Dagur - 24.06.1964, Blaðsíða 1
Dagui
kemur út tvisvar í viku
og kostar 20 krónur á
mánuði.
XLVII. árg.
Akureyri, miðvikudaginn 24. júní 1964
51. tbl.
Dagur
Símar:
1166 (ritstjóri)
1167 (afgreiðsla)
Krossanes heíur fengið 45 þúsund
mál, en Hjalteyri 23 þúsund
.... i ^
Sex sækja um bankann
TALIÐ ER, .að senn líði að'
bankastjóraskiptum í Utvegs-
bankaútibúinu á Akureyri. —
Blaðinu heppnaðist ekki að fá
staðfest nöfn umsækjenda, sem
munu vera sex að tölu, þar af
eru, eftir- því sem óstaðfestar
fregnir herma, fjórir banka-
starfsmenn að sunnan og einn
frá Siglufirði.
Sjötti umsækjandinn er Bragi
Sigurjónsson á' Akureyri og
ekki ólíklegt að Norðlendingar
hreppi hann í sæti Júlíusar
Jónssonar. □
I FYRRINÓTT lönduðu á Hjalt
eyri: Hannes Hafsteinll95 mál,
Eldborg 12-28, -og nokkur skip
minni með afla. Alls hefur Hjalt
eyrarverksmiðjan tekið á móti
23.200 málum.
Um kl. 3 e. h. í gærdag var
lokið við löndun 6 skipa í
Krossanesi, frá því á mánudags
kvöld: Jörundur III. 2106 mál,
Sigurður Bjarnason 1342, Björg-
úlfur 726, Loftur Baldvinsson
um 1000, Bjarni II. rúm 1700 og
Ólafur Magnússon rösk 1200
mál. — Krossanesverksmiðjan
hafði þá tekið á móti 45 þús. m.
Aska, sem komin er til Aust-
urlands mun senn hefja síldar-
flutninga af miðunum. □
'-' \ 'V -
■ / - ■ . ,
- “ -'í * ' V'
■ V >. ■. - : .
*■ **> ■ ' .*
'*-***mmr
ÓLAFUR MAGNÚSSON með fullfermi á Ieið inn Eyjafjörð s.l. laugardag. (Ljósmynd: E. D.)
KÍSILIÐJAN H.F. STOFNUÐ
IINIFURINN RISPAÐI EN GEKK EKKI A HOL
Á LAUGARDAGINN gekk út-
lendur maður til fjalls frá Ól-
afsvik vestur, með hníf í hendi.
Hann bar ástarsorg í brjósti og
ætlaði að binda endi á líf sitt í
fjallinu.
Þegar komið var á ákvörðun-
arstað svipti maðurinn frá sér
fötum og ætlaði að fremja á sér
hara-kiri, þ. e. kviðristu.
En hnífurinn beit illa, rispaði
skinnið, en gekk ekki á hol.
Maðurinn hætti við fyrirtæk-
ið, hélt til byggða og drekkti
sorg sinni. □
Hlutafé félagsins er 10 milljónir króna
HINN 20. JÚNÍ voru í Reykjavík undirritaðir samningar milli
ríkisstjórnar íslands og hollenzka fyrirtækisins AIME, um bygg-
ingu kísilgúrverksmiðju við Mývatn. — I fréttatilkynningu segir:
Undanfarið hafa farið fram
viðræður á milli fulltrúa ís-
lenzku ríkisstjórnarinnar og
forstjóra hollenzka fyrirtækis-
ins AIME um samvinnu við
byggingu kísilgúrverksmiðju
við Mývatn.
NYTT ÚTIBÚ Á
í DAG opnar KEA nýtt og
mjög myndarlegt útibú á Suð-
urbrekkunni, Byggðavegi 98,
sem undanfarið hefur verið í
byggingu. Er þetta níunda kjör-
Minkur drepur lömb
ÞORLEIFUR ÞORLEIFSSON,
ökumaður á Akurcyri og fjáreig
andi, hefur tjáð blaðinu, að
minkur liafi drepið fyrir sér 3
lömb ineð stuttu millibili, hálfs
mánaðar gömul og yngri. Fyrir
þennan ófögnuð tók, er Ilarald-
ur Skjóldal vann 5 minka við
Lónsbrú á dögunum. En þar
nærri hefur Þorleifur fé sitt. □
OLÍUMÖLIN REYNIST
VELÁ AKUREYRI
EITT af þeim málum, sem Félag
íslenzkra bifreiðaeigenda hefur
barizt fyrir, er að notuð sé olíu-
möl á götur og vegi.
Hér á Akureyri var fyrsta til-
raun með að nota olíumöl í stað
malbiks á götu, gerð í fyrra-
haust. Þessi gata (við sjóinn fyr-
ir framan Samkomuhúsið) er
sú bezta í bænum og sennilega
bezta olíuborna gatan, sem
hefur verið gerð hér á landi.
