Dagur - 16.09.1959, Blaðsíða 1
Fylgizt með því sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. ~r Sími 1166.
Dagu
DAGUR
kemur næst út laugar-
daginn 19. september.
ftW^
XLII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 16. september 1959
48. tbl.
íf«í
EflirfeklarverS myndasaga í Morgunl
Hún ber vott um fals en ekki iðrun eins og mynd-
irnar virðast þó við fyrstu sýn gefa til kynna
í Morgunblaðinu sl. sunnudag
gaf að líta heila opnu glæsilegra
Ijósmynda af meiri háttar mann-
virkjum hér á landi. Á annarri
síðunni voru myndir af nýju
Sogsvirkjuninni, aflstöðvunum
við Mjólká, Fossá og Grímsá og
af Sementsverksmiðjunni. — Á
hinni síðunni voru myndir af
nýju fiskiðjuvciuiium á Akur-
eyri, Seyðisfirði, fsafirði og
Hafnarfirði.
Þcssi mannvirki eiga það öll
sameiginlegt, að vera tekin í
notkun í valdatíð vinstri stjórn-
arinnar, 1956—1958, nema Sogs-
virkjunin. En fjár til hennar afl-
aði vinstri stjórnin.
Við fyrstu sýn mátti aetla, að
Sjálfstæðisflokkurinn hefði iðrast
synda sinna og vildi nú bæta fyr-
ir óhappaverk sín með því að
.viðurkenna annarra vcrk. Svo
var þó ekki. Myndaopann er
stórkostleg fölsun staðreynda og
sprottin af ótta Sjálfstæðis-
flokksins við vinsældir vinstri
stjórnarinnar og verk hennar,
einmitt þessi verk m. a. Jafnvel
íiskiðjuverið á Seyðisfirði er nú
orðið Morgunblaðinu raupsefni,
eftir allt sem á undan cr gengið.
Samileikurmn er sá, að byrjað
var á mörgum nefndum fram-
kvæmdum í stjórnartíð Fram-
sóknar og Sjálfstæðisfl., en það
er eiris og hvert annað barnahjal,
að Sjálfstæðisflokkurinn hafi
öðrum fremur undirbyggt fram-
kvæmdirnar. Má þar m. a. minna
á lántökumar og á hvers herðum
þær hvíldu, og að á árunum 1950
—1956 voru þeir Hermann Jón-
asson og Steingrímur Steinþórs-
son raforkumálaráðherrar. Hins
vegar var Ólafur Thors sjávarút-
vegsmálaráðherra, en komst
aldrei á afrekaskrá, Hinar stærri
framkvæmdir þjjóðarinnar hin
síðari árin eru að sjálfsögðu unn-
ar af mörgum aðilum, bæði á Al-
þingi og í tveiinur til þremur síð-
ustu ríkisstjórnum.
En ef menn vilja endilega
þakka einum flokki fyrir það, að
hafa staðið að hinmn" . miklu
framkvæmdum, scm myndasaga
Framhald á 4. siðu.
Tónleikar tékkneskra listamanna
verða haldnir á Akureyri næstk. laugardag
Næstkomandi. laugardag kemur
tékkneskt tónlistarfólk hingaS til
bæjarins og heldur tónleika í
Nýja-Bíó kl. 5 síðdeg'is á vegum
Tónlistarfélags Akureyrar.
Tónlistarfólkið er frá tónlistar-
háskólanum í Praha, tvær konur
og fjórir karlmenn.
Mælt er, að tónlistin sé Tékkum
í blóð borin, o gsöngelskir eru
þeir með afbrigðum. Tónlistar-
háskólinn í Praha er viður-'
kenndur tónlistarskóli, og því
nokkur trygging fyrir því að
hann ljái aðeins góðu listafólki
nafn sitt.
Stórgripamarkaður SHE að lum
Yfir 30 ungar kýr seldar á markaði. Þetta eru
þriggja ára gamlar tilraunakýr undan nautunum
Þela og Fylki - Lágmaksverð f rá 3-7 þús.
Á mánudaginn fór fram nokk-
uð sérstæður kaupskapur að Bú-
fjárræktarstöð SNE að Lundi við
Akureyri.
Selja átti 33 kýr flestar
þriggja ára snemmbærur, sem
lokið hafa tilraunaskeiði sínu í
afkvæmarannsóknunum þar.
Allmargir bændur voru þarna
saman komnir, er fréttamaður
blaðsins kom þar snöggvast, og
voru þeir að virða gripina fyrir
sér í hinu nýja og myndarlega
fjósi, og höfðu þeir sjáanlega
kúakaup í huga. En nú er svo
: ástatt í héraðinu, að hey eru með
langmesta móti og því góður
markaður fyrir ungar kýr.
