Dagur - 24.06.1964, Qupperneq 4
4
Skrifstofur, Hafnarstræti 90, Akureyri
Súnar 1166 og 1167
Bitstjóri og óbyrgðarmaður:
ERLINGUR DAVÍÐSSON
Auglýsingar og afgreiðsla:
JÓN SAMÚELSSON
Prentverk Odds Bjömssonar h.f.
Brofðlöm í
bankamálum
ALMENNRI þjónustu bankanna
við almenning hefur hrakað, þrátt
fyrir miklar innstæður sparifjáreig-
enda. Og lánastarfsemin er smátt og
smátt að færast út fyrir bankana,
vegna þjónustutregðu.
f sumum lánastofnunum er fyrir-
greiðslum, sem sýnast sjálfsagðar,
ekki einasta neitað, heldur neitað á
þann veg, að mest minnir á einok-
unarkaupmennina gömlu á mestu
niðurlægingartímum þjóðarinnar.
En tiltölulega fámennur hópur
manna á þó alltaf innangengt í pen-
ingastofnanimar og virðast ausa
þaðan fé að vild. En lánsfjárörðug-
leikar sem að almenningi snúa síð-
ustu missirin hafa hrundið tnörgum
góðum manninum í hendur okrar-
anna, en lamað eðlilegt framtak
annarra.
Útibússtjórar aðalbankanna, t. d.
hér á Akureyri em algerlega fjar-
stýrðir menn og svo háðir aðalbönk-
unum, að þeir þora jafnvel ekki að
efna skýlaus loforð, vegna fyrirmæla
að sunnan, sitt á hvað. Yfir hverjum
aðalbanka trónar svonefnt bankaráð,
sem er æðstaráð hvers banka og legg-
ur línurnar í starfsemi viðkomandi
stofnunar. En inn í grípa svo önnur
öfl, af pólitískum toga, og hinir
ýmsu áhrifaríku einstaklingar, innan
banka og utan. Stundum er svo að
sjá, að fyrirmælum bankaráða sé alls
ekki hlýtt vegna áhrifa nefndra ein-
staklinga, sem vilja sveigja lánastarf-
semina í aðrar áttir en bankaráð
telur hollt — og gera það þar sem
við verður komið.
Slysin eru orðin tíð í bankamál-
um hér á landi og sum þeirra stór.
Núverandi ástand hefur leitt lána-
kreppu yfir almenning en gefið
hvers kyns bröskurum tækifæri tii
að nota sparifé almennings á vafa-
saman hátt.
A síðustu og verstu tímum hefur
peninga- og bankavaldið verið not-
að svo miskunnarlaust, að menn hafa
ekki, vegna ótta við hefndarráðstaf-
anir, þorað að skrifa um þessi mál og
fletta ofan af ósómanum. Jafnvel
lítil blöð úti á landi, sem telja sig
málsvara fátæks almennings, þora
ekki annað en að taka sér stöðu und-
ir húsvegg bankanna og senda þeim
tóninn, sem taka ófremdarástandið
til meðferðar, eða einstaka þætti
þess, sainanber liáðsglósur Verka-
mannsins og jafnvel enn lítilfjör-
legri afstaða er til. □
JÓNAS JÓNSSON FRÁ HRIFLU:
iiiiiimmmiimmmiiiiiiiiiiiimmiiiimriiiiiiiii
Verður Möðruvaliaskóli endurreistur?
