Dagur - 27.06.1962, Side 1
1- .’•! W, !-'ra\ísóknar'm,\\na
|R'T>t,|ókí; Krungur Davíosnun
SKWtFMO! R, í 1 i \| NARSTU.I.Í! 90
S r\i i i 1 (56 . Sktn i n i: u og pr e\f u n
ANNAST 1‘nr.N l VERK ( 0)1»
l;.)()KN.'S,)N \k !!.! . AkURRVRS
--------------------------------------9
XLV. árg. — Akureyri, miðvikudagur 27. júní 1962 — 36. tbl.
\!-C.;.\ si \;. Vs! |,')!<!: j 1SaM-
ÚEJ-SSON . RINN KOSJ Aií
Klí. -lOO.OO . CfAiiUDAGr TK ! jói.i
Bi.ADIS Kr\í’TK : A Si’WVIKUDÖGn
' r\i {)(; a !..\i c, y,uio..r\!
1’WiAK ÁSR.TDA 1‘VKiK T».
.............................. . ....
Bændur ferðast um landi
BÆNDAFERÐIR eru nú tíðar
orðnar. Takast margar þeirra
mjög vel, og sennilega allar,
þegar veður er gott. Enn eru
þeir margir ,sem í sveitum búa
og ekki hafa gert tíðreist um
landið. Fyrir þá eru bænda-
ferðirnar hinar fróðlegustu, þar
Sjö skip frá Akureyri
veiða síld í sumar
AÐ þessu sinni munu 7 skip frá
Akureyri stunda síldveiðar við
Norðurland. Þau eru þessi:
Snæfell, Sigurður Bjarnason,
Súlan, Ólafur Magnússon, Akra-
borg, Gylfi II og Hrefna. Garðar
og Gylfi eiga heimili á Rauðu-
vík, þótt þeir séu venjulega
taldir til Akureyrarbáta með
öðrum bátum Valtýs Þorsteins-
sonar.
Fyrr á árum voru mörg síld-
arskip gerð út frá Akureyri, ef
til vill fimm sinnum fleiri en nú,
og átti sú útgerð góðan hlut að
uppbyggingu þessa bæjar.
□
sem jafnan er kunnugur leið-
beinandi með í för.
Síðasti bændahópurinn, sem
hér fór um, var skagfirzkur, og
í honum 118 menn úr öllum
hreppum sýslunnar nema Fells-
hreppi í Fljótum. í þessum hópi
voru konur að tveim fimmtu
hlutum. Fararstjóri er Ragnar
Ásgeirsson.
Skagfirðingarnir þágu hádeg-
isverðai-boð KEA á Akureyri á
mánudaginn. — Þar ávörpuðu
Jakob Frímannsson og Brynj-
ólfur Sveinsson gestina ,en Jón
Jónsson á Hofi þakkaði. En Jón
á Hofi og Björn í Bæ annast far-
arstjórnina ásamt Ragnari, sem
kvaddi sér hljóðs, áður en stað-
ið var upp frá borðum, lýsti
ferðaáætlun og hvatti fólk til
stundvísi,sem hann kvað mest á
skorta í slíkum ferðum.
Skagfirðingarnir ætla til
Hornafjarðar og Suðursveitar
og hafa áætlaða 8 daga ferð.
í dag munu þeir koma í Hall-
ormsstað, Skriðuklaustur og
Fljótsdal. Á morgun verða þeir
í Austur-Skaftafellssýslu. □
í Ein af mörgum flugvélum Flugfélags íslands, sem nýlega minntist merkra tímamóta.
Sílderganga á vestan spáir mjög góðu
Jakob Jakobsson fiskifræðingur segir
ÆGIR er staddur út af Sporða-
grunni í suðvestan kalda, sem
fer vaxandi. — Síldarbátarnir
þyrpast á miðin og bætist við á
hverjum klukkutíma, sem líður.
