Dagur - 17.08.1960, Page 8
8
LÖNG ER ORÐIN ÞEIRRA REISA
Tveir lisíamenn frá Astralíu hér á ferð og vilja fá atvinnu
r
um nokkurra vikna skeið - Ætla að skrifa bók um Island
Sn. tók þessa sildarmynd á Siglufirði í sumar.
Urslitin í fegurðarsamkeppninni
á Langasandi mjög ánægjuleg
Ungfrú Sigríður Geirsdótfir meða! þriggja fegurstu
Síðan komið var á fót kvenna-
sýningum í Reykjavík, hafa þær
notið mikilla vinsælda, sem
dægrastytting suður þar. Út-
nefning fegurðardrottningar ís-
lands nr. eitt og tvö o. s. frv.
hefur verið gert að spennandi
atburði með látlausum áróðri
útvai-ps og blaða.
Reykjavíkurstúlkan Sigríður
Geirsdóttir vann þann óvænta
sigur á Langasandi — Long
Beach — um síðustu helgi, að
vera talin þriðja fegursta kona
hinnar miklu fegurðarsam-
keppni þar, og þessi tvítuga feg-
urðardís mun hafa fleiri góða
eiginleika til að bera en fegurð-
ina eina. Trúlegt er, að vegs-
auki hennar gefi henni þau
tækifæri, sem hún kann að meta
og nota, auk 100 þús. króna
verðlauna.
Þegar úrslit fegurðarsam-
keppninnar voru á næstu grös-
um og kunngert var, að himií®..
lenzka ungfrú hefði verið ‘kjörin
bezta fyrirsætan, skrifaði há-
spenntur, reykvískur blaða-
maður: „Að þessu sinni — í
fyrsta sinn í mankynssögunni —
■vau. ungfrú ísland í hópi þeirra
15 fegurðardísa, sem kepptu til
úrslita."
Því miður hefur blaðinu ekki
tekizt að ná í góða mynd af ung-
frú Sgiríði Geirsdóttur.
f------------------------------
Dr. Richard Beck flyfur
erindi í Akureyrarkirkju
Dr. Richard Beck flytur fyrir-
lestur í Akureyrarkirkju í
kvöld, miðvikudag, á vegum
Matthíasarfélagsins og Zonta-
klúbbsins.
Fyrirlesturinn fjallar um séra
Matthías Jochumsson og pater
Jón Sveinsson, Nonna.
Aðgangur er 25 kr., og er hér
gott tækifæri fyrir þá, sem vilja
styrkja Matthíasarfélagið og
Zontaklúbbinn um leið og þeir
sækja erindi hins kunna fræði-
-manns- og Islandsvinar.
, :Kirkjukór Akureyrár syngui’
.nökkui- lög.
Tveir ungir og myndarlegir
Ástralíumenn litu inn á skrif-
stofur blaðsins á mánudaginn.
Koma erlendra ferðamanna
vekur enga undrun hér um
slóðir, en menn þessir eru á
nokkuð sérstæðu ferðalagi. Þeir
fóru að heiman fyrir 6 árum og
hafa síðan verið á fex-ðinni um
hálfan hnöttinn, unnið fyrir sér
tíma og tíma í stað, blandað
geði og lífskjörum við innfæddá
á hverjum stað, málað og selt
eða gefið myndir og safnað efni
í margar bækur, sem þeir
hyggjast gefa út að ferð lokinni,
eina bók um hvert land.
Ferðalangarnir heita Roy
Wiight og Tom Mosley, sá fyrr-
nefndi frá Sidney og hinn frá
Adelaide og eru iistmálarar. —
Þeir hafa nú dvalið í flestum
löndum Evrópu, meðal annars á
Norðurlöndum, og ætla að
dvelja hér tvo eða þrjá mánuði.
Fyi-st fóru þeir um Suðurland
og voru mjög hrifnir af ýmsum
stöðum, séi’staklega vai'ð þeim
tíðrætt um sérkennileik og tign
landslagsins undir Eyjafjöllum
og á Djúpavogi.
