Dagur - 01.02.1961, Blaðsíða 7
7
- Fréttir úr nágrenninu
Framhald af 8. siðu.
Áætíunarferðir.
Snemma á s. 1. sumri hóf
kaupfélagið á Kópaskeri áætl-
unarferSir, frá Lóni í Keldu-
hverfi til Raufarhafnar. Þessar
ferðir eru farnar einu sinni í
viku. Engin ferð hefur fallið
niður til þessa. Þessi þjónusta
við sveitafólkið mælist vel fyr-
ir, enda mikils virði. T. d. má
geta þess að í flestum ferðunum
hefur verið sendur nýr fiskur
frá Raufarhöfn, til þeirra, sem
þess óskuðu. Erfiðlega gekk
stundum að afla sér slíks ný-
metis áður en þessar feroir hóf-
ust. Bifreiðastjóri er Björn
Guðmundsson, Lóni, sóma og
greiðamaður mesti.
Englnn læknir.
Enginn læknir hefur haft
búsetu á Kópaskeri, það sem af
er vetri. Raufarhafnarlæknir
þjónar héraðinu þar til annar
læknir hefur verið skipaður,
en hvenær það verður hefur
ekkert heyrst um. Raufarhafn-
arlæknir kemur til Kópaskers,
hvern miðvikudag og reynir
fólk að notfæra sér það eftir
þörfum. Heilsufar hefur verið
gott. En langt er læknis að
vitja ef slys eða bráð sjúk-
dómstilfelli ber að höndum,
slíkt gerir sjaldan boð á undan
sér. Þess má geta að rúmlega
100 km skilja að Raufarhöfn
og neðstu býlin í Kelduhverfi,
sem eru í Kópaskerslæknis-
liéraði.
Bústofnun.
Hér í Öxarfjarðarhreppi voru
ær yfirleitt teknar í hús um
mánaðarmótin nóv. des., en
lömb nokkuð fyrr. Nú eru á
fóðrum um 5300 kindur full-
orðnar, 1090 lömb, 67 nautgrip-
ir og 53 hestar. Sambærilegar
tölur frá s. 1. vetri eru: 4987
kindur fullorðnar, 1019 lömb,
71 nautgripur, 45 hestar. Fyrir
10-20 árum voru geitur hér á
allfiestum bæjum. Nytjuð var
mjólkin og þótti kostamikil.
Geitfé.
Eitt sinn er heim var rekin
geitnahjörðin í Hafrafellstungu
að sumarlagi, taldist hún vera
um 80 höfuð, var þá allt talið
enda ekki búið að færa frá.
Síðan þotta var eru um 20 ár.
Ennþá eru hér geitur á fjórum
bæjum. Ekki munu þær hafa
verið mjólkaðar til nytja s.I.
sumar, fremur að menn hafi
haft þær sér til skemmtunar,
eða þá af gömlum vana. Sl. ár
voru taldar 23 geitur á fóðrum
og mun sú tala vera lííið breytt
nú. Ekki er trúlegt að Öxfirð-
ingar fari að nytja geitur til
mjólkur aftur. En leitt er til
þess að vita ef geiturnar hverfa
með öllu af íslenzkri grund.
Byggingar.
Byggingaframkvæmdir voru
nokkrar á liðnu ári. Unnið var
við fimm íbúðarhús, tvö þeirra
voru fullgerð, í Hafrafellstungu
og Sandfellshaga. Búið er í
tveim , sem langt eru komin,
á Leifsstöðum og Vestara-
Landi. í Klifshaga er unnið
við innréttingu á íbúðarhúsi,
sem tekið mun verða í notkun
með vori. Á öllum þessum hús-
um var bygging hafin 1959 eða
fyrr. Byggð var útbygging á
Þverá, fjós, þvottahús, geymsla
o. fi. Verkfærageymsla í Klifs-
haga. Fjárhús fyrir 180 fjár
ásamt hlöðu á Leifsstöðum og
hlaða á Austara-Landi. Öll
þessi hús eru úr steinsteypu.
