Dagur - 16.09.1959, Page 1
DAGur
«3L
XLII. árg.
Akureyri, miftvikudajnnn 16. september 1959
48. tbl.
15.** -
EftirfektarverS myndasaga í Morgunbl.
Hún ber vott um fals en ekki iðrun eins og mynd-
irnar virðast þó við fyrstu sýn gefa til kynna
í Morgunblaðinu sl. sunnudag
gaf að líta heila opnu glæsilegra
Ijósmynda af meiri háttar mann-
virkjum hér á landi. Á annarri
síðunni voru myndir af nýju
Sogsvirkj uninni, aflstöðvunum
við Mjólká, Fossá og Grimsá og
af Sementsverksmiðjunni. — Á
hinni síðunni voru myndir af
nýju fiskiðjuvcrunum á Akur-
' eyri, Seyðisfirði, ísafirði og
Hafnarfirði.
Þessi mannvirki eiga það öll
sameiginlegt, að vcra tekhi í
notkun í valdatíð vinstri stjórn-
arinnar, 1956—1958, ncma Sogs-
virkjuniii. En fjár til hennar afl-
aði vinstri stjórnin.
Við fyrstu sýn máttí ætla, að
Sjálfstæðisflokkurinn liefði iðrast
synda sinna og vildi nú bæta fyr-
ir óhappaverk sín mcð því að
■ viðurkenna annarra vcrk. Svo
var þó ekki. Myndaopann er
stórkostleg fölsun staðreynda og
sprottin af ótta Sjálfstæðis-
flokksms við vinsældir vinstri
stjórnarinnar og verk hennar,
einmitt þessi verk m. a. Jafnvel
fiskiðjuverið á Seyðisfirði er nú
orðið Morgunblaðinu raupsefni,
eftir allt sem á undan cr gengið.
Sannleikurinn cr sá, að byvjað
var á mörgum ncfndum fram-
kvæmdum í stjómartíð Fram-
sóknar og Sjálfstæðisfl., en það
cr cins og hvert annað barnahjal,
að Sjálfstæðisflokkurinn liafi
öðrum frcmur undirbyggt fram-
kvæmdirnar. Má þar m. a. minna
á lántökumar og á hvers herðum
þær hvíldu, og að á ámnum 1950
—1956 vom þeir Hermann Jón-
asson og Steingrímur Steinþórs-
70n raforkumálaráðherrar. Hins
vegar var Ólafur Thors sjávarút-
vcgsmálaráðhcrra, en komst
aldrei á afrekaskrá. Hinar stærri
framkv'æmdir þjóðarinnar hin
síðari árin eru að sjálfsögðu unn-
ar af mörgum aðilum, bæði á Al-
þingi og í tveimur til þrcmur síð-
ustu ríkisstjórnum.
En ef menn vilja endilega
þakka einum flokki fyrir það, að
hafa staðið að hinum miklu
framkvæmdum, sem myndasaga
Framhald á 4. siðu.
Tónleikar fékkneskra lisfamanna
verða haldnir á Akureyri næstk. laugardag
Næstkomandi laugardag kemur
tékkneskt tónlistarfólk hingað til
bæjarins og heldur tónleika í
Nýja-Bíó kl. 5 siðdegis á vegum
Tónlistarfélags Akureyrar.
Tónlistarfólkið er frá tónlistar-
háskólanum í Praha, tvær konur
og fjórir karlmenn.
Mælt er, að tónlistin sé Tékkum
í blóð borin, o gsöngelskir eru
þeir með aíbrigðum. Tónlistar-
háskóliim í Praha er viður-
kenndur tónlistarskóli, og því
nokkur trygging fyrir því að
hann ljái aðeins góðu listafólki
nafn sitt.
Stórgripamarkaður SNE ðð Lundi
Yfir 30 ungar kýr seldar á markaði. Þett'a eru
þriggja ára gamlar tilraunakýr undan nautunum
Þela og Fylki - Lágmaksverð frá 3-7 þús.
Á mánudaginn fór fram nokk-
uð sérstæður kaupskapur að Bú-
fjárræktarstöð SNE að Lundi við
Akureyri.
Selja átti 33 kýr flestar
þriggja ára snemmbærur, sem
lokið hafa tilraunaskeiði sínu í
afkvæmarannsóknunum þar.
Allmargir bændur voru þarna
saman komnir, er fréttamaður
blaðsins kom þar snöggvast, og
voru þeir að vii'ða gripina fyrir
sér í hinu nýja og myndarlega
fjósi, og höfðu þeir sjáanlega
kúakaup í huga. En nú er svo
ástatt í héraðinu, að hey eru með
langmesta móti og því góður
markaður fyrír ungar kýr.
Sett var lágmarksverð á hverja
kú, en væntanlegir kaupendur
lögðu síðan inn tilboð sín um þá
gripi, er þeir girntust. Hér er
ekki um kynbótaskepnur að
ræða, en örugg skýi'sla um af-
urðir á fyrsta mjólkurskeiðinu
var kaupendum í té látin.
