Dagur - 02.03.1960, Page 2
2
D A G U R
Msðvikudaginn 2. niarz 1960
- Gegn kreppu og samdráltarsfeínu
(Framh. af 1. síðu) II.
Hin nýja efnahagsmálalöggjöf í heild sinni er hatramleg
árás á uppbyggingarstefnu þá, sem fylgt hefur verið á ís-
landi síðustu áratugi og lyft hefur þjóðinni í sveit og við
sjó með skjótum hætti til bættra lífskjara og vakið henni
sumarhug og sóknardug.
Uppbyggingarstefnan hefur haft fyrir aflgjafa samtaka-
mátt fjöldans og markmið hennar verið að veita öllum
þegnum þjóðfélagsins, sem jafnasta aðstöðu til menntun-
ar við hæfi, og hjálpa hverjum einstaklingi til þess að verða
sjálfstæður og bjargálna. Hins vegar að koma í veg fyrir
yfirdrottnun auðvalds og sérhagsmunaaðstöðu fárra út-
valdra.
Allar aðalumbætur hinnar miklu framfarasóknar síðustu
ára, sem er ævintýri líkust að árangri, ef borin er saman
lífsaðstaða Islendinga fyrr og nú, hafa verið gerðar í anda
og krafti félagshyggju og samhjálpar. Þeirra umbóta verð-
ur hvorki gætt né við þær aukið, nema í sama anda sé unn-
ið af stjórnarvöldum þjóðfélagsins áfram.
En nú á að fórna þeim anda — útrýma honum.
III.
Efnahagsmálalöggjöfin, sem stjórnarflokkarnir hafa sam-
þykkt og boðað, er andstæð anda félagshyggjunnar og
brýtur í bág við hana. Hér er á ferðinni gamla afturhalds-
og íhaldsstefnan, sem grímuklæddist og skipti um flokks-
heiti fyrir áratugum, þegar fulltrúar hennar urðu hræddir
vegna óvinsælda hennar andspænis hinni upprennandi
framfara- og uppbyggingarstefnu.
Nú kemur hún fram og heldur að sinn tími sé aftur
kominn, af því að gamall andstæðingur hennar, Alþýðu-
fiokkurinn, hefur villzt af leið og gengið henni á hönd.
IV.
Efnahagsmálalöggjöfin er arma- og gripamörg töng, sem
á að lama afltaugar uppbyggingstefnunnar. 'Hin stórfellda
gengisfelling, afnám sérbóta á fiskverði, vaxtahækkunin,
lánstímastyttingin, lánsfjársamdrátturinn, flutningur spari-
fjárins utan af landsbyggðinni, hinn almenni söluskattur
o. s. frv. er armar og grip á þeirri stáltöng.
Þessi löggjöf miðar að því að eyða sumarhug og sókn-
ardug almennings. Gera verkafólkið með „hæfilegu atvinnu-
leysi“ háð atvinnurekendum, bændur vanmegnuga til inn-
kaupa á búvélum og til annarra framfara í búskap sínum,
sjómenn sömuleiðis getulitla til skipakaupa, byggingariðn-
að og fleiri iðngreinar févana, almenningi illkleift að koma
sér upp íbúðum eða komast hjá að láta af hendi nýbygg-
ingar sínar, kaupfélög og önnur almenningsfyrirtæki neydd
til samdráttar vegna skorts á rekstursfé o. s. frv. En sam-
tímis verða þá fullkomnari tækifæri fyrir hina fáu útvöldu
fjáraflamenn. Þeir ríku fá bætt skilyrði til að verða ríkari
um leið og þeir fátæku verða fátækari. Allra tilfinnanlegast
bitnar að sjálfsögðu kreppan og dýrtíðin á æskufólki, sem
er að búa sig undir að hefja lífsstarf sitt.
Sjá framhald í leiðara blaðsins á blaðsíðu 4.
Álfalíu þúsund farþegar
Árið 1959 fluttu flugvélar Flugfélags íslands h.f. rúmlega
áttatíu þúsund farþega, í áætlunarflugi milli landa, innan-
lands og í leiguflugi.
Flugvélar félagsins fóru samtals
6181 flugferð á árinu og voru á
lofti 8585 klst. Áætlunarflugi var
haldið uppi til sömu staða erlend-
is og innanlands. Fargjöld héldust
þau sömu allt árið. Fleiri leigu-
ferðir voru farnar en nokkru sinni
fyrr, einkum til Grænlands, fyrir
aðila sem þar hafa atvinnurekst-
ur. Ennfremur voru farnar fimm
leiguferðir til ‘Ikateq á austur-
strönd Grænlands með skemmti-
ferðafólk íslenzkt og erlerit. Engin
slys urðu á farþegum eða flug-
áhöfnum félagsins á árinu.