Skemmtanir.
Skemmtanalíf hér hefur ver-
ið lítið og fábreytt. Þó má geta
þess að kvenfélagið hafði
skemmtun fyrir börnin á ný-
ársdag. Þann 15. þ. m. var svo
hiónaball. Hér eru þessar
skemmtanir að verða eins kon-
ar hátíðir, samanber árshátíð-
ir ýmsra félaga í kaupstöðum.
Og því mætti ekki sveitafólkið
liafa sínar árshátíðir? Hér er
fátt eitt af ungu fólki á þessum
tíma árs. Því eldra sem heima
situr við bú og amstur dagsins
er full þorf á því að létta sér
upp. (Iiér eru líka nokkrir pip-
arsveinar, en þeim fækkar sem
betur fer.) Gjarna bjóða þátt-
takendur kunningjahjónum
sínum úr nærliggjandi sveit-
um til fagnaðarins. Eykur það
gleðina ekki lítið. Svo kemur
kvöldið. Allir mæta sem boðnir
eru. Við sameiginlegt borðhald
allra þátttakenda eru ræður
haldnar og sungið, síðan er
dansað méðan fjör endist. Þess-
ar skemmtanir hafa einnig ver-
ið haldnar í næstu sveitum,
Núpasveit og Kelduhverfi.
I B0RGARBÍ61
í Sími 1500 í
| Aðgöngumiðasala opin frá 7—9 |
| DUNAR |
| í TRJÁLUNDI |
E (Wo dic alten Wálder §
1 rauschen)
í Yndisleg, fögur, þýzk kvik- i
| mynd í litum, tekin í Suður- jj
i Þýzkalandi. :
jj — Danskur texti. —
Aðalhlutverk:
í WILLY FRITSCH
í JOSEFINE KIPPER. í
jj (Var jólamynd Tjarnarbíós.) i
öiiuiiii III11111111111111111111111111111111111111111111111111111»
TIL BJÖSSA Á
Eg leit þig í bílmim er brur.aðir
hjá
hví beiðst’ ei og lcfaðir mér
augnablik aðeins í (lugun þín sjá,
sem eru svo yndisleg.
Eg bið þig næst er brunar þú hjá
þú bíðir og Iitir mig,
ef augnablik mætti’ eg í augun
þín sjá
þá yrði eg sátt við þig.
Ein af þremur.
RÚSÍNUR
með steinum.
RÚSÍNUR
steinalausar.
Fyrsta flokks vörur.
VÖRUHÚSSÐ H.F.
I. O. O. F. — 142238V2 —.
□ Rún 5961217 — Frh: Atg.:
Kirkjan: Messað . Akureyrar
kirkju kl. 2 á sunnud. kemur.
Sálmar nr. 23, 131, 419, 43 og 97.
Báðir prestarnir annast mess-
una.
Um mesta kraftaverk nútím-
ans á sviði trúboðs talar Sæ-
mundUr G. Jóhannsson n.k.
laugardagskvöld kl. 8.30 að
Sjónarhæð. Allir velkomnir.
Zion. Sunnudaginn 5. febr.
Sunnudagaskóli kl. 11 f. h.. —
Samkoma kl. 8.30 e. h. Þórir
Guðbergsson talar. Allir vel-
komnir.
Frá K. F. U. K.. Fundur verð
ur í A.d. (aðaldeild, 17 ára og
eldri) miðvikud. 1. febr. kl. 8.30
e. h. Þar verður frásöguþáttur.
Ingólfur Georgsson sýnir
skuggamyndir frá Ameríku,
Þórir S. Guðbergsson talar. AIl
ir velkomnir.
©Árshátíð Æ. F. A. K.
er á sunnudaginn 5.
febr. og hefst í kirkj
unni kl. 2 s.d. og síð-
an að Hótel KEA. — Félagar
eru beðnir að skrifa sig á lista
hjá sveitarforingjum og hverf-
isstjórum fyrir föstudag. —
Heimilt að taka með sér gesti.
