Dagur - 02.11.1960, Qupperneq 8
8
iiiiiiiiiiiiniiiiiiini
imiiiiiiiiiimmimiiiiiiiiiii
Sfjórn A.S.I. hefur gert frumdrög að kjarakröfu
og býður ríkissfjórninni viðræður
MIÐSTJÓRN Alþýðusambands Islands hefur samþykkt frum-
drög að kjarabótakröfum verkalýðsfélaganna í væntanlegum
samningum við atvinnurekendur og hefir boðið ríkisstjórninni
viðræður um þau.
Kröfurnar eru þessar samkvæmt nefndum frumdrögum:
1. Kaupkröfur 15—20%.
2. Almenn stytting vinnu-
tímans í 44 klst. á viku, þann-
ig að ekki verði unnið eftir
hádegi á laugardögum. Kaup-
ið verði sama og nú er fyrir
48 stunda vinnuviku.
3. Kaupgjaldsákvæði samn-
inga falli úr gildi og nýjar
samningaviðræður verði tekn-
ar upp, ef verðlag hækkar um
ákveðna hundraðstölu, t. d.
3%.
4. Krafa um, að fast viku-
kaup verði greitt alls staðar,
þar sem hægt er að koma því
við. Þar sem því verður ekki
viðkomið, verði tímakaupið
4% hærra.
5. Allir eftirvinnutaxtar
verði afnumdir, og öll vinna,
sem unnin er umfram dag-
vinnu, verði þannig greidd
með 100% álagi á dagvinnu-
kaup.
6. Kröfur um almeiint
kvennakaup verði eigi lægri
en kvennanefnd sú, sem kos-
in var s. 1. vor á kvennaráð-
stefnu A.S.Í., hefur sett fram,
og birtar hafa verið sam-
bandsfélögunum í bréfum
dags. 20. sept. og 4. okt. sl.
Megin efni þeirra er það, að
bilið milli kvennakaups og
karla styttist þannig, að
kvennakaupið yeröi ekki
lægra en 30%’ af almennu
karlmannskaúpl ög' að undir
karlmannskaup falli nokkru
fleiri vinnuflokkar en hingað
til, Þar á meðal öll ræstingar-
vinna, öll vinna i sláturhúsum
öll vinna við blautan saltfisk
og skreið svo og við humar
o. s. frv.
Ríkisstjórnin hefur enn
ekki óskað viðræðna við Al-
þýðusambandið. □
i SEMENT FLUTT UT
E SAMIÐ hefur verið um sölu á
1 20 þús. tonnum af sementi frá
I Sementsverksmiðjunni til Bret-
l lands. Bæði verður Portland-
\ sement selt og ofurlítið af hrað-
E sementi.
1 Útflutningur mun hefjast í
1 næsta mánuði.
1 Eftirspurn á innlendum mark-
\ aði hefur dregist mjög saman nú
[ í'ár. □
| Fjársöfnun
' Framsóknarflokksins
lll III lll 11111II ■ 11
II1111111111111111111111111ii
Mikill áhugi er á Norðurlandi fyrir
Jökulsár á Fjöllum
.>•»» j'A&2í -
VIRKJUN Jökulsár á Fjöllum hefur lengi verið rædd, en nú virð-
ist sem áhugi á málinu sé nú almennari en fyrr. M. a. hefur verið
bent á möguleika þá, sem eru á því, að koma upp stóriðju í ein-
hverri mynd í sambandi við virkjun árinnar.
Málið bar á góma í Þingeyjar-
sýslu í sumar og ályktanir voru
gerðar um málið. Fara hér á eft-
ir ályktanir frá sýslunefnd N.-
Þingeyjarsýslu, raforkumála-
nefnd N.-Þingeyjarsýslu og
Fjórðungsþingi Norðlendinga á
Húsavík:
Sýslunefnd N.-Þ. segir:
„Sýslunefnd Norður-Þingeyj-
arsýslu- lýsir yfir því, að hún
telur mjög mikilsvert, að lokið
verði sem fyrst áætlun um
virkjun Jökulsár í Axarfirði og
athugun á möguleikum til iðn-
aðar í því sambandi.
Jafnframt fer hún þess á leit
við alla fulltrúa Norðurlands á
Alþingi, að þeir vinni að því af
alefli, að virkjun Jökulsár verði
næsta stórvirkjunin, sem ráðist
verður í hér á landi.“
Raforkumálanefnd N.-Þ. segir:
„Fundur raforkumálanefndar
Norður-Þingeyjarsýslu haldinn
að Kópaskeri 10. ág. 1960, skor-
ar á Alþingi og raforkumála-
stjórn að láta eins fljótt og frek-
ast er unnt, gera fullnaðaráætl-
un um virkjun Jökulsár á Fjöll-
um og jafnframt láta athuga til
hlítar möguleika á nýtingu ork-
unnar, einkum með framleiðslu
útflutningsvöru fyrir augum.
