Dagur - 24.06.1964, Page 7
T
- Verður Möðruvallaskóli endurreistur?
\gf (Framhald af blaðsíðu 4).
mjög tengdur. Þar fæddist Hann
es Hafstein og þar dvaldi hann
sína æskudaga. Mörg af hans
djörfu æskukvæðum bera mót
héraðsins. Jón á Bægisá var ná-
búi þeirra Möðruvallamanna.
Síðan kemur Jónas Hallgírms-
son og þar lifir hann sína æsku-
daga, þar lærði hann þá með-
ferð móðurmálsins sem markaði
tímamót í sögu landsins. Allar
þessar skáldlegu endurminning-
ar eru tengdar við Eyjafjarðar-
dali og útsýni yfir Eyjafjörð, þar
sem Kaldbakur situr við háborð
ið og býður byggð og bæ skjól
sitt. Þar var í fjóra áratugi
starfrækt hin áhrifamesta menn
ingarstofnun sem sögur fara af
hér' á landi. Á erfiðum tímum í
sögu þjóðarinnar leituðu þangað
margir synir og nokkrar dætur
til náms og þroska. Þar voru
þrír ágætir kennarar og er af
þeim góð saga. Þangað komu
þróttmiklir ungir menn úr
byggðum norðan og austan
lands. Á Möðruvöllum voru
þeir tvo vetur í fremur fátæk-
legum húsakynnum, en við hin
beztu andleg skilyrði. Þeir voru
nærri fullþroska og höfðu unn-
- Sumarbúðirnar . ..
(Framhald af blaðsíðu 8).
og ýmiss útbúnaður til ferða-
laga. Dregið verður þann 15.
nóv. og hefst sala happdrættis-
miðanna við búðirnar þann 28.
júní.
Margir einstaklingar, félög,
fyrirtæki og fleiri aðilar hafa
lagt fram hjálparhönd, sem
æskulýðssambandið þakkar af
alhug.
(Fréttatilkynning frá Æsku-
lýðssambandi kirkjunnar í Hóla
stifti).
ið fjölbreytta og erfiða vinnu,
bæði á sjó og landi. Flestir
þeirra höfðu lesið meginið af
beztu bókum sem gefnar höfðu
verið út á íslandi. Nemendurn-
ir, kennararnir og skólaskipu-
lagið vaf undarlega vel samfellt.
Þó að skólatíminn væri ekki
langur var vel unnið og undir-
búningur flestra nemenda prýði
lega fallinn til að njóta skóla-
vistarinnar. Þessum Möðruvalla
piltum stóð ekki opinn neinn
embættisheimur, eins og nú
þykir henta að námi loknu.
Þeir gátu ekki treyst á neitt
nema atorku sína og áhuga,
framfarahug og þekkingarleit
sem skólavistin örvaði. En þjóð-
in var þá í hraðri framsókn með
sjálfmenntaða bændur í forystu.
Þá komu Möðruvellingar víða
að miklu haldi. Þeir urðu mynd-
arbændur, hreppstjórar, oddvit-
ar, leiðandi menn í sýslunefnd-
um, samvinnúfélögunum og í
landsmálum. Um eitt skeið voru
fleiri Möðruvellingar á þingi
’heldur en stúdentar úr lærðu
skólunum í Reykjavík.
Mér finnst það eiga vel við,
þegar minnst er á gamla Möðru
vallaskólann í Degi á Akureyri
og þýðingu hans fyrr á árum í
mannfélaginu, að benda á einn
af hinum gömlu og góðu læri-
sveinum Möðruvallaskóla,- sem
er ungur á háu aldursskeiði.
Það er Þórarinn Eldjárn á
Tjörn. Það þarf ekki að lýsa
honum fyrir Eyfirðingum, ekki
starfi hans eða hollum áhrif-
um. En í sínu mikla yfirlætis-
leysi og frábæra þegnskap, hvar
sem á reyndi, hefur hann orðið
héraðinu og iandinu góður son-
ur. Ef nýr skóli kemur að
Möðruvöllum mundu gamlir
lærisveinar óska þeirri stofnun
heilla og spá vel fyrir framtíð
hennar. □
AUGLYSING
Skrifstofur embættisins verða lokaðar á
laugardögum til 1. október n.k.