— Frímerkjaklúbbur á laugard.
Stjórnin.
Fundur á þriðjudag
í U. D. 13—17 ára.
Ný spennandi fram-
haldssaga hefst. Þór-
ir Guðbergsson frá Rvík. mætir
á fundinum. Nýir félagar vel-
komnir. K. F. U. M.
Brigader Nilsen sýnir kvik-
myndir á þessum samkomum:
Föstudag 3. febr. og laugardag
4. febr. kl. 20.30. Sunnudag kl.
16 samkoma með kvikmynd fyr
ir alla fjölskylduna. Kl. 20.30
hjálpræðissamkoma. — Mánu-
dag kl. 20.30 æskulýðssamkoma
með kvikmynd, Samkomur fyr-
ir börn alla daga kl. 17. Allir
velkomnir. Hjálpræðisherinn.
Væntanleg fermingaibörn í
Lögmannshlíðarsókn eru beðin
um að koma til viðtals í skóla-
húsið í Glerárþorpi, til séra
Birgis Snæbjörnssonar þriðju-
dag 7. febr. og til séra Péturs
Sigurgeirssonar miðvikudag 8.
febr. kl. 5 báða dagana.
I. O. G. T. Stúkan Brynja nr.
99, heldur fund að Bjargi
fimmtudag 2. febr. kl. 8.30 e. h.
Fundarefni: Inntaka nýliða,
skemmtiatriði, veitingar, dans.
Mætið vel. Æðstitemplar.
Filmía. Sýning laugardag á
brezku gamanmyndinni „Mað-
urinn í hvítu fötunum“ með
Alec Guinnies í aðalhlutverki.
Enn er hægt að bæta við nokkr
um félögum.
ULLARGARN
Patons-garnið,
sem allir róma, er nýkom-
ið í fleiri teg. og litum.
Einnig liið vinsæla
danska
Sönderborg-garn
ANNA & FREYJA
Eins og áður var auglýst hér
í blaðinu, hefst aðalfundui' Bún
aðarsambands Eyjafjarðar á
morgun, fimmtudag, að Hótel
KEA. Sama dag kl. 9 e. h. flyt-
ur _Á]'ni Jónsson erindi, sem
mun fjalla um leiðbeiningar-
starfsemi landbúnaðarins í
Bandaríkjunum, einnig verða
kvikmyndir sýndar. Allir vel-
komnir meðan húsrúm leyfir.
Austfirðingafélagið á Akur-
eyri hefur kvöldvöku í Bjargi,
félagsheimili Sjálfsbjargar,
föstudaginn 3. febrúar kl. 8.30
e. h. — Tómas Tryggvason, jarð
fræðingur, sýnir litmyndir af
Austurlandi. — Félagsvist.
Austfirðingar fjölmennið með
gesti. Kvöldvökunefndin.
Áfcngisvarnamefnd og Um-
dæmisst. Norðurlands opna á
ný skrifstofu í Hótel Varðborg
(herbergi nr. 65). — Verður
hún opin mánuaaga og föstu-
daga frá kl. 8—10 e. h. Sími
1642.
Frá Sálarrannsóknafélaginu
á Akureyri. Aðalfundur verður
haldinn að „Bjargi“ þriðjudag-
inn 7. febr. n.k. kl. 9 síðd. —
1. Venjuleg .aðalfundafstörf. —
2. Önnur mál. — 3. Erindi (Ól-
afur Tryggvason). Stjórnin.
Áheit og gjafir til Hríseyjar-
kirkju 1960: Elín Árnadóttir kr.
500.00 — Heimilisfólkið Norður
veg 4 kr. 500.00 — Ónefndur kr.
100.00 — Anna Jónsdóttir kr.
