Dagur - 15.11.1961, Qupperneq 8
8
Norðlenzk sókn æskulýðsmáia
Sumarbúðir reistar við Vestmannsvatn í S-Þing
<11111111111 in umi iii iii n iiimi n ii ii n iimiiiiii 11111111111111 iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiii iii n ii n iii ii iii iii i ■ i n ii iii iii iiiii*
E Aðalfundur Félags ungra Framsóknarmanna á Akureyri var i
| haldinn 8. nóv. sl. — Iíæti var um vetrarstarfið og fjármálin og E
É ný stjórn var kosin. Hana skipa: Frá vinstri: Páll H. Jónsson, i
i gjaldkeri, Kristján Helgi Sveinsson, formaður, Kristinn Bergs- i
| son, Ingólfur Þormóðsson, ritari, og Ævarr Ólafsson. 1
Nýr presfur í LaufásprestakaSli
ínnsetning séra Jóns Bjarmans sL simnudag
Á SUNNUDAGINN var sr. Jón
f GÆR buðu Akureyrarprest-
arnir blaðamönnum til skrafs og
ráðagerða um starfsemi æsku-
lýðsfélaga þjóðkirkjunnar. Þar
voru einnig mættir séra Olafur
Skúlason æskulýðsfulltrúi og
séra Árni Sigurðsson á Hofsósi.
En þeir sátu daginn áður æsku-
lýðsfund í Æskulýðssambandi
Hólastiftis.
Æskulýðsfélögin hafa tryggt
sér land á fögrum stað í S.-
Þingeyjarsýslu, nánar tiltekið
við Vestmannsvatn í landi
Fagraness. Þar verður væntan-
lega reistur eins konar skóli,
Leifshúsum 13. nóv. Snjór varð
ekki til fyrirstöðu á vegum í
hríðinni síðustu 3 daga októ-
bermánaðar og nú er jörð þíð.
Sumir bændur hér eru enn
ekki farnir að hýsa ær, en aðrir
tóku þær þegar hríðina gerði.
Flestir voru búnir að taka
lömb.
Unnið var með skurðgröfu
Ræktunarsamb. Svalbarðsstr.
og Grýtubakkahr. hér í sveit-
inni í mestallt sumar. Það er
þriðja umferð með gröfuna hér
um Svalbarðsstrandarhr. Nú er
líka á mörgum bæjum búið að
ræsa allt, eða næstum allt, vot-
lendi. Skurðgröfustjóri hefur
alltaf verið sá sami, Vilhelm
Þórarinsson frá Dalvík, hinn
ágætásti maður.
Jarðýta Ræktunarsambands-
ins vann hér líka í haust, eink-
um að útjöfnun skurðruðninga.
Byggingaframkvæmdir hafa
verið með minna móti hér á
þessu ári. Þessar eru helztar:
í Sveinbjarnargerði var byggt
vandað hænsnahús fyrir 1000
hænsn. Á Neðri-Dálksstöðum
var byggð viðbót við íbúðar-
húsið, og á Veigastöðum og í
Ásgarði voru fjósin stækkuð. Þá
var og unnið ofurlítið við sund-
laug sveitarinnar.
í haust hefur verið unnið að
stækkun hafskipabryggjunnar á
Svalbarðseyri, og er því verki
nærri lokið.
Nýlega var hér á Svalbarðs-
eyri staddur maður frá SÍS að
athuga um staðsetningu nýs
verzlunarhúss fyrir Kaupfélag
Svalbarðseyrar. En brýn nauð-
syn er fyrir félagið að hefja
byggingu þess sem allra fyrst,
því að enn er verzlun félagsins
í gömlu, litlu timburhúsi, sem
er víðs fjarri því að vei'a full-
nægjandi, þar sem umsetning
félagsins hefur margfaldast síð-
ustu árin.
Heildarskipulagning á Sval-
barðseyrinni hefur verið í at-
hugun undanfarandi ár, og
verður nú væntanlega gengið
endanlega frá henni fljótlega.
Slátrun sauðfjár hjá Kaupfél.
Svalbarðseyrar lauk þann 19.
Alls var slátrað hjá félaginu
14.542 kindum. Er það nokkru
fleira en þar var slátrað haust-
sem rekinn verður með sumar-
búðasniði, sem vel hefur gefizt
undanfarin ár hér á landi.
Söfnun fyrir þessa fram-
kvæmd er þegar hafin með
kvikmyndasýningum og útgáfu
jólakorts frá væntanlegum
skólastað. Kvikmyndin fjallar
um ævi og starf Alberts
Schweitzei'.
