Dagur - 17.08.1960, Blaðsíða 6

Dagur - 17.08.1960, Blaðsíða 6
6 Uggvænlegar tölur „Afkastageta allra frystihúsa á landinu í lok s. 1. árs var 1.395 lestir af flökum miðað við 16 tíma frystingu á sólarhring, en þar svarar nokkurn veginn til 12 klst. flökunarvinnu. Með þessum afköstum er hægt að vinna 4.600 lestir af slægðum fiski með haus á dag, eða 1,4 milljónir lesta á 300 dögum. Heildarfiskaflinn á s. 1. ári var hins vegar um 564 þús. lestir, þar af fóru til frystingar 236 þús. lestir af þorski, karfa o. fl. ásamt 15 þús. lestum af síld, en þetta magn samsvarar tæp- lega 60 daga vinnslu að jafnaði. Nú má auðvitað ekki ganga fram hjá þeirri staðreynd, að þessar tölur einar segja ekki allan sannleikann, og verður að taka tillit til hinna árstíða- bundnu aflabragða, sveiflna á mörkuðum o. fl. En þrátt fyrir þetta hljóta þessar tölur að vekja ugg, og þær eiga jafn- framt að sínu leyti að geta gef- ið skýringu á því, hversu hlut- fallið á milli fjárfestingar ann- ars vegar og framleiðsulaukn- ingar hins vegar er okkur óhag- stætt. (Úr framsöguræðu MÁS ELÍSSONAR, h.agfræðings, á fundi í Hagfræðifélagi íslands 7. apríl 1960, en hún er prentuð í ritinu „Úr þjóðarbúskapnum“, maí 1960). ÞÁ SKELFAST ME Öðru hvoru koma hingað er- lendir sérfræðingar á ýmsum sviðum og láta uppi álit sitt á íslenzkum málefnum. — Eftir þýzkum skógræktarfrömuði, próféssor Herbert Hesmer, er það haft, að hvergi hafi hann séð hroðalegri uppblástui' lands en á íslandi. Þá hrukku menn við og skelfdust og' mátti sjá þess merki í öllum stærstu blöðum landsins. Það er hollt fyrir íslendinga að hugleiða hina ógnandi nið- urstöðu prófessorsins og viðvör- unarorð, ekki vegna þess að þetta sé ný og áður óþekkt speki, heldur vegna þess, að of mikið tómlæti ríkir hér á Iandi um gróðurfar landsins, þrátt fyrir virðingarverðar og árang- ursríkar tilraunir á nokkrum stcðum í heftingu sandfoks. Matvælaöflunin í heiminum •IIIIIIIIII llll IIIIIIIIIIIIIII11111IIIIIIIIM j HEIMA ER BEZT j í ágústhefti Heima er bezt, segir Gisii í Skógargerði frá síð- ustu diigum Möðruvallaskóla og Hólmgeir Þorsteinsson ritar grein- ina Feigðarboði og Árni Árnason grein, sem hann nefnir Tólf ára háseti. Ragnar Ásgeirsson segir frá bændaför A.-Skaftfellinga og Árm. Kr. Einarsson frá ferð uni Noreg. Auk þessa eru framlialdssögurnar o. m. fl. er mesta áhyggjuefnið um þess- ar mundii' — næst á eftir beizl- un kjarnorkunnar. Fólksfjölgun in er gífurleg, og nú þegar er mjög verulegur hluti mann- kyns vannærður. í þéttbýlli löndum er hver landskiki dýr- mæt eign. Þar er víða varið stórkostlegum fjárhæðum til að vinna aftur það land, sem eyð- ingaröfl manna og náttúrunnar hafa lagt í auðn. Fræ- og áburðardreifing úr lofti, skógrækt, nokkur friðun og aukin sandgræðsla með hin- um eldri aðferðum, eru stór- felld framtíðarverkefni þjóðar- innar allrar. Gróðurrannsóknir á nokkru árabili í byggð og óbyggð og niðurstöður þeirra, mundi varpa Ijósi á hina miklu hættu. Ræktun hefur fleygt fram hér á landi, svo að þar er talað um risaskref, og er það rétt, miðað við fólksfjölda. En eyð- ing gróðurlendis hefur því mið- ur líka orðið stórkostlég, þótt víða fari eyðingin svo hægt, að ekki hafi raskað ró manna eða snúið til aðgerða, nema á fáum stöðum. Okkur ber skylda til þeirra landvarna, að koma í veg fyrir að jarðvegurinn sóp- ist burtu af gróðurlendinu. Van- rækslu í því efni eru svik við land okkar og komandi tíma. — HLJÓÐFÆRAMIÐLUN Til söiu: 2 píanó, 2 orgel, harmonika, gítar, mandó- lín, trommusett. Hefi kaupanda að litlu píanói (,,pianetta“). Haraldur Sigurgeirsson, Spítalaveg 15, Akureyri, síxtti 1915. PERUR og allt RAFLAGNAEFNI ódýrast hjá okkur. VÉLA- OG RAFTÆKJASALAN H.F. Strandgötu 6 — Sími 1253 FJÁREIGENDUR á