Dagur - 27.06.1962, Qupperneq 8
Frá kjördæmisþinginu a Laugum í Reykjadal
Gunnar og Herdís í „Rekkjunni“.
,Rekkjan’ um landið
5) Kjördæmisþingið mælir
eindregið með þeirri kröfu
bænda, að bankarnir hækki frá
því, sem nú er, lán út á land-
búnaðarafurðir til samræmis
við það hundraðshlutfall, sem
þeir lána út á sjávarafurðir
endanlega. Vill þó þingið benda
á, að lán lit á þær eru of lág.
Þá bendir þingið ennfremur á
nauðsyn þess, að Seðlabankinn
veiti afurðalán út á garðávexti.
6) Kjördæmisþingið vekur at-
liygli á því, að útborganir Rík-
issjóðs samkvæmt fjárlögum
liafa ú árunum 1959 til 1962 tvö-
faklazt, en því fer fjarri, að
framlög til verklegra fram-
kvæmda hafi hækkað að sama
skapi. í þessu sambandi tekur
þingið fram, að það telur, að
eðiilegt væri, að benzín- og bif-
reiðaskattar þeir, sem nú renna
í Ríkissjóð, gangi eftirleiðis ó-
skertir til vega-, brúa- og gatna-
gerðar.
FÖSTUDAGINN 15. júní var
haldinn á Blönduósi sameigin-
legur fundur fræðsluráðs Aust-
ur-Húnavatnssýslu og oddvita
allra sveitahreppa sýslunnar. —
Þar var samþykkt af fræðslu-
ráði að mæla með sameiningu
skólaliverfa héraðsins og reisa
sameiginlegan heimavistarskóla
fyrir börn úr sveitahreppum
sýslunnar.
Oddvitar 6 hreppa lýstu yfir
stuðningi við málið, en tveir
oddvitar sögðust ekki vera við-
búnir að taka afstöðu, en vildu
ekki neita þátttöku. Þessir tveir
hreppar hafa nokkra sérstöðu.
Staður fyrir skólann er ætlað-
ur á Reykjum á Reykjabraut og
verður nú þegar hafizt handa
um undirbúning málsins, svo
sem leita eftir samþykki
fræðslumálastjórnarinnar og fá-
ist það, þá að útvega teikningar
og svo framvegis.
Er mikill áhugi í héraðinu
fyrir því að þetta mál nái sem
fyrst fram að ganga.
Fimmtudaginn 14. júní var á
Laugarbakka í Miðfirði sameig-
inlegur fundur fræðsluráðs V,-
Húnavatnssýslu og oddvita
sveitahreppa sýslunnar.
Þar var samþykkt af fræðslu-
ráði að mæla með sameiningu
skólahverfa héraðsins og reisa
heimavistarskóla fyrir börn úr
sveitahreppum sýslunnar, sem
FEGRUN RÆJARINS
SAGT ER, að margir bæjarbúar
hafi mikinn hug á hvers konar
snyrtingu og fegrun bæjarins,
einkum vegna 100 ára afmælis-
ins síðar í sumar.
Margir afburðaljótir og sóða-
legir staðir eru að vísu til enn
þá, en þeim hefur fækkað og nú
munu yfirvöldin taka sóðana í
karphúsið, ef þurfa þykir.
En það þarf líka að fegra
hina fögru staði og má það
heldur ekki gleymast.
7) Kjördæmisþingið lýsir von-
brigðum sínum yfir því, að ekki
skyldi á síðasta Alþingi fást
viðunandi löggjöf um sérstaka
stofnun og starfsemi, til þess að
stuðla að jafnvægi í byggð
landsins. Lögin um Atvinnu-
bótasjóð telur þingið algerlega
ófullnægjandi í þessu skyni,
enda framlag til sjóðsins að
ræða, ef miðað er við hið svo-
nefnda atvinnuaukningafé, sem
veitt var á fjárlögum. Skorar
þingið á alþingismenn Fram-
sóknarflokksins að vinna að úr-
bótum í þessum efnum.
8) Kjördæmisþingið leggur á-
herzlu á, að gerð verði áætlun
um skipulagða landþurrkun í
kjördæminu og þá einkum í
þeim sveitum, þar sem hlutfalls-
lega mest samfellt ræktarlegt
votlendi er, eða þurrlendi skort-
ir til ræktunar eða beitar. Fel-
ur þingið þingmönnum Fram-
sóknarflokksins í kjördæminu
þá myndi sennilega verða á
Laugarbakka.
