Dagur - 08.02.1964, Side 1
NÝIR KAUPENDUR
fá framhaldssöguna,
„GULLNA BORGIN“
frá byrjun.
Hringið í síma
1166 eða 1167.
Dagur
XLVII. árg. — Akureyri, laugardaginn 8. febrúar 1964 — 11. tbl.
VINSAMLEGA LÁT-
IÐ VITA EF VAN-
SKIL VERÐA Á
BLAÐINU.
Símar 1166 og 1167.
VATNSDÆLIR SELJA
LAXVEIÐIRÉTT FYR-
IR MIKLA FjÁRHÆÐ
Blönduósi 7. febrúar I gær voru
undirritaðir í Reykjavík samn-
ingar um veiðileyfi í Vatnsdals-
á næstu lO árin. Þeir sem samn-
ingana gerðu voru fulllrúar
landeigenda á veiðisvæðinu og
hins vegar Ieigutakarnir, tveir
Englendingar. Með Vatnsdalsá
fylgja tvær litlar þverár, Álka
og Kornsá.
ÁRSLEIGAN £7000.
• Ársleigan er 7000 sterlings-
pund, sem samsvarar um 850
þúsund íslenzkum krónum. Eng
lendingarnir greiða einnig 8300
pund fyrir veiðihús, sem bænd-
ur láta í té, en eignast eftir 10
ár, og 1000 st.pund á ári til fiski
ræktar, ennfremur greiða þeir
fé fyrir fiskveg í gegnum Flóð-
ið.
Bændur, sem hér eiga hlut
að máli, munu vera um 50 tals-
ins. Leigutakarnir heita John
Askley Cooper og Hazel Hurst.
Tómas Árnason lögfræðingur
annaðist samningagei'ð fyrir
hönd bændanna.
Til gamans má geta þess, að
þeir samningar, sem síðast voru
í gildi um leigu Vatnsdalsár
hljóðuðu upp á 350 þús. kr. árs-
leigu. Fyrir þrem árum var leig
an 55 þúsund krónur.
Síðustu tvö árin hafa veiðst
allt að 1200 laxar í Vatnsdalsá,
hvort sumar. Áin er talin mjög
skemmtileg og hæg veiðiá, auk
hinnar miklu laxgengdar. Ó.Sv.
ÞESSI MYND átti að fylgja frásögn í síðasta blaði af byggingaframkvæmdum á Akureyri. Hún er frá Glerárhverfi. (Ljósm.: E. D.)
YIRKJUN VIÐ BÚRFELL OG STÓRIÐJA
VIÐ FAXAFLOANN
Skýrsla ríkisstjórnarinnar á Alþingi um málið
ATIIUGANIR STÓRIÐJUNEFNDAR benda til þess, að 105 þús-
und kw orkuver við Búrfell sé liagkvæmasta stórvirkjunin hér
á landi. Og staðsetning aluminíumverksmiðju ódýrust og hag-
kvæmust við Faxaflóa sunnanverðan, sagði Jóhann Hafstein iðn-
aðarmálaráðherra, í skýrslu, sem hann gaf Alþingi s.l. miðvikudag.
Hann sagði, að virkjunin myndi kosta rúmlega 1100 milljónir kr.
með línu til Reykjavíkur, og stækkun úr 105 þúsund kw í 210
þúsund kvv 600 milljónir. Þrjátíu þúsund tonna aluminiumverk-
smiðja, sem telst í minna lagi, myndi kosta 1100 milljónir króna,
eins og 105 þúsund kvv orkuverið með raflínu til höfuðborgarinnar.
Ráðherrann sagði ennfremur,
að einnig væri verið að „athuga
möguleika á því, að aluminíum-
bræðsla yrði staðsett við Eyja-
fjörð, ef háspennulína yrði lögð
frá Búrfelli til Akureyrar.11
Ákveðnara var þetta ekki.
Hann kvað liafa verið rætt við
útlend aluminíumfyrirtæki og
Alþjóðabankann um þessi mál.
Eysteinn Jónsson taldi nauð-
synlcgt að Alþingi fengi þetta
stórmál í hendur, áður en meira
v'æri aðhafst af liálfu stjórnar-
valda.
Gísli Guðmundsson minnti á
ályktun Alþingis fyrir þrem ár-
um, um virkjun Jökulsár á
Fjöllum til stóriðju. Ilann taldi
illa farið, að enginn heimamað-
ur á Norður- eða Austurlandi
ætti sæti í stóriðjunefnd, og
spurði livort liægt væri að gefa
upplýsingar um möguleika á
framleiðslu tilbúins áburðar til
útflutnings.
