Dagur - 24.06.1964, Qupperneq 8
Sumarbúðirnar við Vestmannsvatn, séðar frá suðri. — Ljósmynd: Ljósmyndastofa Péturs, Húsavík.
Sumarbúðirnar viS Vesfmannsvatn
vígðar á sunnudaginn af biskupi landsins,
herra Sigurbirni Einarssyni
SUNNUDAGINN 28: júní ætlar
biskup landsins, herra Sigur-
björn Einarsson, að vígja sum-
arbúðirnar við Vestmannsvatn
í Aðaldal í Suður-Þingeyjar-
sýslu, sem æskulýðssamband
kirkjunnar í Hólastifti hefur
reist þar á staðnum.
! Athöfnin hefst kl. 2 e. h. og
til aðstoðar verða æskulýðs-
fulltrúi, séra Ólafur Skúlason,
og prestar í sambandinu, en kór-
söng annast kirkjukór Grenjað-
arstaðarsóknar. — Biskupinn
predikar og verður guðsþjón-
ustan, ef veður leyfir, úti á
svölum hússins. — Allir eru
velkomnir á staðinn til þátt-
töku í hátíðahöldunum, og geta
þeir sem óska, fengið veitingar
þar að lokinni vígslu.
Hafist var handa við smíði
sumarbúðanna 28. maí 1962 og
hornsteinn að byggingunni lagð
ur þann 8. júlí sama ár. — Síð-
an hefur verkinu verið haldið
áfram, og er húsið fullgert. —
Daginn eftir vígsluna hefst sum
arbúðastarfið með tveimur
drengjaflokkum í júlí og tveim-
ur flokkum fyrir stúlkur í
ágúst. — Ennþá er möguleiki á
að taka nokkra unglinga á nám-
skeiðin. — Sumarbúðastjórar
verða séra Jón Kr. ísfeld og
séra Bolli Gústafsson.
ELDFLAUGARSKOT
FRÁ MÝRDALSSANDI
FRANSKIR vísindamenn undir
búa nú, ásamt íslenzkum vís-
indamönnum, fyrsta geymskot-
ið af íslenzkri grund.
Er hér um að ræða rannsókn-
ir á segulmagni jarðar í hinu
svokallaða Van Allen belti.
Eldflaug verður skotið upp
frá Mýrdalssandi, nálægt Höfða
brekku. Bóndinn á bæ þessum
heitir Ragnar Þorsteinsson, og
gleymdist alveg í hinum stór-
kostlega undirbúningi Frakk-
anna, sem bera hita og þunga
rannsóknanna, að fá leyfi hans
til undirbúnings í landi hans.
Ur þessu var þó bætt á síðustu
stundu. Q
Teikningar af húsinu og eft-
irlit annaðist Jón Gei'r Ágústs-
son byggingafulltrúi, en yfir-
smiður var Svanur Jónsson. —
Bygginganefndina hafa þessir
skipað: Formaður séra Sigurð-
ur Guðmundsson prófastur,
Gylfi Jónsson, séra Sigurður
Haukur Guðjónsson, og er hann
flutti af sambandssvæðinu, tók
séra Birgir Snæbjörnsson sæti
í nefndinni.
í fjáröflunarskyni, til stuðn-
ings þessu málefni, verður efnt
til ferðahappdrættis. Vinningar
eru flugferðir og skipsferð til
Evrópulanda, innanlandsferðir
(Framhald á blaðsíðu 7).
Lýðveldisháfíðin á Sauðárkróki
Frostastöðum 18. júní. Skagfirð-
ingar minntust 20 ára afmælis
lýðveldisins með hátíðahaldi á
Sauðárkróki. Byrjaði það með
guðsþjónustu í Sauðárkróks-
kirkju kl. 11 f. h. og predikaði
sr. Helgi Tryggvason sóknar-
prestur í Miklabæ.