Ekki var fullkomin einhugur
á fundinum og munu sennilega
4 af 6 sveitahreppum sýslunnar
verða með nú þegar, en Fremri-
Torfustaðahreppur og Þverár-
hreppur hafa lýst sig mótfallna
einum sameiginlegum skóla fyr-
ir allt héraðið.
Fræðslui'áðið mun nú þegar
hefja undirbúning að frekari
framkvæmdum, því að áhugi er
mikill í héraðinu að þessu lausn
á skólavandamálinu fáist.
(Frétt frá sýslumanni Ilún-
vetninga.)
SíWin komin og síldar-
konur á leiðinni
Raufarhöfn, 26. júní. Seley frá
Eskifirði kom með fyrstu síld-
ina, 300 mál, hinn 21. júní og
var það góð síld, sem var fryst
og brædd. Bjarmi frá Dalvík
kom svo með 500 mál 23. júní,
Seley aftur á sunnudaginn með
600 mál, og í gær kom Seley
með 700 mál, Birkir; Eskifirði,
með 600 mál og Hringver, Vest-
mannaeyjum, með 500 mál.
Sennilega hefst söltun þegar
í dag. Smári frá Húsavík var að
biðja um söltun áðan. Hann hef-
ur 700 tunnur og nú fara fleiri
skip að „melda“ sig, því að það
var nokkur veiði í nótt.
Kaupfél. Raufarhafnar keypti
Hafsilfur, sem hefur saltað mest
undanfarið. Hana átti Sveinn
Benediktsson og fleiri. Söltun-
arstöðvar verða hér 6, því að
Skor er lögð niður, en fiskibát-
ar hafa hennar pláss og veitir
ekki af. Héðan róa 4 dekkbátar
og 15—20 trillur og afla vel á
línu.
Allmargir karlmenn eru
aö leita stuðnings Alþingis við
gerð og framkvæmd slíkrar á-
ætlunar.
9) Með skírskotun til aðkall-
andi nauðsynjar þess að vanda
þær sjávarvörur, sem út eru
fluttar í samkeppni við vörur
annarra fiskveiðiþjóða, felur
kjördæmisþingið þingmönnum
Framsóknarflokksins í kjör-
dæminu að gangast fyrir því, að
komið verði hérlendis upp fisk-
iðnskóla, einum eða fleiri, þar
sem matsmenn, verkstjórar og
aðrir, sem þýðingarmikil störf
vinna, eða vilja búa sig undir
að vinna á þessu sviði, eigi kost
hagnýtrar fræðslu, verklegrar
og bóklegrar, sem fiskiðnað
varðar.
10) Kjördæmisþingið vítir
tómlæti ríkisstjórnarinnar við
að leysa núverandi vandamál
togaraútgerðarinnar m. a. á Ak-
ureyri, þar sem hér er um sér-
stakt þjóðhagsmál að ræða, sem
stjórnarvöldum landsins ber að
hafa forgöngu um að leysa.
11) Kjördæmisþingið tekur
undir kröfu Búnaðarþings um,
að felldir verði niður tollar og
söluskatta raf innfluttum drátt-
arvélum og varahlutum til
þeirra.
(Framhald á bls. 7.)
[ Vetrarsíld\ eiðar |
VETRARSÍLDVEIÐAR fyrir
sunnan land og vestan hafa auk-
izt mjög og má eflaust þakka
það síldarleitartækjunum nýju
og meiri síldarleit.
Heildaraflinn að þessu sinni
varð 1.514.660 uppmældar tunn-
ur, þar af ca. 795 þús. frá ára-
mótum. □
komnir hingað á plönin og í dag
verður aukaflugferð með síld-
arstúlkur að sunnan og munu
þær drífa að næstu daga. □
Mikið vatnásvæði
Ófeigsstöðum, 25. júní. Mjög eru
slæmar heyskaparhorfur, lítil
spretta og mikið kal. Snúninga-
samt hefur orðið vegna sveitar-
stjórnarkosninganna, sem fram
fóru á sunnudaginn. Almenn
samtök urðu um það, að dreifa
fulltrúum sem jafnast um sveit-
ina og mikil alúð lögð við það
frá báðum sveitarhlutum, enda
heppnaðist það mjög vel. Enn
hefur ekkert veiðst í Skjálf-
andafljóti, nema það hafi þá
veiðst í gær. Nokkur áhugi er
fyrir því meðal ýmissra bænda,
að gerð verði tilraun til að gera
allt Skjálfandafljót laxgengt
frá ósum og allt til Svartár-
vatns. Er það mikið vatnasvæði
og líklegt talið af mörgum, að
þarna sé um mjög mikla fram-
tíðarmöguleika að ræða. — Á
þessu vatnasvæði er einnig
Djúpá og Ljósavatn. Ennfremur
íshólfsvatn í Mjóadal. □
Á NÆSTUNNI mun leikflokk-
ur úr Reykjavík leggja af stað
í leikför út á land og sýna í öll-
um helztu leikhúsum og félags-
heimilum á landinu. Leikritið,
sem sýnt verður í þessari leik-
för, er hið vinsæla og skemmti-
lega leikrit Rekkjan, sem sýnt
var í Þjóðleikhúsinu fyrir 10 ár-
um við afbragðsgóðar viðtökur.
