Dagur - 14.10.1961, Side 4

Dagur - 14.10.1961, Side 4
4 5 Bagum ÚTSVÖRIN í SÍÐASTA tölublaði Einherja, blaði Framsóknarmanna í Norðurlandskjör- dæmi vestra, slu-ifar Skúli Guðmundsson alþingismaður grein um útsvörin, og m. a. þetta: „ . . . í júníbyrjun 1960 samþykkti Al- þingi lög um bráðabirgðabreytingar á útsvarslögunum eins og það var nefnt í frumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þessi nýju lög giltu við niðurjöfnun útsvara árið 1960, en hins vegar var þá gert ráð fyrir, að sett yrðu ný útsvarslög á næsta þingi, veturinn 1960—1961. Þó fór svo, að stjóm in lagði engar tillögur um þetta efni fyrir það þing og þurfa landsmenn því að búa við bráðabirgðalögin enn á þessu ári, en þau eru mjög gölluð á margan hátt. Lagareglurnar eru þannig, að útsvörin leggjast mjög misjafnlega þimgt á gjald endur eftir því hvar þeir eru búsettir á landinu. Sem dæmi um það má nefna, að hjón með 2 börn á framfæri og 50 þús. kr. útsvarsskyldar árstekjur borga 3190 kr. í tekjuútsvar samkvæmt lægsta útsvarsstiganum, en 5300 kr. eftir þeim hæsta. Kaupstaðirnir utan Reykjavíkur eru í hæsta álagningarflokknum. Ekki tekur betra við þegar kemur að lagafyrirmælunum um veltuútsvörin, en tæplega hefur verið fundin upp rang- látari skattur en þau eru. Við álagningu þeirra er ekkert farið eftir því, hvort tap eða gróði hefur orðið á þeim atvinnu rekstri, sem á er lagt. Þau koma þyngst og ómaklegast á þá gjaldendur, sem hafa mikla veltu, en lítinn hagnað, þ. e. veita mesta þjónustu fyrir litla borgun. Við álagningu þeirra á viðskiptafyrirtæki er heldur enginn greinarmunur gerður á því, hvort um er að ræða vörukaup til eigin notkunar, t. d. vörukaup félags- manna í samvinnufélögum eða verzlunar rekstur. Veltuútsvöijin eru líka mjög mishá eins og tekjuútsvörin. Árið sem leið þurftu t. d. verzlanir á sumum stöðum norðanlands að borga 2—3 sinnum hærri veltuútsvör heldur en verzlanir í Reykja vík. Þetta er óþolandi ójöfnuðm•. — Ef haldið verður áfram að afla sveitarfélög- unum tekna með útsvörum, þarf að koma þeim málum svo fyrir, að útsvörin verði sem jöfnust um land allt. — Þau sveita- félög, sem ekki fá tckjuþörfum sínum fullnægt með útsvörum, eftir að þau liafa verið jöfnuð, þurfa að fá tekjuauka eftir öðrum leiðum, t. d. úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Heyrzt hefur, að ríkisstjórnin hafi í hyggju að leggja fyrir næsta þing laga- frumvarp um tekjustofna sveitafélaga. En fátt er kunnugt um efni þess væntan lega friunvarps. Þetta er stórt mál, sem almenning varð ar, og ættu menn að íhuga gaumgæfilega þær tillögur, sem fram kunna að koma, og fylgjast með afgreiðslu málsins á Al- þingi.