Dagur - 26.11.1960, Blaðsíða 1

Dagur - 26.11.1960, Blaðsíða 1
•• AíAuíacn Fkamsóknarmavna i Pv"l'STJÓRl; Eruncur Davi«sson SKRIFSTOFA í HAFNARSTRÆn 90 StM! HÖl> . Sl IMM.I! <5(J i'RE.VTUN ANNAS) PkK-NI'VERK OlltlS BjÖRNSSONAIt H.F. AklTREVttl XLIII. árg. — Akureyri, laugardaginn 26. nóv. 1960 — 54. tbl. Aw.j.vstNGAyrjófti: Jós Sam- ÚEI.SSON . Arcancurinn kostar Kft. 100.00 . O.JAU>J>ACt ER 1. JÚLÍ :BLAt>l« KENU'R I I Á MHEJVJKUDÖC- i'M OC A t.ACCÁRDÖCl.'.Vt (>E«AR ÁST.töA )»VK1R Ttl Helga R E sökk á tíu mínútum Áhöfninni bjargað af þýzlaim togara í FYRRINÓTT bar það við 4— 6 mílum. suður af Reykjanesi, að Helga, 110 smálesta skip frá SJAVARAFLINN | ÁTTA fyrstu mánuði ársins I var togaraaflinn 78 þúsund \ smálestir í stað 115 þúsund í ; fyrra. Saina skýrsla segir, j að bátafiskur á sama tíma 1 sé 223 þús. sinál. á móti 194 j þús. smál. í fyrra. j Þessar tölur sýna, að það j er ekki aflaleysi um að j : kcnna, hvernig komið er j ; efnahag útgerðarinnar, held- j I ur „viðreisninni“. Heildar- j munur á aflanum fyi’stu 8 j mánuði ársins er aðeins 10 j þúsund smálestir. Aflaleysi togaranna nú, j ætti að stæla Iselndinga í j I sókn fyrir verndun og stækk I un landhelginnar. Eða j ; hversu mundi fara, ef hundr j ; uðum togara verður hleypt j ! inn fyrir 12 mílurnar — inn j ; á fiskimið bátanna? Vonandi j ; verðnr aldrei horfið að því j ; glapræði. Og sæmra er, að j ; standa fast á fengnum sigri í j ; landhelgismálinu, en hopa j ; af hólmi og beina íslenzka j j flotanum til Afríkustranda, j ; eins og þingmönnum Sjálf- j j stæðisflokksins virðist hug- j j leikið; jafnvel hvort tveggja. j Reykjavík sökk. En mannbjörg varð. Skipið var hlaðið síld. Aust- ankaldi var á. Síld mun hafa runnið til í skipinu svo það tók að hallast og gátu skipverjar ekki rétt það í tæka tíð og hvolfdi því. Allt gerðist þetta í skjótri svipan, og var Helga sokkin eftir 10 mínútur. Skipverjar komust naumlega í gúmmibjöi'gunarbátinn, full- klæddir þó nema kokkurinn. Slys þetta varð kl. 2 í fyrrinótt. En klukkan 7.30 í gærmorgun kom þýzki togarinn Weber með hina sjóhröktu menn til Rvíkur og leið þeim eftir atvikum vel, nema hinum fáklædda, sem var kaldur orðinn vegna klæðleys- is. Helga var smíðuð í Svíþjóð 1947 og 110 smálesta, eins og áður er sagt og hefur verið aflaskip. Skipstjórinn heitir Ár- mann Friðriksson. Áhöfn var 10 manns. Eigandi skipsins var Ingimundur h.f., Reykjavík. Sundlaugin á Húsavík er falleg bygging og fjölsótlur staður. (Ljósiii. E. D.) \ýju sundlausÍTi á ISúsavík HIN MYNDARLEGA sundlaug Húsvíkinga, sem opnuð var 6. ágúst í sumar og tekin til af- nota, stendur við Héðinsbraut vestanverða. Gegnt henni er fyrirhugað íþróttasvæði, sem nú er tún. Sundlaug þessi var 9 ár í smíðum. Yfirsmiður var Saló- mon Erlendsson, en yfirumsjón hafði Hákon Sigtryggsson, bæj- arverkfræðingur. Laugin er ó- yfirbyggð og er 7x16.66 metrar að stærð. Hún er hituð með laugar vatni, sem safnað er saman í steinþró við volgar lindir, er koma undan Húsavíkurhöfða VélsljóranámskeiS stendur yfir á Ak. I HÚSI einu lágreistu við Laufósveg á Akureyri stendur yfir vélstjóranámskeið hið minna, sem svo er kallað. Þar nema 16 menn vélfræði undir stjóm Guðmundar Eiríkssonar, vélstjóra úr Reykjavík. Flugvöllur í Hrísey Mikill áhugi er fyrir því í Hrísey, að þar verði gerður flugvöllur og eru líkur til, að framkvæmdir hefjist þar í vor. Sem kunnugt er, er samgöng- um ábótavant við Hrísey og þar er ekki einu sinni flugbraut fyrir