Dagur - 05.07.1961, Page 5
Geysilegl Ijölmenni að Laugum á landsmoli Ungm.lélags íslands
Hundruð íþróttamanna - Stórar tjald- og bílaborgir - Undirbúningur með ágætum - Starfsíþróttir eftirtektarverðar
Greinargerð um niðurjöfnun úlsvara
ELLEFTA laiidsmót Ungmennafélags íslands var lialdið að Laug-
um í Reykjadal um síðustu helgi. Það var fjölmennasta íþrótta-
mót, sem til þessa hefur verið haldið hér á Iandi. Mótið stóð í
tvo daga og hófst árdegis á laugardaginn. Klukkan 7 að morgni
þess dags hellti sólin geislum sínujn yfir Reykjadal. Þá þegar
gat að líta 320 tjöld á túnunum umhverfis Laugaskóla, en þau
urðu margfalt fleiri.
Ungmennafélagarnir höfðu sín-
ar tjaldborgir austan og norðan
við skólann. Hvert ungmenna-
samband hafði þar sína tjald-
borg merkta. Þar var friður og
umgengni góð. Önnur tjald-
stæði voru sunnar — allt suður
að Litlu-Laugum.
Suður á gamla túninu, sunn-
an við Tjörnina og allt suður
að Reykjadalsá var ein samfelld
breið.a bifreiða og hefur aldrei
áður sézt slík bílaborg á Norður
landi.
Jónas Jónsson frá Hriflu var
kjörinn heiðursfélagi U.M.F.Í.
við mikinn fögnuð viðstaddra.
Miklar áhyggjur steðjuðu að
undirbúningsnefndinni vegna
bílastæða og tjaldstæða. Allt
leystist þetta á hinn ákjósanleg-
asta hátt, vegna góðvilja ná-
granna og ágæts skipulags. Um
ferðatruflun varð engin og
mátti þó merkilegt heita.
Allt var í hátíðabúningi að
Laugum, svo sem vera bar, og
Reykjadalur hlýlegur og sumar
fagur.
Skrúðgangan.
Landsmótið hófst á skrúð-
göngu frá skólanum vestur yfir
son gekk fyrir. Skrúðganga var
hátíðleg og áhrifamikil og mun
seint gleymast þeim, sem yið-
staddir voru.
Eiríkur J. Eiríksson sambands-
stjóri U.M.F.Í. setti mótið með
örstuttri ræðu, en að því búnu
hófst frjálsíþróttakeppnin.
íþróttimar.
íþróttavöllurinn við Lauga-
skóla er hinn ágætasti fyrir
margra hluta sakir. Sjálfur er
’hann nýlega endurbyggður.
Auk þess eru frá náttúrunnar
hendi ágæt áhorfendasvæði fyr
ir þúsundir fólks.
Frjálsíþróttirnar fóru fram á
tveim og þrem stöðum í einu
mikinn hluta dagsins. Á öðrum
stað voru starfsíþróttirnar, bæði
í Húsmæðraskólanum, þar sem
konur kepptu í mörgum grein-
um. Sunnan Reykjadalsár var
keppt í akstri dráttarvéla og bú
fjárdómar voru á enn öðrum
stað og trjáplöntun.
Þorsteinn Einarsson stjórnaði
frjálsíþróttakeppninni, Stefán
Jónsson og Steinunn Ingimund-
ardóttir starfsíþróttum og Guð-
jón Ingimundarson sundkeppn-
inni. Aðalþulur var Baldvin
Baldvinsson bóndi á Ófeigs-
stöðum og einnig Þráinn Þóris-
son skólastjóri á Skútustöðum.
Fimmtán lögreglumenn und-
ir stjórn Hallgríms Jónssonar
(frá Laxamýri) önnuðust lög-
gæzlu en höfðu lengst af lítið
að gera.
Fríður flokkur.
Til þess að gera sér ofur-
litla grein fyrir íþróttum þessa
mikla landsmóts, má geta þess,
að keppendur og þáttakendur í
íþróttum, kappleikjum, þjóð-
dönsum, fimleikum og starfs-
íþróttum voru á sjöunda hundr
að, að meðtöldum starfsmönn-
um mótsins. Var það hinn fríð-
asti flokkur.