Sumarbúðastarfið á Löngu-
mýri, sem Ingibjörg forstöðu-
kona og Ásmundur, fyrrv. bisk—
up eiga mestan heiðurinn af,
sérstaklega þó Ingibjörg, hafa
gefið áhugamönnum djörfung
ið 1960. Meðalkroppþungi dilka
varð nú í ár 14.42 kg., og er það
um 300 gr. minni meðalvigt held
ur en var 1960.
Síðan sauðfjárslátrun lauk á
Svalbarðseyri hefur verið þar í
sláturhúsinu unnið að stórgripa
slátrun, sem nú er að ljúka.
Fleira er nú slátrað þar af
nautgripum heldur en nokkurt
haust áður, eða um 130 talsins.
Ekki er þó líklegt að naut-
gripum fækki á félagssvæðinu,
þó að á allmörgum bæjum —
einkum í Fnjóskadal — væri
minna töðufall en áður, vegna
kalskemmda í túnum. S. V.
Kjarnorka og kven-
hylli sýnd í Ólafsfirði
Ólafsfirði, 13. nóvember. Hér er
hláka og blíðviðri og í gær 10
stiga hiti, svo að snjórinn er
nær horfinn.
Bátarnir afla sæmilega, eða
4—8 tonn í róðri. Stærri bát-
arnir sækja á Skagagrunn og á
Fljótamið þeir minni. Atvinna
er nægileg á meðan aflast, og nú
er unnið að umpökkun og sölt-
un síldar, sem á að fara til
Rússlands.
Leikfélagið æfir sjónleikinn
Kjarnorka og kvenhylli af
miklu kappi og ætlar að hafa
frumsýningu fyrir mánaðamót.
Aðkomu-leikstjóri brást og tók
þá Hólmar Bogason, sem er ný-
lega fluttur hingað í kaupstað-
inn og er lögregluþjónn að at-
vinnu, við leikstjórninni.
Lágheiði hefur verið vel fær
síðan um miðja síðustu viku. □
Áflog við forystusauði
Fnjóskadal, 13. nóv. — Búið er
að handsama forystusauði þá,
sem voru á Gönguskarði og
Dagui' sagði nýlega frá.
Bar það þannig að, að Jón
Geir Lúthersson bóndi að Sól-
vangi var að smala Garðsland,
nú nýlega, og sá þá tvær kind-
til að halda starfinu áfram og
efla það. Sumarbúðastarfið
hófst 1954.
Æskulýðsstarfsemi þjóðkirkj-
unnár hér á landi, er í raun og
veru héðan runnið í núverandi
mynd og aðeins fárra ára gam-
alt. Á Norðurlandi eru tvö
æskulýðsfélög í sveit, þau einu
utan kaupstaða. Þau eru í
Reykjadal og Aðaldal í Suður-
Þingeyjarsýslu.
Á Norðurlandi er æskulýðs-
starfsemin að komast í fast
form og er tekin til fyrirmynd-
ar annars staðar. Sjö félög eru í
Hólastifti.
Erlendir æskulýðsfélagar hafa
heimsótt landið og unnið kaup-
laust við ýmsar mikilsverðar
framkvæmdir. Næstu sumur
munu íslenzk ungmenni vinna
við breytingu á höll mikilli í
Skotlandi, sem auðmaður gaf
æskulýðsfélögum þar. Æsku-
lýðsnefnd þjóðkirkjunnar gefur
út rit, Æskulýðsblaðið, sem Sig.
Haukur Guðjónsson sóknar-
prestur á Hálsi ritstýrir, og er
3. hefti þessa árs rétt komið út.
Ur Skagafirði og Húnavatns-
sýslum berast þær fréttir, að
prestar og kennarar vinni nú að
því sameiginlega að finna starfs
þrá ungra manna og kvenna
nýja farvegi í anda siðgæðis og
kristinnar trúar. Síðustu og
verstu atburðir ættu að opna
augu manna fyrir því, að það er
knýjandi nauðsyn að fara nýjar
leiðii' í uppeldismálum. □
ur í fjallinu norðan Göngu-
skarðs. Sendi hann hund eftir
þeim og hlupu þær niður á
klettanef, sem gengur fram í
Árbaugsá. Þar voru komnir for
ystusauðir þeir, er fyrr getur.
Hundurinn stóð fyrir þeim á
klettanefinu, en bóndi stökk á
annan sauðinn. Urðu þar hinar
hörðustu sviptingar og liöfðu
þeir ■ borizt fram á klettabrún-
ina, þegar Jóni tókst að ná
þeim tökum er dugðu. Batt
hann nú sauðinn með mittisól
sini og náði hinum litlu síðar á
sama stað og með sama hætti.
Forystusauðir þessir voru hin
mestu villidýr og óvenjulega
harðvítugii', sem marka má af
því, að sauður sá, er Jón batt
með mittisólinni, hafði nær
slitið hana í sundur, þegar félagi
hans var handsamaður, var hún
þó sterk leðuról. Fengu menn
ekki slitið hana er það reyndu.