Samkvæmt þeim upplýsing-
um, sem fyrir liggja, er hér um
glæsilegt framtíðarverkefni að
ræða og telur nefndin miklu
skipta fyrir þetta hérað og Norð-
ur- og Austurland allt, að virkj-
FRAMSOKNARVIST
Á FÖSTUDAGINN
Næsta framsóknarvist verður
spiluð að Hótel KEA nk. föstu-
dagskvöld kl. 8,30. Aðgöngu-
miðar verða seldir í skrifstofu
Framsóknarflokksins á fimmtu-
dag og föstudag, eftir liádegi,
og við innganginn. □
un Jökulsár verði næsta stór-
virkjun, sem framkvæmd verður
hér á landi, enda skilyrði, að
því er virðist, hvergi betri.“
Tillagan var samþykkt sam-
hljóða.
I raforkumálanefndinni eru 9
fulltrúar, sem mættir voru á
fundinum, þ. á. m. oddvitar 7
hreppa. Formaður nefndarinnar,
er Helgi Kristjánsson, bóndi í
Leirhöfn.
Vanefndir í raforkumálum.
„Fundur raforkumálanefndar
Norður-Þingeyjarsýslu, haldinn
að Kópaskeri þann 10. ágúst, tel
ur að Alþingi og ríkisstjórn hafi
enn ekki sýnt lit á að uppfylla
að neinu leyti, að því er Norð-
ur-Þingeyjarsýslu varðar, þau
fyrirheit, sem gefin voru, með
samþykkt hinnar svokölluðu tíu
ára áætlunar, sem Alþingi sam-
þykkti árið 1954, um rafvæð-
ingu landsins, frá vatnsaflsvirkj-
unum ríkisins, þar sem Norður-
Þingeyjarsýsla var, við áætlun-
argerðina, sett á aftasta bekk í
þessu efni, en virðist nú eftir
nýjustu heimildum, hafa verið
tekin út af þeirri skrá, a.m.k. um
næstu framtíð. Þetta lízt héraðs-
búum og nefndinni skuggalegt
útlit og óviðunandi, og vill
sterklega mótmæla því.
Heitir nefndin á raforkumála-
stjórn ríkisins og Alþingi, að
endurskoða núverandi afstöðu
sína til þessa máls, með það fyr-
ir augum, að tíu ára áætlunin
verði látin ná til sýslunnar, að
því er varðar dreifingu raforku
til almennings með hliðsjón af
því sem áætlað var, og fer þess
á leit, að samráð verði sem fyrst
haft við nefndina, af hálfu
stjórnarvalda, um undirbúning
framkvæmdanna. Einnig vill
nefndin eindregið skora á alla
alþingismenn Norðurlandskjör-
dæmis eystra, að fylgja þessu
máli fast eftir á Alþingi, og við
ríkisstjórn."
Nefndin skorar á þingmenn
kjördæmisins, að vinna að fram-
gangi málsins, samkv. ályktun
þessari.
Tillagan samþykkt í einu
hljóði.
Jökulsá og stóriðja.
„Fjórðungsþing Norðlendinga,
haldið á Húsavík 11. og 12. júní
1960, leyfir sér að skora á yfir-
jstjórn raforkumála ríkisins að
láta, svo fljótt sem verða má,
ljúka fullnaðaráætlun um virkj-
un Jökulsár' á Fjöllum og'.jafn-
framt athuga möguleika á að
koma upp stó.riðju til fram-
leiðslu á útflutningsvöru í sam-
bandi við virkjunina. Telur
Fjórðungsþingið, að virkjun Jök
ulsár, — ef fullnaðaráætlun leið-
ir í ljós, að hún sé hagfelld, svo
sem líkur virðast benda til, ——
eigi að ganga á undan virkjunum
sunnlenzkra vatna til stóriðju,
vegna nauðsynjar þeirrar, sem á
því er að efla janfvægi í byggð
landsins." □
Þeir Akureyringar, sem feng-
ið hafa áskorun um að leggja
fram fé í söfnun Framsóknar-
flokksins, eru vinsamlegast
beðnir að hafa samband, við
Ingvar Gíslason sem allra fyrst.