SÝSLUMAÐUR EYJAFJARÐARSÝSLU.
BÆJARFÓGETINN Á AKUREYRI
Tökum upp í dag:
INNISKÓ, kvenna og barna
STÍGVEL, karlm. og kvenna, margar gerðir
LEÐURVÖRUR H.F., Strandg. 5, sími 2794
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og
jarðarför
VILHJÁLMS FRIÐLAUGSSONAR,
fyrmrn bónda í Torfunesi.
Vandamenn.
Vlllaf eitthvað nýtt!
KARLMANNAFÖT
STAKIR JAKKAR
TERYLENEBUXUR
FRAKKAR
STAKKAR
SKYRTUR
Gott úrval.
KLÆÐAVERZLUN
SIG. GUÐMUNDSSONAR
SVEFNPOKAR
BAKPOKAR
TEPPI
Ódýr skemmtileg
LEIKFÖNG, nýkomin.
KLÆÐAVERZLUN
SIG. GUÐMUNDSSONAR
(Selt niðri)
Husqvama
Garðsláttuvélar
eru léttar og þægilegar.
SÆNSK GÆÐAVARA.
BRYNJÓLFUR
SVEINSSON H.F.
Vil ráða fullorðna konu
til matreiðslustarfa.
Uppl. í Skíðahótelinu
Hlíðarfjalli.
Hótelstjóri.
Slæður
gular, gulbrúnar og
fleiri litir.
LEÐURVORUR H.F.
Sími 2794
Sólblússur
NÝKOMNAR
Verzl. ÁSBYRGI
TAPAÐ
RAKVÉL TAPAÐIST
á leið í Krossanes.
Skilist á afgr. 'blaðsins.
□ RÚN 59646247 — Jónsm.-.
Kosning St.\M.\ — Rós H&V.
MESSAÐ verður í Akurevrar-
kirkju n. k. sunnudag kl. 10,30
f. h. Sálmar nr. 530, 98, 111,
308 og 415. — B. S.
DRENGJA -OG KVENNAMÓT
í frjálsum íþróttum fer
fram á íþróttaveliinum
að Laugalandi n. k. laug
ardag og hefst kl. 2 e. h.
Sjá nánar í íþróttaþætti.
SUMARBÚÐIRNAR. Ferð til
Sumarbúða Æ.S.K. við Vest-
mannsvatn á vígsludegi 28.
júní 1964. — Farið verður frá
Ferðaskrifstofunni Sögu n. k.
sunnudag kl. 12 á hádegi. Fé-
lagar úr Aðaldeild Æskulýðs-
félags Akureyrarkirkju til-
kynni þátttöku til Þórarins
B. Jónssonar, Brekkugötu 3 í
síma 2438, en félagar úr
Stúlknadeild til Fannýar
Ingvarsdóttur, Möðruvalla-
stræti 5 í síma 1070 og félag-
ar Drengjadeildar til Áskels
Elvars Jónssonar, Þórunnar-
stræti 128 í síma 2204. —
Aðrir þátttakendur tilkynni
þátttöku á Ferðaskrifstofunni
Sögu, sími 2950. Tilkynningar
þurfa að berast fyrir föstudag.
Stjórnin.
SKEMMTIFERÐ IÐJU. — Iðja,
félag verksmiðjufólks á Akur-
eyri, fer skemmtiferð n. k.
sunnudag um Skagafjörð. —
Lagt verður af stað frá Al-
þýðuhúsinu kl. 8 f. h. Ekið
verður að Hólum í Hjaltadal,
síðan á Sauðárkrók og snædd-
ur þar hádegisverður, þaðan
ekið fram í Skagafjarðardali.
