Dagur - 14.03.1964, Blaðsíða 5
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Sírnar 1166 og 1167
Ritstjóri og ábýrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Ályktun
Á MIÐSTJÓRNARFUNDI Fram-
sóknarflokksins um síðustu helgi,
var samþykkt stjórnmálaályktun
flokksins, og er hér fyrsti liluti henn-
ar:
EFN AHAGSRÁÐSTAFANIR nú-
verandi ríkisstjórnar hafa reynzt
þjóðinni mjög illa. Þær hafa reynzt
óhæfar til að ráða bót á þeim erfið-
leikum í íslenzku efnahagslífi, sem
fyrir voru, og til viðbótar skapað
aðra nýja og enn alvarlegri. Dýrtíð
hefur auðizt hraðar en nokkru sinni
fyrr, vinnufriður verið óstöðugur og
atvinnuvegirnir eiga í vök að verjast.
í skjóli lánsfjárhafta og verðbólgu
dafnar nú margs konar fjármála-
spilling og brask.
Aðalfundur miðstjórnar Framsókn-
arflokksins haldinn í Reykjavík, 6.—
S.marz, 1964, leggur áherzlu á nauð-
syn þess, að ekki verði frekari dráttur
á að tekin verði upp á ný heilbrigð
stefna í efnahagsmálum.
Kjaramálin verður að leysa í áföng
um, þannig að tryggðar verði lífvæn-
legar tekjur fyrir eðlilegan vinnudag.
Ríkisvaldið verður að taka upp
samstarf við almannasamtökin í
landinu, samvinnufélögin og stétta-
félögin.
Efnahagskerfið þarf að endur-
skoða frá rótum og skapa skilyrði
fyrir skipulegum hagvexti í stað þess
skipulagsleysis, sem nú ríkir. Bendir
fundurinn m. a. á þessar leiðir:
I. Ríkisvaldið má ekki skjóta sér
undan ábyrgð af verðlagsþróuninni
í landinu, eins og núverandi ríkis-
stjórn hefur gert, heldur gera nauð-
synlegar ráðstafanir til að halda dýr-
tíðinni í skefjum. Til þess að stuðla
að hagstæðari verðlagsþróun er m.
a. nauðsynlegt
að draga úr þeim mikla kostnaði,
sem orðinn er við stofnun atvinnu-
fyrirtækja og heimila og vaxið hef-
ur á undanförnum árum langt
fram úr atvinnu- og launatekjum.
að stilla vaxtafæti í hóf.
að lækka neyzluskatta og tryggja
öruggari innheimtu skatta.
að skapa möguleika til að verð-
tryggja sparifé.
að nema úr lögnm bann við vísi-
tölutryggingu launa.
að auka verðtryggðan skyldu-
sparnað. □
fiiitiiiiliiiiifiiiitiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiii
JÓNAS JÓNSSON FRÁ HRIFLU:
iiiiiiiiiiinmiiiiiniiiiii
iiiimmmmmmii
MÁLEFNI BÆNDA 1964
ÞÁTTUR BLAÐANNA.
Blöð landsins hafa tekið mjög
misafnlega þessari sókn bænda.
Morgunblaðið hefur birt sumar
af hinum fráleitu greinum
Gunnars Bjarnasonar. Reykja-
víkurblöðin öll hafa látið sig
litlu skipta bændafundi Gunn-
ars Guðbjartssonar. Nokkrum
dögum eftir að allir Reykvík-
ingar vissu að mjög fjörugir
fundir höfðu verið haldnir norð
anlands, var þess getið í dagblöð
unum.
Aðeins eitt blað, Dagur á Ak-
ureyri, hefur sýnt vakandi
áhuga á málefnum bændanna.
Væri fullkomin ástæða til að
bændur á Norður- og Austur-
landi gerðu meira af því en
verið hefur hingað til, að nota
sér velvild og áhrif þessa þraut
reynda stuðningsblaðs norð-
lenzkra og austlenzkra bænda.