Afrek voru góð í mörgum
greinum. Skarphéðinn var sigut
Marselína Hermannsdóttir varð sigursæl í starfsíþróttum kvenna
á landsmótinu. Hún sést hér lengst til vinstri. (Ljósmynd: E. D.)
Reykjadalsá og til íþróttavall-
arins.
Hvert ungmennasamband
fylkti liði, búið íþróttabúning-
um sambands síns og einnig
með sambandsfána.
Hóparnir röðuðu sér í hring
umhverfis tjörnina. Lúðrasveit
Akureyrar lék, undir stjórn
Jakobs Tryggvasonar.
Svo hófst hin mikla skrúð-
ganga. Fána íslands og merki
U.M.F.Í. og ungmennasamband
anna bar hátt. Þorsteinn Einars
Dásamlegur samkomustaður norðan íþróttavallarins. Þar fóru liátíðahöld fram á sunnudaginn. Á
pallinum sjást nokkrir Húsvíkingar, er sýndu þjóðdansa frá ýmsum löndum. (Ljósmynd: E. D.)
Aðal-hátíðadagskráin fór þá jWPrjwl
fram. Guðsþjónustu flutti Eirík
ur J. Eiríksson sambandsstjóri,
Lúðrasveit Akureyrar og öflug
ur kór Kirkjukórasambands S.- " * ; *
Þing. lék og söng undir stjórn
Páls H. Jónssonar o. fl. Ræður
fluttu: Ingólfur Jónsson ráð-
herra, Jóhann Skaptason sýslu-
maður og Kai-1 Kristjánsson al- WK /
þingismaður. Húsvíkingar . «gl *Sm
sýndu þjóðdansa frá ýmsum W*- JHk ^iÆfW-3
löndum og síðar kom fram stór , 1
og myndarlegur þjóðdansaflokk > '• ' JF*.*
ur, glíma var háð, þótt ekki
væri hún fögur og fimleikaflokk
ur kvenna úr Laugaskóla sýndi
undir stjórn Óskars Ágústs-
sælasta ungmennasambandið að
þessu sinni en Þingeyingar næst
ir. Starfsíþróttirnar voru í há-
vegum á þessu landsmóti. Fyrir
þeim er mikill áhugi, en of fáir
nutu þess að sjá þær, þar sem
svo margar keppnisgreinar fóru
fram samtímis og ógerningur
fyrir hvern og einn að sjá allt
það, er fram fór.
Á laugardagskvöldið var úti-
fundur. Þar töluðu fjórir menn,
einn úr hverjum landsfjórð-
ungi: Sigurður Greipsson, Jón
Þorsteinn Einarsson íþróttafull-
trúi gekk fyrir hinni fjölmennu
skrúðgöngu. (Ljósmynd: E. D.)
F. Hjartar, Ingi Tryggvason og
Kristján Ingólfsson.
Lúðrasveit Akureyrar lék oft
báða mótsdagana, öllum til
hinnar mestu ánægju. Karlakór
Reykdæla söng undir stjórn
Páls H. Jónssonar.
Nokkrir fræknir fimleika-
menn sýndu undir stjórn Björns
Jónssonar, sem kominn er á
sextugsaldur og sjálfur sýndi
fræknleik í mjög vandasömum
æfingum.
Sundkeppni fór fram í Tjörn-
inni.
Um kvöldið var dansað á
þrem stöðum. Fyrir 15 árum
var landsmót ungmennafélaga
haldið að Laugum. Þar var hið
mesta fjölmenni, en svo hóflega
farið með áfengi að engan mann
þurfti að taka úr umferð. Það
er á orði, að hund einn hafi
þó þurft að fjarlægja sökum
óláta á því mikla móti.
Nú var þetta nokkuð breytt.
Enginn hundur spillti gleði
manna, eða var þar til ama.
Óskar grípur eina á fluginu á
fimleikasýningu kvenna, er
hann stjórnaði. (Ljósm.: E. D.)
Öll þessi atriði fóru fram í
undurfögrum hvammi norðan
íþróttavallarins. Slíkan stað
getur náttúi’an ein gert. Þarna
var stór pallur, sem notaður var
á hátíðinni og dansað var á
bæði kvöldin.