sjúkraflugvél. Vonandi leysast samgöngumálin nokkuð með flugvallargerð. □ Fiskifélag íslands heldur ár- lega tvö vélstjóranámskeið úti á landi, á Akureyri og Aust- fjörðum annað árið, en í Vest- mannaeyjum og á ísafirði hitt árið. Námskeið þessi gefa þeim, sem þar ljúka prófi, rétt til að stjórna vélum allt að 400 hest- afl'a. En það mun algengust vélastærð í bátaflotanum hin síðari árin. Flestir frá Ólafsfirði. Vélstjóranámskeið þessarar tegundar hófst hér á Akureyri 1. október síðastliðinn og mun því ljúka um 20. janúar. Nem- endur eru 16: Frá Siglufirði, Húsavík, Akureyri, Skaga- strönd og stærsti hópurinn frá Ólafsfirði. Þeir stunda verklegt nám fyrir hádegi dag hvern, en bókleg fræði seinni hluta dags í Verzlunarmannahúsinu og þurfa að sækja 40 tíma á viku hverri. Yngsti nemandinn verður 18 ára í janúar, en enginn fær skír teini sín í hendur fyrr en sá aldur liggur að baki, og elzti Ncmendur á vélstjóranámskeiðiuu. Guðmundur Eiríksson lengst til liægri. (Ljósmynd E. D.) nemandinn mun vera um þrí- tugt. Gamlar véíar og nýlegar. Á kennslustað verklega náms ins við Laufásveg eru margar vélar, sú elzta frá 1906 og er vel gangfær enn og með glóðar- haus. Hún var lengi á vélaverk stæði einu hér í bæ og þótti hinn þarfasti gripur. Aðrar vél- ar eru frá 1945 og yngri, minni og stærri gerðir. Kennarar. Guðmundur Eiriksson, vél- stjóri í Reykjavík, veitir nám- skeiði þessu forstöðu og er ekki viðvaningur á þvi sviði, og ann- ast mestan hluta verklegrar og bóklegrar kennslu. Aðrir kenn- arar námskeiðsins eru: Grímur Sigurðsson og kennir hann með ferð talstöðva, dýptaiTnæla og fleiri skyldra tækja, Bernharð Haraldsson kennir íslenzku og Haraldur Sigurðsson kennir hjálp í viðlögum. Vélstjóranámskeið hin meiri. Umboðsmaðui' Fiskifélags ís- lands hér á staðnum er Helgi Pálsson og annaðist hann ýmsa fyrirgreiðslu vegna námskeiðs þessa. Vélstjóranámskeið hin meiri eru haldin í Reykjavík og standa í 6 mánuði. Þau veita réttindi til að annast vélar allt að 900 hestafla á fiskiskipum og allt að 600 hestafla vélum í öðrum skipum. □ og eru niðri í fjöru. Þaðan er því dælt með rafmagnsdælu upp á höfðann og í sundlaugina. Vatnið er 30 stiga heitt við sundlaugarvegg og er síðan kælt eftir þörfum. í veggjum sundlaugarinnar er komið fyrir 12 sterkum ljósum, undir yfir- borði vatnsins og lýsa þau upp vatnið í lauginni. Böð og búningsherbergi. Við sundlaugina eru böð og búningsherbergi, herbergi sund varðar, aðstaða fyrir miðasölu og gufubaðstofa. í kjallara er ætlunin að hafa búningsher- bergi viðkomandi íþróttavelhn- Fjöldi sundlaugargesta. Vilhjálmur Pálsson, íþrótta- kennari, veitir sundlauginni for stöðu. Frá opnun laugarinnar, til dagsins í gær, höfðu 7533 notið sunds og baða, karlar í litlum meirihluta. Auk þess hafa 140 börn á aldrinum 10— 13 ára lært að synda. í norrænu sundkeppninni kepptu Húsavík og Selfoss. Sel- foss vann. Mjólkursamlag KÞ hafði gefið verðlaunaskjöld til þessarar keppni. □ | HÁMERAR SELDAR [ I TIL ÍTALÍU 1 VESTFIRÐINGAR stunda há- meraveiðar í sumar og hafa oft veitt vel. Þrír Patreksfjarðat'- bátar komu nýlega með 26 skepnur þessarar tegundar sama daginn. En samtals hafa þar borizt á land í sumar og haust 320 stykki. Hver fiskur gerir um 1000 krónur til sjómanna og er hér því um mikið verðmæti að ræða. ítalir eru kaupendur hámer- anna frosinna og þykir varan góð þótt íslendingum finnist ó- meti og hámeri ódráttur. □

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.