“ Þetta sagði Skúli Guðmundsson um útsvörin. Nú er Alþingi komið saman og hafa þegar allmörg frumvörp verið lögð fram, flest stjórnarfrumvörp, fram borin til að Iáta þingið staðfesta hin og þessi bráða- birgðalög, sem ríkisstjórnin hefur sett í trausti þingmeirihlutans. Enn fremur eru fram komin frumvörp til að fram- lengja skatta, sem áttu að verða til bráðabirgða þegar þeir voru lagðir á. V_______________________________^ STARFIÐ ER LlFRÆNT OG LiFIÐ ALLTAF NÝTT 1 Aldarafmæli Akureyrarkaupsf. ( Afmælisviðtal við Gunnar S. Hafdal bónda og skáld í Sörlatungu ÞEGAR Gunnar S. Hafdal, bóndi og skáld í Sörlatungu, gekk inn á skrifstofur Dags fyr- ir fáum dögum, varpandi stuðl- uðu máli og kjarnyrðum á heimamenn, af þeim myndug- leik og þrótti í málrómi og fasi, sem nægja mundi 10 kotbænd- um, datt mér sízt af öllu í hug, að þar færi sextugur einyrkja- bóndi. En sextugsafmæli hans er 15. október, og í tilefni þess, hripaði eg nokkrar spurningar á blað og svaraði hann af skjót- leika. En á meðan við bíðum eftir svörunnum, skal þess get- ið, að um Gunnar S. Hafdal hafa oft leikið svalviðri. í æsku seinkuðu þau þroska hans, en buguðu hann ekki og síðar óx hann hátt úr grasi, hrjúfur og stæltur. Tvístofna var hann frá fyrstu gerð, bóndi og skáld. Hagari í anda en höndum, djarfmæltur og átakaglaður í ryskingum dægurmála. En skáldgyðjan — og kannski hún ein — opnaði hjarta hans fyrir fegurð og töfrum íslenzkrar náttúru, fyllti það unaði og lagði bóndanum ljóð á tungu. Gunnar Sveinsson Hafdal er fæddur að Deplum í Fljótum og ólst upp til fermingaraldurs í Lundi í sömu sveit. Foreldrar hjónin Sigurbjörg Jóhannes- dóttir og Sveinn Steinsson. — Árin 1915—1918 var Hafdal vinnumaður á Vatnsenda í OI- afsfirði og 1919—1922 í Þing- eyjarsýslu, lengst af í Kast- hvammi í Laxárdal. Til Akur- eyrar fluttist hann 1922 og var búsettur þar til 1945. Bóndi á Hlíðarenda og Hlöðum í Glæsi- bæjarhreppi 1945—1952, síðan í Sörlatungu. Kona Gunnars Hafdal er Sig- ríður Anna Sigurjónsdóttir frá Bjarnastöðum í Unadal, ágæt kona. Börn þeirra eru 5, þar af ein dóttir. Öll hafa þau komist vel til manns og tveir bræður búsettir í Ameríku. Gunnar S. Hafdal hefur gefið út nokkrai' ljóðabækur. Sem bóndi er hann þjóðlegur mjög og nýungagjarn í hófi, treystir á hesta í stað dráttar- véla og hefur hvorki bruðlað með benzín eða olíur. Þetta hef- ur orðið honum affarasælt og drjúgt til tekna. Hvort finnst þér betra að búa í þéttbýli eða dreifbýli. Þessi spurning er svo yfir- gripsmikil, að henni verður ekki svarað til neinnar hlítar í stuttu máli, það skilur svo margt að á milli þéttbýlis og strjálbýlis. Milli kaupstaða og sveita hefur löngum staðið bar- átta og stendur enn í dag með breytingum til hins verra, að því er virðist. Að búa í þéttbýli og strjálbýli er mjög ólíkt og kemur þar enginn samanburður til greina. í 23 ár var eg búsettur í kaup stað, en varð þó aldrei raun- verulegur kaupstaðarbúi að lifnaðarháttum og lífsskoðun. Og til þess lágu ýmsar orsakir, m. a. þær, að eg átti þar aldrei kost á neinu starfi né þeim starfsskilyrðum, er hefðu getað svarað til minna hæfileika og skapgerðar. í stað þess varð eg að stunda lengst af, og þá auð- vitað af illri nauðsyn, ýmis störf, sem voru mér sízt að skapi, t. d. innheimtuþvargið, svo að aðeins eitt sé nefnt. Varð Gunnar S. Ilafdal, því niðurstaðan sú, að eg kynntist kaupstaðarlífinu að fáu góðu, enda naut eg ekki þess skilnings og trausts sam- tíðarmanna, er eg taldi mig verðskulda. Nú, hvað