En það getur staðið til bóta
DÆMIÐ FRÁ RÚSSLANDI
OG KÍNA.
Eitt af þeim málum, sem
ástæða er til að ræða við Gunn-
ar Bjarnason þar sem hann
kemur, og þó sérstaklega við
aðra áhugamenn um málefni
sveitanna, er reynsla Rússa og
Kínverja um stórbú í sveitun-
um. í báðum þessum stóru
ríkjum hafa stjórnarvöldin
áhuga fyrir allri þjóðnýtingu.
Vitað er að Rússum hefur orð-
ið mikið ágengt með þjóðnýt-
ingu vélaiðnaðarins og að lík-
indum má segja það sama um
úthafsflota þeirra til fiskveiða.
Hvað sem segja má um þjóðlíf
Rússa að öðru leyti, þá er víst,
að stóriðnaður þeirra er orðinn
mjög umfangsmikill og virðist
geta keppt við Vesturlöndin.
En allt öðru máli gegnir um
landbúnaðinn- í Rússlandi og
Kína. í báðum þessum löndum
var áður rekinn einstaklingsbú-
skapur. Að vísu oft með frum-
stæðri tækni eins og víðar í
heiminum. En bændurnir í
Rússlandi og Kína framleiddu
allar búvörur, sem þessar þjóð
ir hafa lifað á öldum saman,
allt frá grárri forneskju. f báð-
um þessum löndum hafa Stalin
og stéttarbræður hans beitt
bændur hinu mesta harðræði,
til þess að flæma þá frá búum
sínum. Stalin hafði það ráð að
neita milljónum bænda um út-
sæði á akra, ef þeir vildu ekki
skilyrðislaust gefast upp og
ganga á hönd ríkisvaldinu og
vinna sem launþrælar hinna
stóru ríkisbúa. Þessi meðferð
bænda í Rússlandi var svo
harkaleg, að sagnfræðingar
telja, að 20 milljónir bænda hafi
verið flæmdir á vergang eða
sveltir í hel. Þannig var ríkis-
reknum búskap komið á í land-
inu. Menn vita minna um Kína,
en þó er það hyggja kunnugra
manna, að þar hafi verið beitt
sama laginu, enda líta stjórnar-
völd þess rílcis svo á, að þjóðin
sé svo mannmörg, að hún geti
þeirra hluta vegna lagt út í
atomstríð þótt sá leikur kostaði
200 milljónir mannslífa. Kínverj
ar séu samt nógu margir og
myndu geta lagt undir sig ný
lönd, þar sem fólkinu hefði ver
ið útrýmt með atomeldinum.
En nú er að víkja að því
hvérsu Stalin og Krusjeff lánað-
ist stórbúskapur ríkisins. Stjórn
arvöldin hafa ár eftir ár gert allt
sem unnt var til að gera þenn-
an búskap lífvænlegan fyrir
þjóðfélagið, þannig, að borgar-
búar gætu fengið nægilegan bú-
mat frá ríkisbúunum til dag-
legra þarfa. Þetta er raunar
sjálfsögð krafa, sem gerð er í
hverju landi, enda eru bændurn
ir sjálfir manna fúsastir að
verða við óskum kaupenda, ef
sanngirni er beitt í öllum skipt-
um.
HUNGURSNEYÐ FYRIR
DYRUM.
En í Rússlandi og Kína hefur
þróunin orðið með þeim hætti,
að ríkisbúin hafa mislukkast
algerlega, þrátt fyrir hina miklu
umhyggju og aðild stjórnar-
valdanna. Það hefur vantað
korn, kjöt, mjólk, egg og græn-
meti, svo ekki sé fleira talið.