Sett var lágmarksverð á hverja
kú, en væntanlegir kaupendur
lögðu síðan inn tilboð sín um þá
gripi, er þeir girntust. Hér er
ekki um kynbótaskepnur að
ræða, en örugg skýrsla vocci af-
urðir á fyrsta mjólkurskeiðinu
var kaupendum í té látin.
Kýr þessar, þ. e. þriggja ára
kýrnar, eru dætur nautanna Þela
og Fylkis. Og lágmarksverð var
sett á hvern grip, líklega um 5
þús. kr. að meðaltali, eða frá 3—
7 þúsundum.
Kaupskapur þessi eða markað-
ur er áður óþekktur hér í þessu
formi.
í því trausti munu bæjarbúar
sækja þessa tónleika og vonandi
verða þeir ekkifyrir vonbrigð-
um;
TYÖSLYS
Fyrir rúmri viku vildi það slys
til að Miðlandi í Öxnadal, þar
sem mmið var að byggingu,
að vinnupallur brast oghlutust
meiðsli af. Halldór bóndi Kristj
ánsson á Steinsstöðum öklabrotn
aði, opið brpt, og Sveinn Brynj
ólfsson í Efstalandskoti meiddist
á hendi. En báðir voru menn
þessir á vinnupallinum er hann
féll niður.
Lenti í steypuhrærh'él.
Þá vildi það slys til á Akureyri
sama daginn, að Jón Hjaltason
Spítalastíg 1 Akureyri, lenti með
hendina í steypuhrærivél, með
þeim afleiðingum að bein brotn-
uðu í tveim fingrum og þriðji
fingurinn fór úr ]iði.
Skemmtanir Framsóknarmanna
á Akureyri og Húsavík um næstu helgi
Skemmtikvöld Framsóknar-
manna á Akureyri og Eyja-
íirði verður haldið n.k. Iaug-
ardagskvöld að Hótel KEA og
hefst samkomali kl. 9 e^ h.
með ávarpi Ingvars Gíslason-
ar, lögfra?ðings, sem er í bar-
áttusæti á Iista Framsóknar-
flokksins í haustkosningunmn,
síðan verður spiluð félagsvist
og verða nijög góð verðlaun
veitt. Karl Kristjánsson, al-
þingismaður, fyrsti maður á
lista ílokksins í kjördæminu,
flytur ræðu, en Karl Guð-
mundsson, leikari, skemmtir.
Að Iokum verður dansað til
kl. 2. Góð hljómsveit. leikur.
Flokkssamkoma Framsókn-
armanna á Húsavík hcfst kl. 9
e. h, næstk. sunnudagskvöld í
Samkomuhúsmu. Karl Krist-
jánsson, alþingismaður, setur
samkomuna og stýrir henni,
en raeðumenn verða Gísli
Guðmmidsson, alþingismaður,
og Ingvar Gíslason, lögfræð-
ingur. Karl Guðmundsson,
leikari, skemmtir og góð
hljómsveit íra Akureyri leik-
ur fyrir dansi. — Skorað er á
stuðningsmenn listans á Ak-
ureyri, í Eyjafirði og Þingeyj-
arsýslu að fjöhnenna á þessar
myndarlegu samkomur flokks
his um hclgina og taka með
scr gcsti.
Ingvar Gíslason.
Gísli Guðmundsson.
Karl Kristjánsson.
Þær líta upp, en gestkoma raskar ekki ró þeirra
Fegurstu skrúðgarðar á Ákureyri
Fegrunarfélag Akureyrar veitti verðlaun og við-
urkenningar á fundi sínum á fimmtudaginn
A fimmtudaginn boðaði Fegr-
unarfélagið á Akureyri blaða-
menn og allmargra aðra borgara
bæjarins á sinn fund að Hótel
KEA. Tilefnið var það, að dóm-
nefnd félagsins hafði úrskurðað
hverjir væru fegurstu garðarnir
í kaupstaðnum þetta árið.
Formaður Fegrunarfélagsins,
Jón Kristjánsson verzlunarmað-
ur bauð gesti velkómna og sagði
frá störfum félagsins og áhuga-
málum. Síðan afhenti hann verð-
laun fyrir fegursta skrúðgarð
bæjarins. Verðlaun þessi, blóma-
vasa, hlutu hjónin Guðlaug Þor-
steinsdóttir og Gestur Olafsson
kennari, Goðabyggð. 1.
En viðurkenningu hlutu: Þor-
steinn Davíðsson Brekkugötu 41,
Vilhjálmur Jóhannesson, Ægis-
götu 27, Júlíus Oddsson Sólvöll-
um 9 og Hallur Sigurbjörnsson,
Ásabyggð 2.
Margir tóku til máls á fundin-
um ault formannsins og ræddu
þeir einkum um fegrun bæjarins
og' hreinlæti.
Framhald á 7. siðu.