Dagur - 23.09.1964, Side 8
8
SMÁTT OG STÓRT
Nýja ui.uu.o n^a i^auguiii i ive.yKjauai.
(L,Josniynu: G. G.)
.Nýít útibú K. Þ. lijá
Hin nýja bygging vckur sérstaka athygli
11111
25. ágúst sl. tók til starfa nýtt
útibú Kaupfélags Þingeyinga
við þjóðveginn hjá Laugum í
Reykjadal.
Teikningu að húsinu gerði
Friðgeir Axfjörð, Húsavík og
hófst smíði þess sumarið 1962.
Yfirsmiður var Hróar Björns-
•son, smíðakennari, Laugum.
Framkvæmdir lágu svo niðri
þar til sl. vetur og sumar að
unnið var að því að fullgera
húsið. Teikningar að innrétting
um gerði Sveinn Kjarval, hús-
gagnaarkitekt, Reykjavík. Eru
þær mjög með nýtízkusniði og
þykja húsakynnin hin glæsileg
ustu.
Aðstæður eru þarna til rekst
urs fjölbreyttrar matvöruverzl-
unar og veitir útibúið velþegna
þjónustu íbúum Reykjadals og
einig má vænta viðskipta við
hinn ört vaxandi ferðamanna-
straum um þjóðveginn til Mý-
vatnssveitar og Austurlands.
í húsinu eru snyrtiherbergi til
rými, þar sem fólk getur neytt
nestis' eða annarrar hressingar,
Má ætla að á næsta sumri verði
rekstri útibúsins að einhverju
leyti hagað með tilliti til þjón-
ustu við ferðafólk, svo sem við-
víkjandi afgreiðslutíma.
Starfsfólk útibúsins er fyrst
um sinn Guðmundur Gunnars-
son, útibússtjóri og Hrönn Benó
nýsdóttir, afgreiðslustúlka.
G. G.
Kynnirpr
FÉLAG íslenzkra Bifreiðaeig-
enda efndi til kynningax-fundar
hér ó Akureyri síðastliðinn laug
ardag.
Arinbjörn Kolbeinsson lækn-
ir, foi'maður félagsins, flutti
mjög fróðlegt erindi um starf-
semi félagsins og áhugamál svo
sem vegamál, tryggingarmál,
slysamál, hægrihandarakstur og
fleira. Hann upplýsti m.a., að
þótt fjárframlög til vega hefðu
aukist um 100 millj. á þessu ári
þá sæi þess ekki staðar vegna
þess hve kostnaður hefði aukizt
mikið við lagningu og viðhald
vega og aukinnar dreifingu fjár
ins. Framlög til vega á þessu ári
væru 245 millj. en hefði þurft
að vera um 400 millj. ef veru-
leg bót ætti að vera að og þar
sem bifreiðaeigendur greiða á
þessu ári um 570 millj. í skatta
af bifreiðum og rekstrarvörum
þeiri'a, þó mætti teija það sann
girniskröfu að megin hluta þess
fjár yrði varið til endurbóta á
vegakerfi landsins.
Olíumalartilraunirnar, sem
gerðar voru í fyrra virðast hafa
gefist vel, sagði Arinbjörn, sér-
staklega hér á Akureyri, en eng
ar framhaldstilraunir hefðu ver
ið gerðar i ár. Þetta hlyti samt
að verða eitt af úrræðum fram
tíðarinnar til að bæta vegakerfi
landsins og vegagei'ð ríkisins
hefði áhuga fyrir þessu.
Sigtryggur Stefánsson fulltrúi
(Framhald á blaðsíðu 7).
KJÓRDÆMISÞINGH)
VEL SÓTT
Framsóknarfélögin hér í kjör-
dæminu héldu, sem kunnugt er
sambandsþing eða kjördæmis-
þing sitt á Laugum dagana 29.
og 30. ágúst sl. Góðviðri var
þessa daga og þingsókn góð sem
fyrr. Mættu þar hátt á sjöunda
tug fulltrúa auk gesta, sem þang
að komu til að hlýða á mál
manna.
Þetta kjördæmisþing er hið
sjötta í röðinni, og hafa þau öil
nema eiít verið haldin að Laug
um í Reykjadal. Laugar eru á-
gætur fundarstaður og öll að-
staða til þinglialds góð á þessum
tíma árs. Þingsóknin var tiltölu
lega jöfn úr öllum kjördæminu,
aílt frá úr Ólafsfirði til Langa-
ness.
FUNDURINN í
SKÚLAGARÐI
Annar fundur merkur, var hald
inn í Skúlagarði í Kelduhverfi,
og ekki á vegum stjómmálasam
taka, en sex alþingismenn voru
þar þó mættir samkvæmt ósk
fundarboðenda.
Búnaðarsamband N-Þingey-
inga gekkst fyrir boðun þessa
fundar og var sagt frá honum
í síðasta blaði. Fundurinn var
almennur héraðsmálafimdur og
ekki einskoraður við landbúnað
armál, þótt samtök bænda hefðu
forgöngu.
Fundarmenn voru á annað
liundrað og stóðu umræður
• lengi dags. Ýmsir höíðu orð á,
að slíka fundi þyrfti oftar að
halda, helzt ár hvert og víða um
Iand. Landbúnaðarráðherra,
sem þama skaut upp kollinum
b á skemmtisamkomu Sjálfstæðis
flokksins daginn eftir, var eitt-
hvað óánægður með ályktanir
fundarins og kvartaði um, að
sér hefði ekki verið boðið! Sú
kvörtun var á misskilningi
byggð, því að þarna vom
ýmis mál tekin til meðferðar,
sem heyra undir aðra ráðherra,
og hefði þá ekki siður átt að
bióða þeim. En fundarmenn
Þcrarinn Þórarinsson fimmlugur
í útibúinu.