Bæði stórveldin hafa á síðustu
árum neyðst til að kaupa mat-
væli frá keppinautum sínum,
Engilsöxunum. Kínverjar leit-
uðu fyrst til Ástralíumanna og
Kanadamanna því að þar var
hlutleysi í skiptum milli ríkj-
anna. Rússar fóru í fyrstu
sömu leið. En þegar á leið, var
ekki nóg af kornvörum og öðr-
um búvörum til sölu. Krúsjeff
notfærði sér þá batnandi sam-
búð Rússa og Bandaríkjamanna
og fór fram á stórkostleg mat-
arkaup, enda virðist það vera
eina úrræði Rússá til að forðast
stórkostlega hungursneyð í
landinu. Enn er þó sagan ekki
fullsögð, því að bæði Stalin og
Krusjoff neyddust til að láta
hina ánauðugu bændur, eða
starfsmenn ríkisbúanna hafa
litla bletti til ræktunar nærri
hýbýlum sínum. Þessa bletti
mega bændurnir rækta að eigin
vild. Þar varð moldin lífsupp-
spretta fyrir Rússland og rússn-
eskt þjóðlíf. Þar rækta bænd-
urnir kálmeti og korn og hafa
nokkur alidýr. Hægt er að hafa
svo sem eina kú á hinum
þrönga, afmarkaða reit.
LITLI BLETTURINN OG
SÁL BÓNDANS.
Þá gerðist kraftaverkið. Þess-
ir litlu blettir lands voru rækt-
aðir með hinni mestu ástundun
og ástúð og gáfu ótrúlega mik-
inn arð, þar sem ríkisbúin með
öllum sínum vélakosti og til-
kostnaði stjórnarvalda voru allt
af í ólagi. Það vantaði einn hlut
í ríkisbúskapinn: Sál, trú og vel
vild bóndans. Rússnesku bænd-
unum þótti vænt um blettina,
sem þeir ræktuðu sjálfir fyrir
sig og sína og þar drógu þeir
ekki af sér. En á ríkisbúunum
gerðu þeir nauðsynlega skyldu
sína, án þess að hafa trú á fyr-
irtækinu. Þeir litu með söknuði
til fyrri daga, þegar þeir máttu
rækta sínar bújarðar.
Þessum málum er nú þannig
komið, að tvær af voldugustu
þjóðum heims, Rússar og Kín-
verjar, hafa lagt út í það stór-
ræða, sem Gunnar Bjarnason
og hans fylgifiskar stefna að, þ.
e. ríkisbúskapur til framleiðslu
á landbúnaðarvörum á íslandi.
Þessi leið Rússa og Kínverja er
algerlega lokuð. Stjórnarvöld
þeirra hafa gert allt, sem hugs-
anlegt er til að bjarga við þjóð-
nýtingarskipulagi sínu, en án
árangurs. Krusjeff talar nú um
stóraukna framleiðslu og notk-
un áburðar og kennir uppskeru
brestina vanrækslu yfirvald-
anna í landbúnaðarmálum.
Hingað til hafa allar vonir
stjórnarvaldanna í nefndum
HALLDÓR JÓNSSON
ÁSBYRGI
t t f
KVEÐJA ÚR
GLERÁRIIVERFI
Nú er komin kveðjustundin
Kristur blessi legstað þinn,
hún cr ávallt harmi bundin
hölug tárin strjúka kinn.
Þó ber oss að þakka a£ hjarta
að þrautagöngu lokið er,
nú átt þú framtíð fagra og bjarta
friður Drottins sé með þér.
Góður varst þú verkamaður
er vildu allir lcita til,
að hvcrju starfi gekkst þú glaður
gafst þig jafnt við söng og spil.
Kórinn þakkar kennslu þína
og kæra samleið alla tíð.
Yfir þér niun ætíð skína
allar stundir sólin blíð.
Góða ferð til fcgri landa
fcllur tjald við sólarlag
ástvmir sem eftir standa
allir þakka vilja í dag.
Astar þakkir afi, bróðir,
eiginmaður, faðir kær.
Unrvefji ]ng englar góðir
okkar lifir minning skær.
Höfuni hljótt því Kristur kallar
kvcðjuin þann sem liggur nár.
Dimmir að, því degi hallar
Drottinn þerrar sorgartár.