Síðan héldu þeir aust-
ur fyrir land og allt hingað til
Akureyrar. En nú vantar ferða-
peninga til að ljúka hringferð-
inni um landið og vilja þeir fá
nokkurra vikna vinnu hér í bæ
eða annars staðar og kynnast
um leið fólkinu og lifnaðarhátt-
um þess og íslenzku máli. En
þeir bjarga sér á fjölmöx’gum
tungumálum.
Wright og Mosley rifjuðu upp
nokkra skemmtilega atburði úr
ferðalögum sínum og margt hef-
ur á daga þeirra di’ifið á sex ára
ferðalagi, sérstaklega vegna
þess, að þeir ferðast ekki eins
og venjulegir ferðamenn, held-
ur dvelja meðal fólks og taka
hvarvetna upp lifnaðax'hætti
þess, enda er sú leiðin girni-
legiá til fróðleiks, þótt ekki sé
hún þrautalaus. Þeir ferðast
stundum fótgangandi, hafa not-
að hvers konar farax’tæki, svo
sem uxavagna, járnbrautir, bíla
og flugvélai'.
Næsti áfangi er Kaupmanna-
höfn, þar sem þeir ætla að sýna
málverk frá íslandi, er þeir
vinna að um þessar mundii'.
Landsmót UMFIað Laugum 1961
Landsmót Ungmennafélags
íslands mun fara fram að Laug-
um árið 1961. Undirbúnings-
nefnd mótsins kom þar saman
hinn 20. júlí síðastliðinn. Nefnd-
in skipti þar með sér störfum
og athugaði allar aðstæður til
hátíðahaldanna,
Staðuririn er mjög góður,
bæði með tilliti til íþrótta-
keppni og móttöku gesta. Þar er
stór og glæsilegur íþróttavöllur,
sem nýlega hefur verið stækk-
aður. Verið er að byggja palla
fyrir áhorfendur.
Húsakynrii skóláhs að Laug-
um eru mikil og hefur þar verið
unnið að viðbótarbyggingu, þar
sem koma skal rúmgóður mat-
salur og eldhús. Landsmóts-
nefndin væntir þess, að viðbót-
arbyggingunni verði lokið fyrir
landsmótið næsta sumar.
Aðstaða til starfsíþi'ótta er
mjög góð. Keppt verður í þeim
bæði úti og inni. Til þess eru
rúmgóð salarkynni.
Formaður undirbúningsnefnd-
ar að landsmótinu er Óskar
Ágústsson, kennari að Laugum.
iiiiiiiiniiiiii
111111 ■ i ■ 11 ■ i ■ 111111
i iii ii iiiii■111111 ■
111 ■ 1111 ■ i ■ 111
ii iiiiii 111111111111 iiiiiiiiuiiiinmm niiiiinuuiiuiii 11111111111111111111111111 ■ ■iiiiitiiiiiiiiiiliiilliiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiii,iiltiiliiiiiiiiii-
LJÓTUR VITNISBURÐUR
FISKFLUTNINGUR MEÐ FLUGVÉLUM |
liggja í blóðvatninu, og svo tvöföldum botni til fiskflutn-
vildi það líka koma fyrir, að inganna og er að vænta, að
pokarnir rifnuðu. Búið mun nú næsti farmur komist á leiðar-
vera að útvega plastkassa með enda í fyrsta flokks ástandi.
Svarfbakur friðhelgur á Akureyri
Það var merkur áfangi í sögu
fiskútflutningsins, þegar fluttur
var út fyrsti farmurinn af nýj-
um fiski með flugvél til Hol-
lands nú um daginn. Heyrzt
í skýrslu Landsbankans
segir m. a. svo:
„Óhjákvæmilegt var að
viðhafa gjaldéyrisskömmtun
allt árið . . . „Þrátt fyrir
þetta varð greiðsluhallinn
við útlönd á árinu 1959 meiri
en nokkurt undanfarin ár.
