Dagur


Dagur - 09.03.1960, Qupperneq 1

Dagur - 09.03.1960, Qupperneq 1
Fylgizt með því sem gerist hér í kringum okkur. Kaupið Dag. — Sími 1166. Dagur DAGUR kemur næst út miðviku- daginn 16. marz. XLIII. árg. Akureyri, miðvikudaginn 9. marz 1960 11. tbl. Kosið í stjórn Framsóknarflokksins A aðalfundi miðstjórnar Framsóknarflokksins fór fram kjör á stjórn flokksins. Steingrímur Steinþórsson, sem verið hefur varaformaður flokksins undanfarin ár, óskaði eftir því, að vera ekki kosinn á ný, þar sem hann teldi eðlilegt, að yngri maður yrði valinn í það starf. í stjórn voru kosnir sem aðal- menn: Hermann Jónasson, formaður, Eysteinn Jónsson, rit- ari, og Sigurjón Guðmundsson, gjaldkeri. Varamenn: Olafur Jóhannesson, varaformaður, Guðbrandur Magnússon, vara- ritari, og Guðmundur Kr. Guðmundsson, varagjaldkeri. íslendingar mega í engu hvika og gætu sett kosti Síðar í þessum mánuði verður hin umrædda hafréttarráð- stefna í Genf, þar sem reynt verður með frjálsum samningum að útkljá mörg torleyst deilumál um réttarreglur á hafinu, þeirra á meðal landhelgis- og fiskveiðitakmörk. Hafréttarráð- stefnan er mikilVægust fyrir íslendinga, að því er snertir 12 mílna fiskveiðitakmörkin. í rúmlega hálft annað ár, eða allt síðan 1. sept. 1958, þegar útfærsla fiskveiðitakmarkanna hér við land kom lil framkvæmda, hafa Bretar einir þjóða ógnað íslenzkri landhelgisgæzlu með þrotlausu ofbeldi og fyrirskip- að togaraflota sínum að brjóta íslenzk lög í hverri veiðiferð, án tillits til afla. Bretar halda uppi gífurlegum áróðri gegn íslendingum í deilu þessari, svo að óvíst er um úrslitin á ráðstefnunni. Rétt- lætismál smáþjóðanna eiga venjulega erfiða leið að settu marki. En víst eigum við einnig volduga vini, þar sem Banda- ríkjamenn eru. Þeir segjast vernda oss frá flestu illu, nerna yf- irgangi Breta í landhelgisdeilunni. E-n hvort vilja þeir nú taka frá okkur þann beiska bikar, ef um það væri að ræða, að þeir hyrfu að öðrum kosti af landi burt? Sú ákvörðun Breta, að færa sig út fyrir 12 mílna mörkin á meðan setið er við samningaborðið, er aðeins slóttug tilraun þeirra til að sýnist betri en þeir eru. Harkalegar aðfarir við Snæfellsnes brennimerkja hina er- Jendu landhelgisbrjótaa sein þjófa í augum allra íslendinga. Togskipið Hafþór brýtur sér leið gegnum ísinn á Akureyrarpolli. — (Ljósmynd: E. D.) Beztu gesfirnir - næsf á effir síidinni POST- OG SIMAGJÖLD HÆKKA Frá 1. marz hækkuðu póst- gjöld og símagjöld stórlega. Hækkunin er misjöfn á einstök- um gjöldum. Gert er ráð fyrir að tekjur símans aukizt um 18 af hundraði og póstsins 14 af hundraði. Þannig gengur hið opinbera dyggilega á undan í verðbólgu- áttina. ORGIN AGADIR BREYTTIST GARÐ Á EIN Af hver jum 100 húsum hrundu 95 og talið er, að tala dáinna, týndra og særðra sé 10-12 þúsund Hinn 1. marz urðu ógurlegir jarðskjálftar í hafnarbænum 600% hækkun Innlend þjónusta hækkar ekki, segir ríkisstjórnin. Ný gjaldskrá pósts og síma er þó lítið eitt í öðrum anda.' Um hækkun póst- gjalda eru burðargjöld blað- anna nærtækt dæmi. — Eftir því - sem næst verður komist hækka burðargjöld Dags um nær 600%. — Þetta gerir þeim dagblöðum og vikublöðum, sem einkum hafa kaupendur í þéttbýlinu, ekkcrt til. En aðal- blöð dreifbýlisins gjalda þessa ákvæðis freklega og að þcim mun hinni ósvífnu ráðstöfun beint. Þetta mun, ásamt öllum vcrð- hækkunum og vaxtaokrinu til- heyra „viðreisnarstefnunni“. Agadir í Marokko. Talið er, að 95 af hverjum 100 húsum hafi hrunið og þar létu þúsundir manna lífið um leið og húsin féllu. Flóðbylgja skall upp á ströndina og fullkomnaði hún éyðilegginguna, þar sem hún náði til, Fréttir herma, að allt að 6000 manns hafi látið lífið og enn fleiri hlotið