Dagur - 17.08.1960, Blaðsíða 2

Dagur - 17.08.1960, Blaðsíða 2
2 - Samniregaviðræður við Breta Framhald af 1. siðu. inni um 12 mílna fiskveiðilög- sögu. Nokkru síðar gaf íslenzka ríkisstjórnin Bretum upp allar sakir fyrir hundruð landhelgis- brota og ofbeldi innan íslenzkr- ar landhelgi og hefur síðan slakað verulega á landhelgis- gæzlunni, sem kunnugt er, svo að sumir starfsmenn Landhelg- isgæzlunnar hafa kallað hana „hreinasta skrípaleik“. í hverri viku má svo lesa í hrezkum blöðum, hve vongóð brezka stjórnin er um samn- inga við íslendinga — og að þeir samningar væru í undirbúningi. íslenzka ríkisstjórnin þagði, þar til 10. ágúst, að hún staðfesti þá furðulegu breytingu, að taka upp viðræður við Breta, sem hafnað hefur verið fram að þessu. Tólf mílna fiskveiðilögsaga hér, er ekki samningsmál við eina þjóð eða neina. Aðeins al- þjóðlegar ráðstefnur geta fjallað um stærð landhelginnar. Að minnsta kosti 25 þjóðir hafa fært út sína landhelgi og fisk- veiðilögsögu á sama hátt og ís- lendingar gerðu og það hefur gilt. Það var stefna íslendinga frá upphafi, að þoka ekki um hársbreidd í deilunni við Bi’eta og semja ekki um nein frávik frá ákvörðun sinni um 12 mílna mörkin. Fiskveiðar Breta undir her- skipavernd í landhelgi hér við land, voru fyrirfram dæmdar, enda margviðurkennt af þeim sjálfum, að þess konar veiðar væru óframkvæmanlegar til lengdar. Sjálfir voru þeir hætt- ir sínum „skrípaleik" og engin rök hnigu að því,_að hefja slíkar veiðar á ný. Hinar þrjózkufullu ofbeldisaðgerðir Breta voru fyr- irfram dauðadæmdar og sigur íslendinga viss, ef fast var á málum haldið. Svo mikill var sigur íslendinga þegar í upphafi hins tveggja ára tímabils, að all- ar aðrar þjó.ðir en Bretar virtu 12 mílurnar í verki og hafa gert án nokkurra undantekninga og friðunin sjálf — verndun fiski- stofnsins — hefur komið að nær fullum notum, eða um 90% að áliti Landhelgisgæzlunnar og fiskifræðinga. Þx-ákelkni Bi-eta hlýtur að hafa næi’st á þeim veikleika, er þeir fundu og finna hjá núver- andi ríkisstjórn Ólafs Thoi’s. — Sakaruppgjöfin var undanhald. Nú er sú ein leið fær, að al- menningur í landinu grípi til sinna ráð.a og láti í ljós vilja sinn á ótvíræðan hátt, eins og fyrir 1. sept. 1958, þegar Sjálf- stæðisflokkui’inn beygði sig fyr- ir almenningsálitinu. Hann mun aftur gera það nú, ef þjóðai’vilj- inn er einhuga eins og þá, og um það verður ekki efast. ÁLLINN STAÐINN AÐ VERKI íslandi hefir lengi verið grið- land eða eins konar Paradís ál- anna. Óáreittir hafa þeir hlykkj- ast um læki og tjarnir, vötn og síki, fii'ði og flóa. Eyjaskeggjar hafa litið á þessa löngu fiska með velþóknun og undi'ast, að útlendingar skuli veiða þessi fögru vatnadýr og leggja sér til munns, og meira að segja telja þau munnvatnsaukandi lostæti. En nú hefir orðið breyting ó, því Ál-Adam hefur bitið í eplið af skilningstré góðs og ills, og nokkurt útlit fyrir, að Paradísin verði ekki lengur sú Paradís, sem hún áður var. Svo er mál með vexti, að þar sem heitir á Hoinafirði austur, hafa hinir innfæddu lagc net í ósinn og veitt í silunga. Hefir veiði verið allgóð, en í sumar gerðust þar váleg tíðindi í samþandi við téðan veiðiskap. Á því tók að bera, að margir silunga þeirra, sem ánetjuðust, voru all undai’- lega á sig komnir, er þeir voru dregnir úr djúpi. Þeir voru næstum ekkert nema beinin og roðið. Á bak og burt voru öll inniflin svo og allt hold þar í kring, en x-oðið hékk eins og tómur poki neðan á fiskinum. Er ekki að undra, að Hornfiro- ingum þætti þetta stórteikn og illa viðunandi. Bi'átt komst þó upp um sökudólginn, því hér hafði Ál-Adam verið að vei'kiog silungui-inn var auðvitað eplið, sem ekki mátti bíta í. Við at- hugun kom í ljós, að állinn lagð- ist á fiskinn í netunum og át sig inn við tálknin, gæddi sér á inniháldiixu, en lauk máltíðinni með því að éta