(Ljósmynd: G. G.)
í GÆR lágu tvö rússuesk skip
í höfn á Akureyri, bæði frá Mur
mansk. Annað er tankskip, sem
flytur vatn til rússnezka veiði-
flotans í norðurhöfum, og var
þeii-ra erinda hér, að taka vatn
Hitt er björgunar- og drátt-
arskip, mjög vel búið, og var
það einnig að taka vatn. Rúss-
neskir sjómenn voru á götum
bæjarins í gær margir þeirra
myndarlegir í sjón en ekkj til-
haldslegir í kiæðaburði, kurteis
ir menn og ekki til vandræða í
landi, svo sem alltítt er þó um
erlenda sjómenn í íslenzkum
höfnum, þegar aginn er tak-
markaður. Q
ÞÓRARINN Þórarinnsson ritstj.
og alþingismaður varð fimmtug
ur sl. laugardag, 19. september.
Hann hefur verið ritstjóri Tím-
ans frá 1938 og alþingismaður
Reykvíkinga síðan 1959. Hann
var fyrsti form. Sambands ungra
Framsóknai'manna og einnig
fyrsti formaður bindindisfélaga
í skóium. Sæti á hann í útvai'ps
ráði og fjöldamörgum ráðum og
nefndum. Kvæntur er Þórarinn
Ragnheiði Vigfúsdóttur, Þormar
frá Geitagerði í Fljótsdal en
sjálfur er Þórarinn Snæfelling-
ur að ætt.
Þórai'inn hefur nú staðið í
fremstu víglínu þjóðmálabarátt
unnar meii-a en aldarfjórðung,
aðeins fimmtugur að aldri og
hefur lagt fjölmörgum þýðingar
mestu framfaramálum öflugt lið.
Þói-arinn er skarpur maður og
rökvís. Sérstaka athygli hafa
fjölmargar greinar hans um al-
þjóðamál vakið, og hann mun
einn málsnjallasti alþingismað-
urinn á þessum árum.
menn sína til viðtals.
BARA ÞEIR SELJI NÚ
EKKI MEIRA EN FISKINN
Svo er að sjá í Þjóðviljanum, að
Sósíalistaflokkurinn (ekki Al-
þýðubandalagið!) hafi verið að
selja síld og þorsk austur í Rúss
landi. Við skulum vona, að þeir
kumpánar liafi ekki selt landið
í misgripum fyrir fiskinn!
Það er óvenjulegt, að útlend
ir semji um vörukaup við póli-
tíska floklta og að politískir
flokkar hafi slík viðskipti með
höndum. En Sósíalistaflokkur-
inn er líka óvenjulegur flokkur.
„fSLENDINGUR“ A BÁGT
íslendingur birti forsíðufrétt um
það á föstudaginn að ritstjóri
Dags hafi ekki setið iðnþingið,
sem nýlega var lialdið á Akur-
eyri og „Svo heimtar hann bara
fréttir“ segir blaðið. Það var fal-
lega gert af íslendingi að sakna
ritstjóra Dags, sem því miður
var fjarverandi, og tjá söknuð
sinn á fremstu síðu. En það er
liinsvegar mjög Ieiðinlegt, að
ritstjóri íslendings skuli vera
svo fáfróður um tignustu konu
landsins, nýlátna, frú Dóru Þór
hallsdóttur, sem raun ber vitni
í síðasta blaði lians. Þar skákar
ritstjórinn lienni norður að Eyja
firði og lætur liana annast þar
búsýslustörf. Er nú ekki nema
um tvennt að velja fyrir ritstjór
ann, að biðjast afsökunar á fá-
vizku sinni eða færa rök að
hinni nýju kenningu.
Þorarum Þórarmnsson
Dagur árnar afmælisbarninu
allra heilla á þessum tímamót-
um.
FRÁ LÖGREGLUNNI
Á laugardaginn valt bifreið á
götunni framan við Hafnarstr.
35 Akui-eyri. Ökumaðurinn
mun hafa litið til hliðar með
fyri'greindum afleiðingum. Bif-
i'eiðin var á lítilli ferð. Hún
skemmdist allmikið. Ökumann
og tvö börn, sem voru í bílnum
sakaði ekki.
Þá valt jeppabifreið á sunnu-
dag vestan til á Vaðlaheiði. Var
hálka á veginum þar og missti
ökumaður stjói'n á bifreiðinni.
Við veltuna hlaut ökumaður á-
verka á höfði, en kommst til
breja og tilkynnti um atburðinn.
Bíllinn skemmdist allmikið.
Vörubifreið valt út af þjóð-
veginum í Dalsmynni í síðustu
viku. Ökumaðurinn slapp ó-
meiddur en bifreiðin skemmd-
ist lítilsháttar.
Á mánudaginn kviknaði í Bu-
ick-bifreið, sem stóð á þjóðvegin
um við Laufás. Skemmdir urðu
allmiklar og er bíllinn óökufær.
Samkvæmt upplýsingum lög-
reglunnar á Akureyri ber mikið
á skemmdarverkum á bifreið-
um í bænum.
Hafa bílarnir verið rispaðir að
Utan, rúður brotnar í þeim og
fleiri spellvirki unnin. Ekki
hefir tekist að hafa upp á
skemmdarvörgunum. Mikið ber
á að ljósabúnaður bifreiða sé
ekki í lagi en lögreglan hefir
verið að athuga þau mál að und
anförnu.
(Framhald á blaðsíðu 5).