Sjáuin himins blíða bjarma
brosa til þín milt og rótt.
Drottinn sína ástararma
urn þig vefur. Góða nótt.
H. J.
Veðurspámsrinirnir vita ekki
siff rjúkandi ráð
5
- Frá Búnaðarþingi
ríkjum mistekist af þeirri ein-
földu ástæðu, að sveitafólkið
hefur hvorki trú eða traust á
fyrirkomulaginu og er fullt af
gremju til vandhafanna, sem
sviftu það eignum sínum og at-
vinnufrelsi.
SÖGULEG ATRIÐI.
Þetta var landbúnaðarhliðin
á atvinnurekstri Kússa og Kín-
verja. En það er líka önnur
hlið á þessu máli, og hún er
eftirtektarverð fyrir íslenzka
bændur. Á landbúnaðarsviðinu
hafa rauðliðar beðið hinn hefri-
legasta ósigur fyrir hinum vopn-
lausu bændum á sléttum Rúss-
lands og Kínaveldis. Nú lítur
út fyrir að höfðingjar bolsevika
geti aldrei unnið sigur í land-
búnaðarmálum. Atvinnusaga
heimsins bendir í þá átt, að það
geti aldrei tekist í neinu landi,
að gera búvöruframleiðsluna
lífræna með því að láta'þá, sem
að henni vinna, vera ófrjálsa
menn og kúgaða.
Þetta sögulega atriði mun
hafa mikla þýðingu í skiftum
stéttanna á íslandi, þegar ís-
lenzkir bændur efla atvinnu-
samtök sín til sjálfsbjargar, og
sú þróun virðist vera á góðri
leið. Það er mikils virði í skift-
um við ógætna andstæðinga,
eins og óunnar Bjarnason og
Gylfa Þ. Gíslason, að geta bent
þeim á, að þeir geta aldrei unn
ið sigur í búnaðarmálum á ís-
landi, enda er það víst, að ef
óhappaöflum tekst að eyði-
leggja byggðina, deyr öll þjóð-
in. □
Egilsstöðum 12. marz. Veðurspá-
mennirnir okkar hér austur frá
vita nú ekki lengur sitt rjúk-
andi ráð, því spár þeirra hafa
brugðist svo gjörsamlega að
undanförnu. Þeir spáðu hríð og
frosti með þorrabyrjun, síðan að
brygði til hins verra á miðþorra.
Ekki rættist það. Gripu þeir þá
til góunnar og sögðu að með
komu hennar myndi enda veður
blíðan. Ekki varð það heldur og
heyrist nú enginn spádómur
lengur. En menn lofa guð fyrir
góða veðrið, sem enn helst.
Tré eru farin að springa út og
er beygur í skógræktarmönn-
um. Frostið, sem ekki var djúpt
í jörðu, er að hverfa og vegir
að verða þurrir og góðir. Aldrei
kemur dropi úr lofti, en hæg
sunnanátt löngum, stundum
frostkul um nætur.
Margir bændur eru búnir að
sleppa fé sínu, en reyna þó að
gæta þess, að það rási ekki upp
á heiðar.
Svo eru menn að byggja og
steypa eftir hendinni í hlýind-
unum. Verst er, að óvíst er með
Öllu um opinberar framkvæmd-
ir og tefst því undirbúningur af
þeim sökum. Má í því sambandi
nefna Eiðaskóla og byggingu
við flugvöllinn. Menn vita ekki
enn hvað valdamenn syðra
ætla að leyfa og hvað ekki.
Um 170 manns gengu í félag
ungra Framsóknarmanna, sem
stofnað var á Egilsstöðum í jan
úar í vetur. Þessi félagsstofnun
vakti eftirtekt og úlfaþyt.
Sjálfstæðismenn og kommún-
istar héldu því fram, að ótil-
hlýðilegur áróður hefði verið
rekinn í sambandi við þessa
félagsstofnun og börn verið tek
in inn í félagið. Af 170 voru 7
innan við 16 ára aldur og myndi
(Framhald af blaðsíðu 1).