Kýr þessar, þ. e. þriggja ára
kýrnar, eru dætur nautanna Þela
og Fylkis. Og lágmarksverð var
sett á hvern grip, líklega um 5
þús. kr. að meðaltali, eða frá 3—
7 þúsundum.
Kaupskapur þessi eða markað-
ur er áður óþekktur hér í þessu
formi. ,
í því trausti munu bæjarbúar
sækja þessa tónleika og vonandi
verða þeir ekki fyrir vonbrigð-
TVÖ SLYS
Fy'rir rúmri viku vildi þáð slys
til að Miðlandi í Öxnadal, þar
sem unnið var að byggingu,
að vinnupállur brast og 'hlutust
meiðsli af. Halldór bóndi Kristj-
ánsson á Steinsstöðum öklabrotn
aði, opið brot, og Sveinn BrynJ-
ólfsson í Efstalandskoti meiddist
á hendi. En báðir voru menn
þessir á vinnupallinum er hann
féll niður.
Lenti í steypuhrærivél.
Þá vildi það slys til á Akureyri
sama daginn, að Jón Hjaltason
Spítalastíg 1 Akureyri, lenti með
hendina í steypuhrærivél, með
þeim afleiðingum að bein brotn-
uðu í tveim fingrum og þriðji
fingurinn fór úr liði.
Skemmfðnir Framsóknðrmanna
á Akureyri og Húsavík um næstu Iielgi
Skcuimtikvöld Framsóknar-
manna á Akurcyri og Eyja-
firði vcrður haldið n.k. Iaug-
ardagskvöld að Hótel KEA og
hefst samkoman kl. 9 e. h.
nveð ávarpi Ingvars Gíslason-
ar, lögfræðings, seiu er í bar-
áttusæti á lista Framsóknar-
flokksins í haustkosningunuin,
síðan verður spiluð félagsvist
og verða nijög góð verðlaun
veitt. Karl Kristjánsson, al-
þingismaður, fyrsti ína'ður á
lista flokksins í kjördæniinu,
flytur ræðu, cn Karl Guð-
mundsson, lcikari, skemmtir.
Að lokum verður dansa'ð til
kl. 2. Góð hljónisveit. Icikur.
Flokkssamkoma Framsókn-
armanna á Húsavík hefst kl. 9
e. h. næstk. sunnudagskvöld í
Samkomuhúsinu. Karl Krist-
jánsson, alþingismaður, setur
samkomuna og stýrir henni,
en ræðumenn verða Gísli
Guðmundsson, alþingismaður,
og Ingvar Gíslason, lögfræð-
ingur. Karl Guðmundsson,
Ieikari, skemmtir og góð
hljómsveit frá Akureyri Ieik-
ur fyrir dansi. — Skorað er á
stuðningsmenn listans á Ak-
ureyri, í Eyjafirði og Þingeyj-
arsýslu að fjölmenna á þessar
myndarlegu samkomur flokks
ins um hclgina og taka með
sér gesti.
Ingvar Gíslason.
Gísli Guðmundsson. Karl Kristjánsson.
Fegursfu skrúðgarðar á Ákureyri
Fegrunarfélag Akureyrar veitti verðlaun og við-
urkenningar á fundi sínum á fimmtudaginn
Þær líta upp, en gestkoma raskar ckki ró þeirra.
Á fimmtudaginn boðaði Fegr-
unarfélagið á Aiureyri blaða-
menn og allmargra aðra borgara
bæjarins á sinn fund að Hótel
KEA. Tilefnið var það, að dóm-
nefnd félagsins hafði úrskurðað
hverjir væru 'fegurstu garðarnir
í kaupstaðnum þetta árið.
Formaður Fegrunarfélagsins,
Jón Kristjánsson verzlunarmað-
ur bauð gesti velkömna og sagði
frá störfum félagsins og áhuga-
málum. Síðan afhenti hann verð-
laun fyrir fegursta skrúðgarð
bæjarins. Verðlaun þessi, blóma-
vasa, hlutu hjónin Guðlaug Þor-
steinsdóttir og Gestur Ólafsson
kennari, Goðabyggð 1.
En viðurkenningu hlutu: Þor-
steinn Davíðsson Brekkugötu 41,
Vilhjálmur Jóhannesson, Ægis-
götu 27, Júlíus Oddsson Sólvöll-
um 9 og Hallur Sigurbjörnsson,
Ásabyggö 2.
Margir tóku til máls á fundin-
um auk formannsins og ræddu
þeir einkum um fegrun bæjarins
og hreinlæti.
Framhald á 7. s/ðu.
DAGUR
kemur næst út laugar-
daginn 19. september.
Fylgizt með því sem gerist
hér í kringum okkur.
Kaupið Dag. — Sími 1166.