Þátttökugjald er kr. 180,00 pr.
mann. Þar í innifalið hádegis-
verður, smurt brauð, mjólk
og gosdrykkir. Farmiðar fást
hjá trúnaðarmönnum Iðju á
vinnustað og á skrifstofu fé-
lagsins. Þátttöku þarf að vera
lokið á fimmtudagskvöld. Fé-
lögum skal á það bent, að
Iðju-ferðalög hafa að jafnaði
þótt bæði skemmtileg og ódýr
og ættu þeir, sem tryggja
vildu sér far, að gera það sem
allra fyrst. — Ferðanefndin.
- Akureyringar unnu
(Framhald af blaðsíðu 2).
hag gefa enga hugmynd um
gang leiksins. Markamunurinn
átti að vera meiri.
Lið Akureyringa er nokkuð
jafnt að styrkleika. Beztir voru
Jón Stefánsson, Steingrímur,
Kári og Ævar Jónsson. Lítið
reyndi á Samúel í markinu.
Siglufjarðarliðið náði ekki
saman í þessum leik. Betri hluti
þess var vörnin. Markmaðurinn,
Ásgrímur Ingólfsson, stóð sig
eftir atvikum vel, en vantar ör-
yggí-
Dómari var Guðmundur Guð-
mundsson úr Reykjavík og
dæmdi vel, og fór leikurinn
drengilega fram.
HJÚSKAPUR. Hinn 16 júní
voru gefin saman í hjónaband
í Akureyrarkirkju ungfrú
Guðrún Jóhannsdóttir ný-
stúdent, Ásvegi 23, Akureyri
og Vilhjálmur Hólmar Vil-
hjálmsson nýstúdent, Merki-
nesi, Höfnum. Heimili þeirra
verður að Ásvegi 23, Akur-
eyri.
F.U.F.-FÉLAG AR. — Munið að
gera strax skil á seldum happ-
drættismiðum.
I.O.G.T. Stúkan Brynja nr. 99
fer skemmtiferð um Skaga-
fjörð og Húnavatnssýslu 4. og
5. júlí n. k. Lagt verður af
stað laugardaginn 4. júlí kl. 1
e. h. Upplýsingar gefa Olafur
Daníelsson, sími 1535 og Ad-
ólf Ingimarsson, sími 1933.
Listar liggja frammi á Sauma
stofu Gefjunar og hjá Adolf
Ingimarssyni, Eyrarvegi 2a.
I.O.G.T. — Stúkan Ísafold-Fjall-
konan nr. 1. — Fundur að
Bjargi fimmtudaginn 25. þ.
m. kl. 8,30 e, h. Fundarefni:
Vígsla nýliða, kosning embætt
ismanna, hagnefndaratriði. —•
Kaffi eftir fund. — Æ. t.
FRA SJÁLFSBJÖRG.
Farið verður í skemmti
ferð í Leyningshóla n.
k. sunnudag, 28. júní.
Lagt af stað frá Bjargi
kl. 12,30. Fargjald og kaffi
kostar kr. 50,00. Félagar til-
kynni þátttöku í síma 1460 og
2917 fyrir fimmtudagskvöld.
Ferðanefndin.
Nýlegur BARNAVAGN
TIL SÖLU.
Uppl. í síma 2945.
MÓTORHJÓL til sölu
Ziindapp Norma,
árgerð 1955, í nrjög góðu
lagi.
Uppl. í síma 2694
eftir kl. 7 á kvöldin.
TIL SÖLU.
Rafmagnsbassi, ásamt
magnara.
Einnig rafmagnsgítar og
kontrabassi.
Upplýsingar gefur
Ingimar Eydal,
Sjálfstæðishúsinu.
Lítið notaður
Tan Sad BARNAVAGN
til sölu í Skólastíg 13.
Sími 1404.
liililiiiill I ÍBÚÐ ÓSKAST til kaups. Mikil útborgun. Uppl. í síma 1009
BÍLASALA HÖSKULDAR
Tek bíla í umboðssölu. Hef kaupendur að bílum. Bílaskipti. milli kl. 9, og 19.
LÍTIL ÍBÚÐ
BÍLASALA HÖSKULDAR óskast til leigu fyrir haustið.
Túngötu 2 — Sími 1909 Uppl. í síma 2452.