FYRIR nokkru ritaði bóndi úr
Hörgárdal grein í Dag, um erf-
iðleika fólks í Eyjafjarðarsýslu
í sambandi við skólamál ung-
menna. Skólaskylda væri í land-
inu og í kaupstöðum og sjó-
þorpum væri víðast hvar séð
fyrir því að unglingarnir gætu
fengið þar þá skólamenntun,
sem lögin mæla fyrir. í mörgum
sveitum er aftur á móti eigin-
lega allar leiðir lokaðar fyrir
unglinga á skólaaldri vegna
þess að þeir bæir og sýslur, sem
hafa eignast gagnfræða- og hér-
aðsskóla geta ekki tekið á móti
nema fáum nemendum úr öðr-
um héruðum. Á Akureyri hefur
kaupstaðurinn reist mikinn
gagnfræðaskóla, sem mun starfa
í sambandi við iðnskólann. í
þessum skóla eru meir en 500
ungmenni úr bænum og hann
getur ekki tekið við fleiri nem-
endum. Suður-Þingeyingar hafa
nóg með Laugaskóla að gera
fyrir sýsluna. Norður-Þingeying
ar eiga í miklum vandræðum
með skólahald og hafa hug á
nýbyggingu, hvað sem úr því
verður. Skagfirðingar hafa ekki
ungmennaskóla fyrir sveitina,
en hinsvegar eiga þeir skólastað
í Varmahlíð á vegum sýslunnar.
Þar var fyrir nokkrum árum
undirbúin stofnun héraðsskóla.
Til er grundvöllur að slíkum
skóla og góð teikning eftir Guð-
jón heitinn Samúelsson. Af
framkvæmdum varð ekki í það
sinn nema að þar er byggð
mjög góð sundlaug eftir teikn-
ingu Sigurðar heitins Guð-
mundssonar sem gaf það byggð
sinni í Skagafirði. Sennilegt er
að innan tíðar haldi Skagfirð-
ingar ófram héraðsskólagerð í
Varmahlíð, en um það verður
ekki rætt hér.
Skömmu eftir að ég las um-
rædda grein í Degi var ég stadd
ur á Akureyri og hafði tal af
nokkrum góðkunningjum úr
sýslunni sem allir báru fram
sínar óskir um að þeir gætu
einhvei'sstaðar komið ungmenn-
um sínum í almennan skóla.
Helst sögðust þeir verða að
flytja í kaupstaðinn, en það er
nú meiriháttar ráðabreytni
vegna menntunar ungmenna.
Ég vissi að ýmsum Eyfirðingum
hafði komið til hugar, ef til
skólabyggingar kæmi, að reisa
þá stofnun á Möðruvöllum og
má segja að það er álitlegur
skólastaður fyrir héraðið. Ekki
vantar þar sögufrægðina. Þar
áttu nokkrar af söguhetjum
Sturlungaaldarinnar heima á
þeim söguríka tíma. Þar áttu
heima um alllanga stund marg-
ir frægir höfðingjar. Þar fædd-
ist Hannes Hafstein. Þann garð
gerði Bjarni skáld Thorarensen
frægann og þar er gröf hans,
ein hin veglegasta sem til er hér
á landi frá þeim tíma. í kirkju-
garðinum á Möðruvöllum stend-
ur enn ekki fullgert leiði Davíðs
Stefánssonar. Við þá sóknar-
kirkju æskuáranna hafði skáld-
ið valið sér hinsta hvílurúm.
Ofar í dalnum er sveitin full af
sögufrægð. Þar fæddist Jónas
Hallgrímsson. Á Bægisá bjó
eitt af höfuðskáldum þjóðarinn-
ar á þeim tíma, Jón Þorláksson.
Þegar ritstjóri Dags vissi að
mér lék hugur á að skreppa út
að Möðruvöllum bauð hann mér
að sýna mér sveitina og staðinn.
Ég hafði sjaldan komið að
Möðruvöllum. Nú lá leiðin fram
hjá barnaskóla þeirra Eyfirð-
inga, að Laugalandi á Hörgár-
bökkum, fjórum kílómetrum
ofan við Möðruvelli. Við sáum
skólann, það er myndarleg bygg
ing og vel sett að sumu leyti
fyrir börn úr næstu hreppum.
Þar er jarðhiti og falleg sund-
laug. Akureyrarbær ætlar að
bora eftir heitu vatni að Lauga-
landi í sumar í von um meira
vatn sem leiða mætti til Akur-
eyrar. Einn galli þykir á Lauga-
landi sem skólastað fyrir börn
úr sveitinni. Þjóðvegurinn ligg-
ur hjá skólahúsinu og mikil um-
ferð um veginn og hávaði af
vagnskrölti. Sennilega þyrfti að
færa veginn nokkuð fjær skólan
um til að hlífa börnunum við
óþarfa hávaða. Frá Laugalandi
héldum við að Möðruvöllum og
þótti þar ærið staðarlegt. Húsa-
kynni eru mikil og sögufræg.