INNANLANDSFLUG.
Farþegar á innanlandsflugleið-
um urðu 51.271, en voru 56.045
árið áður, og nemur fækkunin
8.5%. Fluttar voru 1140 lestir af
vcrum og minnkuðu þeir flutning-
ar um 22.9%. Póstflutningar juk-
ust hins vegar verulega, fluttar
voru 183 lestir, og er aukningin
26.3%. Farnar voru 4478 flugferð-
ir innanlands og flugvélar félags-
ins voru 3967 klst. á lofti á innan-
landsflugleiðum. Nýting innan-
landsflugvélanna er betri en í
fyrra sökum færri flugtíma. Til
flutninga innanlands voru notaðar
flugvélar af gerðunum DC—3,
Katalina, DC—4 og Vickers Vis-
count.
MILLILANDAFLUG.
í áætlunarferðum milli landa
fluttu „Faxarnir" 23.156 farþega,
en 19.350 árið áður. Þessi glæsi-
lega aukning, sem nemur 19.7 af
hundraði, á m. a. rætur sínar að
rekja til stóraukinna flutninga fé-
lagsins á flugleiðum erlendis.
Tún til sölu Ráðskona óskast
6 dagsláttu tún í Glerár- á gott heimili í Reykjavík.
hverfi er til sölu. — Einnig
nokkrar ær. — Upplýsingar
í síma 2064 eftir kl. 8 á
kvöldin.
JJ:ppl. i sima 1907.
Fels til sölu
íbúð óskast
(Beaverland) lítið númer.
Afgr. vísar á.
1. eða 14. maí.
Upp'l. í síma 2370.
„Allir eitt“ klúbburinn
DANSLEIKUR að Hótel
KEA föstudaginn 4. þ. m. kl.
9 e. h. — Mætið stundvíslega.
STJÓRNIN.
Fermingarskór
fyrir telpur.
Ljósir og svartir.
fyrir drengi.
SKÓ5TERZLUN
M. H. LYNGÐAL H.F.
Hjólbarðar
Höfum fyrirliggjandi eftirtaldar
stærðir:
Bíll til sölu
Mercury ’49, í ágætu lagi.
Skipti á jeppa eða Landrov-
er kemur til greina.
Áfgr. vísar á.
NYKOMIÐ
Bútar, margar gerðir
Kjólaefni, einlit,
kr. 32.00 pr. m.
Kjólaefni, rósótt,
poplín, kr. 27.00 pr. m.
Morgunkjólar
Eldhússloppar
Pils
MARKAÐUmNN
SÍMI 1261.
Nýjar vörur!
Gamaít verð!
KJÓLAEFNI
. S L 0 P P A K F N U
*
doppótt, röndótt
ÐÚKAEFNI
NÆRFÖT
SOKKAR
560x13 Verð kr. 496.00—510.00
400x15 — — 482.00
590x15 — — 537.00
600x15 — — 726.00
670x15 — — 815.00
710x15 '— — 874.00
550x16 — — 511.00
600x16 — — 660.00—760.00
650x16 — — 889.00
700x16 — — 993.00
450x17 — — 390.00
900x20 — — 2607.00
9x24 — —1907.00
13x28 — — 3465.00
véLa- og
BÚSAHALDADEILD
Verzlunin Skemman
Nýkomið:
KULÐASKÓR
KVENNA
KULÐASKÓR
KARLA
KULDASKÓR
BARNA
Hvannbergsbræður
Herraúr
Dörnuúr
Stofuklukkur
Eldhúsklukkur
Skri f stof uklukkur
Skákklukkur
Úra og skartgripaverzlun
FRANC MICHELSEN
Kaupvangsstræti 3 . Sími 2205
Góðar, smáar
kartöflur
(Rauðar íslenzkar)
/rá Sæmundi i Fagrabœ.
kr. 42.50 pokinn.
KJÖTBÚÐ K.E.A.
KÁNDÍS
í lausri vigt og
NÝLENDU V ÖRUDEILD
OG ÚTIBÚIN
K a|j pld^
ÐAVf E
hafragrjón
:=-'íast í 1 kg. og V2 kg.
pökkum.
NÝLENBUVÖRUDEILD
OG ÚTIBÚIN
Soyabaunir
Fjallagrös
NÝLENDUVÖRUDEILD
FÉRMINGARKÁPUR!
STUTTIÍÁPUR,
mcð loðkraga,
fyrir fermingartelpur,
KLÆÐAVERZLUN
SIGURÐAR
GUÐMUNDSSONAR H.F.