Á fátt eitt hefur nú verið
drepið frá ellefta landsmóti
Ungmennafélags íslands. Því
miður var ekki nægilega séð
fyrir aðstöðu blaðamanna og til
dæmis reyndist ekki unnt að fá
Óskar Ágústsson, kennari á
Lauguni, var formaður fram-
kvæmdanefndar og hafði hann
„fullt að gera“. (Ljósm.: E. D.)
upplýsingar um úrslit í íþrótt-
um eða öðru, utan það, sem
hver og einn gat náð að heyra
á hverjum stað.
Verðlaun voru flest afhent að
kveldi síðari mótsdag. Þá var
lágskýjað mjög, dimmt í lofti og
aðstaða hin versta til mynda-
töku.
Síðar mun sitthvað fleira
verða sagt frá landsmótinu að
Laugum. í heildarmyndinni af
móti þessu hvílir tign og hrein-
leiki. Ungmennafélagshreyfing-
in er bæði voldug og sterk. Hún
á engu minni verkefni nú en
fyrr og aldrei mun hún hafa átt
dugmeira fólk til starfa. Margar
leiðir eru auðveldari nú en áður
til þess að láta stóra drauma
rætast í sýnilegum verkum. En
aldrei má það gleymaát, að
stærsta verkefni allra ung-
mennafélaga er maðurinn sjálf-
ur, dáðir hans og drengskapur.
E. D.
1. Útsvörum einstaklinga var
jafnað niður samkvæmt útsvars
stiga kaupstaðanna, sbr. 6. gr.
laga 43/1960 frá 3. júní ’60 um
bráðabirgðabreyting á útsvars-
lögum nr. 66/1945, þó þannig að
ekki var lagt útsvar á útsvars-
skyldar tekjur lægri en 20 þús.
krónur.
„Útsvarsskyldar tekjur ein-
staklinga eru hreinar tekjur til
skatts skv. 1. nr. 46/1956 sbr. 1.
36/1958 að frádregnu fyrra árs
útsvari, ef það hefir verið greitt
að fullu fyrir 1. janúar s.I. Enn-
fremur að frádregnum sérstök-
um frádrætti, sbr. 10. gr.
nefndra laga s. s. vegna veik-
inda framteljanda eða náins
venzlaliðs hans, vegna skóla-
kostnaðar barna framteljanda,
sem eru eldri en 16 ára og
stunda háskólanám hérlendis
eða erlendis eða annað langt
nám utanbæjar. Ennfremur eru
útsvör þeirra, sem orðnir eru 67
ára eða eldri lækkuð sérstak-
lega ef ekki er um að ræða ó-
venjumiklar tekjur. Loks eru
allar bætur frá Almannatrygg-
ingum dregnar frá skattskyld-
um tekjum, áður en útsvar er
á lagt.
Framangreindur útsvarsstigi
fyrir einstaklinga í kaupstöð-
um utan Reykjavíkui’, er sem
hér segir:
Fjölskyldufrádráttur var
veittur, eftir að útsvar hafði ver
ið reiknað út eftir framangreind
um stiga, svo sem hér segir:
Fyrir eiginkonu kr. 800.00, og
fyrir börn innan 16 ára: kr.
1000.00 fyrir fyrsta barn, kr.
1100.00 fyrir annað barn o. s.
frv. stighækkandi um kr. 100.00
fyrir hvert barn.
Síðan voru öll útsvör einsíak-
linga og félaga lækkuð um 15%.
2. Útsvör félaga eru þrenns kon
ar: a) útsvar af tekjurn, b) út-
svar af rekstri (veltu) og c) út-
svar af eign. Útsvarsskyldar
tekjur félaga eru hreinar tekjur
til skatts, auk þess að frádregnu
fyrra árs útsvari, sem greitt
hafði verið fyrir 1. janúar s.l.
Af kr. 1000.00 útsvarsskyldum
tekjum félags greiðast kr. 200.00
í útsvar, en síðan af tekjum
2000.00 — 75.000.00 20% og síð-
an af tekjum 75.000.00 og þar
yfir 30%.
í áður greindum lögum, 6. gr.