viðvíkur síðari hluta spurningarinnar: að búa í strjálbýli, þ. e. í sveit- inni, get eg svarað því til sér- staklega, að það er frjálslegt og heilbrigt að búa i sveit, þótt það sé háð ýmsum erfiðleikum á stundum. Starfið er lífrænt í ríki náttúrunnar og þar er lífið alltaf nýtt. Og sé rétt búið, er bóndinn sjálfum sér nógur at- vinnulega og efnalega. Hvernig er samkomulagið milli skáldsins og bóndans í sjálfum þér? Samkomulagið milli skáldsins og bóndans er jafnaðarlega gott. Að vísu kemur þó fyrir að kastast í kekki milli þessara aðila og þá sýnist sitt hvorum. En þeim tekst blessunarlega að slétta ágreininginn og sættast á, að bæta hvörn annan upp! Skáldið og þjóðfélagið? Þessu atriði verða ekki gerð nein teljandi skil í skyndisam- tali. Það virðist nú komið svo, að skáldin velflest og þjóðfélag- ið eigi litla samleið. Þar er ekki um mikinn gagnkvæman skiln- ing að ræða, og horfir því ekki heillavænlega við á því sviði, enda fara þar með loddara- hlutverkin misindishjúin, Hlut- drægni og Klíkuskapur, sem halda velli í skjóli hins opin- bera. Skal þó ekki farið fleiri orðum um þetta mál hér, en það er samt íhugunarvert og er efni í réttláta ádeilu. En bóndinn og þjóðfélagið. Bóndinn á nú orðið undir högg að sækja hjá þjóðfélaginu, sem býr engan veginn vel að honum, þegar þess er gætt, hvernig verðlagsmálunum er hagað af núverandi valdhöfum er fara með umboð þeirra flokka, sem virðaast vera í ill- vígri andstöðu við bændur landsins. Dýrtíðaraldan hefur risið hátt nú í seinni tíð og hafa bændur flestum öðrum fremur lent undir breiðfaldi þeirrar óheillaöldu. Viðhorf bóndans er því ekki bjart um sinn gagn- vart þjóðfélaginu né þeim var- hugaverðu mönnum, sem þykja nú halda fremur óhönduglega um stjórnvölinn á þjóðarskút- unni. Skilja þetta allir og sjá, er vilja hlutdrægnislaust litast um á vettvangi þjóðmálanna í dag. Og stökur verða til án mikill- ar fyrirhafnar? Auðvitað kasta eg oft fram vísum, mér og öðrum til gam- ans. Ljóðagerðin hefur aldrei eytt tíma mínum, eg hef haft hana í ofanálag annarra verka, samanber það, sem mun standa í gömlu kvæði eftir mig: Ljóð mín öll ég yrki við ævidagastritið o. s. frv. En fjarri fer því, að eg hafi ævinlega verið ljóðadísinni ljúfur og auðsveipur. Og líklega er það þess vegna, að hún er tekin upp á því, að stríða mér og vill ekki koma til mín nema stöku sinnum. Var það fyrir skömmu, að eg hafði í huga að yrkja kvæðiskorn, en komst ekki eins langt með það og eg vildi. Kastaði eg þá fram í hálf- kæringi: Ljóðadísin er langt frá mér og lítið vill mig styrkja. Þess vegna mér að þegja ber og þann kost taka, sem beztur er: Að hætta alveg að yrkja. Og nóg um þetta að sinni. Um dalinn og fjöllin mætti margt gott segja, en til þess er ekki tími nú. Verður því að láta nægja, að bregða hér upp ofurlítilli ljóðmynd: Svipstór er enn og fagur fjallahringur. hins friðsæla dals, sem er við Hörgá kenndur. Ennþá, sem forðum, áin vorljóð syngur. Enn skarta gróðri hlíð og bakkalendur. Og náttúruraddir frammi í dalnum fjalla friðandi gleðja tilheyrendur alla. Einveran og náttúra