, Sauðárkróki.
10. Bjarni M. Þorsteinsson, varaform. Þróttai-, Siglufirði.