15.00 — Jóhanna Sigurgeirsdótt
ir kr. 100.00 — Guðrún Stefáns
dóttir kr. 100.00 — Kvenfélag
Hríseyjar kr. 3.328.50 — N. N.
kr. 200.00 — G. B. kr. 100.00 —
Baldrún Árnadóttir kr. 100.00
— J. S. A. kr. 100.00 — J. Ó.
kr. 100.00 — N. N. kr. 25.00 —
Þorgils Baldvinsson kr. 1.000.00
— Matthildur Níelsdóttir kr.
200.00 — K. K. kr. 200.00 —
Sigfríður Jónsdóttir kr. 200.00
— Margrét Gísladóttir kr. 100.
00 — Árni Tryggvason kr. 200.
00 — Valgerður Jónsdóttir kr.
50.00 — Elsa Jónsdóttir kr. 50.
00 — Sigurgeir Júlíusson kr.
200.00 — L. J. kr. 200.00 — Jó-
hanna Kristinsdóttir kr. 100.00
— Magnús Jóhannsson kr. 500.
00 — Ólafur Ólafsson kr. 200.00
— Verkakona kr. 100.00 —
Verkakona kr. 100.00 — Kristó-
fer Guðmundsson kr. 1.350.00
S. J. V. kr. 210.00. Samtals kr.
10.228.50. — Með þökkum mót-
tekið. Sóknarnefndin.
Næturlæknar: Miðvikudag 1.
febrúar: Erlendur Konráðsson,
sími 2050. Fimmtudag 2. febr.:
Sigurður Ólason, sími 1234.
Föstudag 3. febrúar: Inga
Björnsdóttir, sími 2243. Laug-
ardag 4. febrúar: Bjarni Rafn-
ar, sími 2262.
KVÖLDVAKA F. A.
FERÐAFÉLAGIÐ mun efna til
annarrar kvöldvöku sinnar á
þessum vetri í Alþýðuhúsinu,
sunnudaginn 5. febrúar n.k., og
hefst hún klukkan 4 eftir há-
degi.
Tómas Tryggvason, jarðfræð-
ingur, Reykjavík, er væntan-
legur til bæjarins síðari hluta
vikunnar og mun hann mæta á
fundinum og sýna og skýra
ýmsar litskuggamyndir, sem
hann hefur tekið víðs vegar um
ísland. — Félögum er heimilt
að taka með sér gesti. □
*£) -fSfc ArQ ‘í'v£ -H*? 'ÍS’í'í 'trQ 'ÍSk 'ý' & ^ o- 'í'v.C- -fSfc
'í ¥
f Þahka hjartanlega fjölskyldu minni, venzlnfólki, vin- 4
1 um og kumnngjurn, sem glöddu mig rneð heimsókn- 4
? um, gjöfurn og heillaskeytum d sextiu dra afmœli mínu ^
f 22. jqnúar. — Heill og hamingja fylgi ykkur. i
£ jr
f SIGURRÓS KRISTINSDÓTTIR, Hdlsi.
f f
2 f
g. Kœrhr kveðjur og þakkir sendi ég ölhím, setn glöddu f
-* mig.og heiðruðu d sjötugsafmecli minu. f
í ÞURA ÁRNADÓTTIR frd Garði. Í
I i
Fóstursystir mín
JÓNA SIGURÐARDÓTTIR,
sem andaðist á Sjúkrahúsi Akureyrar þ. 24. jan. sl.
verður jarðsett frá Akureyrarkirkju iaugardaginn 4.
febrúar næstkomandi kl. 1.30 e. h.
F. h. aðstandcnda.
Stefán Reykjalín.
Elsku litli drengurinn okkar
BJÖRGVIN GUÐMUNDUR,
sem andaðist 29. janúar verður jarðsunginn frá Ak-
ureyrarkirkju föstudaginn 3. febrúar kl. 1.30 e. li.
Svava Engilhertsdóttir, Gunnar Árnason,
Elísabet Jakobsdóttir.