Kirkjan, 100 ára gömul, stór og
vönduð og vel við haldið að öllu
leyti. Möðruvellir er mikil jörð,
skipt til helminga. Presturinn
hefur hálflenduna, en móti hon-
um býr stórbóndi, einn hinn
mesti í Eyjafirði, kvæntur hinni
álitlegustu konu. Veita þau hjón
forstöðu stórbúi sínu á Möðru-
völlum. Við fórum að leiða tal-
ið að hugsanlegu skólahaldi á
Möðruvöllum. Bóndi og hús-
freyja voru mjög fýsandi þeirri
ráðabreytni ef á annað borð
þyrfti að byggja skóla fyrir
Eyfirðinga. Töldu þau að þar
væri meir en nóg rúm, fyrir
bóndann, prestinn og skólann.
Við gengum nú með Möðruvalla
bónda um staðinn að leita eftir
byggingarstæði. Ekki var sú leit
erfið. Stórbýlið gamla og fjós
frá tímum Stefáns skólameist-
ara, hið vandaðasta að allri gerð
er á víðáttumiklu. túni. Einng
prestssetrið og kirkjan. Þessi
hús öll mynda hverfi út af fyrir
sig og myndi enginn vilja
breyta neinu þar sem máli
skipti. En sunnan við hið gamla
bæjarstæði og kirkjunnar eru
tún og grundir miklar og víð-
lendar. Þar væri ágætur staður
fyrir nýjar byggingar. Þar
skyggði enginn á aðra. Á Möðru
völlum er hin fegursta útsýn
yfir byggðina, Eyjafjörð, Kald-
bak og grónar hlíðar Vaðla-
heiðar. Ef Eyfirðingar telja sér
nauðsynlegt að byggja nýjan
ungmennaskóla þá er það þeirra
mál að ráða hvar hann verður
byggður. Ilér er aðeins rætt um
kosti Möðruvalla, sem liggja í
augum uppi fyrir aðkomumönn-
um. Þegar byggðir eru héraðs-
skólar í sveitum fer vel á að
þeir verði líka samkomustaðir
héraðsins vegna margháttaðra
mannfunda. Þannig er aðstaða
Eiðaskóla, Laugaskóla, Hóla-
skóla, Reykjaskóla við Hrúta-
fjörð, Núpsskóla í Dýrafirði,
Reykholtsskóla í Borgarfirði,
Laugarvatnsskóla í Árnessýslu
og Skógaskóla undir Eyjafjöll-
um. Möðruvellir mundu hæfa
vel fyrir Eyjafjarðarsýslu, bæði
um skólahald og mannfagnað
héraðsbúa. Greindarmaður, sem
ég talaði við á Möðruvöllum, og
var bæði kunnugur sunnanlands
og norðan sagði að eitt af því
sem mælti með Möðruvöllum
sem héraðsskólastað væri það
að þar væru náttúruskilyrði
fyrir fleiri stofnanir. Hann sagð-
ist álíta elns og nú væri komið
í sveitum að færi vel á að fleiri
stofnanir væru á sama stað.
Nefndi hann í því sambandi
Laugarvatn og lét sér um munn
fara, það sem mér þótti góð at-
hugasemd að víða væri mikil
nauðsyn í sveitunum að hugsa
um stað fyrir aldraða fólkið
eins og það unga og mun þetta
réttmæli. Hann benti á að aldr-
að fólk þyrfti sérstaka aðstöðu
miðað við sínar kringumstæður.
Hann sagðist hafa veitt því eft-
irtekt í Reykjavík, að það sem
drægi aðkomufólk til að sækja
þangað í stórhýsin á Grund í
miðjum bænum væri hreyfingin
og nálægð við starfslífið. Nú er
það að ýmsu leyti óhentugt að
allt sveitafólk fari, þegar það
hættir starfi, í kaupstaðinn.