landsins? Víðast hvar í Hörgárdal er gott undir bú, þar eru glæsi- jarðir margar, sérstaklega neðst í dalnum. Á einni þeirra, Hlöð- um, bjó eg um árabil og minn- ist ánægjulegs búskapar þar og glaðra stunda. — Viðvíkjandi einverunni í dalnum vil eg segja það, að mér finnst hún ekki tilfinnanleg, og eflaust hefur hún sitt góða gildi. Raunar geta þó hin þögula ró og friður orðið nokkuð þyngslaleg stundum, einkanlega í skamm- degi vetrarins. En það út af fyrir sig læt eg ekki hafa lam- andi áhrif á mig. Þegar birtir yfir og kemur fram á vorið, lyftist hugurinn og er næmur fyrir fegurð dag'anna, sem eru þrungnir af lífi. Og þá kveð eg stundum í þessum dúr: Legg eg eyru lífs við röddum lands í fjallasal. Heitur blær í hlíðum syngur. Hljómríkt er fossatal. Áin leikur lag á hörpu. Linda er ómþýtt hjal. Sinfónía sveitalífsins, sígilt tónaval. Hljómar mér á valdi vorsins og vekja löngun skal: að yrkja jörð og kveða kvæði til kvölds í gróskudal. Hvernig finnst þér svo að vera sextugur. Jú, vafalaust er það gott að vera sextugur. Að vísu saknar maður margra góðra starfsára, sem liðin eru og koma auðvitað aldrei aftur. En maður er þó reynslunni ríkari og jafnvel hyggnari en áður. Ennþá hef eg ekki tapað neinu teljandi af starfsorku minni og má þar vel við una. Vonglaður get eg því enn litið fram á veginn, segir Gunnar S. Hafdal að lokum, en bætir þessari stöku við: í mesta flýti mælt og skráð, minna um kosti^en galla. Lengur skal nú ekki áð, annir dags mig kalla! Og nú er þolinmæði bóndans þrotin, því að mörg erindi eru enn órekin í þessari kaupstað- arferð. Blaðið þakkar viðtalið, enn- fremur kvæði og greinar á und- áhfornum árum og dskar skáldbóndanum í Sörlatungu til hámingju á þessum tímamótum. E. D. — Árin líða í aldanna skaut. — Raunverulega eru afmæli alvarleg tímamót, þótt oft sé breitt yfir alvöruna í fagnaðar- hófum með glamuryrðum og glasa-glaum. — Einstaklingur spyr: — Hvað hefur mér orðið úr árinu, sem nú er liðið og kemur aldrei aftui'? — Og margur kennir sáran sting í barmi. — Sjálfsásökunin verður heljarþung, og stundum allt að því óbærileg: — Vanræksla í starfi, hæfileikum og hugsjón- um! — Sem betur fer, verða fæst okkar 100 ára. — Nógu er samt að svara! —o— Akureyrarkaupstaður á ald- arafmæli 29. ágúst næsta sumar. Þar er margs að minnast! Og ó- efað margs að sakna. — Og margs að iðrast. — Skakkaföll- in í lífi einstaklings verða þeim mun stærri og stórkostlegri í lífi bæjar og stjórnenda hans, sem þar eru 10—12 sinnum fleiri um ábyrgð og vanrækslur. Og þær skortir bæjarstjórn venjulega ekki. Þar er sem sé allt að því þegnskaparskylda einstaklings- ins að vera á öndverðum meið við „andstæðinginn“ í flestum framfaramálum, svo að „flokk- ur hans“ fái eigi skrautfjöður í hatt sinn fyrir forystu í fram- faramálum bæjarins! Síðan er framfkramálum velt og þvælt á ýrrisa vegu, klippt og skorin, unz stundum er eftir óskapnaður einn af glæsilegri frumhug- mynd, og að lokum vill enginn við hana kannast eftir áratuga vanrækslu og tímasóun og fjár- austur, oft út í bláinn. Slíkt skeður oft „á beztu