Kl. 1,30 hófst svo útisamkoma
á svæðinu framan við kjörbúð
Kaupfélags Skagfirðinga, sem
sett var af formanni þjóðhátíð-
arnefndar, Friðrik Margeirs-
syni, skólastjóra. Gísli Magnús-
son í Eyhildarholti flutti ræðu,
frú Snæbjörg Snæbjarnardóttir
las ávarp Fjallkonunnar, eftir
Björn Daníelsson, skólastjóra,
fjórir þingeyskir góðvísnasmið-
ir, þeir Baldur á Ofeigsstöðum,
Egill Jónasson, Karl Sigtryggs-
son og Steingrímur í Nesi fóru
með frumsaminn kveðskap við
mikinn fögnuð viðstaddra, en
stjórnandi þess þáttar var Stef-
án Yngvi Finnbogason, tann-
læknir á Húsavík. Á milli þess-
ara atriða sungu svo hinir þrír
karlakórar héraðsins: Karlakór
Sauðárkróks, undir stjórn .Ög-
mundar Svavarssonar, karlakór-
inn Feykir, undir stjórn Árna
Jónssonar og karlakórinn Heim
ir, undir stjórn Jóns Björnsson-
ar. Sungu kórarnir bæði hver
fyrir sig og auk þess þrjú lög
sameiginlega.
Hátíðin var mjög fjölmenn og
var þó veður óheppilegt, stöð-
ug rigning og nokkur norðan-
gola. Leiddi veðurfarið til þess,
að íþróttakeppni, sem fram átti
að fara, féll niður utan sund-
keppni. Undir kvöldið var kvik-
myndasýning í Bifröst og um kl.
10 hófst dansleikur, sem stóð
nokkuð fram yfir miðnætti.
í þjóðhátíðarnefndinni áttu
sæti: Friðrik Margeirsson, Helgi
Rafn Traustason, Sveinn Frið-
vinsson og Sigurgeir Þórarins-
son. — mhg
NÚ í fyrsta sinn verða haldin
hér í bæ sumarnámskeið á veg-
um Tízkuskóla Andreu. Ætlun-
in er að halda slík námskeið á
sumri hverju í framtíðinni. —
Námskeiðin eru með tvennu
móti, annars vegar tízkunám-
skeið og hins vegar snyrtinám-
skeið.
í tízkuskóla læra stúlkur m.
a. að ganga fallega og bera sig
eðlilega. Það er misskilningur
að halda, að kennslan sé ein-
göngu miðuð við þarfir þeirra,
sem ætla að gerast sýningar-
stúlkur, enda þótt segja megi,
að engin stúlka sé fær um að
sýna föt á tízkusýningu nema
sú sem tileinkað hefur sér .rétt
göngulag og tilgerðarlausan
limaburð, og þeim sem tekst
það verða um leið ekki? að-
eins öruggari heldur líka sið-
fágaðri í framkomu. Hér er
■ ekki úr vegi að geta þess, að
reynt er að gera það sem hægt
er fyrir nemendur skólans.
Stúlkur eða konur, sem vilja
t. d. megra sig, læra sérstakar
megrunaræfingar, sem gefa yf-
irleitt mjög góða raun. Kennar-
ar skólans reyna líka eftir beztu
getu að telja kjark og sjálfs-
traust í þær stúlkur, sem þjást
vegna feimni eða öryggisleysis
í framkomu.
Á snyrtinámskeiðunum læra
nemendur flest það, sem viðvík-
ur dag- og kvöldsnyrtingu
kvenna. Fróðlegt er að geta
þess hér, að það er brýnt sér-
staklega fyrir ungum stúlkum
Síldarafiinn yfir 300 þúsund mál
GÓÐ síldveiði var síðustu viku,
fyrst djúpt út af Langanesi, en
síðan kom síldarganga á Aust-
fjarðamið og veiddist þar vel,
15—40 mílur undan landi, allt
frá Héraðsflóa til Reyðarfjarð-
ar.
Vikuaflinn varð um 147 þús.
mál og lunnur. En heildaraflinn
var í lok síðustu viku orðinn
301.337 mál og tunnur, þar af
fóru 5.422 tunnur í frystingu.
Á sama tíma í fyrra var heild-
araflinn aðeins 134.134 mál og
tunnur.