2. c. eru ákvæði um hámark
veltuútsvara félaga. Niðurjöfn-
unarnefnd hefir samið sérstak-
an veltútsvarsstiga fyrir félög,
sem eru í öllum tilvikum lægri
en hinn lögheimilaði stigi, nema
að því er kvöldsölur snertir, þar
er veltuútsvarið 3% eða óbreytt
frá fyrra ári. Er veltuútsvars-
stiginn þannig:
Af 20—30 þús. kr. greiðast 1000 kr. af 20 þús.
Af 30—40 þús. kr. greiðast 3300 kr. af 30 þús.
Af 40—50 þús. kr. greiðast 5700 kr. af 40 þús.
Af 50—60 þús. kr. greiðast 8200 kr. af 50 þús.
Af 60—70 þús. kr. greiðast 10800 kr. af 60 þús.
Af 70—80 þús. kr. greiðast 13500 kr. af 70 þús.
Af 80—90 þús. kr. greiðast 16300 kr. af 80 þús.
Af 90 þús. og þar yfir greið. 19200 kr. af 90 þús.
og 23%
og 24%
og 25%
og 26%
og 27%
og 28%
og 29%
og 30%
af afg.
af afg.
af afg.
af afg.
af afg.
af afg.
af afg.
af afg.
..........................mmmmmmmimmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmi iij
| 5
I Reglur uui meðferð á ullinni I
SAMBAND ÍSL. SAMVINNU-
FÉLAGA hefur gefið út reglur
um meðferð ullar, sem þegar
koma til framkvæmda. Þær eru
efnislega á þessa leið:
Öll ull, sem send er til Ullar-
þvottastöðvarinnar á Akureyri,
þarf að vera greinilega merkt,
félagsmerki framleiðanda. Auk
þess þarf hver maður að hafa
ákveðið númer, sem mála þarf
á hvern ullarballa eða poka,
sem ullin er send í. Ull frá sama
bæ sé öll send undir sama núm
eri. Ekki má önnur áletrun vera
á ullarböllunum (pokunum).
Ullin þarf að vera vel þurr, því
sumt af ullinni þarf að geyma
allt að 8—10 mánuði. Rök ull
getur stórskemmzt við langa
geymslu. Lagt er fyrir kaupfé-
lögin að hlutast til um hversu
merkja skal og meðfara.
Lögð er áherzla á, að ullin sé
ekki flutt án yfirbreiðslu í vot-
viðri.
Ofangreind atriði ættu að
aulia vöruvöndun og vonandi
einnig verðmæti ullarinnar.
Þess vegna er nauðsynlegt að
þessi atriði o. fl. komi þegar til
framkvæmda. □
•IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII*
I Frá Húsm.skólanum á Laugum I
Þessir hlutu verðlaun fyrir starfsíþróttaafrek. (Ljósmynd: E. D.)
Glímt var til sigurs en lítt til
fegurðar. Til hægri er Ármann
J. Lárusson núverandi glímu-
kóngur íslands. (Ljósm.: E. D.)
HÚSMÆÐRASKÓLANUM á
Laugum var slitið 7. júní sl.
Hæstu einkunn hlaut Ingunn
Pálsdóttir, Höfn í Hornafirði.
Sóknarpresturinn, séra Sig-
urður Guðmundsson á Grenjað
arstað, messaði við skólaslitin,
og skólastjórinn, frú Halldóra
Sigurjónsdóttir, þakkaði kennur
um og nemendum góða sam-
vinnu og störf og mælti sérstök
um viðurkenningarorðum til
frk. Kristínar Jakobsdóttur,
Hólum, fyrir farsællega unnin
störf í þágu skólans um aldar-
fjórðungsskeið.
Sýning á handavinnu nem-
enda hinn 4. júní var fjölsótt að
vanda.
Nokkrir 10 ára nemendur
skólans heimsóttu hann og
færðu honum að gjöf veggklæði
eftir listakonuna frú Barböru
Árnason, hinn ágætasta grip.
Húsakynni skólans hafa verið
aukin og endurbætt. □
3%: Kvöldsölur.
2%: Leigutekjur, umboðs-
laun, persónuleg þjónusta.
1,5%: Skartgripa-, listmuna-
og minjagripaverzlun. Hljóð-
færaverzlun, sportvöruverzlun,
verzlun með úr og klukkur.