Þegar bátarnir komu hér í gær-
kveldi, dreifðu þeir sér skipu-
lega um Strandagrunn og síld
veiddist þá þegar á Stranda-
grunnshorni.
Fanney auk Ægis. Pétur kemur
í kvöld, en vegna vélarbilunar
hjá Fanney seinkar henni. Jo-
han Hjort var að leita á Þistil-
fjarðardýpi og á Þistilfjarðar-
grunni. Þar var síldin á stóru
svæði, en torfur smáar. □
Söltun hefst á Sisílufirði einbvern næstu dasa
Siglufirði, 26. júní. Tuttugu og
ein síldarsöltunarstöð er tilbúin
að taka á móti síldinni, ennfrem-
ur allar síldarverksmiðjurnar.
Fyrstu síldina kom HelgiHelga-
son með, 11—1200 tunnur, Anna
er að koma með 350 tunnur,
Farsæll með 120, Guðmundur
Þórðarson með 650 og eitthvert
skip með 1000 tunnur. Allt fer
þetta í frost og bræðslu.
Síldin að vestan er misjafn-
ari og ekki eins feit og sú síld,
sem fyrst veiddist. En við síld-
ina á vestursvæðinu eru nú
mestar vonir bundnar, eins og
er. Það lítur út fyrir að sú síld
sé að komast inn í innra átu-
beltið.
í kvöld munu margar síldar-
stúlkur koma til Siglufjarðar og
á morgun er ráðgert að fólkið
streymi að, ef svo heldur sem
horfir með síldveiðarnar. Búizt
er við að söltun geti hafizt allra
næstu daga.
STAL 2000 KRONUM
UNGUR maður hér á Akureyri
stal fyrir nokkru 2 þús. lcrónum
í peningum frá gamalmenni
einu hér í bæ, er hann heim-
sótti. Nokkru síðar var kært til
lögreglunnar og náði hún pilt-
inum, sem játaði brot sitt. Dóm-
ur verður væntanlega upp kveð-
inn í málinu innan skamms.
Síldin er enn sem fyrr á hvers
manns vörum og allt snýst um
síldina í landi. Siglufjörður
verður væntanlega hinn mikli
síldarbær næstu daga og von-
andi næstu vikurnar, eða það
vonum við heimamenn. Og hér
eru skilyrði til að taka á móti
óhemjumiklu síldarmagni, bæði
í salt og bræðslu. Hingað kemur
líka fólk svo hundruðum skipt-
ir um leið og vinna hefst fyrir
alvöru.
□
Bygginprleyfi verkalýðshússins
var loks samþykkt í bæjarstjórn gegn 3 atkv.
Á BÆ J ARST J ÓRN ARFUNDI
síðdegis í gær og enn stóð er
blaðinu var lokað, var leyfi fyr-
ir byggingu félagsheimilis
verkalýðsfélaganna loks sam-
þykkt með 8 atkv. gegn 3. — Á
móti voru Bragi, Jón Sólnes og
Árni. Er þar með langri deilu
og harðri lokið, enda komin ný
valdahlutföll í bæjarstjórn.
Til bæjarráðs var vísað til-
lögu frá Braga um að selja nú
þegar 2 togarana, vegna verk-
fallsins. Ekki var hægt að taka
ákvörðun um aðstöðugjöld
samkvæmt hinum nýju lögum,
þar sem greinargerð vantar enn
þar um. Dregst af þessum sök-
um að jafna niður útsvörum og
er vart við það unandi, að hið
opinbera tefji nauðsynleg störf
vegna þessa seinlætis.
Samþykkt var að breikka
innkeyrslu á Flugvöllinn í 10
metra og auka bifreiðastæðin,
samkvæmt tilmælum Flugmála-
stjórnar.
Þessi skip fengu veiði: Far-
sæll 150 tunnur, Anna 350 tunn-
ur, Hrafn Sveinbjarnarson 600
mál, Höfrungur II 1000 mál,
Rán 200 mál. Smári fékk góða
veiði. Ennfremur Olafsfjarðar-
bátar: Sæþór og Stígandi og' fl.
bátar, sem eiga eftir að tilkynna
afla sinn ennþá (árdegis í gær).