Böðvar Laugarvatnsbóndi,
sem er 85 ára, vill að stofnað
verði heimili fyrir aldrað fólk á
Laugarvatni. Það væri ekki nóg
að hugsa um þá ungu. Hitamál
getur haft mikla þýðingu í sam-
bandi við Möðruvelli, hvort sem
það verður aðeins bújörð eða
skólaheimili. Borað verður í
sumar hjá barnaskólanum á
Laugalandi. Þar er nú jarðhiti
sem nægir sundlauginni og
skólanum, en ekki meira. Vel
getur farið að þar finnist mikill
jarðhiti og þaðan verði hægt að
leiða hita til Akureyrar. Það
getur svo farið að þar finnist
hiti nægur til þess að hita skóla
á Möðruvöllum en ekki handa
Akureyri. Ef ekki finnst
nýr hiti á Laugalandi þá er
eins hægt að hafa héraðsskóla
Eyfirðinga á Möðruvöllum og
öðrum köldum stað. Undir þeim
kringumstæðum yrði að hita
húsin með olíu eða raforku eins
og gert er nú í svo mörgum
skólum.
Mikill áhugi er nú í Eyjafirði
fyrir unglingaskóla. Sennilega
yrði sú stofnun reist á Möðru-
völlum og að, bærinn verði, eins
og oft fyrr, höfuðstaður byggðar
innar. í þriðja lagi mundi þar
fara vel um eldra fólkið. Ég vil
ekki nota orðið gamalmenna-
hæli fremur en barnaskólinn er
nefndur barnahæli. Fyrst vikið
er hér að þeim málefnum, þá
má minna á að nú muni þeir
sem eitthvað til þekkja til heim-
ila fyrir gamalt fólk vera frábit-
ið því að reisa í því skyni stór-
byggingu fyrir hundruð manna.
Stórhýsi af því tagi eru mjög
5
þreytandi. Heimilið er alltaf
betra heldur en hótelið. Hvort
sem menn byggja í sveitum
heimli fyrir aldrað fólk þarf að
nota þá fyrirmynd sem nú er
bezt þó að hún sé fengin úr
öðrum löndum. Heimili aldraðs
fólks þarf að vera samsafn smá-
hýsa, þægileg fyrir einn mann
eða hjón. Allt fólk vill hafa sitt
heimili meðan unnt er, þó að
lítill verði húsakosturinn. Þar
una menn betur en í höllum þar
sem lífið verður með verk-
smiðjublæ.Vitaskuld þarf þetta
heimili að hafa gott sameigin-
legt eldhús, borðstofu, setustofu
og einstök herbergi fyrir þá,
sem orðnir eru of gamlir til að
vera einir um heimilisstörfin.
Þegar ellin sækir fast að mönn-
um sækja þeir meir og meir inn
í fjölbýlishúsið en ekki fyrr en
þörf krefur. Þróunin í landinu
er nú með þeim hætti að sveita-
fólkið sendir börn sín í heima-
vistarskóla fyrir fermingu. Síð-
an í almennan skóla eða sér-
skóla til að búa þau undir lífs-
baráttuna. Þá kemur hjónaband,
heimilismyndun og langur
starfstími. Síðan kemur aldur-
inn. Þreyttir stríðsmenn hverfa
af vígstöðvunum og sækjast
eftir litlum heimilum í skjóli
við meginstofnun aldursheimil-
anna. Þannig getur vel farið ef
þróunin í Eyjafirði verður með
þeim hætti að sveitabörn úr
dölum norðan Akureyrar sæki
skólagöngu að Laugalandi. Síð-
an í Möðruvelli og ýmsa skóla
á Akureyri og víðar. Starfstíma-
bil fólksins lengist með batnandi
lífskjörum og bættri heilsu.
Áður'en skilið er við þetta um-
rædda héraðsskólamál Eyfirð-
inga, vil ég minnast á náttúru-
skilyrði og aðstöðuna í hérað-
inu sem hefur öld eftir öld gert
Möðruvelli að höfuðstað byggð-
arinnar og jafnvel fjórðungsins.