Samkvæmt lauslegum áætl-
unum virðist greiðsluhallinn,
miðað við vörur og þjónustu,
hafa orðið að minnsta kosti
200 milljónir kr., en var 91
millj. kr. 1958 og 166 millj.
kr. 1957. -Þessi mikli greiðslu
halli var jafnaður með er-
lendum lántökum og rým-
andi gjaldeyrisstöðu bank-
anna, sem kom fyrst og
fremst fram í stórauknum
bráðabirgðyfirdráttarlánum
Seðlabankans.
Af erlendum lántökum
voru notaðar á árinu, sam-
kvæmt bráðabirgðayfirliti
170 milljónir kr. Heildarupp-
hæð fastra, erlendra skulda
er í árslok orðin um 1100
milljónir króna.“
„Verzlunarhallinn varð
486.7 millj. kr. og var mis-
munurinn greiddur með
duldum gjaldeyristekjum,
erlendum lántökum og rýrn-
andi gjaldeyrisstöðu hank-
hefur, að framhald muni verða
á þessum flutningum, bæði hjá
sömu aðilum og fluttu út til
Hollands og einnig munu Vest-
mannaeyingar ætla að senda
fai-m af nýjum flatfiski til
Lundúna.
Þegar Sólfaxi fór til Hollands,
var fiskurinn pakkaður í plast-
poka, sem settir voru í pappa-
kassa. Þessi pakkning reyndist
ekki vel, því það fór illa með
fiskinn, að hann var látinn
1111 lli 11 ■ ■ ■ 1111111 ii ■ 1 ■
WVVVW^Vs/VVVSAAAAA/VVWVVS/^Vs/WVsAA/VVV-/\/nAAA/VVV</VVVnA/-AAAAAAA/VVVS -aa/ ^
I FALSAÐAR ÁVÍSANIR j
Á hverju sumri undanfai'ið
hafa falsaðar ávísanir vei’ið
gefnar út og vertð seldar hér í
bæ.
Nú síðast voru falsaðar ávís-
anir með nafni góðs boi'gara í
Hafnax-fix'ði gefnar út og seldar
hér fyrir fáum dögum og hljóð-
uðu upp á nokkur þúsund kr.
Það er mjög illt að þurfa að
toi'tx-yggja ávísanir yfirleitt
vegna óþokka, sem falsa nöfn.
Það bar við á þriðjudags-
kvöldið, fyrir viku, er flugvél
var að lenda á Akureyrarflug-
velli, að svartbakur leriti í öðx'-
um mótoi’num og gerði farkost-
inn óflughæfan. Flugvél þessi,
sem var af Douglas-gerð og í
áætlunai-flugi Flugfélags ís-
lands og með 20 fai'þega innan-
boi'ðs, lenti þó heilu og höldnu
en gat ekki hafið sig til flugs
aftur.
Á Akui'eyri er svartbakur-
inn friðhelgur, eins og kýmar
á Indlandi. Landslög fyrirskipa
mönnum að drepa svai'tbak, en
í höfuðstað Norðurlands er
þessi fugl alinn alveg sérstak-
lega með ríkmannlegum matai’-
gjöfum daglega og algerlega
friðaður í bæjarlandinu. Hér er
því einstök Paradis fyrir þessa
fuglategund.
Leirurnar austanverðar eru
oft þaktar af svartbak og þar er
séi'stakur varphólmi þessa stói'a
fugls, þar sem áður urpu endur.
En dekur Akui'eyringa við
svartbakinn gengur helzt til
langt, þegar umferðinni stafar
hætta af, eins og atbui'ðurinn á
þi'iðjudagskvöldið sannar.
Ekki sýnist nú annað ráð
vænlegra, en að flugmálastjórn
og Akureyrarkaupstaður taki
höndum saman og fari úti-ým-
ingarherferð gegn svai'tbak, áð-
ur en verxileg umferðaslys
hljótast af.