Forystusauðirnir, sem voru
frá Hálsi í Kinn, eru nú komnir
heim til sín. □
Eldbjarmi frá Öskju
ÓfeigsstöSum, 13. nóvember. —
Þessa dagana er framúrskar-
andi blíðviðri og á kvöldin
bjarmar af eldinum í Oskju,
þegar heiðskirt er, svo sem ver-
ið hefur síðustu kvöldin. Virðist
ekkert lát á gosinu. Nokkur
Bjarman settur í embætti við
hátíðlega guðsþjónustu að Lauf
ási. Við guðsþjónustuna var
margt manna og þar af 8 prest-
vígðir menn.
Prófasturinn í Húsavík, séra
Friðrik A. Friðriksson, flutti
ræðu frá altari og setti hinn
nýja prest inn í embættið.
Fofmaður sóknarnefndar, Sig
urbjörn Benediktsson, bauð
prestshjónin velkomin og flutti
ljóðakveðju frá Magnúsi Jóns-
syni stöðvarstjóra. •
Allir kirkjugestir nutu góðra
veitinga á heimili prestshjón-
uggur er í mönnum út af þess-
um eldsumbrotum, ef vera
kynni að gos þetta breyttist í
öskugos.
í dag á merkismaður hér í
sveit afmæli, og er það Jón Sig-
urgeirsson, bóndi og hagleiks-
maður í Ártúni. Hann hefur
tekið mikinn þátt í smíði hey-
vinnuvéla og uppsetningu heim
ilisrafstöðva.
Rjúpur eru fremur sjaldséðar,
svo sem marka má af því, að
duglegasta skyttan hefur ekki
fyllt hundrað ennþá.
Á laugai'daginn kom fjöldi
bænda saman að Hólmavaði til
að ræða verðlagsmál land-
búnaðarins. Gestur fundarins
var Arnór Sigurjónsson starfs-
maður Hagstofunnar og flutti
han.n ýtarlegt erindi um þessi
mál af fullkomnu hlutleysi. —
(Ályktanir fundarins birtar
annars staðar.)
Allt fé er við hús, en lítið er
búið að gefa ennþá. □
Góð haustvertíð
Dalvílc, 14. nóvember. Haust-
vertíð hófst 22. september með
róðri stærri bátanna. En eftir
sláturtíð fjölgaði bátum, sem
stunduðu róðra. Aflinn hefur
verið fremur góður. Síðastliðna
viku var róið dag hvern og það
anna. Kona séra Jóns Bjarmans
er Jóhanna Pálsdóttir.
Undanfarin 3 ár hafa þau
hjón verið búsett í Lundar í
Manitoba og séra Jón verið þar
starfandi prestur. □
GAMALT HÁLSMEN
í SÍÐASTLIÐINNI viku fannst
í gömlum bæjarrústum að Hall-
bjarnarstöðum hálsmen, senni-
lega úr messing, lítið eitt
stærra en 2 kr. peningur. Er
það hringmyndað með stöfun-
um IHS festum innan í hring-
inn. Menið var ekki ryðslegið.
sem er þessari viku. Stærri bát-
arnir fá 6—8 tonn í róðri og þeir
minni 3—4V2 tonn.
Skip útgerðarfélagsins hafa
selt afla sinn í Þýzkalandi.
Björgúlfur kom í sl. viku úr
söluferð. Seldi 65 tonn fyrir
51700 mörk. Hann og Björgvin
eru nú á veiðum.
Þann 9. þ. m. opnaði Árni
Arngrímsson nýja verzlun á
Dalvík og heitir hún Verzlunin
Höfn.
Atvinna er góð. Starfandi eru
tvær fiskvinnslustöðvar og hrað
frystihúsið. Aflinn er saltaður,
frystur og hertur. □
Nýr skóli á Húsavík
Húsavík 14. nóv. Á laugardag-
inn hóf tónlistarskóli starf í
fyrsta sinn á Húsavík. Aðal-
kennari er Ingibjörg Stein-
grímsdóttir. Kenndur er píanó-
og orgelleikur, ennfremur radd
beiting. Skóli þessi á að starfa í
3 mánuði. Nemendur eru 20.
Slátrun lauk hér 19. okt. sl.
Alls var slátrað 37325 sauðkind-
um, og var meðalvigtin 14,28
kg. Það er heldui' betra en í
fyrra, en þá var meðalþungi
13,86 kg. Þyngsta dilk átti Guð-
finna Stefánsdóttir, Vogum við
Mývatns, það var einlembings-
hrútur og vóg hann 30,5 kg.
Fréttabréf frá Svatbarðsströnd