Slíkar upplýsingar reyndust
ekki vera fyrir hendi á þmg-
fundinum. Ræðutími var tak-
markaður. □
AKUREYRINGAR KREFJAST
RANNSÓIÍNA Á JARÐHITA
í GÆR fóru nokkrir starfs-
menn Vegagerðarinnar á Ak-
ureyri á stúfana með undir-
skiiftaskjal, þar sem skorað
er á bæjaryfirvöld og alþing-
ismenn að láta hraða rann-
sóknum á jarðhita á Akur-
eyri og nágrenni, með tilliti
til borunar. Jafnframt er
mótmælt brottflutningi Norð
urlandsborsins, suður.
Hundruð manna og kvenna
höfðu undirritað áskorunina
eftir 2 klst. og á sumum
vinnustöðum óskuðu allir að
rita nöfn sín.
Laun verzlunarlólks hækka um 40%
samkvæmt úrskurði kjaradóms í fyrrakvöld
f LOK verkfalls verzlunar-
og skrifstofufólks í desember sl.
voru kjaramálin lögð fyrir
kjai'adóm. Sá dómur hefur nú
lokið störfum og kveðið upp úr-
skurð sinn.
40% HÆKKUN.
Samkvæmt honum hækka
laun verzlunar- og skrifstofu-
fólks, þ. e. þeirra samtaka, sem
undir dóm gengu, um rúmlega
40%. Þeir, sem þessa kauphækk
un fá nú, munu vera 15—20%
hærri í launum en opinberir
starfsmenn, að því er talið er,
enda mun hinn nýkomni úr-
skui'ður kjaradóms m. a. hafa
Afurðalán til landbúnaðarins verði aukin
Aðalfundur Búnaðarsambands
Eyjafjarðar hófst að Hótel KEA
á Akureyri 3. febrúar og lauk
daginn eftir. Mættir voru, auk
stjórnar og starfsmanna, full-
trúar frá 15 búnaðarfélögum.
Formaður sambandsins, Ár-
mann Dalmannsson, flutti
skýrslu stjórnarinnar, en ráðu-
nautarnir sínar starfsskýrslur.
Minnst var látins heiðursfélaga,
Hannesar Davíðssonar frá Hofi.
Sambandið á nú rúmlega einnar
millj. króna skuldlausa eign.
NOKKRAR SAMÞYKKTIR.
Ut af erindi Iiermóðs Guð-
mundssonar ds. 8. jan. s.l. sam-
þykkir fundurinn að heimila
stjórninni vegna 1% gjaldsins
til Stofnlánadeildar landbúnað-
arins, greiðslu úr félagssjóði
hluta BSE, þóknun til mála-
færslumanns.
Aðalfundurinn heimilar stjórn
sambandsins að hefjast handa,
eins fljótt og verða má, um
byggingu nýs búvélaverkstæð-
is á lóð þeirri, sem búvélaverk-
stæðinu hefur verið úthlutað á
Gleráreyrum, norðan Glerár.
Aðalfundur BSE beindi
þeim tilmælum til Búnaðarfé-
lags íslands og Stéttarsambands
bænda, að vinna að því við
stjórnai'völd landsins, að aðurða
lán til landbúnaðarins verði
aukin það mikið, að útborgun-
arvei'ð til bænda verði ekki inn
an við 90% af afui'ðavérði.
Stjórn sambandsins var falið
að kynna sér, hvort áhugi væi'i
fyrir því, að vinnuflokkur ann-
aðist byggingafi'amkvæmdir í
sveitum — og hvort mögulegt
væri að koma því á. Stjórninni
var falið að efna til bændafei'ð-
ar næsta sumar.
Þá samþykkti fundurinn að
leita samstarfs UMSE um að
stofna til námskeiða í mælsku-
list.
Aðalfundui'inn samþykkti að
fela stjórninni að efna til nám-
skeiðs í vélklippingu sauðfjár.
í stjórn Búnaðarsambands
(Framhald á blaðsíðu 7).
grundvallast á síðustu almennu
15% launahækkuninni.
ELLEFU FLOKKAR I LAUNA
STIGANUM.
í launastiganum er gert ráð
fyi'ir 11 flokkum og er það
breyting fi'á því sem áður var
og gerir samanbui'ð ógleggri.
Kauphækkun verzlunarfólks
miðast við 1. október s.I.
Á Akureyri var kjaradómi
hafnað af hálfu vei-zlunar- og
skrifstofufólks. En að sjálfsögðu
verða nýir samningar byggðir á
þeim úrslitum, sem hér liggja
fyrir. □
Gunnar Guðbjarts-
son talar á næsta
Bændakl úbbsf undi
NÆSTI BÆNDAKLÚBBS-
FUNDUR verður á mánudag
á Hótel KEA kl. 9 e. h. Fruni-
mælandi Gunnar Guðbjarts-
son formaður Stéttarsambands
Bænda. Q