Bátar voru einnig að veiðum út
af Langanesi í gær og nótt, en
þar var síldin meira dreifð og í
smátorfum, en á stóru svæði.
Átuskilyrðin eru mjög góð,
því að rauðátustofninn er mjög
sterkur. Og það sem nú gefur
beztar vonir um síldveiði, ásamt
rauðátunni, er það, að síldin
skuli nú vera að koma að vest-
an. Um styrkleika þeirrar göngu
er enn ekki hægt að fullyrða.
í sumar verða þrjú síldarskip
eða Pétur Thorsteinsson og
Llsfaverkið á Hellulandi í Skagaf.
ÓLAFUR HEITINN SIGURÐS-
SON á Hellulandi í Skagafirði
og Jóhannes Kjarval voru mikl-
ir vinir. — Kjarval málaði eitt
sinn altaristöflu, er sett var í
Rípurkirkju". En hún var síðan
tekin niður, þar sem sóknar-
börn felldu sig ekki við hana.
Ólafur keypti hana þá og sendi
utan til viðgerðar. Þar týndist
hún, en kom fram eftir tilvísan
úr öðrum heimi, og er sá kapí-
tuli hinn sögulegasti.
Ekkja Ólafs á Hellulandi á nú
þessa altaristöflu og hafa ýmsir
hug á að eignast þessa sögu-
frægu mynd og hafa boðið tugi
þúsunda króna fyrir hana. Einn-
ig hefur fast verið eftir því leit-
að', að gera af henni prentmynd-
ir. — Hvort sem 40—60 þús. kr.
boð í málverkið freistar eig-
andans, sem hér verður í efa
dregið, eða að það þyki betur
komið á öðru mstað, skal ósagt
látið. En óneitanlega er það
nokkurs vert fyrir heimilið á
Hellulandi, að eiga slíkan dýr-
grip innan sinna veggja.
Mikið seyðmagn er talið
fylgja þessari altaristöflu, eða
svo segja þeir menn sumir, er
séð hafa.
□
NÝR FORMAÐUR L.A.
Á MÁNUDAGINN hélt Leikfé-
lag Akureyrar aðalfund sinn —
fyrra hluta. — Þar var Guð-
mundui' Gunnarsson kosinn for-
maður í stað Sigurðar Kristj-
ánssonar, sem gegndi því starfi
áður. Aðrir í stjórn eru: Björg
Baldvinsdóttir og Haraldur Sig-
urðsson.
Leikfélagið sýndi tvo sjónleiki
í vétur, Bör Börson og Við, sem
vinnum eldhússtörfin. — Einnig
hafði það nokkrar sýningar á
Bláu kápunni, sem sýnd var vet-
urinn áður.
m 1111111111111111111111 ii iiiiiiiiiiiii ii ■iiiiiiiiiiiiiiiiiinmit
[ Mokafli á togaramið-
| um við Grænland
| FÆREYINGAR ogÞjóðverj-
\ ar mokveiða við Grænland
= um þessar mundir, samkv.
I upplýsingum frá þýzka eftir-
§ litsskipinu Poseidon, sem
i kom til Reykjavíkur um
i helgina.
í Aflinn er stór þorskur og
i svo mikill að furðu sætir. —
\ Eftirlitsskipið lóðaði á mikl-
í um fisktorfum á leiðinni
i hingað, á landgrunnsbrún-
í inni og utar.
í Hin gífurlega þorskveiði
\ er bæði við Norður-Græn-
i land og Vestur-Grænland.
\ Þessar aflafréttir ættu aS
I verða livatning til lausnar
i togaradeilunni hér á landi,
Í ef stjórnarvöldin eru ekki
i ryðguð föst í „viðreisn“ sinni.
*"lllll 1111111111111 iii 111111111111111111 iii ■1111111111111111111111