bæjum“, frá sjálfrl höfuðborg- inni til smærri borga. Én skyldu bæjarstjórnir aldr- ei kenna sting í brjósti? | Varnir gegn afbrotahæftunni | SAMKVÆMT nýkomnum frétt um að norðan hefur ungur maður hleypt skotum af byssu í þéttbýli, þannig, að mikill voði stafaði af stjórnleysi pilts- ins. Margt fleira gerist á svip- uðu tagi víða um land. Rán eru algeng og ráðist er á varnar- lausai' konur, þær eru blóð- ugar og marðar, með klæði sundurtætt eftir illræðismenn. Stundum kemst upp um þjófa- félög, ýmist fullorðinna eða unglinga, með 20 þátttakendum eða fleiri. Lítið heyrist um varnir þjóð- félagsins gagnvart afbrotahætt- unni. Til eru fangelsi, en eru illa hirt. Fangar, sem geyma skyldi í aðal hegningarhúsi landsins, fara sjálfir út og inn og taka jafnvel þátt í skemmtanalífi höfuðstaðarins þar til roðar af degi. Þá er haldið heim áður en varðmenn rísa úr rekkju. Eg held, að allir geti verið sammála um það, að piltur, sem leikur sér að skotvopnum og lætur skotin fljúga í allar áttir sé hættulegur samfélaginu og verði vegna sjálfs sín og annarra að fá uppeldisbót. Hér er ekki staður né stund til að ræða í blaðagrein um ein- stök atriði þessa vandamáls. En eg vil því leyfa mér að benda á eina úrbótaleið. Þegar 20 drengir eru í þjófa- félagi, er sennilegt að enginn pilturinn sé raunverulega efni í þjóf. Oftast eru þetta vinalausi- drengir á háskaleið. Þeir geta farist, ef valdamenn þjóðfélags- ins reyna ekki að skilja vanda- málið, og typta dreng'ina á þann hátt, að þeir breytist í dugandi menn. Eg held að koma þyrfti á fót stofnun á helzta jarðhitasvæði á Suðurlandi, ekki mjög langt frá Reykjavík, þar sem skot- maðui'inn að norðan og sunn- lenzkir drengir úr þjófafélögum dvelja eins og á sjúkrahúsi ótiltekinn tíma eftir heilsufar- inu. Við þessa stofnun ætti að kenna smíðar og garðrækt. Þarna væri unglingum kennt að vinna við mörg verkleg fram- (Framhald á bls. 7) Akureyrarbær fékk hamingj- una í vöggugjöf: Staðsetningu á einu fegursta bæjarstæði lands- ins, við einn fegursta fjörð landsins, með frjósamar sveitir og óvenju auðug framfaraskil- yrði á alla vegu, til lands og sjávar! Og vöggugjafirnar voru enn fleiri: Forsjónin gaf koi-nbarninu glæsilegan gullastokk, sem það átti að opna og gleðjast við með aldri og þroska. Og slíkur gulla stokkur, sem Glerárdalur og Glerárgil, hefur engu íslenzku þorpi gefizt fyrr né síðar! Enda mun hvort tveggja vera eins- dæmi hérlendis: — Allmikil á, sem rennur um „miðjan bæ“ úr fullra 200 m. hæð. Og allmikill jarðhiti ofanjarðar, svo að segja undir bæjarvegg Akureyrar, í æskilegri hæð. — En hvort tveggja þetta hefur Akureyrar- bær mismetið og vanrækt til þessa! Miðvikudaginn 20. sept. flutti „DAGUR“ fróðlega yfirlits- grein: „Hvað verður gert á 100 ára afmæli Akureyrarbæjar?