Fyrst er hin fræga fortíð staðar-
ins á þjóðveldistímanum og
kaþólska tímanum. Síðar verða
Möðruvellir og næstu byggðir
mjög tengdir skáldskap þjóðar-
innar. Þar orti Bjarni Thorar-
ensen nokkur af sínum fræg-
ustu kvæðum. Við þann stað er
skáldferill Davíðs Stefánssonar
(Framhald á blaðsíðu 7).
&
±
17. júní 1964
é
I
*
*
t
I
£
1
I
■í-
*
I
£
I
£
I
£
1
I
t
VJC
£
4-
I
£
i
I
I
£
é
I
.t
£
i
*
t
*
t
t
&
t
£
t
•f-
HÁTÍÐARLJÓÐ
eftir
HELGA VALTÝSSON
Treystum i dag vor brœðrabönd
við blóð-tengsla hrynjandi brag!
Og réttum hvert öðru hcita hönd
á hátiðarstund i dag!
Hún fœri oss tvöfaldan fagnaðar-óð,
sem flceði um hverja ceð!
Og pökkum, live Drottins dásemd er góð:
Hans drjúpandi blessun á land vort og
frá himnanna liœstu liceð!
Hvort fengum vér lýðveldið fegrað og treyst? —
Frelsis vors langpráða fley! —
Hvort höfum vér pegnskapar-prautirnár leyst
með pakklátum drengskap? — Nei!
Þjóðinni gleymdist pökk að tjá,
svo pörf er að mörgii að gá:
1 tvítugum flokks-rceðis blindösku-byl
var bróðernið harla flátt!
Þar léku menn dátt með gamanið grátt
og moluðu andstceðings mannorð smátt, —
unz lýðveldishugsjónin hvergi var til!
Þvi vendum nú pjóðar-kvœði i kross
nceslu fullveldis-árin fimm!
Svo fósturlands-hamingjan fylgi oss,
og fjarlcegist skammdegis-nóttin dimm
úr pjóðlífs vors sundruðu sál! —
Lát lýðveldis-klukkurnar klingja,
unz kunnum vér öll að syngja
■ púsundfalt: — samróma pakkar-mál!
Lát 17. júni, Guð minn góður,
glccða ást vora og fórnarlund!
Lát huga vorn hlýna, svo hjartans gróður
hraðfara spretti á óskastund!
Lát vor-kulda hverfa, og grundirnar gróa,
ó, Guð vors lands, döggva pyrsta jörð!
Blessun pín drjúpi á firði og flóa
og fylli pá úthafsins silfruðu lijörð.
Nú stigum á stokk og strengjum heit
með ftceltan vilja og por,
að hvar sem vér stöndum i stjórnmála-sveit,
sé stcersta brœðralags-pcgnskylda vor
að helga pér, œttjörð, hvert hjartaslag! —
Vér heitum pví öll i dag!
Vors lýðveldis dýrasta dag.
■<■
©
t
1
£3
*
t
I
í
I
f
t
t
t
i’.c.
%
%
%
|
t
t
f
©
*
±
t
I
f
f
©
-»•
©
t
I
*
±
*
©
HVÍ VAR HÆTT VIÐ FAGRA-
STRÆTIÐ?
Ég hefi eins og fleiri fylgzt
með skrifum hr. Dúa Björnsson-
ar um Barðstúnið, líklega mest
vegna þess, að ég hefi ekki séð
neitt svar við skrifum hans. Þau
hafa samt rifjað upp fyrir mér,
hve einkennilegt mér þótti, er
ég fór að bera „Norðurljósið“ út
til kaupenda hér í bæ, að Jakob
heitinn Lillienhdal bókbindari
skyldi eiga heima í húsi, sem
nefnt var Fagrastræti 1, þótt
þar væri enga götu að sjá.
Mig minnir helzt, að ég hefði
orð á þessu við hann og að það
væri hann, sem sagði mér, að
það hefði staðið til, að gata yrði
lögð þar út brekkuna, neðan
Eyrarlandsvegar. En hætt hefði
verið við að bygga þar, af því
að Guðmundur G. Bárðarson
jarðfræðingur hefði varað við
að byggja framarlega á brekk-
unum hér á Akureyri. Ástæða
þess var sú, að hann taldi jarð-
lög liggja þannig í brekkunum,
að þau gætu sigið fram undan
þunganum, ef þarna væri byggt.
