Dagur - 08.02.1964, Qupperneq 7
7
Laxár-virkjunin nýja og rafvæðing Akureyrar
(Framhald af blaðsíðu 2).
nein ókunn fræði um rafvæð-
ingu bæjarins, heldur aðeins
viljað ýta við þeim, sem hættir
til að dotta á verðirium, svo að
þeir hrökkvi upp og sjái það,
sem blasir við allra augum! Og
í því skyni einu hefir H. V. und-
anfarna áratugi skrifað all-marg
ar blaðagreinar um „ gulla-
kistu“ Glerárdals tíl hvatningar
og uppörvunar, og sumar „að
gefnu tilefni“ m. a. t. d.: „Gler-
árþankar við kertaljós í Laxár-
myrkri“ („Dagur“ 10. og 17/2.
1960) og „Glerárþankar í Góu-
sól“ („Dagur“ 2. apríl 1960) o.
m. fl.
Þar var einnig sagt frá
norskri vatnavirkjun, þar sem
vatnsmagn og aðstaða öll minn-
ir mjög á Glerá. Bjölvefossinn í
Harðangri var óvirkjaður tal-
inn 650 kw., við frumvirkjun
um 2000 kw. og loks fullvirkj-
aður 33.000 kw. Þetía hélt H.
V. að myndi þykja íróðleg tíð-
indL En svo virðist þó ekki hafa
verið.
Að 50 árum liðnum (2014)
mun borgarstjóm Akureyrar
senda Helga Valtýssyni hug-
skeyti, — sem þá verða í tízku,
— í sama skyni og Eyrbekking-
ar forðum, og spyrjast fyrh',
hvemig hann hefði hugsað sér
virkjun Glerár í þremur áföng-
um, því talið sé, að hann hafi
þrásinnis hreyft því máli um
miðja 20. öld. Nú sé Glerá orð-
in Akureyrar. stolt og borgar-
prýði, en leiki framvegis laus-
beizluð alla leið ofan af DaL —
Nú hafi tveim nýjum mönnum
í boi-garstjórn hugkvæmst, að
eigi mætti lengur dragast að
gera þessu fegursta ævintýri ís-
lenzkra bæja full og verðug
skil! Hafi þeir fengið tillögu
samþykkta á þeim vettvangi. —
Og þar með sé fullnaðar-
virkjun Glerár komin á dagskrá
borgarstjórnar Akurcyrar!
Helgi Valtýsson.
ATVINNA!
Tvær stiilkui' óskast, helzt strax.
HÓTEL KEA
é
Mínum k'céru sveitungum og öðnim vinum, sendi
& ég hlýjar kveðjur og þahkir fyrir heimsóknir, heilla-
£ skeyti og hlý handtök á sextugsufmœli minu, 2. febr.
| TÓMAS GUÐLAUGSSON, Hclgafelli,
-t
©
-r
Svalbarðsströnd.
<3
■k
f
I
*
?
©
TRYGGVI JÓNASSON,
fyrrverandi fiskmatsmaður,
sem andaðist í Ivristneshæli 3. þ. m. verður jarðsettur
þriðjudaginn 11. þ. m. kl. 1.30 e. h. frá Akureyrar-
kirkju.
Útför
HELGA EIRÍKSSONAR frá Þómstöðum
verður gerð frá Kaupangskirkju fimmtudaginn 13.
febrúar. — Kveðiuathöín hefst í Akureyrarkirkju kl.
1.30 e. h.
Vandamenn.
Þökkum af heilum hug öllum fjær og nær auðsýnda
sanuíð við andlát og jarðarför okkar elskulega sonar
og bróður
JAKORS JAKOBSSONAR.
Sérstakt þakklæti viljum við færa Karlakórnum
Geysí, stjórn og félögum úr Knattspymuíélagi Akur-
eyrar, svo og öllum öðrum íþróttasamtökum í iandinu
er heiðmðu minningu hins látna.
Mattliildur Stefánsdóttir. Jakob Gíslason.
Friðrika Jakobsdóttir. Sigurlaug Jakobsdóttir.
Jóhann Jakobsson. Gunnar Jakobsson.
Haukur Jakobsson.
- SERBÆTUR ...