Blómaverzlun, Gleraugnaverzl-
un. Gull- og silfursmíði — og
,Nú er bágt til bjargar‘
RITSTJÓRI Alþýðumannsins
hefur átt fremur bágt undan-
farnar verkfallsvikur. Sem
stjórnarnefndarmaður Kaupfé-
lags verkamanna samdi hann
við Félag verzlunar- og skrif-
stofufólks um hækkað kaup.
Sem bæjarstjórnanneðlimur
studdi hann tillögu Jónasar
Rafnar og málflutning, að ekki
mætti semja hér fyrr en háir
herrar í Reykjavík gæfu merki.
Sem stuðningsmaður ríkisstjórn
arinnar barðist hann í blaði
sínu gegn kauphækkunum.
í gær telur hann lieldur illa
á málum haldið hjá A. S. I. að
ná ekki 18% kauphækkun á
tveim árum, án þess að sú
hækkun „færi að ráði út í verð
lagið“. í sömu ráðaleysisgrein
segir, að fullyrt sé að 10%
kauphækkunin geri það.
Já, það er bágt að heita Al-
þýðuflokksmaður en vera
þjónn íhaldsins. □
verzlun. Kvikmyndahúsrekstur.
1,3%: Benzin og olíur.
1,1%: Lyfjaverzlun. Farm-
og fargjaldatekjur.
1%: Veitingasala og hótel-
rekstur. Sælgætis-, efna- og gos
drykkjaframleiðsla.
0,9%: Bóka- og ritfangaverzl
un.
0,8%: Smásala og verzlun al-
mennt. Iðnaður. Annað ótalið.
0,6%: Kolaverzlun. Heild-
verzlun. Útgerð. Fiskvinnsla til
útflutnings. Kaffibrennsla og
kaffibætisgerð. (Frá .bæjarstj.)
SKÁKFERÐIN
SKÁKFÉLAG AKUREYRAR
fór í keppnisferð til Suðurlands
í síðustu viku. Skákmennirnir
kepptu á Akranesi á fimmtu-
daginn og sigruðu með 11% :
2%. í Reykjavík töpuðu þeir
með 5 :13, gerðu jafntefli við
Keílvíkinga 8 : 8 og unnu Hafn-
firðinga 13 : 3.
Skákmennirnir fengu hvar-
vetna hinar beztu viðtökur. □
Fjögur tófugreni
Leifshúsuin, 4. júlí. Sláttur hófst
hér á flestum bæjum í sl. viku,
stöku bóndi byrjaði þó fyrr,
og hafa þeir hirt inn dálítið af
heyi. Spretta er ekki góð, enda
lengst af kuldatíð í júnímánuði.
Unnin voru 4 tófugreni hér í
Vaðlaheiðinni í vor. Það gerði
hin kunna grenjaskytta Ottó
Guðnason á Svalbarðseyri.
Hann náði öllum fullorðnu dýr-
unum nema einu og auk þess 20
yrðlingum, eða samtals 27 dýr-
um. Ottó er snilldar skytta og
vinnur oft greni strax fyrstu
nóttina eftir að hann finnur
þau.
Allmikið var sett niður af
kartöflum hér í sveitinní í vor,
eða sennilega svipað og á sl. ári.
Víði er lítið farið að koma upp
í görðunum og sprettuhorfur
því enn ekki góðar. S. V.
SUNDNÁMSKEIÐ
SUNDRÁÐ AKUREYRAR
gengst fyrir sundnámskeiði í
sundlaug bæjarins og stendur
það yfir í eina viku. Kennari er
Valdimar Örnólfsson, kennari,
Reykjavík.
Námskeiðið er ætlað félögum
í KA og Þór. Kenndar verða
dýfingar, bringusund og skrið-
sund.
Kennt verður í öllum aldurs-
flokkum og er þetta gott tæki-
færi fyrir sundfólkið. □
FERÐIR Á HESTUM
SIGFÚS JÓNSSON á Einars-
stöðum í Reykjadal hefur nú
þegar farið nokkrar ferðir með
ferðafólk á hestum í nágrenni
Lauga og Reynihlíðar. Laxár-
dalur, Gæsadalur, Seljadalur og
fleiri góðir staðir eru valdir, en
þar eru reiðvegir mjúkir og
góðir.