Aðgönguskýrteini fást í Bóka
búð Jóhanns Valdimarssonar,
Bóka og blaðasölunni, í skrif-
stofu verklýðsfélaganna og
skrifstofu Iðju.
19. marz (fimmtud. kl. 8,30):
Erindi: Fjölskyldan og megin-
hlutverk hennar, Hannes Jóns-
son. Kvikmynd: Frá kynslóð til
kynslóðar. í henni eru m. a.
sýndar og útskýrðar erfðir
mannsins og barnsfæðing.
20. marz (föstud.) kl. 8,30).
Erindi: Ástin, makavalið og
hjónabandið, Hannes Jónsson.
Kvikmynd: Hjónabandið er
gagnkvæmur félagsskapur.
Myndin er gerð í samráði við
dr. Lemo D. Rockwood, félags-
fræðiprófessor við Cornellhá-
það hvorki þykja ámælisvert
hjá stærsta stjórnmálaflokknum
í Reykjavík eða hjá rauðliðum
í Neskaupstað. Formaður hins
nýstofnaða félags er Magnús
Einarsson, Egilsstöðum.
Það verður að hryggja hina
óánægðu menn með því, að
fleiri félagsstofnanir ungra
Framsóknarmanna eru í undir-
búningi hér í kjördæminu.
Væntanlega stofna svo félög
hinna yngri manna með sér
samband og verða búin að því
áður en kjördæmisþingið verð-
ur haldið í sumar. En það verð-
ur að þessu sinni í Höfn í
Hornafirði í júnímánuði. V. S.
skóla. Litskuggamyndir: Fjöl-
skyldan stækkar.
21. marz (laugard.) kl. 3,30).
Erindi: Hjópabandið og sið-
fræði kynlífsins, Hannes Jóns-
son. Kvikmynd: Erfðir og um-
hverfisáhrif. Myndin er gerð í
samráði við dr. A. R. Lauer,
félagssálfræðiprófessor við rík-
isháskólann í Iova.
22. marz (sunnud.) kl. 3,00).
Erindi: Vandainál lijúskapar-
slita og hjónaskilnaða, Hannes
Jónsson. Kvikmynd: Rætur
Hamingjunnar.
22. marz (sunnud.) kl. 8,30).
Erindi: Hamingja í hjóna- og
fjölskyldulífinu, Hannes Jóns-
son. Kvikmynd: Bertrand Russ-
el ræðir um hamingjuna við
Woodrow Wayatt. □
(Framhald af blaðsíðu 8).
að það eru því sérstök vonbrygði
að frumvarp það til jarðræktar
laga, sem Búnaðarþing sam-
þykkti 1962 og síðan var endur-
skoðað af stjórnskipaðri nefnd,
skuli eigi hafa verið flutt á Al-
þingi. Leggur Búnaðarþing
megináherzlu á, að það dragist
eigi lengur að fullnægt verði í
öllum atriðum því, sem þar er
lagt til og jafnframt tekið fullt
tillit til þeirra verðbreytinga,
sem orðið hafa síðan það var
samið.
Vargfuglar.
Um útrýmingu vargfugla var
samþ. svohljóðandi ályktun:
Búnaðarþing skorar á stjórn
Bún. ísl. að fela veiðistjóra að
taka til athugunar á hvern hátt
unnt sé að halda vargfugli í
skefjum, svo hann valdi ekki
tjóni í varplöndum. Jafnframt
undii'búi stjórn Bún. ísl. laga-
breytingu, sem heimili nauðsyn
legar ráðstafanir í þessu skyni
og tryggi fjármagn til fram-
kvæmda.
Gróið land.
Erindi Gunnars Guðbjarts-
sonar um rannsóknir á grónu
og ræktanlegu landi í sveitum
landsins.
Svofelld ályktun var sam-
þykkt:
Búnaðarþing ályktar að fela
stjórn Bún. fsl. að vinna að því
við Búnaðardeild Atvinnudeild-
ar Háskólans að hafin verði
mæling og flokkun gróðurlend-
is heimalanda.