(Framhald af blaðsíðu 8).
menn stundum um „framsókn-
arýsu“ og „Eysteins-stútung",
og það sem meira máli skipti en
hrópyrði, var að með þessum
hætti, „sérbótunum“, tókst að
rétta hag vinnslustöðvanna og
gera þeim kleift að greiða sama
verð fyrir smáfiskinn. Hitt er
svo ekkert launungarmál, að
fyrir sunnan var þetta fyrir-
komulag misnotað af sumum
með ríflegu framtali á fiski,
sem sérbætur voru greiddar á,
enda þótt þeir, sem þar áttu
hlut að máli hefðu í rauninni
ekki þörf fyrir þessa tegund
verðuppbóta.
Með efnahagslöggjöfinni 1960
voru sérbætur felldar niður
með auðsæum afleiðingum.
Verð á smáfiski hefur lækkað
og má færa nokkur rök fyrir
því, að una verði einhverjum
verðmun á þessu sviði. En lækk
un smáfisksins nægði engan veg
inn til að tryggja rekstur
vinnslustöðvanna norðan- og
austanlands, og því er komið,
sem komið er víða og þó senni-
lega verr en ýmsir halda.
í sambandi við hið nýja
skatta- og uppbótarfrumvarp
ríkisstj órnarinnar fluttu Fram-
sóknarmenn tillögu um að
nokkurri fjárupphæð yrði var-
ið til stuðnings þeim fiskvinnslu
stöðvum, sem einkum vinna úr
sumarveiddum fiski og lakasta
rekstursaðstöðu hafa, enda
nauðsynlegt hlutaðeigandi
byggðarlögum, að þessi fyrir-
tæki starfi. Þessa tillögu felldu
þingmenn stjórnarflokkanna, og
sumir þingfulltrúar héðan af
Norðurlandi áttu þar hlut að.
Þeir verða þá vonandi til við-
tals um að tryggja sjávarútveg-
inn norðanlands og austan með
öðrum ráðum. Q
- AFURÐALAN ...
(Framhald af blaðsíðu 1).
Eyjafjarðar eiga sæti: Ármann
Dalmannsson, Eggert Davíðs-
son og Jón Hjálmarsson.
f sambandi við afgreiðslu
fjárhagsáætlunar ákvað stjórn
sambandsins'' aiír 'leggja '20 bús.
krónur við áður ákveðið fram-
lag úr Minningarsjóði prófasts-
hjónanna á Hofi, sem sonur
þeirra, Hannes Davíðsson stofn-
aði á sínum tíma.
TAPAÐ
KVENARMBANDSÚR
með gráu leðurarmbandi,
tapað. Finnandi \insaml.
hringi í síma 2165.
Fundarlaun.
AKUREYRINGAR ATHUGIÐ!
Litskuggamyndir frá heim-
sókn Kommandör Wester-
gárds í haust, og myndir frá
Skálholtskirkju, gosi í Surts-
ey o. m. fl. verður sýnt á
fjölskyldusamkomu í sal
Hjálpræðishersins n. k. sunnu
dag kl. 4 e. h. — Sunnudaga-
skóli kl. 2 e. h. Samkoma kl.
8,30 e. h. Heimilasamband
mánudag kl. 4 e. h. Kapt.
Ástrós Jónsdóttir stjómar og
talar á þessum samkomum.
Allir velkomnir. — Hjálpræð-
isherinn.
SÆTAFERÐIR í Skíðahótelið
á laugardag kl. 13, á sunnu-
dag kl. 9 — 10 — 13 frá Ferða
skrifstofunni Túngötu 1. —
Strætisvagnar Akureyrar.
- Hugrún skáldkona
(Framhald af blaðsíðu 5).
hitt handritið vil ég ekkert
segja að svo stöddu.
Þú ferð utan öðru hverju til
að auðga andann?
Já, ég hef oft farið utan og
haft mjög gott af því. Þar hef
ég viðað að mér efni í bækur
og útvarpserindi, segir Hugrún,
eða frú Filippía Kristjánsdóttir,
að lokum og hafði hún ekki
að þessu sinni tíma til lengri
samræðna.
Blaðið þakkar hinni norð-
lenzku skáldkonu viðtalið og
óskar henni góðs gengis. Q
TRESMIÐAVELAR
TIL SÖLU:
Aíréttari og hjólsög.