Akureyri, sem óska að fá sauðfé slátrað á Slátur- húsi K.E.A. í haust, þúrfa að tilkynna það undirrit- uðum fyrir 28. þ. m. Ármann Dalmannsson, sími 1464. DÉCIMALVOGIR Vigta allt að 250 kg., nýkomnar. VERZLUNIN EYJAFJÖRÐUR H.F. NYIT SÖNGLAGA- HEFTI K0MI9 ÚT Jón Jónsson tónskáld frá Hvanná hefur nýlega sent frá sér sönglagahefti með sjö lögum við ýmis kunn ljóð eftir nokkur beztu skáld þjóðarinnar, t. d. Davíð Stefánsson, Tómas Guð- mundsson og Guðmund Inga Kristjánsson. Fjórum árum áð- ur hafði Jón samið og gefið út sitt fyrsta sönglagahefti með fimm lögum. Mörg sönglög hans hafa orðið sérstaklega vinsæl og sungin af ungum og gömlum um land allt, og nægir þar að nefna lagið Capri Catarina og Selja litla. En auk þeirra laga, sem út hafa komið á prenti, á höfundurinn mikinn fjölda sönglaga í handriti, enda fór hann ungur að fást við tónsmíð- ar. Móðir hans var mikill unn- andi tónlistar og hjá henni seg- ist Jón hafa fengið áhuga fyrir tónlist. Hann lærði á unga aldri að leika á píanó og flygel og var um mörg ár organleikari við ísafjarðarkirkju og hljómsveitar stjóri á ísafirði um 20 ára skeið. Jón tónskáld er sonur hins þjóðkunna manns, Jóns Jóns- sonar, fyrrv. alþigismanns á Hvanná, og konu hans, Gunn- þórunnar Kristjánsdóttur. Hann varð gagnfræðingur frá ísafirði, en stundaði síðar nám í Sam- vinnuskólanum í Reykjavík og lauk þaðan prófi við þáðar deildir skólans á einum vetri. Hefuí- síðan lengst af dvalið á fsafirði við margvísleg störf, en jafnframt hefur hann gefið sér tíma til að sinna áhugamálum sínum á tónlistarsviðinu. Nú dvelur Jón á Heilsuhæli N. L. F. í. í Hveragerði. Hann varð fimmtugur 9. júlí sl. G. S. Með gamla verðinu KARLM.SKYRTUR P E Y S U R N Æ R F Ö T SOKKAR KVENPEYSUR BARNAPEYSUR Ú L P U R BARNAKÁPUR -----o- FALLEGAR SLÆÐUR ódýrar. KLÆÐAVERZLUN SIG. GUÐMUNDSSONAR H.F. Garðsláttuvélar tvær stærðir. Birgðir mjög takmarkaðar. VERZLUNÍN EYJAFJÖRÐUR H.F. iILKYN Þeir, sem eiga matvæli geymd að hafa tekið þau, í síðasta laj Kaupfélag Svalb 'NING x fxystihúsi voru, verða ;i, fyrir 25. ágúst n. k. arðseyrar ÁBt Þeir, sem kaupa áburð eyrar eru minntir á að Eftirstöðvar pantanann ar strax, þar eð öll á færð h KAUPFÉLAG á vegum Kaupfélags Svalbarðs- áburðarpantanir eru bindandi. a, sem vera kunnu, óskast tekn- burðarpöntunin verður skuld- á viðkomandi. SVALB ARÐSEYR'AR ATVINNA Stúlka eða kona óskast til heimilisstarfa. — Vinnu- tími til kl. 5 e. li. virka daga. Frí alla sunnudaga. Herbergi getur fylgt. Afgr. vísar á. KONA ÓSKAST til hreingerninga í verzlun. Afgr. vísar á. MILLÍFOÐUR til að strauja á efnið Köflótt pilsefni ✓ Odýr barna- og ' kvemiærföt Lífstykki, sokkabandabelti og brjóstahöld í fjölbreyttu úrvali. ANNA & FREYJÁ Stálborðbúnaður Hinn margeftirspurði danski og finnski STÁLBORÐBÚNAÐUR er kominn aftur. Úra og skartgripaverzlun FRANK MICHELSEN Kaupvangsstr. 3 - Sími 2205 ÞVOTTAVEL OG RAFELDAVÉL TIL SÖLU Uppl. í síma 1188. TIL SÖLU Royal Enfields mótorhjól í góðu ásigkomulagi. Uppl. í Véla- og raftækjasölunni Strandg. 6 — Sími 1523 JAVA MÓTORHJÓL í fyrsta flokks lagi, til sýn- is og sölu í Radioviðgerðarst. Stefáns Hallgrímssonar, sími 1626. NYLEGUR SYEFNSOI l TIL SÖLU Guðlaugur Baldursson, sími 2288. NYJAR BUSSUR TIL SÖLU Ásgrímur Þorsteinsson, Aðalstræti 74. TIL SÖLU: Borðstofuborð, 2 stólar stoppaðir, fataskápur, grammófónn og plötur. Uppl. í Víðivöllum 14, sími 2240. GÓÐ MIELE SKELLINAÐRA TIL SÖLU Uppl. í síma 2451. VALBORÐ 4x9 feta, finnsk, kosta að- eins kr. 80.60 platan. VERZLUNIN EYJÁFJÖRÐUR H.F. GIRÐINGANET tvær breiddir, nýkomin. Þeir, sem eiga hjá okkur pöntuð net eru vinsaml. beðnir að vitja þeiiæa strax, annars seld öðrum. VERZLUNIN EYJAFJÖRBUR H.F.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.