□
Stálgrindahlaða
MIKIL stálgrindahlaða er nú í
byggingu hjá Snaebirni bónda á
Grund og mun hún koma til
með að taka á þriðja þúsund
hesta. Þótt bændur séu tölu-
vert stórstigir í framkvæmdum
á búum sínum, mun þetta þó
vera nokkur nýjung á þessum
tíma, bæði hvað stærð og gerð
snertir. Hlaða þessi er reist á
haustnóttum yfir firna mikil
hey er úti stóðu. Þegar heyin
hafa verið gefin, verður hlaðan
grafin út með jarðýtu. Hlaðan
er 50 m löng, þar af 17 m eldri
bygging, og 8 m breið. □
NOKKURRA ÞINGMÁLA GETIÐ
Þingmenn Framsóknarflokks-
ins í efrideild flytja frumvarp
um að ríkissjóður taki á sig
greiðslu í þeim erlendu lánum,
sem hvíla á Ræktunarsjóði Is-
lands og Byggingasjóði sveita-
bæja. Fordæmi er fyrir þessu,
því að ríkið hefur tvisvar sinn-
um áður á þessum áratug, 1953
og 1957, létt skuldum af sjóð-
unum á sama hátt, til þess að
hægt væri að halda lögákveðn-
um lánskjörum.
Við kjaramismun á veittum
og teknum lánum bætist nú það,
að hin erlendu lán hafa hækkað
mjög í íslenzkum krónum vegna
gengisbr., en nafnverð hinna
veittu lána til bænda að sjálf-
sögðu óbreytt. Samskonar frum-
varp var flutt í fyrra, en stjórn-
arflokkarnir vildu þá ekki af-
greiða það. En erfitt er að sjá,
að þeir geti nú hjá því komizt,
ef lánastarfsemi sjóðanna á að
halda áfram. Karl Kristjánsson
hefur framsögu í þessu máli.
Um vega- og brúarsjóð.
Sex Framsóknarmenn í neðri-
deild, Halldór Sigurðsson, Björn
Pálsson, Garðar Halldórsson, A-
gúst Þorvaldsson og Jón Skafta-
son flytja frumvarp um vega- og
brúasjóð. Samkvæmt því á allur
benzínskattur og þungaskattur af
bifreiðum að renna í sjóðinn, en
honum skal verja til að greiða
kostnað við nýbyggingu þjóð-
vega, endurbyggingu þjóðvega,
gerð fjallvega, nýbygginga ný-
býla- og ræktunarvega, bygg-
ingu brúa og endurbyggingu
gamalla brúa. Alþingi ráðstafar
sjóðnum að fengnum tillögum
vegamálastjóra.
Ef frumvarp þetta yrði að
lögum, mundi framkvæmdafé
til þessara hluta hækka veru-
lega. Hér er ekki gert ráð fyrir
að sjóðurinn greiði viðhald,
heldur verði það áfram greitt
úr ríkissjóði. Hinsvegar er á það
bent, í greinargerð, að ríkissjóð-
ur hafi miklar tollatekjur af
innflutningi bifreiða og varahl.,
sem nægja mundi fyrir viðhaldi.
Aætlað er, að allar tekjur af bif-
reiðum og benzini nemi á næsta
ári 176 milljónum króna, en
framlög til vega og brúa, að við-
haldi meðtöldu aðeins 98 millj.
króna samkv. fjárlagafrumvarpi
ríkisstjórnarinnar. Er sú upp-
hæð 6,8% af rekstrarútgjöldum
fjárlaganna. Hliðstæð framlög
voru svipaður hundraðshluti á
síðustu fjárlögum. En árið 1950
voru þau 10,4% og 11,4% árið
1951, þá að nýafstaðinni gengis-
breytingu eins og nú. Hlutur
vegamálanna hefur því stór-
versnað, miðað við rekstrarúf-
gjöld fjárlaganna. Þetta mun
margan hafa grunað, en er nú
sannað. Þykir því eðliiegt að
vegir og brýr fái að njóta tekn-
anna af samgöngutækjum, sem
um veginn fara og orkugjafa
þeirra.
Halldór Sigurðsson hefur
framsögu í þessu máli.
Bústofnslánasjóður.
Fjórir þingmenn Framsóknar-
flokksins, í efri deild, Olafur Jó-
hannesson, Páll Þorsteinsson,
Asgeir Bjarnason og Karl Krist-
jánsson flytja frumvarp um
stuðning við bændur til bú-
stofnsaukningar og vélakaupa.
Framhald á 6. síðu.
Nýi fluglurninn á Akureyri. (Ljósmynd E. D.)