Hafði þessi aðvörun verið tek-
in til greina.
Séu menn farnir að hugsa til
að byggja þarna, mætti spyrja,
hvort varnaðarorð jarðfræðings-
ins séu gleymd eða hvort nýjar
jarðfræðirannsóknir hafi leitt i
ljós, að þau hafi ekki verið á
rökum reist? S. G. J.
HUGLEIÐING LAUNÞEGA
Til þjóðfélaga er stofnað af
ýmsum ástæðum, t. d. legu
landsins, trúarjátningu, litar-
hætti eða ætternis fólksins. sem
þjóðina mynda, svo fá dæmi séu
tekin, en afkoma þjóðfélaganna
hafa og munu ætíð tvö öfl
skapa, þ. e. atvinnuveitandinn
og atvinnuþyggjandinn.
Yfir þessi tvö öfl þjóðfélags-
ins eru sett löggjafar- og dóms-
vald, en þau völd hafa í flestum
kringumstæðum verið sniðin
eða breytt í samræmi við kröf-
ur þessara afla á lengri eða
skemmri tíma hverju sinni.
Frá fyrstu tíð hefur ríkt mjög
mikið ósamkomulag milli þess-
ara afla, sem verður að skrifast
sem meginsök atvinnuveitenda,
þeir höfðu yfirleitt greiðari að-
gang að löggjafar- og dómsvaldi
ríkisins, þeir hafa ætíð talið sér
bera það gtóran hluta af af-
rakstri vinnunnar, að til þess að
fyrirtækjunum væri kleift að
halda áfram rekstri sínum hef-
ur orðið að halda niðri vinnu-
launum eða öðrum kostnaði.
Algengasta svar vinnuveit-
enda við kaup- og kjarakröfum
hverju sinni hafa verið og munu
verða:
,Hvar á að taka peninga fyrir
þessum auknu útgjöldum?"
Þó er það nú svo, að tæpast
hefur nokkru sinni fyrirtæki
orðið gjaldþrota vegna þeirra
vinnulauna, er það hefur þurft
að greiða, heldur hafa ýmis
önnur atriði orðið því valdandi
og þá helst léleg framkvæmda-
stjórn eða breyttir markaðs-
möguleikar.
Fram á síðustu öld voru at-
vinnuþyggjendur ýfirleitt í
mjög slæmri aðstöðu, er þeir
fjölluðu um kjör sín við atvinnu
veitendur, fyrst og fremst vegna
þess, að þá varð hver launþegi
að berjast fyrir sig, og þeir
höfðu ekki það fjármagn á bak
við sig, að þeir gætu þolað
nokkurra daga eða vikna at-
vinnuleysi, sem hjálpaði gftur á
móti viðkomandi atvinnuveit-
anda, er hafði undir flestum
kringumstæðum upp á meira
fjárþol að taka.
Af biturri reynslu í þessum
málum fóru launþegar að
mynda með sér félög, er þeir
létu mæta fyrir sína hönd við
samningaborðin. Nú orðið, eft-
ir harða baráttu, eru þessi fé-
lög viðurkennd, sem sá aðili,
er atvinnuveitendur verða að
semja við um verðlag þeirrar
vöru, þ. e. vinnuaflsins, sem fé-
lagar þeirra hafa upp á að
bjóða.
Um skipulagningu og starfs-
aðferðir þessara félaga mætti
skrifa langt mál, en höfuðmáli
mun skipta fyrir félagana inn-
an þeirra, að þeir sýni ræktar-
semi við félög sín, mæti vel á
fundum þeirra, velji sér nýta
menn í stjórnir þeirra, og gæti
þess að félögin séu ekki algjör-
lega févana.
Glöggt dæmi um hvað svona
félög géta, ef þau mynda sam-
bönd og eru samtaka, eru þeir
samningar, er voru undirritað-
ir aðfaranótt hins 5. júní s.l.,
slíkir atburðir væru óhugsandi
ef ekki kæmu til sterk félaga-
sambönd fyrir hönd atvinnu-
þyggjenda.