Uppl. í síma 2036.
ÍSSKÁPUR TIL SÖLU
notaður, með nýju fyrsti-
kerfi.
Sími 1805.
STOFA ÓSKAST,
helzt á brekkunni utan-
verðri, þó ekki aðalatriði.
Sírni 2029.
AUGLYSIÐ I DEGI
OBYRT! - ODYRT!
BARNANÁTTFÖT
kr. 66.50
TELPUNÁTTFÖT
kr. 110.00
DÖMUNÁTTFÖT
kr. 149.00
REYKJARPIPUR
kr. 185.00
KLÆÐAVERZLUN
SIG. GUÐMUNDSSONAR
HUS TIL SOLU
Til sölu er íbúðarhús mitt við Hjalteyri. — í lnisinu
eru 2 íbúðir á sörnu hæðinni. í kjallara þvottahús
ásantt 4 geymsluherbergjum. Til greina kemur sala á
annarri íbúðinni. — Hrisið getur verið laust í vor.
ÆGIR SÆMUNÐSSON.
KRAKKAR! Krakkar! Barna-
samkomur verða öll kvöld vik
unnar kl. 6 e. h. frá og með
deginum í dag. — Hjálpræðis-
herinn.
DANSLEIKUR verður í Laug-
arborg á sunnudagskvöld 9.
febrúar, að aflokinni sýningu
á Jósafat.
- Bændaklúbbsfundur
(Framhald af blaðsíðu 2).
fólks úr landi. Eftir aldamót
hófst þróunarsaga þéttbýlis,
kaupstaða og kauptúna við sjó
og höfuðborgin rís upp. frá
þeim tíma hafa flestir, er horf-
ið hafa úr sveitunum, látið sér
nægja að færa byggð sína til
strandar. Nú bíða sveitirnar
með stórfelld verkefni óleyst,
til hagsbóta fyrir þjóðina alla.
Og íslenzkur landbúnaður stend
ur í dag með næg vopn í hönd-
um, er skapa færar leiðir til að
koma á bættum og öruggari
búnaðarháttum. Þessi vopn eru:
Vel uppbyggt félagsmálakerfi í
fjölbreyttum landbúnaðarsam-
tökum, bæði á sviði framleiðslu,
viðskipta, ræktunar og menn-
ir.garmála. Þjóðin má ekki ljá
þeim áróðri eyra, að takmarkan-
ir séu settar um það, hve marg-
ir bændur eigi að vera í land-
inu. Og við megum ekki láta
telja okkur trú um að það sé
ekki hægt að lifa mannsæmandi
lífi í sveit og við sveitabúskap.
Gæði landsins eigum við að
nytja tíl hins ýtrasta. Það er
aldrei til ávinnings að nýta ekki
náttúrleg gæði landsins. í kjöl-
far slíkrar aðstöðu höfum við
dæmi um glötun sjálfstæðis. Q
Hið mikla „sigurverk44
(Framhald af blaðsíðu 4).
sem nú eru í þrennu lagi
með sína þrjá milljarða, sem
taka skal af fólkinu eftir ýms
um leiðum, og það sýnir sú
öfugþróun á nær öllum svið-
um efnahagslífsins, sem við
blasir.
____Eftir. allt þetta bera .ein-
stöku menn sér það í numn,
að „viðréisnin" liafi tekizt! □
- SÉRBÆTUR ...
(Framhald af blaðsíðu 8).
Hér er eins og verið sé að
segja fréttir frá ókunnu landi,
jafnvel austa við tjald og eng-
ar tölur nefndar. Því fer fjarri,
að norðlenzkir bátar, sem ekki
fara suður, standi yfirleitt uppi
í naustum allan veturinn. í
flestum verstöðvum á Norður-
landi stunda menn sjó , meira
og minna eftir miðvetur, eink-
um á þilfarsbátum en einnig á
hinum stærri trillum, þegar
veður leyfir. Vera má, að hér sé
ekki um mikið aflamagn að
ræða, miðað við heildar-ársafla
landsmanna. En vel færi á því,
að LÍU fylgdist betur með báta-
útgerð Norðlendinga en fisk-
veiðitímaritið Ægir hefur gert,
og birti fréttir af þeirri starf-
semi ekki síður en sjósókn í
öðrum landshlutum. Q