Bræðslusíldaraflinn skiptist
þannig á löndunarstaðina, mi'ð-
að við vikulok:
Siglufjörður
Hjalteyri
Krossanes
Húsavík
Raufarhöfn
Vopnafjörður
Bakkafjörður
Seyðisfjörður
Reyðarfjörður
Fáskrúðsfjörður
Breiðdalsvík
G2.447 mál
18.267 mál
30.948 mál
8.942 mál
86.374 mál
41.235 mál
2.105 mál
21.165 mál
13.532 mál
6.950 mál
3.953 mál
«55555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555555«
íþrótfa- cg félagsnámskeið að
Laugalandi í Eyjafirði
Á SUNNUDAG hefst að Lauga
landi í Eyjafirði námskeið í
íþróttum og félagsstarfi fyrir
unglinga á aldrinum 12—-16 ára
og stendur það yfir í viku.
Það er UMSE, ÍSÍ og UMFÍ
sem standa að námskeiðinu.
Á daginn verður leiðbeint í
fi'jálsum íþróttum, knattspyrnu,
handknattleik, sundi, leikfimi
og farið verður í ýmsa leiki. —
Einnig verður kynning á starfs-
íþróttum, Á kvöldin verða kvöld
vökur, þar sem þátttakendur
sjálfir undirbúa dagskráratriði
að einhverju leyti. Þá fer fram
kennsla í almennum dönsum og
þjóðdönsum. — Sýndar verða
íþróttamyndir og nokkrir gest-
að fara sparlega og smekklega
með snyrtivörurnar, enda er fátt
hvimleiðara en ósmekklegt
bruðl, bæði í tíma og ótíma, og
er ólærðum sérstaklega hætt
við því. Tízkuskóli Andreu hef-
ur umboð fyrir Lancome, sem *
býr til einhverjar þær vönduð-
ustu snyrtivörur, sem völ er á.
Kennarar skólans eru þær frú
Andrea Oddsteinsdóttir og frú
Sigríður Straumland.
Frú Andrea var við nám í
, heilan vetur í Tízkuskóla Lucky
ar í París. Lucky þessi var um
tíu ára skeið eftirlætissýningar-
.stúlka Christians Diors, tízku-
kóngsins heimsfræga. F-rú Sigur
. laug er hins vegar útskrifuð úr
snyrtiskóla Lancome í París.
Nemendum skólans er skipt
í flokka eftir aldri að svo miklu
leyti, sem því verður við kom-
ið. Auk ungkvennaflokka eru
t. d. sérstakir frúarflokkar. ■ □
ir munu heimsækja námskeið-
ið, þ. á. m. Vilhjálmur Einarsson
kennari.
Forstöðumaður verður Hösk-
uldur Goði Karlsson íþrótta-
kennari.
Aðstaða á Laugalandi er mjög
góð, þar er ný sundlaug, góður
íþróttavöllur, vandað samkomu-
hús og aðbúnaður í Kvennaskól-
anum hinn bezti.
Um 40 unglingar hafa ákveð-
ið að sækja námskeiðið, en enn
má bæta við fleirum og tekur
Þóroddur Jóhannsson Akureyri,
sími 2522, við umsóknum sem
þurfa að berast fyrir n. k. laug-
ardag. □
Frú Andrea Oddsteinddóttir,
— forstöðukona tízkuskólans.
AFLI AÐ GLÆÐAST
VIÐ LANGANES
uanganesi 21. júní. í fyrsta siniv.
á þessu ári berst góður afli á
línu — á land í Þórshöfn í gær.
Daníel Þórhallsson frá Siglu-
firði hefur tekið söltunarstöð
Fiskiðjuvers á Þórshöfn á leigu
og undirbýr síldarsöltun þar.
Komnar eru þangað tunnur og
salt.
Fyrir nokkrum dögum höfðu
30 refir verið unnir á Langa-
nesi og í Þistilfirði. En talið er,
að greni þar og á Tungusels-
heiði, gömul og ný, séu 90 tals-
ins og álíka mörg í Þistilfirði og
Þistilfjarðarheiðum. □
Nýtt félag á Húsavík
Húsavík 22. júní. Á Húsavík er
hafinn undirbúningur að stofn-
un félags um varnir gegn hjarta
og æðasjúkdómum. Stofnfundur
er ákveðinn föstudaginn 26.
júní. — Á fundinum mætir
prófessor Sigurður Samúelsson
og flytur erindi um þetta mál-
efni. Þ. J.
Tízkuskóli Andreu á Ákureyri