Dagur - 24.02.1960, Side 8

Dagur - 24.02.1960, Side 8
Baguk Miðvikudaginn 24. febrúar 1960 omut/n Félagsheimili Sjálfsbjargar við Hvannavelli 10. — (Ljósm.: E. D.). Ný og þörf stofnun í fjárþröng Norsku samvinnufryggingarnar þrjáfíu ára um þessar mundir Norsku samvinnutryggingarnar eiga 30 ára afmæli um þessar mundir. Tryggingaraukning við- skiptamanna var helmingi meiri, á síðastliðnu ári, en nokkurn tíma áður. Arið 195S jukust tryggingar um 37 millj. kr., en 1959 um 57 millj. kr., og er það rétt um 50%, jafnframt mun það vera um 30% allrar tryggingaraukningar í Nor- egi í fyrra. Forstjóri samvinnutrygginganna, Peder Söiland, segir í grein í sam- vinnublaðinu „Vort Blad“: Samvinnutryggingarnar voru stofnaðar 19. desember 1929 og hófu starfsemi sína 1. marz 1930. Það er ein af grundvallarreglum samvinnumanna, hvar sem er í Vinnu- og félagsheimili Sjálfsbjargar á Akureyri komið undir þak, en nokkra f járhæð vantar til þ ess að unnt sé að taka það í notkun Allir kannast við Sjálfsbjörg, hjá því komist að knýja á dyr hins félag fatlaðra og lamaðra á Akur- eyri og í nágrenni, sem er eitt yngsta félagið hér um slóðir. En það fór myndarlega af stað undir stjórn Emils Andersen, og sást þá glöggt að hvarvetna mætti fé- lagið skilningi og aðstoð þegar eft- ir var leitað. Adolf Ingimarsson veitir félaginu nú forstöðu. Vinnu- og félagsheimilisbyggingu var hrundið af stað í júlí í sumar við Hvannavelli 10, og þar var fyrsti félagsfundurinn haldinn um helg- ina í hálfsmiðuðu en hlýju og björtu húsi. Hið nýja heimili Sjálfsbjargar er 13x15 metrar að stærð og rúm- ar stóran föndur- og fundarsal, eldhús, anddyri, snyrtingar og eitt herbergi. Aðalsalurinn er að aust- an en inngangur að vestan, götu- megin. Ráðgerð er svo 6x15 metra bygging austan við, véla-, verk- færa- og vinnurúm. Sjálfsbjargarhúsið kostar nú 400 þús. krónur, að því byggingarefni meðtöldu, sem á staðnum er og búið er að kaupa. Það er hlaðið úr vikurholsteini. Sennilegt er, að enn þurfi 100—150 þús. krónur til byggingarinnar, svo að taka megi hana til notkunar. Félagið fékk 100 þús. kr. styrk úr Erfðafjársjóði, fékk. allstórt lán og gat sjálft lagt fram nokkra fjár- hæð. Þá er i fjárhagsáætlun bæj- arins ráðgert að leggja fram 25 þús. krónur til byggingarinnar, og gjafir berast öðru hvoru. En nú þarf nokkurt átak til að- stoðar. Að öðrum kosti stendur nýja húsið ónotað um ófyrirsjáan- legan tíma. Þótt bærinn hafi í mörg horn að líta, ætti að taka það til athugun- ar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar- innar, hvort ekki sé réttmætt að hækka framlagið til Sjálfsbjargar- hússins upp i 50 þús. á þessu ári. Og að sjálfsögðu verður ekki Öxnadalsheiði og Vaðlaheiði voru færar stórum og traustum bifreiðum í gær. Færi er víða mjög þungt í héraði, svo sem Laugalandsvegur, Dalvíkurvegur á köflum og Svalbarðsstrandar- Vegur. Ófært er um Dalsmynni. háa Alþingis um fyrirgreiðslu. Sjálfsbjargarfélögin hér á landi eru öll mjög ung og öll fjárvana. Líkamlegri hreysti er í einhverju áfátt hjá félagsmönnum. Aður fyrr voru slíkir hafðir að skotspæni og litið niður á þá. Mannúð, félags- þroski og fjárhagsleg geta til að- stoðar hefur aukizt að mun. Bækl- aður fótur og lömuð hönd er ekki lengur talið algert einkamál þess, sem fyrir örkumlum verða. Sjálfsbjargarfélagið á Akureyri er fyrsta félag sinnar tegundar hér á landi, sem ræðst í það stórvirki að byggja sér félags- og vinnu- heimili. Það ætti að vera nokkurt metnaðarmál í höfuðstað Norður- lands, að það takizt giftusamlega og án mikilla tafa. Stjórn Sjálfsbjargar á Akureyri skipa: Adolf Ingimarsson, formað- ur, Heiðrún Steingrímsdóttir, ritari, Sveinn Þorsteinsson, gjald- keri, og meðstjórnendur Kristín Konráðsdóttir og Astþrúður Sveinsdóttir. Akureyringar kepptu við stórmeistarann Myndin er af Friðriki Ólafssyni stórmeistara og Jóni Ingiinarssyni, formanni Skákfélags Akureyrar. — (Ljósmynd: E. D.). Friðrik Ólafsson stórmeistari tefldi fjölskák á 41 borði og samtímis 3 blindskákir sl. sunnudag. — Leikar fóru svo, að Friðrik vann 35 skákir, gerði 4 jafntefli og tapaði 2 skákum. Hann tapaði 2 blind- skákum og gerði jafntefli við hinn þriðja. — Fjölskák og blindskák samtímis, er mjög erfið íþrótt og dáðust menn að gestinum í þess- ari þrekraun. — Á mánudagskvöldið tcfldi Friðrik Ólafsson klukkufjöltefli við 10 beztu skákmenn bæjarins. Leikar fóru svo, að Friðrik vann 5, gerði 2 jafntefli, en tapaði fyrir Steingrími Bern- harðssyni, Júlíusi Bogasyni og Margeiri Steingrímssyni. heiminum, að bæta hag félags- manna, og einn liður í því er að bæta og tryggja fjárhagsafkomu heimilanna, með persónulegri sparifjársöfnun. Tryggingar eru í raun og veru ekkert annað en skynsamleg sparifjársöfnun trygg- ingartaka. Þess vegna var það mjög eðlilegt að norskir sam- vinnumenn hófu tryggingarstarf- semi fyrir 30 árum. Samankomnar iðgjaldagreiðslur eru ekki lengi að skipta milljónum. I ársbyrjun 1959 voru sjóðir trygginganna 130 millj. kr., en í árslok 145 mill. kr. Þessum peningum hefur verið varið til útlána í viðskiptalífinu og hafa þar því örfandi áhrif, en fjörugt viðskiptalíf er nauðsynleg- ur þáttur í aukinni velmegun manna. Lánað var til bygginga, aflstöðva, iðnaðar, íbúðarhúsa- bygginga og margs fleira. Samvinnutryggingarnar taka við tryggingum af öllum, sem vilja við þær skipta, en kappkosta auðvitað fyrst og fremst, að ná til sín við- skiptum samvinnumanna. Fyrir tveimur árum voru trygg- ingarupphæðir auknar, án þess að iðgjöld hækkuðu. Veittur er 7% afsláttur á lífeyristryggingum og greiðslur við dauðsföll, eða þegar tryggingartímabil er útrunnið, hafa verið hækkaðar um 10%. — Fyrirhugað er að veita 10% afslátt á líftryggingum, þegar iðgjaldið er greitt í eitt skipti fyrir öll. „Það er misskilningur að trygg- ingarnar græði of fjár,“ segir Söi- land ennfremur. „Allur gróði rennur aftur til tryggingartaka. Mismunur tekna og gjalda er lagð- ur í varasjóð, sem er eign trygging- artaka og ábyrgist að fyrirtækið getur, hvenær sem er, staðið við skuldbindingar sínar.“ Það er full ástæða til fyrir ís- lenzka samvinnumenn, að óska starfsbræðrum sínum í Noregi til hamingju með afmæli þessarar starfsgreinar. Norðmenn hafa hug á að flylja fisk með flugvélum „Þegar það verður jafn ódýrt að flytja fisk með flugvélum, og það er-nú með skipum, bílum og jámbrautum, verðum við að vera reiðubúnir að notfæra okkur það að dreifa glæ- nýjum fiski til allra helztu stórborga Evrópu, að minnsta kosti,“ segir norski fisksölustjórinn Johan Karder. Mál þetta hefur verið töluvert rætt í blöðum norskra fiskveiði- samtaka að undanförnu. Sam- keppnin er hörð á heimsmarkaðin- um, í þessum málum sem öðrum, og sá hlýtur viðskiptin, sem kem- ur með bezta og nýjasta fiskinn. Áður fyrr voru fjarlægðirnar óvinnandi „Þrándur í Götu“ þess- ara flutninga, en nú á dögum hrað- vaxandi tækni og með hinum mikla hraða nútíma flutninga- tækja, skipta vegalengdir minna máli. Þyrlur og þotur með fisk. „Ennþá er of dýrt að flytja fisk með flugvélum," segja Norðmenn. „Það kostar þrjár krónur norskar pr. kg. til Lundúna, Berlínar og Parísar, svo að það er ekki vinn- andi vegur eins og er. En það er ekki víst að sá dagur sé svo ýkja langt undan, þegar flutningagjöld með flugvélum verða ekki hærri en með öðrum farartækjum. Við eigum nóga stóra flugvelli, sem þotuflugvélar geta lengt á og þangað getum við flutt fiskinn með þyrilvængjum frá útvegs- stöðvum, hvar sem er í landinu." Ennfremur segir Johan Karder: „Á meðan við bíðum eftir, að þess- ir flutningar geti borgað sig, getum við undirbúið málið að öðru leyti. Framhald á í. siðu. Þctta vélknúna, tvíhjólaða farartæki, er tékkneskt, og sennilega hið eina sinnar tegundar hér á landi. — Eigandi þess er Tryggvi Hjaltason frá Kútsstöðum. — (Ljósmynd: E. D.).

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.