sig út við got- raufina. Þótti Hornfirðingum óllinn hafa misnotað gestrisni þeirra á hinn herfilegasta hátt og sýnt hina mestu fúlmennsku, og hugðu þegar á hinar grimmi- legustu hefndir. Búið er nú að útvega álagildrur frá Dan- möi'ku og bráðlega vei'ður lagt til atlögu við vágestinn. Má vel vera, að hér s éupphafið að ála- veiðum íslendinga, og væri það mjög gleðilegt fyrir alla, nema álinn. (Sjávai'afui'ðadeild SÍS.) Verðiækkun á kartöílum Nýjar íslenzkar kartöílur áöur kr, 7.50 nú kr. 3.75. KJÖIBÚÐ K.E.A. - Sýning lislaverka á Ak. Framhald af 1. siðu. blað, hvorki hér eða syðra, hvatti til framkvæmda. En Menntamálai'áð, séi'staklega fi'.kv.stj. þess, Gils Guðmundss., Magnús E. Guðjónsson bæjai’- stjói’i á Akureyri, svo og bæjai'- stjórnai’menn, voru þessai'i ný- ung hlynntir, þegar hún hafði verið kynnt á opnum vettvangi. Gísli Konráðsson flutti svo mál- ið í bæjarstjói'n með þeim ái'- angi-i, að nefnd vai' skipuð til að annast framkvæmd af bæjarins hálfu og stóðu nú allar hendur fram réttar og hugmyndin vai’ð veruleiki síðasta fimmtudag, er Listasafnið opnaði sýningu mál- verka í húsakynnum Gagn- fræðaskólans á Akureyri, að viðstöddum um 80 boðsgestunx Helgi Sæmundsson, formaður Menntamálaráðs, ávai’paði við- stadda með snjallri í-æðu, Stein- dór Steindói’sson, formaðixr þeiri’ar nefndai’, sem bæjai'- stjói-n kaus til að vinna að mál- inu, þakkaði Menntamálaráði og Listasafni ríkisins fyrir hönd bæjarins. Báðir ræðumenn gátu þess, að þessa atburðar yi’ði lengi minnst, sem fyi'stu heim- sóknar Listasafns ríkisins út á landsbyggðina. Dr. Selma Jónsdóttir hafði valið málvei'kin á þessa sýn- ingu, 20 að tölu, og eiga þau að gefa nokkra innsýn í stefnur Og strauma jafnmargra höfunda í þessari listgrein. Höggmyndir voru ekki fluttar norður að þessu sinni. Akui'eyrai'kaup- staður á ekkert húsnæði fyrir listasafn. Enginn skóli hér hef- ui' húsnæði umfram þarfir á skólatíma. En sennilegt er, að innan skamms þyki nokkui's um það vert, að í höfuðst. Norð- ux-lands sé opin sýning lista- vei-ka árið um ki'ing. Að því þarf að vinna og þar geta bæjar- búar lagt nokkuð af mörkum. Sýningin er opin kl. 5—7 og 8—10 síðdegis vii'ka daga, og frá kl. 2—10 á sunnudögum — og er ókeypis aðgangui’. Björg Hðlldórsdóltir LJÓSSTÖÐUM. Dáin 28. júlí 1960. KVEÐJA FRÁ BÖRNUM OG FÓSTURBÖRNUM. Við kveðjum þig með kærleiksríkum huga þér Kristur launar fyrir allt og allt. 17 Þú varst svo sterk og lézt ei böl þig buga og birtan skín í gegnum húmið kalt. Það er gott er lífsins degi lýkur, að Ijómi birta um þann sem kvaddur er. Því eitt er víst, að Guð vor gæzkuríkur, glaða framtíð hefur búið þér. Kæra mamma, ljiifur Guð þig leiði, um landið efra að Edens fögrum lund, og á þinn legstað blóm sín fögur breiði, svo blessi Drottinn þessa Iiinztu stund. í okkar hjarta Ijúf þín minning lifir, þú leiddir okkur fyrstu bernsku spor. Við biðjum Guð, sem ræður öllu yfir, að enn þér skíni blessuð sól og vor. Og fósturbörnin þúsund þakkir færa, þú varst okkar stoð er vorum smá. Og allt hið fagra er léztu okkur læra, er langtum meira virði en orðin tjá. Hjartans þakkir, elsku mæta móðir, þér miskunn veiti Guð svo hvílist rótt. Þig verndi og gæti allir englar góðir, ástarþakkir, mamma, góða nótt. HALLDÓR JÓNSSON. Til karföfluframleiðenda Þeir, sem ætla að biðja oss fyrir kartöflur til sölumeð- ferðar, af uppskeru þessa árs, þurfa að tilkynna oss fermetrastærð þess lancls er þeir hafa sáð kartöflum í og einnig hvaða tegundir ræktaðar eru og eigi síðar en 31. ágúst næstkomandi. KAUPFÉLAG EYFIRÐINGA Nú heyrist tæplega talað um þorsk, allt snýst um síldina. En þorskafli er víða góður og mun gefa drýgri hlut en á mörgum síldarskipum. Þessi nýja mynd er frá Vopnafirði. Þar hefur afli verið góður undanfarið. — (Ljósmynd: E. D.).

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.