“ Var þar skýrt frá allmörgu, sem kjörin hátíðarnefnd hefur í huga og með höndum. En þar var ekki drepið á eitt mesta framtíðarmál bæjarins: Hita- veitu Akureyrar! Fegurri fjöður hefði Akur- eyrarbær þó ekki getað stungið í hátíðarhatt sinn en lokarann- sókn á Glerárgili og fullnaðar- áætlun um hitaveitu bæjarins, — þótt eigi sé lengra komið,— eftir áratuga vanrækslu — og mistök! Lokaorð: Hvernig er annars „saga næstu bæja“? Hafa ekki Sauð- árkrókur og Ólafsfjörður reynst nær sjálfbjarga um sínar hita- veitur? Smíðað bor og borað sjálfir? Án þess að bíða eftir móðurhönd ríkisins með „Norð- urlandsborinn" í hendi! — En nú mun hann annars senilega vera kominn til Húsavíkur, sem pantað hafði hann í tæka tíð. — Segir í blaðagrein 4. þ. m. þannig frá: „Tilraunaborun eftir heitu vatni í Húsavík hófst í gær. Leitað er að vatnsæðinni, sem hið stöðuga rennsli undan Húsavíkur-höfða kemur úr, en það vatn er aðeins virkjað til afnota fyrir sundlaugina....“ o. s. frv. Hvort mun nú Akureyrarbær — í hátíðarskapi — gi'ípa tæki- færið í tíma — eða sleppa því enn úr hendi sér? Enn er all-langt til 29. ágúst næsta sumar! Helgi Valtýsson. • 11111111111111111111111111111111111111111111111 iiiiiiiiiiuilliii* | SÍLD Á POLLINUM | UNDANFARNA daga hafa 5 bátar verið við síldveiðar á Ak- ureyrar-Polli. Þeir hafa fengið tæp 6 þús. mál í gær, föstudags- kvöld. Hæstir eru Garðar og Vörður. Síldin er lögð upp í Krossa- nesi. Hún er af millisíldarstærð. Þuríður Helgadóilir —— MINNING ..... Fædd 19. júlí 1893. Dáin 29. scptember 1961. ÞEGAR EG man fyrst eftir mér var á heimili foreldra minna ung stúlka, Þuríður Helgadóttir, ættuð úr Hafnarfirði. Foreldrar hennar voru kunn- ug móður minni, höfðu ung verið í kaupavinnu hjá föður hennar, Birni Eysteinssyni. — Þótti honum mikið til þeirra koma, sökum dugnaðar og glæsmennsku. Helgi var hamhleypa til verka, en þótti „sopinn“ góður. Herdís var fríð kona, greind og sérlega vel verki farin. Bræður átti Þuríður þrjá og eina systur. Öll voru þessi syst- kini stórmyndarleg, þó held eg, að Þuríður hafi verið þeirra fríðust, þegar hún var á æsku- skeiði. Hún var til heimilis á Guðlaugsstöðum í fimmtán ár, en dvaldi af þeim tíma tvo til þrjá vetur í Reykjavík og Vest- mannaeyjum, hjá ættingjum sínum. Fyrst þegar mig rekur minni til hafði hún þann starfa að hjálpa móður minni í eldhúsi (maskínuhúsi) og búri, leggja á borð og halda þarna öllu hreinu. Stundum skiptust stúlkurnar á um þessi „niðriverk", sem svo voru kölluð, en það var í mörgu að snúast, margt fólk í heimili og „farskóli" á vetrum. — Eg man hún hirti alla lampa af hinni mestu prýði og fægði allt, sem fægja þurfti. Hún stóð jafn an gestum fyrir beina, færði næturgestum morgunkaffi, burstaði föt þeirra og skó. — Aldrei man eg, að hún hefði mjaltir á höndum, en hún spann oft, tók ofan af ull, hærði og var fljót að prjóna. Það kom fyrir, að ég sat uppi í rúminu hjá henni, (fastarúm, notuð sem sæti á daginn,) og las fyrir stúlkunar fjórar, sem sátu við tóvinnu í miðbaðstofunni, og hafði fæturna undir hreinni ull- inni. Það var gaman. Vel man eg hvað Þuríður var ætíð snoturlega klædd, það hefði mátt segja um hana: Bæði af henni „gustur geðs og gerð- arþokki stóð.