Jafnframt skorar þingið á Al-
þingi að veita Búnaðardeildinni
aukið fjármagn til þessa verk-
efnis.
j
Fjárhagsáætlun.
Á síðustu dögum Búnaðar-
þings var lögð fram og rædd
fjárhagsáætlun Búnaðarfélags
íslands fyrir árið 1964. Niður-
stöðutölur hennar voru krónur
9.524.084,41. Fjármagn það sem
Bún. ísl. hefur til umráða, er að
mestu framlag úr ríkissjóði. Er
það að jafnaði skammtað svo
naumt, að félagið getur ekki
varið neinu fé til annarra hluta
en þeirra, sem nauðsynlegir eru
hverju sinni. Aðalfjármagnið fer
til þess að halda uppi ráðunauta
þjónustu félagsins og þyrfti hún
þó að vera mun öflugri en nú
er.
Búnaðarþingi var slitið fimmtu
daginn þann 5. marz og hafði þá
setið að störfum í 21 dag. 30
mál voru lögð fram, en 28 þeirra
voru afgreidd. Það orkar ekki
tvímælis að nái hin merkari
mál, sem þetta þing afgreiddi
fylgi Alþingis og ríkisstjórnar
og verði samþykkt af þeim að-
ilum í þeim anda, sem Búnaðar
þing lagði til, þá verða þau
til mikilla hagsbóta fyrir ís-
lenzka bændur í framtíðinni.
K. G.
Námskeið um hjúskaparmálefni
— Jæja, þá eruð þér nú hjá manninum, sem hokrar sjálfur, hefði
hann sagt og boðið henni sæti á rauða flosbekknum. — Matreiðslu-
maðurinn okkar er í fríi þessa stundina, og ég er einbúi um borð í
skipinu í svipinn, hefði hann sagt. Þess vegna er ég svo feginn og
glaður, þegar ég fæ heimsókn, að ég kann mér ekki læti! — Svo
hefði hann setzt við hliðina á henni á bekkinn. Og hún hefði víst
hugsað strax eitthvað á þessa lund: — Æ, bara að þetta gæti komið
oftar fyrir! En hann fer sjálfsagt bráðum aftur.
En svo hefði hann sagt henni, að hann færFekki fyrst um sinn.
Skipið hans væri hér til athugunar og viðgerðar, svo að hér gæti
orðið all-löng dvöl. Hún hefði víst orðið agalega glöð, þegar hann
sagði 'henni þetta. Og hún hefði víst hlegið og spjallað í sífellu. Þau
hefðu setið lengi yfir kaffinu og spjallað um heima og geima, og
allt þeirra spjall var blandið glensi og gamni og féll svo létt og liðugt.
En þegar kaffidrykkjunni var lokið, dró skyndilega niður í þeim.
Þeim varð ósjálfrátt litið hvort til annars á víxl. Og nú varð dálítið
erfiðara að horfast í augu, er þau töluðu saman. Að minnsta kosti
fannst henni það, er á leið. En þau hefðu samt hlegið og spjallað
og dreift þessum þagnarhléum á þann hátt.
■ Eyvindur hefði spurt hana, hvernig hún hefði getað þekkt sig und-
ir eins á ferjubryggjunni? Hún hefði sagt honum það, en svo spurt
hann hins sama. Jú, bróðir hennar hefði sýnt honum mynd af henni,
og þá — hefði hann svarað og strokið henni létt um ljósgullna hár-
ið hennar. Eftir á hefði hún virt fyrir sér þessa hendi, þegar hann
fitlaði við teskeiðarnar á bakkanum. Hönd hans var svo sterk.