meiðsl. Lemstrað fólk var grafið upp úr rústunum Ákveðið var að jafna allt yið jörðu, þegar brottflutningi lif- andi fólks væri lokið,. og bera síðan sótthreinsunarefni yfir. rústirnar. Hitar eru miklir á þessum slóðum og rotnunin mjög pr og sjúkdómshættur miklar. Hættan á drepsóttum er svo mikil, að 300 manna lið, sem að. síðustu vann að sótthreinsun- inni, var sett í sóttkví að verki loknu. Fjöldi þjóða hefur rétt hjálp- arhönd til að lina þjáningar og allar þær hörmungar, sem þarna hafa yfir dunið. Hinar ógurlegu náttúruhamfarir hafa vakið ugg manna um allan heim, en sem betur fer, einnig samúð. ísland kynnt á vinabæjamóti í Álasundi og dagskráin send hingað á segulbandi íslandskynningarkvöld var ný- lega haldið í Álasundi í Noregi á vegum vinabæjasamtakanna á Norðurlöndum. Samkoman var mjög fjölmenn og ánægjuleg. Viðstaddir voru gestir frá vinabæjum Álasunds: Vesturás í Svíþjóð, Lathi í Finn- landi og Randers í Danmörku, en enginn frá Akureyri. Vinarkveðja. Dagfinn Flem flutti aðalræðu samkomunnar og mælti á þessa leið: Næst á eftir síldinni koma ekki betri gestir til þessa bæjar en þeir, sem koma frá vinabæj- um vorum og það hryggir okkur, að ekki skuli vera hér sérstakur fulltrúi frá vinabæ vorum, Ak- ureyri á íslandi. Við höfum lengi hugað að til- efni til að þakka Akureyri fyrir góða og kæfkomna gjöf til bóka- safns bæjarins. Við urðum ekki lítið undrandi og hrærðir, Álasundsbúar, þegar við, rétt eftir stríðið, fengum að gjöf 15 þús. kr. frá Akureyri. Oss var í sjálfsvald sett, hvernig þessu fé yrði varið og hefur í Framliald. á 2. siðu. Eðjufólk á Akureyri mófmælir VELTA ÞVÍ SÉR Á sunnudaginn var samþykkti mjög fjölsóttur. fundur í Iðju, fé- lagi verksmiðjufólks á Akureyri, harðorð mótmæli vegna efna- hagsaðgerða ríkisstjórnarinnar. Þar segir m. a.: „Almennur fundur haJdinn í Iðju, félagi verksmiðjufólks, Ak- ui'eyri, sunnudaginn 6. marz 1960, lýsir yfir fullkominni and- stöð.u sinni við gengisfellingarlög ríkisstjórnarinnar, og þær að- gerðir sem nú er verið að gera t efnahagsmálum, sem felst m. a. í hækkun opinberrar þjónustu, hækkun á almennu vöruverði, farmgjöldum, benzíni, kolum og olíu, hækkun á hvers konar er- lendum vörum til iðnaðar og bygginga, stórfelld hækkun bankavaxta, samfara lánsfjártak- mörkun o. fl. Bendir fundurinn á, að þæt- munu leiða yfir íslenzka alþýða stórfellda dýrtíð og vaxandi erf- iðleika í atvinnu- og viðskiptalífi þjóðarinnar. . . . “ ..... Iðja, félag verksmiðju- fólks, sendi eins og önnur laun- þegasamtök Alþingi og ríkis- stjórn aðvörun, er lögin um gengisfellingu íslenzku krónunn- arvoru til umræðu áAlþingimeð samþykkt, sem gerð var á aðal- fundi félagsins þann 31. janúar sl., en ekki var að neinu leyti tekið tillit til vilja verkalýðssam- takanna, ber ríkisstjórnin því ein ábyrgð á þeim aðgerðum, sem samtök vinnandi fólks hljóta að gera til að fá hlut sinn réttan.“ Menn eru að velta því fyrir sér, hvað núverandi stjómarflokkar hefðú fengið mörg atkvæði við kosningarn- ar í haust, ef þeir hefðu sagt satt og rétt frá þvi, hvað þeir ætluðu að gera eftir kosning- ar og nú er fram koniið. En hvort menn hugleiða þetta lengur eða skemur, er það víst, að nokkur glögg svör hafa borizt — þau felast í kosningum margra verka- lýðsfélaga um Iand allt. í hverju einasta félagi hafa stjórnarflokkarnir tapað vcru lega og vinstri menn hafa tek- ið forystuna í sumum þeim félögum, scni hægri menn höfðu áður. Stjórnarkjör verkalýðsfé- laganna cr atkvæðagreiðsla verkafólks um „viðrcisn“ rík- isstjórnarinnar. — Verkafólk trúir ckki á verðbólgu, okur- vexti og takmarkaða atvinnu, sem „leið til bættra lífskjara“.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.