“ Hún lét ekki misbjóða sér, en var skyldu- rækin og áreiðanleg. Eg man enn hvað eg var hrifin af því að hún krullaði á mér hái'ið og hnýtti borða í að kaupstaðarsið. Hún dansaði vel og kenndi okkur að dansa. Sérstaklega var gaman að dansa við hana skottís. Það voru oft smáböll í sveitum þá, á stærri bæjum. Hún sagði mér af Stefaníu leikkonu, sem þá vai' dáð að verðleikum. Eg sá hjá henni póstkort af Stefaníu í hlutverki Kamelíufrúarinnar. Að horfa á það gaf huganum vængi. Hún sagði mér frá leikrita- skáldinu Indrið'a Einarssyni, Nýársnóttinni hans og leikkon- unum, dætrum hans. Þuríður söng laglega og fór rétt með lögin. Þá söng fólk eða raulaði við vinnu sína, eink um við rokkinn, og börnin á bæjunum námu ljóð og lag. Hún átti söngfræði, sem þá var kennd í barnaskóla Reykjavík- ur, og eg held Hafnarfjarðar. Stundum raulaði hún söng Ulrikku í herberginu, úr „Kinnarhvolssystur", og kunni mikið úr „Ævintýri á göngu- för“. Mikið var eg hrifin og sá þetta allt í anda. Fyrir kom, að hún raulaði kvæðið „Dáinn“, eftir Sig. Júl. Jóhannesson. Þá vissi eg, að hún var að hugsa um allt þo-ð böl, sem misnotkun víns leiðir af sér, og hvað móðir hennar hefði átt betri ævi, ef faðir hennar hefði verið bind- indissamur. Þá var maður nú gráti nær. Ekki gat hjá því farið, að þessi blómlega, unga stúlka vekti eftirtekt karlmannanna. Þeir ortu til hennar vísur og ljóð, bæði í gamni og alvöru. í einu erindinu voru t. d. þessi vísuorð: „Þú ert fegursta blóm- ið í byggðinni hér, þitt bros vekur ylgeisla fjöld.“ Biðla fékk hún eflaust marga. Einn færði henni bréf og sagði: „Hérna er bréf til þín, Þuríður, það er frá mér.“ Sá var snemma gefinn fyrir pennann. Annar hóf upp bónorðið við heyband. (Hann var Vestfirðingur, not- aði sérkenr.ileg orð og kvað fast að errinu.) Nú kemur faðir minn með hestana, og sem þeir eru að „láta upp“, segir Þorleifur: „Þurra (Þura) blóðill.“ Þessi stuttorða tilkynning var skilin svo, að hún hefði hryggbrotið hann. Þegar Þuríður var um þrítugt, giftist hún eftrlifandi manni sínum, Jóni Ólafssyni. Hann var greindur og gegn maður, átti snoturt fjárbú og var frábær skepnuhirðir. Þau byrjuðu búskap á Höllu- stöðum í Blöndudal. Byggingar þar voru gamlar og fornfálegar og allt í niðurníðslu, en jörðin grasgefin. Hana átti gömul frændkona Jóns, eg held, að hún hafi selt honum jörðina, en gerst sjálf próventukona. Sú hafði munað tvenna tíma. Alin upp í allsnægtum við lestur og ferðalög. Sennilega var hún gáfuð, mjög fróð, en ætíð verka smá. Nú var henni þrotið fé fyrir löngu og orðin nærri blind. Samt vildi hún tilbreyt- ingu og hafði þá stefnu, að eng- inn ábúandi skyldi lengi vera á óðali hennar. Þarna bjuggu Jón og Þuríður í sjö ár, en þá seldu þau jörðina og fluttu í Eiðs- staði í sama dal, keyptu hálf- lenduna. Þar var betur hýst. Þeim varð ekki barna auðið og sáu því ekki ástæðu til að leggja mikið fé í jarðabætur eða byggingar, þar sem þau dvöldi. Þó hygg eg, að það hefði verið Þuríði að skapi, svo kjarkmikil og framgjörn sem hún var. Ekki getur hjá því farið, að einyrkjakona í sveit þurfi oft að sjá um fé og fjós, ekki sízt, þegar maðurinn er heilsutæpur eins og í þessu tilfelli. Ekki hafði borið á því, að Þuríður væri gefin fyrir skepnur, áður en hún hóf