Gagnstætt þessu má t. d. taka
að hér í bæ eru tvö kvikmynda-
hús og starfsfólk þeirra mun
ekki tilheyra neinum launþega-
félögum, þetta fólk vinnur að-
allega á kvöldin og á helgum,
sem sagt á þeim tíma er öll
launþegafélög verðleggja vinnu
félaga sinna hæst, en stúlkur,
sem vísa í sæti og starfa enn-
fremur að sælgætissölu hjá
þessum atvinnuveitendum hafa
kr. 25,00 fyrir kvöldið, en starfs
tími þeirra er eftir atvikum 2
til 2Vz klukkutími hverju sinni.
Launþegar geta séð á þessu
hversu þeir geta átt að vænta
ef þeir hugsa ekki vel um félaga
samtök sín.
Hafið því ætíð hugfast að
hvetja hvern annan til þess að
mæta vel á félagsfundum ykk-
ar, sýnið það í verki að ykkur
sé annt um afkomu félaga ykk-
ar, ekki aðeins þegar fjallað er
um kjaramál, heldur allar stund
ir. E. H.
MíÐNÆTURSÓLARFLUG FLUGFÉLAGSINS
UM JÓNSMESSUNA
EINS og undanfarin ár efnir
Flugfélag íslands nú um og eft-
ir Jónsmessuna til „miðnætur-
sólarferða,“ en slíkt hefur verið
fastur liður í starfsemi félagsins
undanfarin ár.
Ferðunum verður hagað þann
ig, að lagt verður af stað frá
Reykjavík kl. 22,30 og flogið
norður fyrir heimsskautsbaug.
Á heimleið er lent í Grímsey og
höfð þar stutt viðdvöl. Síðan er
flogið yfir hálendið og komið
til Reykjavíkur um kl. 02,00 eft-
ir miðnætti.
í „Miðnætursólarferðunum“
eru farþegum bornar veitingar
og hver og einn fær skrautritað
skjal, til minningar um ferðina.
Fyrsta „Miðnætursólarflug-
ferðin var farin laugardaginn 20.
júní og þær næstu verða laug-
ardagana 27. júní og 4. júlí.
( Fr éttatilkynning ).
Iðunn hefir eytt vindlingnum, sem Rossí gaf henni. Hún gæti víst
allt eins vel farið inn til sín. Ef til vill rætist betur úr þessu, þegar
þau koma á skipsfjöl. Þá verður Rossí sennilega samvistum við þau
öll þrjú. Hún óskar þess líka. Rossí getur verið skemmtilega ræðinn.
Hún lítur umhverfis sig í stofunni. Húsgögnin eru öll klædd hlifðar-
hjúp. Að öðru leyti er stofan óbreytt. Rossí vill hvorki sleppa Stofn-
uninni né íbúð sinni. Allt í einu lítur hann beint framan í Iðunni,
eins og hann læsi hugsanir hennar:
— Ég ætla heldur ekki að sleppa íbúðinni minni fyrst um sinn.
Ég ætla að hugsa mér heimilið hérna eins og heimilið mitt. Heimili
sem ég á sjálfur og tekur á móti mér, ef svo kynni að vilja til, að ég
kæmi einhverntíma aftur. Það er gott að geta hugsað til þess að eiga
einhversstaðar athvarf, sem hægt er að kalla heimili sitt. — Húsið'
hérna með stofnuninni og öllu sem í því er, á að vera hugar-heimili
mitt. Eg hefi ráð á því. Og er fólk talar um eignina, á það framvegis
að segja: Hjá Villa Ross x Fegrunartofunuinni.
— En þegar þér komið nú aftur til Ameríku, hvað — ? greip
Iðunn fram í.