Verkið var framkvæmt undir
stjórn Stefáns Stefánssonar bæj-
arverkfræðings. □
búð Nýlenduvörudeildar KEA
af tíu útibúum í bænum.
Hið nýja útibú er mjög full-
komið og búið þeim beztu tækj-
um, sem völ er á. Þar verða
auk nýlenduvara, hreinlætis-
vara og sælgætis, einnig seld
búsáhöld.
Deildarstjóri er Jens Ólafs
son.
Góð bílastæði eru þarna.
Suðurbrekkubúar hafa lengi
haft áhuga á að fá þarna nýtt
nýlenduvöruútibú. Nú er þeirra
tími kominn og munu þeir
fagna hinni bættu aðstöðu. □
* I
HINGAÐ eru komnir á veg-
um Péturs Péturssonar,
píanósnillingarnir Vladimir
Asjkenazy og Malcholm
Frager og lialda þeir tón-
leika í Borgarbíói í kvöld.
Efnisskráin er hin sama og
í Háskólabíói í síðustu viku.
En þar léku þeir félagar við
mikinn orðstýr, verk eftir
Mozart, Scliumann, Chopin,
Rashmaninoff o. fl.
(Ljósmynd Vigfús Sigur-
geirsson).
Viðræður þessar hafa nú leitt
til þess, að laugardaginn 20. þ.
m. var stofnað undirbúningsfé-
lag, Kísiliðjan h.f., samkvæmt
heimild í lögum nr. 22. 21. maí
1964, um kísilgúrverksmiðju við
Mývatn.
Stofnendur félagsins eru ís-
lenzka ríkið og félagið SACOM
IN S.A. í Zúrich, sem er dótt-
urfyrirtæki hollenzka félagsins
AIME.
Stofnsamning félagsins undir-
ritaði Jóhann Hafstein, iðnaðar-
málaráðherra, fyrir hönd ríkis-
ins, og fyrir hönd SACOMON
S.A. var hann undirritaður af
C. H. Kostering, sem er fram-
kvæmdastjóri beggja félaganna
SACOMON S.A. og AIME.
Hlutafé félagsins er 10 millj.
króna. Leggur íslenzka ríkið
fram skipulagningu og annan
undirbúning að byggingu og
rekstri verksmiðju við Mývatn,
er framleiði minnst 10.000 tonn
árlega af kísilgúr úr botnleðju
Mývatns.
Eftirtaldir menn hafa verið
skipaðir í stjórn félagsins:
Magnús Jónsson, bankastjóri,
stjórnarformaður, Karl Kristj-
ánsson, alþingismaður, Pétur
Pétursson, forstjóri, Stefán Stef
ánsson, bæjarverkfræðingur,
Akureyri, C. H. Kostering, for-
stjóri.
Stofnfundi lauk með því að
iðnaðarmálaráðherra, Jóhann
Hafstein, árnaði félaginu heilla
og þakkaði Stóriðjunefnd vel
'unnin störf við undirbúning
máls þessa, en formaður henn-
ar, dr. Jóhannes Nordal, banka-
stjóri, var viðstaddur stofnun
félagsins. Einnig voru viðstadd-
ir Brynjólfur Ingólfsson, ráðu-
neytisstjóri og Halldór Jónatans
son, ritari Stóriðjunefndar, auk
stjórnarmanna hins nýja fé-
lags. □
Ullarvörur
fyrir allt að 70
milljónir króna
DAG OG NÓTT er unnið í
Fataverksmiðjunni Heklu á
Akureyri við framleiðslu á
46 þúsund peysum, sem búið
er að selja Rússum. Peys-
urnar eru úr íslenzkri ull og
garnið unnið á Gefjun. Með
þessari framleiðslu hafa þá
Rússar keypt Heklupeysur
í fyrir 33 milljónir króna síð-
' ustu arin.
Og á Gefjun er verið að
framleiða ullarteppi, sem
einnig fara „austur fyrir
tjald,“ 25 þúsund að tölu, úr
alull, í skærum litum. Á
þriðja hundrað þúsund al-
ullarteppi hafa verið seld til
Rússlands undan farin miss-
iri, fyrir 35—37 milljónir
króna. □
Draug strandaðiá Hellunni
NORSKA efti(-litsskipið Draug
strandaði í blíðskaparveðri á
Hellunni í mynni Siglufjarðar
s.l. laugardagskvöld. Um tildrög
er ekki vitað, þar sem um her-
skip er að ræða og skipstjóri
mætir því ekki í sjórétti á Siglu
firði.
Um 160 manns voru á skip-
inu og voru sumir fluttir frá
borði af öryggisástæðum.
Draug náðist út, en skx-úfur
skipsins voru laskaðar og nokk-
ur leki kominn að skipinu. —
mætir því ekki í sjórétti hér á
landi.