Ferðafólk þarf að tryggja sér
þessar ferðir með fyrirvara. □
>.....................-.......>
Dagub
VINNUDEILU LOKIÐ
SAMNINGAR tókust í vinnudeil-
unni milli Dagsbrúnar og iðnaðar-
mannafélaganna í Rcykjavík annars
vegar og atvinnurekenda hins vegar,
eftir langvarandi verkföll syðra.
Aðalatriðin eru þessi:
1. Allt dagvinnukaup hækkar um
11%, þar af greiðist 1% í sjúkra-
sjóð Dagsbrúnar.
2. Eftirvinnuálag hækkar úr 50% í
60%.
3. Orlofsfé verður 6% af öllu kaupi.
4. í vinnu utan Reykjavíkur greiðist
fæði.
5. Eftir eitt ár hækkar kaup um 4%,
hafi samningum ekki verið sagt
upp.
6. Hækki framfærslukostnaður um
meira en 5%, má segja upp samn-
ingunum með mánaðar fyrirvara.
Þetta eru nákvæmlega samskonar
samningar og samið var um hér fyrir
norðan og síðar víða um land, að und
anskildum reglum um sjúkrasjóði. Að
sjálfsögðu ber að fagna samningun-
um. En líklega er það mörgum hul-
in gáta, hvers vegna atvinnurekendur
í Reykjavík, sem eru að meirihluta
yfirlýstir fylgjendur núverandi ríkis-
stjórnar, lokuðu viku eftir viku öllum
samningaleiðum, eftir að samvinnu-
menn á Norðurlandi og verkalýðsfé-
lögin þar, höfðu vísað veginn af skiln-
ingi og sanngirni á báða bóga og sam-
ið áður en tjón hlauzt af.
Hver einasti maður vissi, að til
kauphækkana hlaut að koma af því
að ríkisstjórnin þverneitaði hverri
þeirri efnahagsaðgerð, sem hún hefur
á valdi sínu og metin hefði verið til
jafns við kauphækkanir. Hótanir rík-
isstjórnarinnar um að hleypa af stað
nýrri óðaverðbólgu ef samið yrði um
kauphækkun, ókvæðisorð til sam-
vinnumanna fyrir að viðurkenna
hreinlega að fólkið yrði að fá kjör sín
bætt að nokkru og strangur agi
stjórnarflokkanna á auðsveipum at-
vinnurekendum í Reykjavík, sýnir
ríkisstjórnina í réttu ljósi. Engin ríkis
stjórn á íslandi hefur lofað því hátíð-
legar en sú er nú situr, að aldrei
skyldi hún blanda sér í verkföll. Það
loforð sveik hún blygðunarlaust, lét
bjóða 3% kauphækkun, síðan 6+4+
3% = 13% á tveim árum. Sama rík-
isstjórn segir að 11% nú og 4% á
næsta ári = 15% sé langtum meira
en þjóðarbúskapurinn þoli.
Menn geta velt því fyrir sér, hvort
sú ríkisstjórn, sem sjálf hefur rýrt
kjör almennings um 15—20%, kaus
verkfallsleiðina og vann hatramlega
gegn öllum kjarabótum eftir mætti,
muni njóta trausts framvegis.
Menn geta líka hugleitt hve miklu
forganga samvinnuleiðtoga í lausn
vinnudeilunnar hefur bjargað, og
hversu ástatt væri hér, ef verkföll
hefðu staðið á fimmtu viku að flialds-
fyrirmynd.
Samvinnufélögin í landinu hafa enn
einu sinni sýnt yfirburði sína á sviði
félagsmála og á þann liátt að þjóðin
mun ekki strax gleyma því. Líklegt
má telja, að þetta heillavænlega spor
geti orðið upphaf að auknu samstarfi
allra íhaldsandstæðinga við það að
skapa betra þjóðfélag en nú er. Fæst-
ir óska fleiri stórra áfalla af hendi
ríkisstjórnarinnar en þegar hafa rið-
ið yfir. Allir hafa fengið nóg af hót-
unum núverandi stjórnar. □