búskap, nú gekk hún að gegningum með sama myndarbrag og áður að innan- hússtörfum, ef á þurfti að halda. Þó var heimili þeirra hjóna ávallt í góðum sniðurn innan- húss, hlýlegt og gott. Hún var hin ágætasta mat- móðir og veitul við gesti með afbrigðum. Þau hjónin áttu góðan bóka- kost og lásu býsna mikið. Foreldrara Þuríðar dvöldu bæði á heimili hennar um tíma, þó sitt í hvert skipti, og oft voru hjá henni sumarbörn. Það voru bræðrabörn hennar. Sérstaklega var þeim elsti son- ur Magnúsar bróður hennar og konu hans kær. Foreldrar hans komu oft í Eiðsstaði og eftir að Jón og Þur íður fluttu til Blönduóss, tóku þau hana oft með sér í ferðalög til að sjá landið og eyða glöð- um dögum saman. Hún naut þess eins og sá einn getur notið, sem vanur er að hafa verk að vinna. Þau Eiðsstaðahjón áttu falleg an lifandi pening, góða hesta og vel á sig komna, aldar ær og kýr. Þá voru nú kisa og seppi glaðleg á svipinn. Samt var fá- sinnið þreytandi barnlausum hjónum, og þau ráðgerðu oft að flytja til Blönduóss. Þó vai-ð ekki af því, fyrr en Þuríður var komin fast að sextugu og farin að bila að heilsu. Nú bjó hún aftur í kaupstað og kunni vel að meta rafmagns áhöldin og öll þau þægindi, sem því fylgja. Þarna leið henni vel, en ekki kunni hún við að sitja auðum höndum, heldur tók að sér ýmsa vinnu og var eftir- sótt bæði við sláturgerð o. fl. Hún eignaðist þarna góða granna og vini, og gaman var að heimsækja hana á Blönduósi, ekki síður en í sveitinni. Þarna var heimili hennar í hálft ní- unda ár. — , Svo var það eitt kyrrlátt kvöld í haust, er hlíðarnar voru orðnar gular og fjólublá- ar, lyngið rautt og marglitt lauf ið af hríslunum í görðunum við húsin sveif mjúklega til jarðar, að Þuríður kom heim, frá því að hjálpa grannkonu sinni, einni, við að svíða. Hún hafði verið frísk og glöð, og nú gekk hún framhjá börn- um, sem voru að leik. Hún tal- aði glaðlega til þeirra, svo barn hlý sem hún var, og hélt síðan inn í íbúð sína. Hún sezt á stól við eldhússborðið sitt, í vinnu- fötunum sínum og kápunni, því nú var henni undarlega brugð- ið. Hann straukst þarna fram- hjá hinni gestrisnu konu, gest- urinn, sem alla sækir heim, að lokum. — Kona ein í húsinu hafði heyrt umgang, en síðan enga hreyf- ingu, svo hún leit inn, til að vita hverju þetta sætti. Þá sá hún hvar Þuríður sat, og hafði hallað sér fram á borðið eins og hún svæfi. Þó reyndist það ekki vera svo, „því stirðnuð var in holla hönd og hjartað trygga kalt.“ — Það má kallast umbun lífsins, (Framhald á bls. 7) I HEILDARAFLINN I SAMKVÆMT nýútkominni aflaskýrslu Fiskifélagsins, hefur fiskafli landsmanna frá áramót- um til 30. júní, orðið samtals 265.702 tonn, og er þar meðtal- imi síldar- og skelfiskaflinn. Þorskaflinn varð 205.702 tonn, en var á sama tíma í fyrra 256.898 tonn. Þessi afli skiptist þannig eftir verkunaraðferðum: Frysting 87.908 tonn (1960: 120.000), söltun 55.458 tonn (59.229), herzla 41.082 tonn (50.381). Afgangurinn var seld- ur ísaður, étinn af landsmönn- um eða unninn í mjöl. (Sjáv. S. í. S.). j

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.