Hún hefði leitazt við að tala í sífellu um laust og fast, svo að þögn-
in skyldi ekki læðast að þeim óvörum. Og hefði hún setið örstutta
stund þegjandi og horft í gaupnir sér, hefði hún óðar orðið þess vör,
að hann hefði horft sem snöggvast á hana, en samt þannig, að henni
hitnaði í kinnum. Það var sem sæi hann gegnum hana alla. Og hún,
— hún hefði bara setið kyrr og fundið til þess, að augu hans vöktu
hjá henni nýja og ókunna kennd, sennilega dálítið hættulega. En
henni geðjaðist samt vel að þessari kennd.
Þegar hann slökkti í síðasta vindlingnum, var sem tíminn næmi
staðar milli þeirra og biði einhvers. Nei, — nú er hún víst orðin
alveg rugluð af öllu þessu í kvöld. En hún getur ekki að því gert.
Því að dvölin hennar hérna í bænum hefir í rauninni verið dauðans
leiðinleg fram að þessu. Það er svo óralangt sðan hún hefir verið
með einhverjum pilti, þangað til í dag. Já, ekki síðan hún var heima
í sveitinni sinni, og þá var hún um hrið með einum kunningjanna. —
En þetta í dag er allt eitthvað öðruvísi. Þetta er upphaf alls þess,
sem hún hefir búizt við í borginni. — Já, gæti hún bara, oft og mörg-
um sinnum, verið svona hamingjusöm og í kvöld! Já, og þá yrði svo
miklu auðveldara að lifa, þegar henni væri orðið Ijóst, að lífið væri
ekki eintóm vinna og strit, heldur einnig gleði. Önnur eins gleði og
hún hefði lifað í kvöld! Æjá, henni er líka ánægja og gleði í vinn-
unni. Hún ætlar að verða meistari í iðninni, auðvitað! — En hvað
var það nú annars, sem Eyvindur Krag hefði sagt, rétt áður en hún
fór heim aftur? — Það fer hitabylgja um Björgu, er henni verður
hugsað til þess.
AUÐHILDUR FRÁ VOGI:
j GULLNA BORGIN (
— Hvers vegna sitjum við annars hér og segjum hátíðlega þér og
yður og þess háttar? hefði hann sagt og horft beint í augu hennar. —
Ættum við ekki heldur að segja bara Björg og Eyvindur? sagði hann
og hló við henni og lagði hönd sina létt á öxl hennar.
— Já, hvers vegna ekki? hefði hún svarað og fundizt að hönd
hans brenndi sig gegnum kjólinn og inn á bert hörundið. En hann
hefði þegar lyft höndinni aftur.
— Lofaðu mér þá að heyra, hvort þú getur sagt Eyvindur! hefði
hann sagt.
— Eyvindur! hefði hún hálf-hvíslað. Röddin hafði brugðizt henni
sökum feimni.
— Björg! hefði hann sagt lágt, en skýrt.
Og áður en þau lögðu af stað aftur yfir allar háskalegu skipabrýrn-
ar, hefði hún orðið að heita honum því, að þau skyldu hittast aftur
á laugardaginn. —----
Björg dregur sængina upp undir höku og brosir út í myrkrið. Nú
verður auðvelt að vinna á stofnuninni þessa vikuna. Og það verður
létt að lifa og hlæja glaðlega við hverjum einum. Því nú hefir hún
ráð á að brosa! En — Érosið breytist brátt í alvöru. — Hvað skyldi
mamma annars hafa sagt hefði hún séð ferðalag hennar í kvöld?
Mamma sem er svo dauðhrædd um þau systkinin bæði, hrædd um
að eitthvað hættulegt komi fyrir þau, hrædd um Stein á hafi úti,
langt að heiman, og hrædd um hana hérna í borginni!