Sýningar á leiknum urðu 47 að
meðtöldum nokkrum sýningum
utan- Reykjavíkur. — Það er
skemmst frá að segja, að þetta
varð ein af vinsælustu leiksýn-
ingum Þjóðleikhússins og hlaut
leikurinn mjög góða dóma
gagnrýnenda og leikhúsgesta
Allir bátar farnir íit
Ólafsfirði, 26. júní. — Á sunnu-
dagskvöldið héldu 5 Ólafsfjarð-
arbátarnir úr höfn áleiðis á
síldarmiðin. Þeir eru þessir:
Guðbjörg, Stígandi, Þorleifur
Rögnvaldsson, Sæþór og Ólafur
Bekkur. — Sæþór og Stígandi
munu hafa feng'ið veiði í nótt og
koma e.t.v. með fyrstu síldina í
dag til söltunar, og tveir aðrir.
Hér eru 3 söltunarstöðvar,
eins og í fyrra: Sf. Stígandi,
Jökull hf. og Auðbjörg.
Fyrir hvítasunnu var ágætur
afli á dekkbátana, en síðan tbk
fyrir hann. Nú eru bæði trillur
og dekkbátar að búa sig á hand-
færaveiðar. □
Aðalfundur H. S. Þ.
Húsavík, 26. júni. Aðalfundur
HSÞ var haldinn á Húsavík í
boði Völsungs um helgina. — Á
fundinum mættu 33 fullti'úar
frá íþróttafélögum og ung-
mennafélögum víðsvegar af fé-
lagssvæðinu, sem er Suður-Þing-
eyjarsýsla. Meðal gesta voru
eins og mörgum er enn í fersku
minni.
Þeir, sem taka þátt í þessari
leikför, eru leikararnir Herdís
Þorvaldsdóttir, Gunnar Eyj-
ólfsson, Klemenz Jónsson og
Guðni Bjarnason leiksviðsstj. —
Leikflokkur þessi hefur hlotið
nafnið „Rekkjuflokkurinn“ eft-
ir leiknum, sem hann sýnir. —
Höfundur leiksins er Hollend-
ingurinn Jan de Hartog, sem er
vel þekktur í leikhúsheiminum.
Rekkjan var fyrst sýnd í Lon-
don 1950 og hlaut strax mjög
góðar móttökur. Síðan hefur
leikurinn verið sýndur í mörg-
(Framhald á bls. 7.)
Hermann Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri ÍSÍ og Skúli Þor-
steinsson, framkv.stjóri UMFÍ.
Ákveðið var að reyna að efna
til frjálsíþróttakeppni í sumar á
milli IISÞ og Austfirðinga og í
öðru lagi milli HSÞ og Eyfirð-
inga. Standa vonir til að það
geti tekizt, enda mundi það á-
vinningur fyrir íþróttafólk í
þessum héruðum, ef vel tekst
til.
Meðal samþykkta, sem aðal-
fundurinn gerði var ákvörðun
um, að HSÞ gerðist aðili að fyr-
irhuguðum slysatryggingasjóði
íþróttamanna og einnig áskorun
til annarra íþróttafélaga, ung-
mennafélaga og sambanda
þeirra um, að gera slíkt hið
sama og veita því máli hinn
fyllsta stuðning.
Að loknum aðalfundi bauð
bæjarstjórn Húsavíkurkaup-
staðar fulltrúum og gestum til
veizlu að Hótel Húsavík. — Var
setið þar í góðum fatnaði 'við
veitingar og ræðuhöld.
Formaður Héraðssambands
Þingeyinga er Óskar Ágústsson,
kennari á Laugum. □
Skólðbyggingar í Húnavatnssýslu