— Hefi ekki afráðið neitt um það að svo stöddu, segir Rossí stutt
og laggott og snýr sér frá henni. Var þá sem hann lokaði sig allt í
einu inni. Iðunn var nú farin að þekkja Rossí, sem stundum gat ger-
breytzt f^'rir augunum á henni. Og þannig er það nú. Henni finnst
hann helzt vilja vera einsamall. Býst hann þá við einhverjum? Hún
stendur upp. Hún heldur að hann óski helzt, að hún hypji sig á burt
sem fyrst. Henni verður litið á lokaðan flygilinn. Hana langar allt í
einu til að spila eithvað, létta í tónum öllu þessu sem þyngir. Hvaða
áhrif myndi það hafa á Rossí?
— Má ég segir hún og ýtir upp lokinu.
AUÐHILDUR FRÁ VOGI:
GULLNA BORGIN
— O-já. Svarið var veikt eins og andardráttur. Hann setzt á stól-
brík skammt frá. Iðunn leitar í huga sér eftir einhverju til að spila.
Henni er ljóst, hvað myndi henta henni í svipinn. Og byltingar-etyða
Chopins brýzt fram undan fingrum hennar.
Tónarnir spretta upp, áleitnir og djarfir, og æsa upp hug og heila
í trylltu stríði. Hernaðar-styr og vopnagnýr fylla geyminn og deyfa
öll önnur hljóð, unz byltingar-kynngin siokknar sem dvínandi eld-
yr.
— O, ég var í öðrum heimi! hvíslar Rossí og stríkur létt um enni
sér. — Hvers vegna voruð þér nú að spila einmitt þetta?
— Æ, sökum þess, að mér fanst þetta myndi eiga vel við í dag,
bæði fyrir yður og mig. Hún brosir ofurlítið. — Ef til vill heyra allir
einhverntíma á æfinni byltingarlag innra með sér. Hún dregur lokið
aftur hægt niður yfir hljómborðið og snýr sér að Rosí.
— Já. Hann kinkar kolli. Þér hafið víst rétt fyrir yður í því.
— Jaeja, við hittumst þá á skipsfjöl í kvöld, segir Iðunn létt og
gengur fram á gólfið.
— Já, — nei, kannski, en ég hefi ætlað mér að vera útaf fyrir
mig, hvíla mig vel og rækilega, segir hann snöggt og stendur upp.
Hann tekur nokkur spor fram og aftur um gólfið. Augnaráð hans
er hvikult og vandræðalegt og Iðunn áttar sig ekkert á því. Hún
opnar hurðina. Hann kemur á eftir henni.
-— En við sjáumst sennilega um borð! segir hann og brosir dá-
lítið vandræðalega.
— Já, það gerum við auðvitað. Jæja, sjáumst þá heil! segir hún
og flýtir sér út. En Rossí segir ekki „sjáumst heil.“ Hún veitir því
eftirtekt. Hversvegna var hann svo ókunnuglegur og hikandi, er hún
nefndi, að þau myndu hittast um borð? Og hversvegna er hann að
fara þetta? Hún finnur enga lausn á þesu.
Hún heyrir ekkert til Rossís eftir þetta síðdegis. Hann hvílir sig
kannski undir ferðina. Það er alveg stillt inni hjá honum fram til
kvölds. Og senn er kominn tími til að fara um borð. Björg er enn
ekki komin upp úr Stofnuninni. Hún þarf sennilega að vinna fram
yfir timann. Og ef til vill getur hún þá ekki komið á bryggjuna.
Iðunn fær simskeyti rétt áður en hún leggur af stað. Það skyldi þó
ekki vera Jörundur, sem — ? Nei, það er frá foreldrum hennar: „Osk-
um þér góðrar ferðar. Gáðu nú vel að þér.“ — Já eitt eða tvö tár
hrynja ofan kinnina, en hún þurrkar þau snöggt burt aftur. Tár sam-
ræmast ekki því, sem hún hefir nú ákveðið. Yfirleit finnur hún enga
tilhneigingu til að klökkna. Hún er hvorki kvíðin né æsi-spennt og
tekur öllu rólega.. Hún tekur handtöskurnar tvær sem eftir eru. Bíll-
inn rennur af stað. Hún horfir aðeins fram á við.
Haraldur tekur á móti henni við landgöngubrúna. Hann tekur tösk-
urnar hennar. ,
Framhald.