Þau eru nú bæði fullorðin, hugsar Björg. Og nú hljóta þau þá loks-
ins að geta séð um sig sjálf, eins og aðrir. En mamma er svo góð og
óttast í sífellu einhverja óvænta hættu fyrir börnin sín. En nú þyrfti
hún samt ekki að vera lengur hrædd um krakkana sína. Hérna í
borginni væri sannarlega hættulaust. Og hér hefði til þessa aðeins
verið leiðinlegt. — En í kvöld byrjar ævintýrið, mamma mín. í
kvöld! Um sjöleytið, viljirðu vita stund og stað! Ég var dálítið hrædd,
þegar ég klifraði upp skipshliðina, og þegar ég stiklaði yfir brýrnar
a milli skipanna. Það er alveg satt. Svo hreinskilin skal ég vera við
þig, mamma mín. En í næsta sinn — þá — því það á að verða
næsta sinn — á laugardaginn kemur! — Þá er ég ekkert hrædd fram-
ar, — kannski ofurlítið við augun hans Eyvindar Krag. — Og þessi
augu voru það síðasta, sem fólst í huga Bjargar, áður en hún sofnaði
þessa nótt.
X.
Engin stúlknanna þriggja á efri hæðinni er heima um áttaleytið
um kvöldið. Rossí hefir hringt þrisvar sinnum án þess að fá svar.
Hann hafði ætlað að ná tali af einhverri þeirra. En ungfrú Falk
ætti sennilega einhverja kunningja eins og hinar. Svona lagleg og
gáfuð stúlka á eflaust vini, sem fúsir eru að hitta hana í frístundum
hennar. í kvöld hefði hann gjarnan viljað hafa tal af henni. Hann
skyldi þá líka hafa leikið fyrir hana á flygilinn. — En nú var engin
'þeirra heima þarna uppi.
En nú ætlar hann að hringja til frú Gilde og spyrja, hvort hann
megi líta inn til hennar sem snöggvast. Hann stingur fingri í talkringl-
una, en dettur þá í hug, að hann gæti kannski allt eins vel komið
þangað óvænt. Frú Gilde er oftast vön að vera heima, og oftast ein-
sömul. Rossí er ekki lengi að ákveða sig, og skömmu síðar hringir
hann dyrabjöllu hennar. Hann er þó hálfsmeykur um, að kannski
sé hún samt ekki heima.
— Jú, frú Gilde er heima, segir þernan. Hún vísar Rossí upp í
forhöllina og býður honum sæti, svo skuli hún ná í frú Gilde. Hún
hreyfir silkitjaldið til hliðar. — Aðeins augnablik! hvíslar hún. — Ég
heyri að frú Gilde hefir nemanda!
— Nemanda? Rossí myndar aðeins orðið með vörunum. Honum
er þetta vonbrigði. Frú gilde er þá samt ekki viðlátin! Hann situr
samt og hlustar. Kvenrödd berst dauft að eyrum hans gegnum vegg-
inn. Mjúk rödd með dökkum hljómblæ og viðkvæm. Hann getur
greint orðin, þegar hann hlustar vel:
Stundirnar Iiða hratt sem hrynjandi foss,
hljótt sem andvarp laufblæs í þagnar-skógi
hljóðni og hverfi sem dropar, er drjúpa frá blöðum
og sökkva í sand og aur.
Æ, jörð! Hví ertu svo bráðlát og banvænt hungur þitt,
að beðið ei getir enn um nokkura hríð, —
eða er þegar allt mitt líf i
fallið í gjalddaga?----------
Vertu ósmeyk! Að lokum ég læt þig fá allt,
hvern bita og bút! — Svo að við séum kvitt!
Uppáhalds-rétt þinn skal ég þá bera á borð
og breiða á það dúka og fegurstu blóma-sveiga. —
En — er þá ævi min þegar umliðin öll?
Æ, og ég gladdi svo alltof fáa
með eldi míns funheita blóðs! —
Röddin fyrir innan þagnar allt í einu. Rossí finnst, að hann hafi
verið snuðaður um eitthvað. Hann óskaði þess, að röddin þarna
inni hefði haldið áfram og lesið meira eftir þetta ágæta lýriska
ljóðskáld! En þerna frú Gilde hefir farið inn í stofuna og kemur
nú fram aftur og býður Rossí inn. Og frú Gilde tekur hjartanlega á
móti honum í stofunni fyrir innan silkitjaldið.
Framhald. ]